Morgunblaðið - 03.08.1975, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 03.08.1975, Qupperneq 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGUST 1975 Auðunn H. ík Einarsson: Wm&mMózáé< Sandfell um aldamótin Sandfell í öræfum A síðastliðnu ári var haldið hátíðlegt ellefu hundruð ára af- mæli íslandsbyggðar. Voru þá haldnar margar ræður, þar sem menn rifjuðu upp sögu liöinna alda einnig var horft fram á veg. Einn var sá atburður, er tengdi þjóðina meira saman en flest annað. og á ég þar við hringveg- inn, er hann var hátíðlega opn- aður. Það var stór stund, og var margt stórmenni og leiðtog- ar þjóðarinnar þar saman komnir. En þó var það ekki gæfan ein sem fylgdi. Ef ek ið var frá Reykjavík og farið yfir brýrnar, mátti sjá, er í Ör- æfin kom, bæina standa í hlíðum fjallanna, með viðáttu sandsins og brimisorfna strönd í fjarska, en fannhvíta jökla að baki. Himinninn var tær fyrrnefndan vfgsludag. Niður jökulvatnanna var ekki þungur þennan dag, en þó hafa jökulárnar deilt löndum greini- lega mtlli iiræfa og næstu granna. Þegar ekið var af hátiðarsvæðinu og austur, gátu ókunnugir glöggvað sig á nöfnum bæjanna. Þar sem vegvísarnir bentu. Skaftafell, Svínafell, Sandfell, þar stendur einnig á skilti: Landnámsjörð prestssetur frá 14. öld til 1931, í eyði. En þó bær hafi staðið þar sem lengi, voru húsin nú horfin. Væri ekið afleggjarann til bæjarins, kom í Ijós að jarðýta hafði sléttað úr bæjarhúsunum, SANDFELL A þjOðhátioarAri Þegar hringvegurinn var opnaður, var talið rétt, að ráða- menn í Reykjavik litu til Öræfa- sveitarinnar með það í hug, hvað þar mætti betur fara. Varð niður- staðan sú, að bæjarhús lands- námsjarðarinnar væru betur komin undir grænan svörð en standa þar, sem þau hafa staðið um aldir. Landbúnaðarráðuneytið fer með mál þau, er falla undir jarð- eigmr íslenska ríkisins og sá, sem hefur með þessi mál að gera inn- an ráðuneytis er séra Gísli Brynjólfsson. Nokkrir bændur i Öræfum hafa leigt tún Sandfells, og afgjaldið er greiða skyldi var, að þeir tækju á leigu jarðýtu og sléttuðu úr bæn- um, en þeim þótti þungbært að fara slíkum höndum um prests- setrið sit fyrrverandi, og færðust undan. En þegar haldið var hátið- legt 1100 ára afmæli byggðar í landinu, kom skipun frá hinu háa ráðuneyti. Og undan þeim tilskíp- unum verður ekki komist. SANDFELL »74—1974 I Landnámu segir: „Þorgerður landnámskona nam allt Ingólfs- höfðahverfi á milli Kvíár og Jökulsár og bjó að Sandfelli.“ Árið 1179 er að Sandfelli hálf- kirkja og lá að saung undir Rauðalæk. En Öræfingar hafa búið við harm hinna harð- ari náttúruafla, jökulhlaup, gos í eldfjöllum undir jökli með tilheyrandi öskufalli, hafa oft leikið sveitina hart, og fellt bústofn bænda. Árið 1362 var gos i Öræfajökli og tók þá af Rauða- lækjarsókn, sem i voru 36 bæir, og hurfu þeir af yfirborði jarðar á skammri stund. En þá varð aðal- kirja héraðsins að Sandfelli, en Hof var annexían. En vegur Sand- fells átti eftir að verða meiri í samfélagi bæjanna í Öræfum. Um 1500 á kirkja á Sandfelli orðið allt heimaland, enda er það höfuð- kirkja héraðsins. Gissur biskup Einarsson veitir Sandfell í Öræfum 1544 og verður þá prestur þar Jón Einarsson. Síðan hefur verið samfelld búseta presta að Sandfelli, þar til séra Eiríkur Helgason flytur að Bjarnarnesi 1931. Lengi voru tvær kirkjusóknir í Óræfum, Skaftafells- og Hofsókn, en 1914 var ákveðið að sameina söfnuðina og var þá kirkjan að Sandfelli rifin, en kirkjan að Hofi verður aðalkirkja héraðsins. Eftir að prestar höfðu setið Sandfell í tæp 400 ár, tóku bændur við jörðinni og jörðin var í ábúð til 1942, er síðasti ábúandinn fluttist brott. Hefur verið hljött um þennan merka bæ síðan, uns land- búnaðarráðuneytið felldi dóm sinn, sem betur hefði þurft hér að hyggja að. SAMTlÐ OG SAGA Sumir staðir hafa yfir sér sér- stakan menningarblæ, það er eins og hægt sé að hverfa þar langt aftur til hins liðna tíma. Sand- fellsbærinn var einn þessara bæja. Árið 1973 átti ég því láni að fagna að koma í Sandfell, ganga þar um bæ, og setjast þar á rúm- stokk, sem eflaust hefur hvílt lúna oft áður. Eftir þessa dvöl að Sandfelli varð mér ljóst, hvílik perla þetta hús var. En það bar fleiri gesti að garði það sumar. Arkitektaskólinn í Árósum og Kaupmannahöfn sendi fríðan hóp nemenda til ísiands, um 15 manns með kennurum, þeir komu einnig að Sandfelli. En tilgangur farar- innar vað að teikna upp gamla bæi á íslandi. Og samkvæmt til- lögu þjóðminjavarðar var hópn- um stefnt til Öræfa. Þegar þenn- an hóp bar að garði í Sandfelli, var enginn til að taka á móti gestunum. Það var meiri reisn yfir Sand- felli, þegar Daníel Bruun kom þar 1902, er hann vann að kortagerð á vegum herforingjaráðsins danska. Þá var prestur að Sand- felli Ölafur Magnússon, er siðar var prestur í Arnarbæli. En arki- tektarnir höfóu ekki lengi kannað bæinn, er þeir lögðu það mat á, að bæinn að Sandfelli væri vert að varðveita. Tvennt kom þeim i hug með að koma bænum í byggð að nýju: 1. Að íslenska rikið léti endurbyggja bæinn eins og hann var um aldamót og þjóðgarðsvörð- ur hefði þar búsetu. 2. Að rithöf- undar, listmálarar eða tónlistar- menn fengju úthlutun til dvalar þar til að vinna að list sinni. En ekki fengu þessar hugmynd- ir náð fyrir augum ráðamanna. Þegar hópur hinna dönsku arki- tekta kom sumarið eftir var bær- inn horfinn af sjónarsviðinu eins og að framan greindi. Hefur þjóð- minjavörður farið hinum bestu viðurkenningarorðum um vinnu þá, sem hinir dönsku nemar i byggingarlist hafa hér unnið, „en Sandfell hefur því miður verið jafnað við jörðu“. DÖNSK MENNINGAR- STARFSEMI. Arkitektaskólinn í Árósum og Kaupmannahöfn hefur sent hingað nú í fjögur sumur 15—30 manna hóp, er hefur unnið að því að teikna upp og lýsa gömlum torfbæjum. Hafa danirnir gefið út tvær bækur: Þverá 1972 og Öræfi 1974, og eru í þeirri síðarnefndu teikningar og myndir af húsum á Hofi, Sandfelli og í Skaftafelli. Tel ég bók þessa þá merkustu er út kom á árinu 1974. Komu það ár út hinar vönduðustu bækur, en þessi bók dananna er slík gersemi að ekkert getur komið i hennar stað. Þar eru t.d. myndir og teikningar tveggja bæja, sem nú hafa verið jafnaðir við jörðu. Vonandi eiga teikningar arki- tektanemanna eftir að kenna okkur að meta okkar gömlu bygg- ingar til jafns við t.d. bókmenntir. En okkar byggingarlist er merki- leg, það undirstrika þeir í bókun- um fyrrnefndu. HÚSAFRIÐUNARÁR Nú er kvennaár og húsa- friðunarár. Sameinuðu þjóðirnar beina því til menningarþjóða, að menn beini sjónum sínum að gömlum byggingum og meti hverjar skuli varðveitast sem dæmi um byggingarlag og bygg- ingarlist liðins tíma. Er undarlegt að á íslandi skuli vera eyðilögð fögur hús er eiga sér merka sögu, þegar svo stendur á. Einnig vissu allir, er fyrir þessum málum sjá, að i undirbúningi var að setja á stofn sérstakan sjóð, er hefði að markmiði að endurbyggja og halda við gömlum húsum. En samt er enn eyðilagt á boró við það, sem helst gerist í styrjöldum, eða er hér um fullkomið vanmat að ræða á gildi gamalla húsa. Talsverðar umræður hafa orðið um varðveislu gamalla húsa í Reykjavík, einnig hvort rétt sé að eyðilegggja gamlan hó) (Arnar- hól). Slíkar umræður ættu einnig að verða um þá staði er á lands- byggðinni eru, því menning og saga þjóðarinnar er ekki bundin við byggðarkjarnana eina. Hversu fátækari værum við ef: Glaum- bær, Burstafell, Keldur væru horfin eða kirkjunar á Víðimýri, Grundarkirkja eóa gamla kirkjan að Heydölum I Breiðdal væru horfnar. Á þessum stöðum býr menning hins liðna tima. Þjóð- minjavörður flutti erindi I útvarp á föstudaginn langa, þar sem hann bað menn hvern í sinni sveit að hugsa til viðhalds og varð- veislu gömlu kirknanna. En sú góða hugvekja virðist ekki hafa greypst í vitund allra er hafa fyrir húseignum ríkisins á sjá.. SÖFN OG VARÐVEISLA MENNINGARVERÐMÆTA. Þjóðminjasafnið hefur tilsjón með fornum minjum þjóðarinnar, og ákvörðunarvald um hvaó skuli varðveitt og hverju skuli fórnað. Langar mig því að fá álit þjóð- minjavarðar á hvernig það var metið er örlög Sandfells voru ákveðin. Einnig er hann manna færastur að gera grein fyrir því hvérnig er best að tryggja að slík verk verði ekki unnin víóar nú á húsafriðunarárinu eða síðar. Hvers vegna urðu ekki blaðaskrif um Sandfell svo reyna mætti á hvort áhugi væri fyrir þvi aó varð- veita bæinn? Höfðu umsagnir arkitektanna dönsku engin áhrif á að endurmeta fyrri ákvarðanir um þann bæ? Er hugsanlegt að sá tími komi að bæjarhúsin að Sand- felli verði endurbyggð með timburþili eins og bærinn var um aldamót? Er það ekki slæm aðferð til aó varðveita fornar minjar að láta jarðýtu slétta úr mann- virkjum? Var jarðýtunni beitt með samþykki Þjóðminjasafns- ins? Hvernig er best að rífa gömul hús, og hvernig er æskilegast að skilja við tættur, þar sem engin mannvirki eiga að byggjast aftur? Auðunn H. Einarsson, Víðimel 57, Reykjavík. Sandfcll 1973

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.