Morgunblaðið - 03.08.1975, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGUST 1975
^uO^tnu^PA
Spáin er fyrir daginn ( dag
Hrúturinn
|TJ| 21. marz — 19. aprfl
Þú ættir að fara varlega í að taka nokkra
þá áhættu, sem þú getur komizt hjá að
taka. Reyndu að tileinka þér nýja hluti,
sérstaklega skaltu huga að nýjum tóm-
stundaviðfangsefnum.
Nautið
20. apríl -
• 20. maf
Lestur bóka og blaða kann að verða þér
tilefni til nokkurrar umhugsunar og
bolialegginga. Vertu fljótur að hjálpa
öðrum sem þú sérð að eru hjáipar þurfi.
Tvíburarnir
21. maí — 20. júní
Gættu vel að þér, margt bendir til að þú
eigir eftir að lenda í klípu. Að öðru leyti
ætti dagurinn að færa þér ánægjulegar
minningar, nema þú farir að setja þig á
háan hest við þfna nánustu.
Krabbinn
21. júní — 22. júlí
Láttu ekki raska um of ró þinni þótt
einhverjir séu að re>na að reita þig til
reiði. Ný ástarævintýri eru í vændum.
&
Ljónið
23. júlí -
22. ágúst
Fjölskyldan verður mjög f brennidepli f
dag. Reyndu að Ijúka sém mestu af þeim
verkefnum, sem þú átt ólokið, og þú ættir
að huga nokkuð að umhverfi heimilisins.
Mærin
23. ágúst — 22. sept.
Þér er ýmislegt til lista lagt, gerðu þér
far um að sýna á þér nýjar hliðar og
vertu ekki hræddur þótt einhverjir
kunni að hæðast að þér. Gleymdu ekki
rómantíkinni, hún getur oft kryddað hið
daglega amstur.
m
W/i:r4
Vogin
23. sept. — 22. okt.
Þetta er dagurinn til að leysa frá skjóð-
unni og gefa öðrum innsýn inn í hugðar-
efni þín. Ferðalög ættir þú vart að legga
upp í nema þú eigir brýnt erindi.
Drekinn
23. okt. — 21. nóv.
Gömul og ný sannindi lífsins gefa þér
tækifæri til að hamra enn á skoðunum
þfnum. Þú ættir að njóta dagsins vel, ef
þú tekur ekki óþarfa áhættu.
Bogmaðurinn
22. nóv. — 21. des.
Vertu ekki of óþolinmóður þótt símtöl
sem þú átt von á, komi síðar en gert var
ráð fyrir. Hugleiddu hvort þú getur ekki
nýtt þér fréttir dagsins til ávinnings.
WÍRk Steingeitin
'KtWkS 22. des. — 19. jan.
Astarlffið virðist ætla að skipa stóran
sess f Iffi þínu f dag. Ekki sakar að vita
hvort gamall vinur er ekki til f að rifja
upp gamlar minningar f kvöld.
i
Vatnsberinn
20. jan. — 18. feb.
Gefðu hugmyndaflugi þfnu lausan taum-
inn. Börn gætu komið verulega við sögu
hjá þér í dag. Leyfðu Ijósinu óhikað að
skfna á dökku hliðarnar á málunum.
■4 Fiskarnir
19. feb. — 20. marz
Eithvað sem þú hefur verið að bjástra við
upp á sfðkastið fær skyndilegn endi f
dag. Þetta yrði góður dagur til að heim-
sækja sjúka og til að veita öðru fólki
gleði. Gleymdu ekki að þú getur hjálpað
til að breyta þjóðfélaginu, er þú leggur
þig fram.
SMÁFÓLK
SUPPERTIME ISN'T FOR
AN0TH6P HALF HOUR
Kvöldmaturinn er ekki fyrr en
eftir hálftfma.
•l»7t by UnlM fM
I U)AS JUST H0PIN6 F0R
A FEli) CELEÍW STICKS...
Ég var bara að vonast eftir
nokkrum saltstöngum ...