Morgunblaðið - 07.12.1976, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.12.1976, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1976 3 A NYAFSTÖÐNU þingi Alþýðusambands tsiands var sem kunnugt er gerð hörð hrlð að sjálfstæðismönnum I verka- lýðshreyfingunni og uppi voru skoðanir hjá rðttækustu vinstri mönnum um, að menn sem að- hyllast stefnu sjálfstæðis- manna ættu ekki samleið með öðrum fulltrúum I verkalýðs- hreyfingunni. Sérstaklega beindu rðttækustu vinstri öflin spjótum sínum að þingmönn- um Sjálfstæðisflokksins og við kjör í miðstjðrn ASÍ féll einn af þremur sjálfstæðismönnum I miðstjórn, Pétur Sigurðsson alþingismaður og sjómaður. Fékk hann þó yfir 50% at- kvæða á ASt-þinginu við kjör í miðstjórn. Mbl. ræddi I gær við Pétur Sigurðsson um ástæðuna fyrir fækkun sjálfstæðismanna I miðstjórn og þvf að hann náði ekki kjöra? Áhrif einstreng- ingslegs flokks- pólitfzks áróðurs „I sjálfu sér er þetta ekki óeðlilegt," svaraði Pétur,“ þeg- ar haft er í huga að það er búið að halda upþi mikilli herferð af hálfu vinstri manna gegn stuðningsmönnum núverandi ríkisstjórnar og þá sérstaklega okkur sjálfstæðismönnum. Þessar árásir höfðu það í för með sér að út úr miðstjórn féllu miðað við siðast, einn fram- sóknarmaður og einn sjálf- stæðismaður, sem var ég. Per- sónulega tel ég þetta framhald af þeirri samstöðu sem þeir svo- kölluðu róttæku hafa náð með einstrengingslegum flokkspóli- tískum áróðri sínum sem átti ekkert skylt við málefnalega baráttu í þágu verkalýðshreyf- ingarinnar. Þetta tel ég megin- forsenduna fyrir því að þessi sæti töpuðust. Að útiloka vegna póli- tízkra skoðana Þessi öfl telja að við eigum ekki samleið með þeim og að það skuli stefnt að alþýðustjórn á Islandi. Ég tel meirihluta nú- verandi stjórnar á þessari skoðun, en þó finnast, Guði sé lof, sterkir aðilar I miðstjórn ASI, sem eru á annarri skoðun og vinna að framgangi mála á lýðræðislegan hátt innan ASI og þar á meðal því að enginn maður eigi að útilokast frá störfum innan ASl vegna sinna pólitisku skoðana. Þá hefur það eflaust veikt okkur mjög að einn af okkar sterkustu fram- bjóðendum, formaður VR, dró sig til baka frá framboði. Persónulega get ég vel við unað, ef þeir sem kjörnir voru eru fulltrúar hinna róttæku afla á Islandi. Ef ég er fulltrúi „hægri aflanna“ innan verka- lýðshreyfingarinnar, þá var niðurstaðan sú að ég fékk yfir 50% atkvæða þótt ég næði ekki kjöri í miðstjórn." Þeir róttæku börðust gegn aðild LfV og sjómannasambandsins „Þú átt langt starf að baki innan ASÍ.“ „Ég hef setið á ASI þingum í 20 ár og þegar ég kom fyrst á ASt-þing, voru þar með mér 16 sjálfstæðismenn á þinginu, en nú voru þeir 107. Það hefur að sjálfsögðu verið þrotlaus vinna að fjölga í þessum hópi, en stærstum áfanga var náð þegar Landssamband verzlonar- manna var dæmt inn í ASt. Þá hafði það tekið langan tíma fyrir mig, ágætustu menn í Alþýðuflokknum og fleiri, að berjast fyrir inngöngu þeirra í ASI. Svo var einnig um Sjó- mannasamband Islands, en gegn þessu börðust einmitt harðast hin „róttæku“ öfl innan ASI.“ Enginn „pólitískur aðaH” getur útilokað sjónarmið fólksins í landinu Pétur Sigurðsson alþingismað- ur. Ljósmynd Mbl. RAX. r Rætt við Pétur Sigurðsson alþingismann um ASI-þing Frá þingfundi á sfðasta þingi ASl, en við borðið eru flestir fulltrúar Sjómannafélags Reykjavíkur. Fremst frá vinstri: Guðmundur H. Guðmundsson SR, sem var aldursforseti þingsins, en hann hefur setið tugi ára á ASt-þingum fyrir Sjómannafélag Reykjavíkur. Næstur honum er Guðmundur Hallvarðsson SR, þá Magnús Jónsson SR, Ölafur Sigurðsson SR, Arsæll Pálsson matsveinafélagi SSÍ. Fremst frá hægri: Pétur Sigurðsson SR, Björn Pálsson SR, Hilmar Jónsson formaður SR, Jón Helgason SR og Sigfús Bjarnason SR. Ljósmynd Mbl. Ól.K.M. brögð eiga ekki að gilda i eins vel upplýstu þjóðfélagi og Is- land er i dag. Þetta fólk lítur á sig sem pólitiskan aðal. Það má deila um einstaka for- ystumenn, en málefnið verður að vera númer eitt, tvö og þrjú á vettvangi verkalýðshreyfing- arinnar." Flestir sammála varðandi hag láglaunafólks „Hvað viltu segja um stöðu kjara- og atvinnumála að loknu þessu þingi ASl?“ „Þegar búið er að draga frá þröngar skoðanir „alþýðu- stjórnarsinna“, þá voru flestir þingfulltrúar sammála um nauðsyn á ákveðnum aðgerðum til úrbóta til þess að rétta hag láglaunafólks. En ósköp verða sumir okkar vantrúaðir á þetta þegar maður heyrir í votta viðurvist fulltrúa uppmæl- ingarmanna og atvinnurekenda um leið, tala um „láglauna- kvak“. Fyrst og fremst er þó min einlæga von og ósk að koma megi til móts við þetta fólk í væntanlegum samningum og það ber að hafa í huga að láglaunafólk er innan flestra launþegasamtakanna og einnig utan þeirra, en þar á ég við öryrkja, eldra fólk og sjúka. Eitt stærsta skrefið í þjóðfrelsis- baráttunni Varðandi einstakar tillögur utan kjara- og atvinnumála vil ég fyrst nefna drögin að stefnu- skrá fyrir ASI, í öðru lagi sam- hljóða álit þingsins um 1. des. tillögu okkar sjálfstæðismanna og margra annarra úr öllum flokkum, sem í raun þýðir að undir forystu sjálfstæðisflokks- ins hafi þegar á yfirstandandi kjörtímabili unnizt eitt stærsta skrefið í þjöðfrelsisbaráttu Is- lendinga, full viðurkennd yfir- ráð yfir 200 milna fiskveiðilög- sögunni. Niðurstöður atkvæðagreiðsu um Varnarliðið og aðild að NATO, komu mér ekki á óvart, hafandi i huga hinn stöðuga áróður og skipan fulltrúa. Þá vil ég nefna tillögur um breytingar á skattamálum af hálfu ASI og „samtíma“ skatt- greiðslur. Þar á má þekkja ágæt vinnubrögð formanns LlV, Björns Þórhallssonar. Dagvistun aidraðra og íbúðir eftirlaunaþega Sjálfur flutti ég eina tillögu varðandi eldra fólkið og til liðs við mig fékk ég ágætustu konur og karla, Margréti Auðunsdótt- ur fyrrv. formann Sóknar, Þór- unni Valdimarsdóttur formann verkakvennafélagsins Fram- sóknar, Guðriði Eliasdóttur, formann verkakvennafélagsins Framtiðarinnar í Hafnarfirði, Bjarna Jakobsson formann Iðju o.fl. o.fl. en eftirfarandi tillaga var samþykkt samhljóða á þing- inu: „I tilefni af tímabærri og ágætri hvatningu frá Verka- Framhaid á bls. 28 Úrelt og forpokuð vinnubrögð „Telur þú þessa þróun á síð- asta ASl-þingi styrkja samtök- in?“ „Ég tel persónulega að þessi þróun sé ákaffdlega mikið veik- leikamerki fyrir verkalýðssam- tökin hér á landi. Helztu for- ystumenn ASI á liðnum árum vita það vel að við sjálfstæðis- menn í miðstjórn ASI höfum ekki verið verri samstarfsmenn varðandi framgang hagsmuna- mála innan ASl en margir úr hópi hinna svökölluðu „rót- tæku“ afla. Því miður má telja að sárindi verði eftir þessa aðför að félög- um innan verkalýðshreyfingar- innar, þótt ég fylli ekki þann hóp. Ég tel hins vegar hættu á því hjá mörgum öðrum í verka- lýðshreyfingunni sem vilja veg og heill verkalýðssamtakanna sem mestan og ég hygg að þótt þeir að sjálfsögðu muni ekki vinna gegn hagsmunum sam- takanna, þá muni þeir ekki beita sér fyrir framgangi ým- issa mála undir þessari stjórn ASl. Þessi eitilharða barátta hópa sem hafa ákveðnar pólitlskar skoðanir og tilheyra verkalýðs- samtökunum eingöngu vegna pólitisks stjórnmálalegs ofstæk- is, á eftir að skaða þessi samtök á næstu árum. Vinnubrögð þessa fólks á sviði launa- og félagsmála eru bæði úrelt og forpokuð og þótt þau séu ekki óeðlileg frá sumum forsvars- mönnum þessa hóps, þá þekkjast þau lítt þar sem lýð- ræði á að ríkja og þessi vinnu- FERÐAMIÐSTOÐINNI Aðalstræti 9, sími 1 2940 og 11 255. KANADA Fyrirhugaðar eru ferðir til Vancouver og Winni- peg í Kanada Þeir sem hafa áhuga eru beðnir að hafa samband við skrifstofuna i | DRUPA 3.6. - 16.6 77 er alþjóðleg prent- og pappírsvörusýning. Ferða- miðstöðinni hefur tekist að fá gistingu og eru nú DíÍSSCldorf síðustu forvöð að panta, því aðsókn er mikil. HEIMTEX Frankfurt 12.1. - 16.1. 77 Alþjóðleg heimilissýning, m.a. teppi, veggfóður o.fl. Náið nýjum viðskiptasamböndum og eflið gömul. Seljum einnig farseðla með öllum flugfélögum og ávallt á hagstæðustu fargjöldum sem völ er á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.