Morgunblaðið - 07.12.1976, Page 22

Morgunblaðið - 07.12.1976, Page 22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1976 22 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjórn og afgreiðsla Auglýsingar Áskriftargjald 1 100.00 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 60.00 kr. eintakið. hf. Arvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstræti 6, sími 10100 Aðalstræti 6, sími 22480 Aðförin að sjálfetæðis- mönnum á ASÍ-þingi Málverkauppbod: Kjarval var dýrastur MÁLVERKAUPPBOÐ á vegum Klausturhóla var haldið á sunnudag á Hótel Sögu. Dýr- asta myndin sem seld var á uppboðinu var slegin á 305 þús- und krónur eða með söluskatti á 367.200 krónur. Var það mynd eftir Jóhannes S. Kjarval frá Borgarfirði eystra. Aðrar myndir sem seldust á uppboðinu voru tvær myndir eftir Mugg, kolateikning, sem slegin var á 100 þúsund krónur eða 120 þúsund með söluskatti og olíumynd, sem slegin var á 80 þúsund kronur eða 96 þús- und með söluskatti. Þá var vatnslitamynd frá Þingvöllum eftir Gunnlaug Blöndal slegin á 300 þúsund krónur eða 360 þús- und með söluskatti og myndin Hrafnabjörg eftir Brynjólf Þórðarson var slegin á 205 þús- und krónur eða 246 þúsund krónur. Þá var litagrafía eftir Erro slegin á 60 þúsund krónur eða með söluskatti á 72 þúsund, vatnslitamynd frá Reykjavík eftir Snorra Arinbjarnar fór á 115 þúsund krónur eða á 138 þúsund krónur með söluskatti, oliumálverk eftir Kristján Davíðsson for á 90 þúsund krónur eða á 108 þúsund krón- ur með söluskatti og mynd eftir Kára Eiríksson, Vetur, olíu- mynd var slegin á 88 þúsund krónur eða 105.600 krónur með söluskatti. Metsala h já Rán í V-Þýzkalandi TOGARINN Rán frá Hafnar- firði fékk hæsta verð, sem fslenzkt skip hefur fengið I Þýzkalandi, er skipið seldi 107 lestir af fiski I gær. Rán seldi aflann I Cuxhaven fyrir 214.653 mörk eða 16,9 millj. króna og var meðalverð á kíló kr. 157,30, eða um 2 mörk kflóið. Það hef- ur aldrei gerst áður að fslenzkt skip hafi fengið um 2 mörk fyrir hvert kg af fiski f Þýzka- landi. Skipstjóri á Rán er Ásgeir Gfslason og samkvæmt upplýs- ingum sem Mbl. aflaði sér f gær er hásetahluturinn á Rán úr þessari veiðiferð um 260 þús. Göngudeild við barnaspítalann EINS og fram hefur komið f Morgunblaðinu hefst heila- himnubólusetning ekki fyrr en eftir áramót, þar sem bóluefn- ið, sem pantað hefur verið er ekki fáanlegt fyrr. Bóluefni þetta er við A-stofni, en B-stofn er þó mun algengari hér, a.m.k. hvað varðar þau tiifella heila- himnubólgu, sem kunn eru. Skúli Johnsen borgarlæknir sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að talsverðar sveiflu hefði orðið vart, þar sem heilahimnu- bólga hefði stungið sér niður. T.d. var það A-stofn, sem vart varð við í Noregi, en þegar veikin fór að breiðast út breytt- ist hún í B-stofn. Við honum hefur aldrei verið framleitt bóluefni og er það því ekki til. Skúli sagði, að þegar bólu- setning hæfist eftir áramót yrði hverjum og einum afhentur miði, þar sem honum væri gert skiljanlegt, að bólusetningin dygði aðeins gegn öðrum stofn- inum. Þetta kvað hann nauð- synlegt til þess að mynda ekki falskt öryggi meðal fólks. Þá kvað hann vera lagða mikla áherzlu á að efla læknavakt og í því sambandi komið upp göngu- deild við barnaspítalann, svo að fólk ætti greiðari aðgang að læknum með börn sín. kr. Þess má geta að Rán er lftill síðutogari, 348 rúmlestir að stærð og er í eigu Stálskips h.f. f Hafnarfirði. Þá seldu tveir íslenzkir bátar afla í Þýzkalandi í gær og fengu báðir sæmilegt verð fyrir afl- ann. Bergþór KE seldi 51 Iest fyrir 7,5 millj. króna, meðal- verð á kíló var kr. 146,50. Þorri SU seldi 41 lest fyrir 5,5 millj. kr. meðalverð á kíló var kr. 133,50. Morgunblaðið fékk upplýst í gær, að tilfinnanlegur fisk- skortur væri nú á v-þýzka markaðnum og yrði svo út þessa viku og sennilega einnig í þeirri næstu. Togarinn Maí frá Hafnarfirði á að selja í Þýzkalandi á morg- un og netabáturinn Sigurberg- ur, einnig frá Hafnarfirði, selur þar á fimmtudag. Nóvemberumferðin í Reykjavík: Skráð óhöpp 50 færri en í fyrra NtJ LIGGJA fyrir tölur um nóvemberumferðina f höfuð- borginni. Samkvæmt upplýs- ingum Héðins Svanbergssonar lögregluvarðstjóra, voru gerðar skýrslur um 225 umferðar- óhöpp f Reykjavfk s.I. nóvem- bermánuð, en sama mánuð f fyrra voru gerðar skýrslur um 275 óhöpp. í þessum óhöppum slösuðust 27 manns, þar af hlutu 19 rneiri- háttar meiðsli og 8 minni hátt- ar, en í nóvember í fyrra hlutu 17 manns meiriháttar meiðsli en 12 minniháttar. Eitt bana- slys varð í nóvember i fyrra en ekkert í ár. Að sögn Héðins Svanbergs- sonar kom óhappakafli í byrjun nóvember og aftur í lokin, en að öðru leyti var þetta góður mánuður. Aþingi ASI, sem lauk fyrir síðustu helgi var gerð sérstök aðför að þeim forystu- mönnum verkalýðssamtak- anna, sem fylgja Sjálfstæðis- flokknum að málum. Unnið var skipulega að því að koma í veg fyrir, að nokkur sjálfstæðismað- ur hlyti kosningu í miðstjórn ASÍ og gerð var tilraun til þess að stimpla þá forystumenn verkalýðsfélaga, sem fylgja Sjálfstæðisflokknum að málum sem annars flokks aðila að launþegasamtökunum. Þessari aðför var stjórnað af hinni svo- nefndu órólegu deild kommún- ista á ASÍ-þingi en ýmsir aðrir þ.á.m. ábyrgir forystumenn í verkalýðssamtökunum gerðu enga tilraun til þess að linna gegn þessum ólýðræðislegu og einræðiskenndu vinnubrögð- um og kann það ekki góðri lukku að stýra fyrir ASÍ í fram- tíðinni. Ástæða er til að vekja athygli á þeirri staðreynd, að Sjálf- stæðisflokkurinn er sá íslenzkra stjórnmálaflokka, sem nýtur stuðnings flestra launþega. Yf- irgnæfandi meirihluti íslenzkra kjósenda eru launþegar og ef leggja á þann mælikvarða á það hvaða flokkar eru flokkar launþega og hverjir ekki er auðvitað Ijóst, að Sjálfstæðis- flokkurinn er stærsti launþega- flokkur landsins. En jafnvel þótt einungis sé byggt á þeim upplýsingum, sem fyrir hendi eru um fulltrúatölu á ASÍ-þingi er Ijóst, að Sjálfstæðismenn voru næststærsti hópurinn á þessu þingi Alþýðusambands- ins. Þannig var unnið markvisst að því að útiloka yfir 100 full- trúa á þinginu, sem sumir eru frá stærstu og öflugustu laun- þegafélögum landsins, frá áhrifum á æðstu stjórn ASÍ. Öllum má Ijóst vera, að það hefði haft hinar alvarlegustu afleiðingar fyrir Alþýðusam- band íslands sem slíkt, ef þessi aðför hefði tekizt Hún tókst ekki nema að takmörkuðu leyti Þeir sem höfðu forystu um að ..hreinsa út" áhrif fjórð- ungs þingfulltrúa beindu spjót- um sínum fyrst og fremst að Pétri Sigurðssyni alþingis- manni, sem hefur verið í for- ystu sjómannasamtakanna í áratugi og unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu sjó- manna, aldraðra sjómanna og ekkna þeirra. Pétur Sigurðsson náði ekki kjöri í miðstjórn ASÍ en hann hlaut yfir 50% greiddra atkvæða á þinginu og segir það sína sögu. í viðtali við Morgunblaðið sl. sunnudag fjallaði Guðmundur H. Garðarsson, alþm. og for- maður VR, sem er stærsta launþegafélag landsins, um bolabrögð kommúnista á þingi ASÍ. Guðmundur H. Garðars- son sagði m.a.: ,,Einn af þeim, sem hafði forystu um atlöguna gegn lýðræðislegri aðild yfir 100 þingfulltrúa að miðstjórn ASÍ, sagði meðal annars, að fólk með sjálfstæðisskoðanir ætti að hreinsa út úr miðstjórn og verkalýðshreyfingunni í heild. Vinnubrögð sem þessi hljóta að vekja allan almenning til umhugsunar um hvers sé að vænta um þingræði, lýðræði og almennt persónufrelsi í landinu takist þessum öfga- mönnum að ná töglum og högldum innan verkalýðshreyf- ingarinnar. Fólk þarf að vera á verði gegn þessu öfgafólki og ólýðræðislegri valdbeytingu þess." í samtali þessu sagði Guð- mundur H. Garðarsson enn- fremur: „Þetta þing hlýtur að sýna því fólki innán hreyfingar- innar, sem vill búa við lýðræði og þingræði að það verður að snúa bökum saman innan hreyfingarinnar sem utan gegn öfgamönnum Alþýðubanda- lagsins. Annars munu við taka svokölluð alþýðuvöld, sem er ekkert annað en grimulaus kommúnismi með því einræði og kúgun, sem honum fylgir." í viðtali við Morgunblaðið í dag fjallar Pétur Sigurðsson.alþm. og rítari Sjómannafélags Reykjavíkur, einnig um þessa aðför að sjálfstæðísmönnum á ASÍ-þingi og segir: „Þessi eitil- harða barátta hópa, sem hafa ákveðnar pólitískar skoðanir og tilheyra verkalýðssamtökunum eingöngu vegna stjórnmálalegs ofstækis, á eftir að skaða þessi samtöl á næstu árum. Vinnu- brögð þessa fólks á sviði launa- og félagsmála eru bæði úrelt og forpokuð og þótt þau séu ekki óeðlileg frá sumum for- svarsmönnum þessa hóps, þá þekkjast þau lítt þar sem lýð- ræði á að rikja og þessi vinnu- brögð eiga ekki að gilda í eins vel upplýstu þjóðfélagi og ís- land er í dag. Þetta fólk lítur á sig sem pólitískan aðal." Þróun mála á síðasta þingi ASÍ hlýtur að verða lýðræðis- sinnum innan verkalýðshreyf- ingarinnar mikið umhugsunar- efni. Það er Ijóst, að öfgahópar hafa komizt til meiri áhrifa í verkalýðsarmi kommúnista en áður og beita nú aðstöðu sinni til þess að ryðja lýðræðissinn- uðum forystumönnum verka- lýðssamtakanna úr trúnaðar- stöðum. Við þessu hljóta lýð- ræðissinnar hvar í flokki, sem þeir standa að bregðast með aukinni samstöðu sín á millii og nýju átaki til þess að draga úr áhrifum kommúnista innan verkalýðssamtakanna. Ekið var á reiðhjóla- dreng á Vífils- staðavegi EKIÐ var á dreng á reiðhjóli neöarlega á Vífilsstaðavegi síð- degis á laugardaginn, en hann hlaut ekki alvarleg meiðsl. Slysið vildi þannig til, að drengurinn var á leið niður veginn en bif- reiðin upp og beygði bifreiðin skyndilega fyrir drenginn með fyrrgreindum afleiðingum. Að sögn rannsóknarlögreglunnar í Hafnarfirði eru alltof mikil brögð að því að ökumenn virði ekki rétt hjólreiðamanna í umferðinni. Hlaut opið fótbrot 1 umferðarslysi UNGUR piltur á vélhjóli varð fyrir bifreið á mótum Hverfisgötu og Barónsstíg í gær kl. 17.36. Pilturinn, sem er 15 ára, hlaut opið fótbrot. Rólegt á miðunum HIN mestu rólegheit voru á miðunum við landið í gær. Ekki var flógið á vegum Landhelgis- gæzlunnar vegna slæmra veðurskilyrða. Þá má geta þess að Landhelgisgæzlan heldur því nú fram að Færeyingar hafi nú þegar fyllt kvóta sinn, 17 þúsund tonn, þar af 8 þúsund tonn af þorski. — Japan Framhald af bls. 1. Næst stærsti flokkur landsins, Sósíalistaflokkurinn, hlaut nú 123 þingsæti, bætti 11 við sig frá því i kosningunum 1972. Komeito- flokkurinn, sem er miðflokkur og berst gegn spillingu, fékk 55 þing- sæti, hafði 30. Kommúnistar biðu mikið afhroða og fengu aðeins 17 þingsæti, en höfðu 39 og and- kommúnistar, Demókratíski sósíalistaflokkurinn fékk 29 þing- sæti, bætti við sig 10 sætum. Stjórnmálafréttaritarar segja að greinilegt sé af úrslitunum og þróuninni í gær og dag, að litlar ef nokkrar breytingar verði á stefnu stjórnarinnar í innanrfkis og utanríkismálum. Miki sagði á blaðamannafundinum, að hann hefði byggt Frjálslynda demó- krataflokkinn upp á nýtt og sýnt fram á að hann gæti haldið völd- um og stjórnað þrátt fyrir það sem á undan væri gengið. Hann sagðist myndu skoða úrslit kosn- inganna vandlega til að reyna að gera sér fyrir hugum kjósenda og ráðgast við flokksstjórn sína áður en hann byrjaði að móta stjórn- málastefnu næstu ára. Ýmsir stjórnmálafréttaritarar segja að japanskir kjósendur hafi nú farið meðalveginn milli spill- ingarinnar innan stjórnarflokks- ins og hinna öfgasinnuðu stjórnarandstöðu sósialista og kommúnista. Segja þeir að þetta ætti að gleðja bandaríska stjórn- málamenn, því að Bandarikin hafi frá þvi að kommúnistar sigr- uðu í Vietnam orðið að horfa upp á hverja vinaþjóðina á fætur ann- arri í Asíu falla í hendur komm- únista eða taka upp öfgasinnnað- ar hægristjórnir. Japanir hafi hins vegar þrátt fyir spillingu innan stjórnarflokkanna sl. 2 ára- tugi komist að þeirri niðurstöðu að „frjálslynt lýðræði sé besti "kosturinn, sem völ sé á þrátt fyrir allt hið mikla afhroð kommúnista beri þvi glöggt vitni.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.