Morgunblaðið - 03.08.1975, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. AGOST 1975
45
VELX/AKAIMDI
0 Athugasemd um
auglýsingastofu
útvarps svarað
í tilefni athugasemdar Lúðvíks
Guðmundssonar, Barðavogi 19,
sem birtist í blaðinu 30. júlí hefur
dálkinum borizt skýring frá
Gunnari Vagnssyni hjá Ríkisút-
varpinu. Er af henni ljóst að um
saklaus mistök hefur verið að
ræða og verður ekki frekar um
þetta mál fjallað á þessum vett-
vangi. Gunnar biður um að eftir-
farandi sé haft eftir sér i sam-
bandi við þetta mál:
,,Kæri Velvakandi.
Það er rétt, að fyrir slysni tókst
svo til, að starfsmaður Ríkisút-
varpsins visaði á símanúmer þess
til svars við auglýsingu um hús-
næði. Á mistökum þessum er beð-
izt velvirðingar og þau munu ekki
endurtaka sig.
Gunnar Vagnsson.“
0 Lokun miðeyju
Miklubrautar
Blaðinu hefur borizt svar Gutt-
orms Þormars hjá Gatnamála-
stjóranum í Reykjavik við athuga-
semd hér í dálkunum í síðustu
viku, þar sem gagnrýnd var lokun
miðeyju Miklubrautar við Rauð-
arárstlg. Guttormur sendir grein-
argerð með tillögu um lokun eyj-
unnar, sem samþykkt var af borg-
aryfirvöldum á síðasta ári.
í greinargerðinni segir m.a., að
samkvæmt talningu fari að meðal-
tali 25—30 þús. bifreiðar um
Miklubraut á sólarhring. Einnig,
að þessi mikla umferð um Miklu-
braut valdi því, að vinstri beygjur
á þeim gatnamótum, sem hér um
ræðir séu miklum erfiðleikum
bundnar og áhættusamar.
Þá segir: „Allmörg umferðar-
óhöpp hafaþannigorðið á gatna
mótunum. Á árunum 1971, 1972
og 1973 varð alls 41 umferðaró-
happ á mótunf Eskihliðar og
Miklubrautar, en 31 við Rauðarár-
stíg.
Nokkur gegnumakstur án við-
komu er um Eskihlið til vesturs.
Kemur það fram af þeim mun,
sem er á umferð inn í og út úr
götunni við Miklubraut. Kemur
sú umferð einkum frá Hamrahlið
um Eskitorg, en að einhverju
leyti úr þvergötum Lönguhliðar,
sem hafa einstefnuakstur til vest-
urs.
Lokun miðeyju Miklubrautar
við Eskihlíð mun gera umferð á
gatnamótunum skipulegri og ör-
uggari, þar sem þar verða þá ein-
göngu teknar hægri beygjur og þá
aðallega af Miklubraut inn í Eski-
hlið. Gert er ráð fyrir, að neðri
endi Eskihliðar verði tengdur
Hafnarfjarðarvegi, þannig að um-
ferð vestur Eskihlið færi í hægri
beygju inn á Hafnarfjarðarveg og
að Miklatorgi. Strætisvagn á leið
7 ekur Eskihlíð I báðar áttir og
fengi hann með þessari breytingu
mun greiöari leið aí Miklatorgi.
ara, sagði ég og var aðeins vin-
gjarnlegri 1 róninum, ef ske
kynni að hún ætti eftir að verða
alvöruviðskiptavinur.
Hafið þér fengið margar slfkar
greiðslur? svaraði hún og horfðf
fast f augun á mér.
Ég var f varnarstöðu, en reyndi
að láta eins og ekkert væri.
— Þér hafið valið heldur ó-
heppilegan tima til að heimsækja
mig, ungfrú Shaw, sagði ég. —
Gætuð þér ekki talað opinskátt?
— Mér er fullkunnugt um að
þér eruð stöðugt í fylgd með
helztu stjörnunum í Holliwood
framleiðendum kvikmynda-
stjórum og fleirum en mér
er líka kunnugt um að þér fáið
engin verkefni. Hvernig stendur
á þvf? Þér eruð mjög góður por-
trettmálari — sennilega f hópi
þeirra beztu. Það veit ég vegna
þess að ég hef kynnt mér rækí-
lega yðar hagi og veit um hæfi-
leika yðar. Hvað hafa margir af
hinum svokölluðu vinum yðar f
Hollywood gert sér það ómak að
láta mála sig? Það sem þér þurfið
er að sanna aðeins einu sinni
hæfileika yðar.
Hún þagnaði augnablík, en hélt
svo áfram.
Tengingin frá Eskihlíð að Hafnar-
fjarðarvegi er um 70 m löng og
yrði aðeins leyft að aka þar til
vesturs.
Lokun miðeyju Miklubrautar
við Rauðarárstíg má teljast eðli-
leg afleiðing af lokun við Eski-
hlíð, þar sem annars væri hætta á
mjög aukinni umferð í vinstri
beygju og U-beygju á þeim gatna-
mótum. Vegna nálægðar Rauðar-
árstigs við Snorrabraut veldur
þessi lokun ekki teljandi óþæg-
indum fyrir íbúa Norðurmýrar.
Hins vegar er minnkun umferðar
um Rauðarárstig sunnan Flóka-
götu heppileg vegna gönguleiða
að Miklatúni.
Aðalskipulagning gerir ráð fyr-
ir lokun Eksihlíðar og Rauðarár
stigs við Miklubraut. Lokun mið-
eyjunnar nú má teljast eðlilegur
og timabær áfangi i þá átt. Þessi
gatnamót Miklubrautar eru þau
einu án umferðarljósa, þar sem
miðeyjan er enn opin.“
0 Finnst undarlega
margir prestar
hafa ánetjazt
Guðrfður Einarsdóttir frá
Bakka, nú búsett að Sólheimum
25 hér i borg , skrifar:
„Kæri herra Velvakandi,
Við vorum að tala um það
nokkrar konur að mikið værum
við þakklátar blessuðum biskupn-
um vorum fyrir að setja nú aftur
hina hreinu trú á hásætið, og
báðu þær mig að setja saman
þetta.
Oss finnst við séum búnar að
búa nógu lengi við allskonar nýja
guðfræði og andatrú, og erum
honum þakklátar fyrir að segja
nú stopp með nýju sálmabókinni
og handbók prestanna sem hann
er að endurskoða, sem hann er
búinn að hreinsa (sálmabókina).»
Teljum við veí farið að hreinsa nú
út andatrúna og láta séra Heimi
byrja. Þarf að rýma bæði draug-
um og dúfum úr kirkjunni. Enda
er slikt hjátrú og bábiljur.
Eru það sjálfsagt fleiri en við
sem erum biskupnum þakklátar
fyrir þessa hreinsun, enda virðist
oss undarlega margir prestar hafi
ánetjazt.
Guðrfður Einarsdóttir
frá Bakka."
0 Ánægja með
lýsingu Jóns
Ásgeirssonar
Sigurður Þorvaldsson, Melgerði
17, Reykjavík hafði samband við
okkur og vildi koma á framfæri
þakklæti til Jóns Ásgeirssonar,
fréttamanns, fyrir lýsingar hans á
kappleikjum.
Sigurður sagði m.a.:
„Ég er gamall íþróttaunnandi
og ég held, að ég lasti engan, þótt
ég fullyrði að Jón sé færasti í-
þróttafréttaritari, sem við eigum.
Ég hlustasjaldanáútvarp.en æv
inlega þegar Jón Ásgeirsson lýsir
kappleikjum. Hann hefur svo gott
vit á því, sem um er að ræða,
túlkar leikreglur eftir því sem við
á svo frábærlega vel, að ég tel mig
jafnvel hafa meira gagn af lýs-
ingu hans í útvarpinu en því að
vera sjálfur viðstaddur og horfa á
leikinn."
0 Umferðin um
helgina
Það er líklega ekki seinna
vænna að óska mannskapnum far-
sældar á ferðum sinum um helg-
ina og góðrar heimkomu. Það tek-
ur þvi víst ekki að minnast að
veðrið, enda er spáin viða svo
óhagstæð, að ekki er á bætandi.
Það þarf ekki að brýna það fyrir
hérlendum ferðagörpum að kæra
sig kollótta um veðrið eftir alla þá
þjálfun sem þeir hafa fengið á því.
sviði, en hins vegar verður það
aldrei nógsamlega brýnt fyrir
þeim að hafa aðgát og gæta fyllsta
öryggis á þeim stórhættulegu veg-
um, sem liggja um sveitir lands-
ins, ekki sizt um mestu umferðar-
helgi ársins.
Það mun viðurkennt, bæði hér
á landi og annars staðar, að um
~ helgar sé mun meiri slysahætta
þegar menn eru á heimleið en við
upphaf ferðar. Skýrihgin mun
vera sálræns eðlis, þ.e.a.s. menn
eru orðnir slæptir og ergilegir við
ferðalok.
Þrátt fyrir alla þá upplýsinga-
starfsemi, sem stunduð hefur ver-
ið hér á landi mörg undanfarin ár,
er daglegt brauð að sjá fólk brjóta
einföldustu grundvallarreglur
um akstursöryggi. Þar er senni-
lega frægasta dæmið, að börn eru
látin sitja i framsæti. Enn sem
komið er hefur ekki tekizt sem
skyldi að innprenta fólki, að það
eigi að nota öryggisbelti. 1 ná-
grannalöndunum hefur notkun
öryggisbeltanna víða verið lög-
leidd og hefur sú ráðstöfun þótt
bera góðan árangur. Þvi er
ástæða til að gefa því gaum, hvort
ekki eigi að fara sömu leið hér á
landi.
En látum umvöndunum lokið
að sinni og vonum, að umferðin
gangi snurðulaust nú um verzlun-
'armannahelgina.
83? SlGeA V/öGA 2 1/LVtWW
6£fA £6
, j WYf\ vyRtötétf
A9?OLLt\.cb\GGt\*l
[ÁÖWK/W?
— jr
MTij ALTEú
V/S'b OH VA9*?
Ltftl) B-K'K/ .
SVONAXONA?
Petta gerðist líka...
Ford gefur frí
Ford Bandarikjaforseti var eins og kunnugt er I mikilli reisu nú fyrir
helgina um ýmis Evrópulönd og hafði m.a. viðkomu í Helsinki og setti
nafn sitt undir plagg eitt umdeilt. En áður en þaS gerSist
heimsótti forsetinn m.a.
bandariska hermenn sem
dveljast [ Vestur-
Þýzkalandi. Þar lék Ford ó
als oddi, svolgraði þýzkan
bjór með soldátunum, át
tertur og tók i þúsundir
handa á meðan kófsveittir
öryggisverðir hlupu botninn
úr brókunum til að fylgja
honum eftir. Og við
mikil fagnaðarlæti herliðsins i Kirch Göns lýsti Ford yfir: „Sem æðsti
yfirmaður ykkar gef ég hér lineð út skipun um að allir liðsmenn þessarar
herdeildar fái auka fridag." Svona kemur „detente" og öryggissátt-
málinn nýi vel við ýmsa.
Kristileg kynferðismál kommúnista
Og i framhaldi að klausunni um gildi „detente" hér að ofan, er rétt
og skylt að geta merkra ummæla prédikarans fræga Billy Grahams,
sem sáð hefur vísdómsorðum sinum jafnt i Nixon fyrrum Bandarikjafor-
seta og lesendur Morgunblaðsins (án þess að það
þýði nokkurn sérstakan skyldleika að öðru leyti).
Graham sagði sem sagt nú fyrir helgina að Vestur-
lönd gætu mikið lært af þvi að virða fyrir sér,
hvernig núverandi rikisstjórnir kommúnistaland-
anna takast á við siðferðisvandamál. „ Hvað varðar
siðferði í kynferðismálum geta kommúnistar kennt
okkur marga lexiuna hvarvetna sem þeir ráða
rikjum", sagði prédikarinn.
Nýtt Atlantis?
Bandariskir vfsindamenn frá háskólanum i Miami segjast nú hafa
fengið sannanir fyrir þvi að þeir hafi komizt að leifum meginlands sem
sokkið hefur i sæ á margra þúsunda feta dýpi á miðju Atlantshafi.
Þessar sannanir eru annars vegar krabbasaur og hins vegar kalksteinn.
Dr. Cesare Emiliani, foringi vísindamannanna, segir að meginland þetta
sé ekki hið sögufræga meginland Atlantis, og hafi verið ofansjávar
löngu áður en Atlantismenningin hefði getað verið til. Niðurstöður
visindamannanna eru á þá leið, að land þetta hafi verið af óþekktri
stærð á Atlantshafshryggnum milli Ameríku og Afriku fyrir um 70
milljónum ára. Og um það leyti sem meginland þetta skaut upp kolli úr
hafinu telja visindamennirnir að Atlantshafið hafi aðeins verið álika
stórt og Rauða hafið er nú. Milljónum ára siðar hafi landið svo tekið að
sökkva að nýju milli Mið-Afriku og norðurhluta Suður-Ameriku.
Sældarlíf stúdentanna
Á meðan íslenzkir stúdentar hér heima virðast þurfa að berjast með
klóm og kjafti fyrir þvi að fá mannsæmandi vinnu i sumarleyfinu til að
afla tekna fyrir nám næsta vetrar, þurfa kollegar þeirra I Bretlandi hins
vegar varla að hreyfa legg eða lið. Talið er að a.m.k. 70.000—90.000
stúdentar í Bretlandi muni láta skrá sig atvinnulausa i sumar þó að úr
þúsundum starfa sé að velja fyrir þá. Ástæðan er sú að þeir fá meir en
10 sterlingspund á viku i atvinnuleysisbætur (um 3500 isl. krónur) að
meðaltali. Skapar þetta öngþveitisástand i háskólabæjunum og hefur
orðið að setja þar upp sérstakar skrifstofur til að taka við umsóknum
stúdenta um atvinnuleysisbætur. Og þá má geta þess að i vikunni
hækkuðu námslaun brezkra stúdenta fyrir næsta vetur um 20% að
meðaltali.
Síðbúin fyrirgefning
Þá hefur Bandarikjaþing loks fyrirgefið uppreisnarseggnum, Robert
E. Lee hershöfðingja og yfirmanni hersveita Suðurrikjanna i þrælastrið-
inu (myndin). i kjölfar ákvörðunar öldungadeildar-
innar um þetta efni i april, hefur nú fulltrúadeildin
samþykkt að veita hershöfðingjanum, sem lézt
árið 1870, bandarisk borgararéttindi að nýju, en
hann var sviptur þeim fyrir að hafa staðið fyrir
uppreisn gegn rikinu fyrir rúmri öld. Segja sagn-
fræðingar þetta vera i fyrsta skipti sem slik
ákvörðun hefur verið tekin siðan 1898. Nánasti
afkomandi Lees hershöfðingja sem nú lifir,
barnabarnabarnið Robert E. Lee IV., brennivinsfabrikant í Virginfufylki,
sagði eftir atkvæðagreiðsluna i fulltrúadeildinni: „Þá er þetta komið i
lag."
vm
votfo
TuÍTOáO