Morgunblaðið - 03.08.1975, Blaðsíða 37
37
Sjötugur:
Eiríkur G. Brynjólfsson
forstöðum. Kristneshœlis
I dag, hinn 3. ágúst, er sjötugur
Eiríkur G. Brynjólfsson ráðs-
maður Kristneshælis í Eyjafirði.
Vil ég vegna gamalla og góðra
kynna minnast þessara merku
tímamóta í ævi hans með nokkr-
um línum.
Eiríkur er Skagfirðingur að ætt
og uppruna, fæddur 3. ágúst 1905
að Breiðargerði' í Lýtingsstaða-
hreppi. Foreldrar hans Guðrún
Guðnadóttir frá Villinganesi (f.
1881) og maður hennar Brynjólf-
ur Eíríksson, frá Skatastöðum í
Austurdal, bóndi (lengst að Gils-
bakka í sömu sveit) og barna-
kennari (1872—1959). Eiríkur
ólst upp með foreldrum sinum til
fimm ára aidurs, en dvaldist siðan
um þriggja ára skeið á nokkrum
bæjum í Skagafirði, hjá vensla- og
vinafólki, uns hann er tekinn i
fóstur, átta ára gamall að Stokka-
hlöðum í Eyjafirði til hinna
merku hjóna Guðríðar Brynjólfs-
dóttur, náfrænkú sinnar, og
manns hennar, Einars Sigfús-
sonar, albróður Jóhannesar Sig-
fússonar, yfirkennara við
Menntaskólann í Reykjavík.
Eiríkur hóf nám við Gagnfræða-
skólann á Akureyri (nú M.A.)
árið 1922 og lauk þaðan prófi
tveimur árum síðar, með mjög
góðum vitnisburði. Komu þá
þegar í skóla í ljós stjórnunar- og
forystuhæfileikar hans, enda
gerði Sigurður skólameistari
Guðmundsson hann þegar á öðru
skólaári, átján ára að aldri, að
mötuneytisstjóra heimavistar-
innar, en þvi starfi fylgdi
auóvitað mikil ábyrgð og umsvif i
fjármálum.
Gamall skólabróðir Eiríks og
virktavinur hans jafnan síðan,
Brynjólfur Sveinsson, fyrr-
verandi yfirkennari við Mennta-
skólann á Akureyri, sagði við
þann, er þetta ritar er Eíríkur
barst í tal:
„Hann minnti mig í skóla helst
á segul, sem gæddur er undra
seiðmagni. Hvar sem hann fór var
í fylgd með honum gleði og
gaman.
„Allar vildu meyjarnar með
Ingólfi ganga“, var eitt sinn sagt.
Allar og allir nutu návistar og
félagsskapar Eiríks.
Við gamlir skólafélagar hans
eigum honum marga góða og
glaða stund að þakka.
Við gleymum þeim ekki.“
Er Kristneshælið tók til starfa í
nóv. 1927, réðst Eiríkur ráðs-
maður að stofnuninni og hefur
gegnt þvi starfi til þessa dags, að
undanskildu árinu 1931—1932, er
hann hvarf að kennarastörfum á
Akureyri ásamt fleiri störfum,
m.a. á vegum Þorsteins M. Jóns-
sonar. Einnig var hann samhliða
aðalstarfi sinu kennari við Gagn-
fræðaskglann á Akureyri árið
1939—’40.
Eins og fram hefur komið hefur
ævistarf Eiríks verið forsjá Krist-
neshælis, sem hefur vaxið og
dafnað undir handarjaðri hans og
Jónasar heitins Rafnars yfirlækn-
is og eftirrennara hans.
Leyfum við okkur að vitna til
ummæla hins þekkta landlæknis
Vilmundar heitins Jónssonar, að
Kristneshælið væri best rekna
stofnunin, er undir hann heyrði,
og taldi hann þá jafnframt ekki á
aðra hallað.
Eiríkur hefur alltaf átt mörg
áhugamál jafnhliða aðalstarfi
sínu. Gleggsta vitni um það er hin
stórbrotna trjárækt við Hælið,
sem hann var frumkvöðull að frá
uppbafi, enda kallar núverandi
yfirlæknir hælisins þessa mikiu
trjárækt, í gamni, „spýturnar
— Um almenn-
ingsálit
Framhald af bls. 21
„almenningsálit“ að bakhjalli, en
lög og rétt undir fótum sér, „dóm-
stólar“ slikir, sem frá greinir í
frétt þeirri, sem vitnað var til hér
að framan?
Stundum þarf ógnvekjandi at-
burði til að opna augu manna
fyrir einföldum staðreyndum,
þótt oft virðist næsta auðvelt að
villa um fyrir mönnum með
áróðri, jafnvel þegar um megin-
mál er að ræða eins og hornsteina
sjálfs lýðræðisins. Almennings-
álit á fyrst og fremst að koma
fram I almennum kosningum. Það
er sem betur fer oft á réttum
brautum og getur komið ýmsu
góðu til leiðar. En það er lika
stundum á villigötum og mótun
þess getur farið mjög að geðþótta
áróðursmanna. Þeir, sem unna
sönnu lýðræðisskipulagi heils-
hugar, hljóta að vera sammála
um, að almenningsálit og dóms-
vald geta ekki átt samleið f lýð-
ræðisrfki á þann hátt, að dóms-
valdið sé almenningsáiitinu háð f
nokkurri grein. Slikt getur ekki
leitt til annars en ófarnaðar. Hins
vegar má ætla, að dómar hafi al-
mennt verulegan hljómgrunn hjá
Wmenningi, þar sem lýðræðis-
skipuleg er fullkomið, menning á
háu stigi og réttarvitund almenn-
ings þroskuð. Og þá er að sjálf-
sögðu vel.
31. júlf 1975
. Gunnar M. Guðmundsson
Fólksbila-
Jeppa-
Vörubila-
Lyftara-
Búvéla-
Traktors-
Vinnuvéla-
ATLAS
Veitum alhliöa hjólbaröaþjónustu
Komiö meö bíiana inn í rúmgott húsnaeöi
OPIÐ: mánud.-fimmtud. 8-19
föstudaga 8-22
laugardaga 9-17
HJÓLBARDAR
HÖFOATÚNI 8
SlMAR 16740 OG 38900
Samba
ns
hans Eiríks." Þess má og geta að
Skógrækt rikisins hefur sæmt
Eirik viðurkeningu fyrir skóg-
ræktarstörf.
En Eiríkur hefur löngum haft
fleiri járn í eldi. Hann stundaði
búskap á Stokkahlöðum um fimm
ára skeið og var einn af frum-
kvöðlum hreppsins um stórfellda
jarðrækt eftir þvi sem þá gerðist.
Þá hafði hann og hefur enn
mikinn áhuga á skólamáium Ey-
firðinga, t.d. var hann formaður
skólanefndar Hrafnagilshrepps í
nokkur ár og einn af aðalhvata-
mönnum að hinum glæsilega ung-
lingaskóla að Hrafnagili sem nú
blasir við augum vegfarenda um
Eyjafjörð. Hann var og hvata-
maður að landkaupum hreppsins
I námunda við skólann og félags-
heimilið Laugarborg með þétt-
býliskjarna fyrir augum, þvi að
þarna er heitt vatn í jörðu.
Eirikur hélt skóla fyrir ung-
linga heima hjá sér 1956—1959 og
kenndi þar m.a. bókfærslu,
islensku og reikning. Eiríkur er í
eðli sínu bókhneigður og mjög vel
ritfær svo sem afmælisrit K.E.A.
(50 ára) ber með sér, sem og
ýmsar blaðagreinar, en hann
hefur frá unga aidri verið mikill
áhugamaður samvinnuhreyf-
ingarinnar.
Eiríkur er kvæntur Kamillu
Þorsteinsdóttur úr Reykjavík,
hinni mestu ágætis konu; eiga
þau fjögur uppkomin og mann-
vænleg börn.
Eiríkur er Skagfirðingur í húó
og hár og ber hann enn öll merki.
Hefur hann meðal annars haft hið
mesta yndi af hestum og hesta-
mennsku alla sina ævi og löngum
átt góða hesta, þótt hann hafi eigi
getað notið þeirra sem skyldi og
hann sjálfur hefði viljað fyrir
sakir nokkurs heilsubrests sem
hann hefur löngum átt við að
glíma.
Eiríkur er í eðlí sínu mikill
gleðimaður, gæddur góðri kímni-
gáfu sem vekur gleði og kátinu i
kringum hann. Hann var mjög
góður kennari og dáður af
nemendum sínum. Sannaðist á
honum hið fornkveðna; „Guð
blessar glaðan kennara".
Eirikur hefur alla tíð verið
mjög vinsæll hjá starfsfólki og
vistmönnum Kristneshælis, enda
sérlega velviljaður og hjálpfús.
Ég hef sjálfur haft náin kynni af
þessari hlið hans, þar eð ég
dvaldist um tólf ára skeið
sjúklingur á Kristneshæli, jafn-
framt því sem ég var aðstoðar-
maður hjá honum á skrifstofunni
annað veifið. Flyt ég honum nú og
fjölskyldu hans alúðarþakkir fyr-
ir hjálpsemi hans og vináttu allt
frá okkar fyrstu kynnum.
Það er og eigi ofmælt þótt sagt
sé að hann hafi ætíð verið foreldr-
um sinum systkinum, fósturfor-
eldrum og fóstursystkinum ómet-
anleg stoð og stytta.
Eirikur er einlægur trúmaður
og vel fróður um trúarleg efni.
Hann var og er enn friður sýnum
og af mörgum talinn glæsimenni,
enda gæddur persónutöfrum.
Ég tel Eirík G. Brynjólfsson
gæfumann, bæði i einkalífi og
störfum. Er þá auðvitað miðað við
hvað maðurinn er, en ekki það,
sem fyrir augað ber.
A sjötugs afmæli þínu, Eirikur
óskum við fjölmargir vinir þinir
þér þess, að þér auðnist að halda
ævilangt orku þinni, gleði og
mannheill.
Jón S. Jakobsson
Fáið yður sæti
Þægileg sæti, sem má raða upp eftir ástæðum og mynda sæti, stóla og sófa.
Komið í verzlun okkar og fáið yður sæti.sem hæfir!
HÚSGAGNAVERZLUN
KRISTJÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavefli 13 Reykjavík simi 25870