Morgunblaðið - 03.08.1975, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGÚST 1975
7
Sr.BOLLI
GÚSTAFSSON
í Laufási:
„Ekkert er hættulegra
æskunni en neikvæð af-
staða til lífsins og kæru-
leysi.“ Þannig komst
norski rithöfundurinn
Knut Hamsun, m.a. að
orði, er hann veitti
Nóbelsverðlaunum við-
töku í Stokkhólmi árið
1920. Honum varð tíð-
rætt um æskuna á þeirri
miklu hátíðarstundu, í
bjarma þess heiðurs, sem
honum hafði fallið í
skaut. „Mig brestur
æsku“, mælti hann með
eftirsjá þess lifandi
manns, sem kominn er á
efri ár. Okkur er öllum
vel ljóst, sem tilheyrum
þjóðfélagi allsnægta, að í
velsældinni dafnar ein-
mitt neikvæð afstaða til
lífsins og kæruleysi eins
og arfi í votviðri og
hlýindum. Undanfarin ár
hefur ungt fólk yfirleitt
ekki þurft að hafa mikið
fyrir lífinu né skort f jöl-
breytt lífsgæði, heldur
miklu fremur viðnám til
að stæla þrek, andlegt og
líkamlegt. Heimskunnur
æskulýðsleiðtogi, Lord
Baden Powell ritaði í
síðasta bréfi sínu til skát-
anna: „Ég trúi því að Guð
hafi sent okkur inn í
þennan heim til þess að
njóta lífsins og verða
hamingjusöm.
Hamingjan er ekki fólg-
in f því að vera ríkui; né í
því eingöngu að þér
gangi vel eða eftirlátsemi
við sjálfan þig. Eitt skref
í áttina til hamingjunnar
er að gera þig heilbrigð-
an á meðan þú ert ungur,
svo að þú getir orðið
þarfur maður og þannig
notið lífsins.“ — íslenzk
æska er í brýnni þörf fyr-
ir hressandi hugsjónir
skátahreyfingarinnar,
einmitt vegna þess, að
hún leggur áherzlu á
mikilvægi þess viðnáms,
sem stælir og mótar heil-
brigt fólk. Hún tengir
félagsstarf sitt
náttúrunni og finnur að
„út í móum, upp til
heiðar á sér viljinn stál
og brýni.“ Þeir sem taka
virkan þátt í skátastarfi,
gera það, sem í þeirra
valdi stendur, til þess að
rækja skyldur sínar við
Guð og ættjörðina.
Raunar hefur margt
verið ritað um þessa
gagnmerku hreyfingu,
sem starfað hefur í rúm
60 ár hér á landi, en af
tveim ástæðum finnst
mér við hæfi að leiða
hugann að henni núl
fyrsta lagi hefur það vart
farið fram hjá neinum,
að um þessar mundir er
háð alþjóðamót,
Jamboree, hjá frændum
okkar í Noregi og þar
dvelja nú 350 íslenzkir
skátar. Aldrei fyrr hefur
slíkur f jöldi íslendinga
sótt alþjóðamót, sem
stefnir markvisst að
bræðralagi og friði. Þar
eru ekki farnar troðnar
slóðir pólitískra ráð-
stefna, þar sem glamrað
er yfir skálum og hin
silkimjúkai
„diplómatíska“ kænska
og bellibragðaþrá sitja f
fyrirrúmi; sú hundslega
óeinlægni, sem
almenningur er orðinn
dauðþreyttur á og leitt
hefur til algjörrar van-
trúar hans á pólitískum
ráðherrafundum eða
leiðtogasamkomum.
Orðið Jamboree mun
hafa táknað friðareld
Indíánaflokka. Við þá
elda söfnuðust villi-
mennirnir saman, þegar
endir skyldi bundinn á
missætti og erjur. Nú er
Jamboree staður þar sem
friður er styrktur á
drengilegan hátt i sam-
starfi, íþróttum og heil-
brigðum leikjum skáta-
útilegunnar. Baden
Powell mælti á fyrsta
Jamboreeinu, sem haldið
var árið 1920 í Olympíu-
garðinum í Englandi:
„Stríðið hefur kennt
okkur, að reyni ein þjóð
að kúga aðra til undir-
gefni, munu grimmilegar
gagnráðstafanir fylgja á
eftir. Jamboree hefur
kennt okkur að sýnum
við hver öðrum um-
burðarlyndi og gefum og
þiggjum, þá mun allt
falla í ljúfa löð. Sé það
vilji ykkar, þá skulum við
fara héðan ákveðnir í því
að efla meðal okkar
sjálfra og drengja okkar
slíkan vinarhug með
bræðralagi skáta um
allan heim, svo að við
megum koma á friði og
vinarhug milli þjóðanna
og bróðurhug meðal
manna. Skátabræður!
Svarið mér. Viljið þið
taka þátt í þessari við-
leitni?“ Þessari
spurningu fyrsta al-
heimsskátahöfðingjans
Stál og
brýni vilja
og þreks
hafa skátar svarað með
því að berjast drengilegri
baráttu gegn neikvæðri
afstöðu til lífsins og gegn
hverskyns kæruleysi. —
önnur ástæða þess, að
hér er fjallað um jákvætt
gildi skátahreyfingar-
innar fyrir þjóðfélagið er
sú, að þann 16. júlí sl. lézt
einn af merkustu æsku-
lýðsleiðtogum Islands,
Tryggvi Þorsteinsson
skólastjóri á Akureyri.
Hann var um áratugi
einn styrkasti máttar-
baðmur skátastarfs í
landinu. Við erum fjöl-
mörg sem eigum honum
margt gott upp að inna.
Hann brast aldrei æsku
og vegsögn hans var
óbrigðul og heil. Hann
kvað markmið skáta-
hreyfingarinnar vera að
ala ungmenni upp með
verklegri, líkamlegri,
andlegri og trúarlegri
þjálfun, svo þau yrðu
nýtir menn og konur. Og
hann benti einmitt á það,
að skátahreyfingin hafi
löngum reynt að færa
skátunum raunhæfa
trúarskoðun og hvatt þá
til að láta trúna koma
fram í verkunum. Þetta
er sannleikurinn um
skátastarfið, að hvar sem
það er rækt af einlægni
og því beitt sem uppeldis-
kerfi, að þar leiðir það til
blessunar. Við erum í
þörf fyrir aukið starf
skátahreyfingarinnar á
íslandi og samstarf og
samband hennar og krist-
innar kirkju mætti auk-
ast og styrkjast. Æsku-
lýðsstarf kirkjunnar
hefur ekki áhrifamátt
skátastarfsins einmitt
vegna þess, að það veitir
ekki viðnám til átaka á
borð við leiðir skáta-
hreyfingarinnar. Kristin
kenning mælir eindregið
með þeirri lífsafstöðu að
menn ræki þá skyldu af
samvizkusemi, að fara
vel með og ávaxta gjafir
Guðs, og að þeir sýni
drengskap bæði í orði og
verki. „Ekki mun hver sá
er við mig segir: Herra,
herra, ganga inn í
himnariki, heldur sá, er
gjörir vilja föður míns,
sem er í himnunum."
(Matt. 7, 21). Þessi orð
Jesú Krists hefur skáta-
hreyfingin látið sér að
kenningu verða og það
leiðarljós orðið henni til
heilla.
Að sjálfsögóu vegna einstakra gæóa
Reyplasteinangrunar.
1. Hitaleióni er mjög takmörkuó (lamdagiidi 0,028 - o,03Q)
2. Tekur nólega engan raka eóa vatn í sig
3. Sérlega létt og meófœrileg ^ÉIlll
Yfírburðir REYPLASTeinangrunar eru augljósir og ^É|§
enn sem fyrr er REYPLAST í fararbroddi.
REYPLAST hf. tSSj
lcefood
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4—6,
Hafnarfirði.
Seljum reyktan lax og graflax
Tökum lax í reykingu
Útbúum graflax
Vacuum pakkað ef óskað er
Póstsendum um allan heim.
ISLENZK MATVÆLI
SÍMI 51455
Saumavélaborðin
eru komin aftur
verðið er enn hagstætt. Borðin eru fáanleg
úr álmi, tekk, eik og furu (nýtt).
Skápanir fyrir töskuvélarnar eru með þriggja
þrepa lyftibúnaði.
1. Neðsta staða: Vélin geymd.
2. Miðstaða: Fríarmurinn á vélinni er nú jafn
borðplötunni.
3. Efsta staða: Fríarmurinn fyrir ofan
Með smávægilegum breytingum er einnig
hægt að nota þessi borð fyrir flestar aðrar
saumavélar.