Morgunblaðið - 07.12.1976, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 07.12.1976, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1976 29 — Höfum við efni á þessu? Framhald af bls. 14. ekki heldur efni á að reka landbúnað, sem þýðir stórkost- legar byrðar á öllum launþegum. Það er illt, ef engin stjórn, hvort sem hún heitir hægri eða vinstri stjórn, getur stjórnað land- inu. Hér á landi verður lika eng- um umbótum komið á, meðan stjórnarherrarnir eru svo flæktir í hinu pólitlska samtryggingar- kerfi, að ekki má hrófla við neinu. Ég hygg óhætt að fullyrða, að við, sem kusum Sjálfstæðisflokk- inn i siðustu alþingiskosningum, höfum orðið fyrir vonbirgðum. Sjálfstæðisflokkurinn er í orði flokkur frjálsra athafna, flokkur frelsis í viðskiptum, flokkur þeirra, sem trúa á mátt og megin einstaklingsins, en hvað hefur orðið af stefnunni? Er flokkurinn ekki á leið í algért stefnuleysi? „Eftir höfðinu dansa limirnir", segir máltækið, og þegar lýðum verður ljóst, hvernig ástandið er i stjórnarherbúðunum, er ekki von, að fólki þyki mikið mark takandi á því herliði. Hlálegt dæmi samsektar, sem öllum viðkomandi þykir þó ljúf, eru hin margumtöluðu bílakaup ráð- herra. Er eðlilegt, ef við tökum tillit til „lélegrar afkomu þjóðar- búsins", að ráðherrar, sem þó hafa sjálfir ákvörðunarvald um mál þetta, skuli ekki teljá það heilaga skyldu sína að greiða tolla og innflutningsgjöld af einkabíl- um sínum í hinn galtóma ríkis- kassa? Hver er svo líka röksemd- in fyrir fæðisstyrk þingmanna? Verða ekki almennir launþegar að greiða mat af launum slnum? Svo er náttúrulega til fastur ferðastyrkur þingmanna og ráð- herra til að gera þeim kleift að ferðast um kjördæmi sin — og auðvitað eru simreikningar greiddir. Allir þessir styrkir eru skattfrjálsir. Svo má og geta þess, að ráðherrar eru eina stéttin, sem mér er kunnugt um, sem fær aðlögunartima til að venjast tekjutapi, þ.e. ef þeir detta úr embætti; þá fá þeir ráðherralaun í lA ár á eftir. Hvar eru nú raddir Aiþýðubandalagsmanna? Hvar eru nú raddir jöfnunar- postulanna? Tilgangur minn með þessari upptalningu er sá, að vekja athygli á þeirri fádæma lítilþægni, sem þetta lýsir og sem veldur hneykslun hins almenna launþega, enda þótt segja megi, að þetta vegi ekki svo mikið I allri óstjórninni og vitleysunni. Er ekki öllu skynsamlegra og meira viðeigandi, að greiða ráðamönn- um laun, sem lifa má af og fella niður slíkar ölmusuveitingar? Þjóðfélag okkar er áreiðanlega komið að tímamótum. Æ fleiri gera sér ljóst, að við höfum ekki efni á allri þeirri óarðbæru fjár- festingu, sem nú tröllríður okkar litla þjóðfélagi. Það er vissulega gott að vera stórhuga og vilja gera mikið, en allir verða að sníða sér stakka eftir vexti. Það hlýtur að vera aðalkrafa þegnanna, að þær fjárfestingar sem arðbærar séu, gangi fyrir og að ríkisvaldið dragi úr óarðbæru miðstjórnarvaldi. Höfum við efni á að byggja borgarleikhús i þeim stil, sem fyrirhugað er? Mætti ekki hafa það ódýrara? Höfum við efni á að fleygja milljörðum í jafn illa undirbúna framkvæmd og Kröfluvirkjun? Höfum við efni á þeim flottræfilshætti, sem lýsir sér í mörgum opinberum byggingum? Höfum við efni á að drepa niður nær allan innlendan iðnað, sem er þó vaxtabroddur framtíðarinnar? Höfum við efni á að kaupa æ fleiri skuttogara á sama tima og fiskifræðingar hvetja til þess, að dregið sé úr fiskveiðum til þess að vernda fiskstofnana? Höfum við efni á að hafa stjórn, sem fær engu ráðið? Er ekki kominn timi fyrir Sjálf- stæðisflokkinn að fara að standa við kosningaloforð sín; fara að stjórna af viti og stefnufestu, efla heilbrigt, frjálst atvinnulif og þora að brjótast út úr þeim vita- hring, sem drepur allar efnahags- legar framfarir i dróma. A meðan ráðamenn þjóðfélags- ins þora ekki að takast á við þau vandamál, sem raunverulega þarf að leysa, verður Island áfram láglaunasvæði. takiöeftír! ---------------------------------------------------------------------------------------------------------t hjá okkur fæsd allt í baóherbengió og reyndar flest sem þanf til aó byggja eóa fegra hvert heimili V__________________________________s Jé - gjörió svo vel - líttó inn. Viö erum sannfœróir um aó okkar lausn er betri lausn J. ÞORLAKSSON & NORÐMANN Skúlagötu 30 — Sími 11280 Pflu rúflugluggatjöld PÍLU RÚLLUGLUGGATJÖLD. NÝ MYNSTUR. NÝIR LITIR. SETJUM NÝTT EFNI Á GAMLAR STENGUR. ÓLAFUR KR. SIGURÐSSON & CO. SUÐURLANDSBRAUT 6, S: 83215

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.