Morgunblaðið - 06.12.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. DESEMBER 1974
7
Frú Alvís úr Eyjum
á meginlandsreisu
Leikfélag Vestmannaeyja sýnir
um helgina í Vík í Mýrdal,
á Selfossi og Seltjarnarnesi
Leikfélag Vestmannaeyja
bregdur sér I sýningarferðalag
upp til fastalandsins nú um
helgina með sakamála- og
gamanleikritið Frú Alvís, en
það hefur sýnt það verk í
Eyjum að undanförnu við
góðar undirtektir.
Fyrsta sýning Leikfélags
Vestmannaeyja að þessu sinni
á meginlandinu verður í Vík í
Mýrdal föstudagskvöldið 6. des.
kl. 21, önnur sýning verður í
Selfossbíói kl. 21 á laugardags-
kvöld og þriðja sýningin verður
í Félagsheimilinu á Seltjarnar-
nesi á sunnudagskvöld kl. 21.
Höfundur gamanleikritsins
Frú Alvfs er brezki leikritahöf-
undurinn Jack Poppelwell, en
leikstjóri er Ragnhildur Stein-
grímsdóttir.
Sakamála- og gamanleikritið
frú Alvís er fyrsta verkefni
Leikfélags Vestmannaeyja í
Eyjum eftir gos, en á meðan á
gosi stóð sýndi félagið leikritið
Margt býr 1 þokunni bæði á
meginlandinu og úti 1 Vest-
mannaeyjum s.I. haust. Um jól-
in hyggst Leikfélag Vest-
mannaeyja efna til jólasýn-
ingar ásamt Samkór Vest-
mannaeyja og Lúðrasveit Vest-
mannaeyja.
Síðar f vetur hyggst LV sýna
leikritið Hart 1 bak eftir Jökul
Jakobsson.
Leikarar í Frú Alvfs eru:
Edda Aðalsteinsdóttir, Unnur
Guðjónsdóttir, Þorvaldur Hall-
dórsson, Gréta Scheving, Marta
Björnsdóttir, Sigurgeir Schev-
ing, Guðmundur Jensson og
Þorbjörn Pálsson.
Sviðsstjóri er Óli Valtýsson,
ljósameistari Guðmundur Jóns-
son og aðrir sviðsmenn eru
Sigurjón Jónsson og Snorri
Vestmann.
Leikfélag Vestmannaeyja
hefur starfað 1 yfir hálfa öld og
ávallt hefur mikil leikgleði ríkt
1 félaginu. Ósjaldan hafa leik-
félagsmenn brugðið sér til
meginlandsins og sýnt fyrir
landsmenn á fastalandinu við
góðar undirtektir.
Þorvaldur Halldórsson, Gréta Scheving og Edda Aðalsteinsdóttir.
Nokkrir leikara Leikfélags Vestmannaeyja, sem leika 1 Frú Alvfs:
Frá vinstri: Marta Björnsdóttir, Þorvaldur Halldórsson, Gréta
Scheving, Edda Aðalsteinsdóttir, Unnur Guðjónsdóttir og Sigurgeir
Scheving. Ljósmyndir Mbl. Sigurgeir f Eyjum.
Það er bara svona, það munar ekki uili IUJU óiv.arhnykkinn.
Guðmundur Jensson og Unnur
Guðjónsdóttir f hlutverkum
sfnum.
5 herb. íbúð til leigu i Kópavogi í eitt ár frá 1. jan. Tilboð ' sendist afgr. Mbl. merkt: X-1 20-2069 " fyrir 11. þ.m. Félag einstæðra foreldra Óskar eftir starfskröftum tii að prjóna trefla. Allar upplýsingar á skrifstofunm simi 1 1822.
Leikjateppin með bilabrautum fást i Nökkva- vogi 54, simi 34391. Sendum gegn póstkröfu. Kápur og jakkar til sölu sumt á mjög hagstæðu verði. Kápusaumastofan Oiana, Miðtúni 78. Simi 18481.
Barok — Roccoco — spánskur stíll Get aftur tekið að mér sérsmiði úr járni:. gluggagrindur, stofugrindur, húsgögn, lampar ofl. (innanhúss- smíði). Leifur Valdimarsson, simi 81368. Hveragerði Af sérstökum ástæðum er Fisk- búðin i Hveragerði til sölu. Uppl. i sima 4371 og4477.
Til sölu tveir miðstöðvarkatlar 3Vi fm. Upplýsingar i sima 40044. Verksmiðjuútsala Anna Bergmann, Dalshrauni, 1. Hafnarfirði. Kjólar, buxur, peysur o.m.fl. Föstudaga, 2—6, laugardaga 10—4 til jóla.
Góð en gömul Siemens rafeldavél, hvit með 3 hellum og loki til sölu. Litur mjög vel út. Verð kr: 22 þús. Uppl. i sima 1 5503. Hnakkur — Beizli — notað Óska eftir að kaupa notaðan hnakk og beizli. Uppl. í sima 50749.
Herbergi óskast til leigu. Upplýsingar í síma 26700. Ung hjón utan af landi með eitt barn vantar 2ja—3ja herb. íbúð á leigu á Reykjavíkursvæðinu. Tilboð sendist Mbl. merkt: V- 8810.
Óska eftir að kaupa Volvo Laplander. Má vera ógangfær. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Volvo — 8805" sem fyrst. Tvær 19 ára stúlkur óska eftir vinnu. Margt kemur til greina, önnur hefur bil til umráða. Upplýsingarf síma 52006 milli kl. 5 og 7.
Rafha eldavél eldri gerð til sölu. Upplýsingar i síma 12621. idfci MR ER EITTHVH 7$ FVRIR RLLR á J*tor0jinbIaM&
RowenfA
hárþurrka
á gólfstatífi.
Afkastamikil
þurrka.
Litur:
Orange.
Nauðungaruppboð
Nauðungaruppboð á fasteignunum Borgarbraut 33 og Kveldúlfsgötu 4
Borgarnesi sem auglýst var í 1 4., 1 6* og 1 7. tölublaði Lögbirtingablaðs-
ins 1 974 verður sett í skrifstofu embættisins í Borgarnesi miðvikudag-
inn 18. desember 1974 kl. 14 eftir kröfu lögmanna í Reykjavík,
innheimtu rikissjóðs í Mýra og Borgarfjarðarsýslu og sveitastjórans í
Borgarnesi samkvæmt þinglýstum fjárnámsgerðum og lögtökum og
síðan háð á fasteignunum sjálfum eftir nánari ákvörðun réttarins.
Borgarnesi 3. desember 1974
Sýslumaðurinn í Mýra og Borgarfjarðarsýslu.