Morgunblaðið - 07.12.1976, Síða 5

Morgunblaðið - 07.12.1976, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1976 5 Þýzku grafík-sýninguimi að ljúka Sfðasti dagur sýningarinnar „Þýzk grafik á vorum dögum“ á Kjarvalsstöðum er f dag. — Góð aðsókn hefur verið að sýningunni. — Myndin er af einu verki á sýningunni. Yfirlýsing frá for- manni Nýalssinna Fjárböðun LANDBUNAÐARRÁÐUNEYTIÐ hefur nú með auglýsingu i Lög- birtingarblaðinu fyrirskipað sauðfjárböðun í Ketildalahreppi f V-Barðastrandarsýslu, vegna kláða í sauðfé á timabilinu frá 1. nóvember til 15. marz næstkom- andi. Tvíböðun skal fara fram á öllu fé í Ketildala-, Tálknafjarðar- og Suðurfjarðarhreppum. Skulu bændur hlíta fyrirmælum bað- stjóra og eftirlitsmanns um allt er varðar böðun þessa. Nokkuð er nú síðan þessa kláða varð vart, en hér mun um svo- kallaðan fótakláða að ræða. Hefur þessa kláðatilfellis áður verið getið í fréttum Morgunblaðsins. Don Juan í franska bókasafninu MORGUNBLAÐINU barst í gær yfirlýsing frá formanni Nýals- sinna, Kjartani Nordahl, sem er svohljóðandi: Vegna auglýsingar í Morgun- blaðinu sunnudaginn 5. des s.l. Trúnaðarmenn S.D.Í. í hreppum landsins: Krafizt lokunar Sædýra- safnsins I SAMBANDI við ársskýrslu for- manns Samb. dýraverndunar- félaga Islands, er lögð var fram á ársfundi sambandsins á sunnu- daginn var, var gerð grein fyrir afskiptum sambandsins (S.D.I.) af Sædýrasafninu við Hafnar- fjörð. Kom þar glögglega fram að eins og horfi, þá liggi ekki annað fyrir en að safninu verði lokað, svo ófullnægjandi sé aðbúnaður dýranna. Gffurlegur kostnaður við rekstur safnsins sé þeim sem safnið reka algjörlega ofviða. Lokun þess sé einasta lausnin og með öllu óhjákvæmileg. Gerði ársfundurinn síðan sam- þykkt í Sædýrasafns-málinu þess efnis, að S.D.Í. á yfirvöld að fyrir- skipa lokun Sædýrasafnsins tafar- laust og að þau dýr sem þar eru verði aflífuð á mannúðlegan hátt. Sambandsstjórnin hafði afskipti af ýmsum fleiri málum á árinu er vörðuðu dýravernd. For- maður S.D.Í., Jórunn Sörensen, skýrði frá því, að nú væri ástæða til að vonast eftir árangri af því starfi stjórnarinnar að S.D.I. hafi á að skipa trúnaðarmanni i hverj- um hreppi landsins. Hefði oddvit- um verið skrifað og þeir beðnir að tilnefna trúnaðarmann í hreppi sínum til að starfa með S.D.t. og hefðu undirtektir verið mjög góð- ar um land allt. A ársfundinum var gerð grein fyrir tillögum sem S.D.Í. hefur falið fulltrúa sínum i dýra- verndunarnefnd ríkisins að koma á framfæri-í sambandi við þá endurskoðun á lögunum, sem nú er að hefjast. Þá var og gerð grein fyrir störfum fulltrúa S.D.Í. í fuglafriðunarnefnd ríkisins. A ársfundinum voru tveir kunnir frammámenn um dýra- verndunarmálefni og starfsemi dýraverndunarfélaga kjörnir heiðursfélagar S.D.I. en það eru þeir Hilmar Norðfjörð sem um árabil hefur verið gjaldket;i S.D.I. og Þórður Þórðarson frá Hafnar- firði. Stjórn S.D.I. var endurkosin, en í henni eiga sæti, auk formanns- ins, Jórunnar Sörensen, Garðabæ, Gunnar Steinsson, Reykjavik, Ölafur Jónsson, Seltjarnarnesi, Hilmar Norðfjörð, Reykjavík, Gauti Hannesson, Reykjavfk, Kristleifur Einarsson, Hafnar- firði og Paula Sörensen, Reykja- vik. A VEGUM félagsins Alliance Francais verður sýnd frönsk kvik- mynd, Don Juan, sem gerð er eft- ir leikriti Moliere, í franska bóka- safninu að Laufásvegi 12, þriðju- daginn 7. desember klukkan 20.30. Jacques Ramymond og Sig- ucður Pálsson munu flytja inn- gangserindi um Don Juan og tveir nýútskrifaðir leikarar, Sigurður Sigurjónsson og Sólveig Halldórs- dóttir, munu leika stutta kafla úr verkinu. undir fyrirsögninni: NY BÓK — um náttúrufræði himingeimsins, ÁSTROBIOLOGI — eftir Þor- stein Guðjónsson... og undir- ritað. . . LlFGEISLAÚTGÁFAN, FÉLAG NYALSSINNA. ... er bæði rétt og skylt að taka fram eftirfarandi: 1) Þessi bók er hvorki samin að undirlagi né í samráði við Félag Nýalssinna, og þvi ekki gefin út á vegum þess. 2. Ekki ein króna hefir verið greidd úr sjóði F.N. vegna samn- ingu eða útgáfu þessarar bókar. 3) Utgáfufyrirtækið „Lifgeisla- útgáfan" er ekki á vegum F.N. 4) Pósthólf það, er nefnt er i auglýsingunni er ekki pósthólf F.N. 5) Hvorki stjórnarfundarsam- þykkt né félagsfundarsamþykkt liggur fyrir um auglýsingu þessa. Þar sem hér hefir eigi verið farið að lögmætum félagslegum leiðum, krefst ég þess sem einstaklingur i félaginu (F.N.), að undirskriftin „Félag Nýals- sinna“ verði felld niður í frekari auglýsingum um bök þessa. Kjartan Norðdahl. Fyrir nokkrum árum sýndi Leikfélag Akureyrar Don Juan i þýðingu Jökuls Jakobssonar, en leikstjóri var Magnús Jónsson. Þá má og geta þess að fyrir þremur árum sýndi sjónvarpið leikritið og léku þar Arnar Jónsson og Þráinn Karlsson. I kvikmyndinni, sem sýnd verður í kvöld leikur Michel Piccolli Don Juan.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.