Morgunblaðið - 07.12.1976, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1976
33
Markús örn Antonsson.
undrun hjá unglingunum og
vöknuöu hjá þeim margar spurn-
ingar; svo sem „Hvað eruð þið að
gera hér“, „Hvers vegna eruð þið
að skipta ykkur af okkur“, „eruð
þið útsendarar lögreglu, foreldra
eða verslunareigenda.“ En þegar
unglingarnir kynntust vinnu-
• •
Markús Orn Antonsson:
Nýjung í æskulýðs-
starfi í Breiðholti
— útideild starfar meðal unglinga
Á FUNDI félagsmálaráðs Reykja-
víkurborgar 18. nóvember kom til
umræðu starfsemi svokallaðrar
útideildar í Breiðholti. Til útskýr-
ingar hvað útideild er, má geta
þess að hlutverk þeirra sem i
henni starfa er að aðstoða ung-
linga á ýmsan hátt. Blandar úti-
deildin sér þá oft á tíðum meðal
unglinga. Kom fram í umræðum
þar að starfsemi útideildar má
telja mjög athyglisverða til að
koma f veg fyrir að unglingar
lendi á glapstigum. Því óskaói fé-
lagsmálaráð eftir fjárveitingu til
áframhaldandi starfsemi á næsta
ári, og var tillaga þar að lútandi
frá Markúsi Erni Antonssyni sam-
þykkt samhljóða. Borgarfulltrúi
Markús örn Antonsson, (S)
ræddi málið nokkuð á siðasta
fundi borgarstjórnar. Sagði hann
að starfsemi ráðsins væri fyrir-
byggjandi til varnar þvi að per-
sónuleg vandamál einstaklinga í
samfélaginu komist á það stig að
heill og hamingju þeirra sé i voða
stefnt. Markús Örn sagði að nú
síðustu mánuði hefði orðið nokk-
uð tíðrætt um hegðunarvandamál
unglinga í Reykjavík. En það væri
erfitt að meta, hvort sú ólga sem
nú hefði ráðið ríkjum við Tónabæ
og í miðbænum væri í ætt við
ærslin á miður skemmtilegum
mannfögnuðum eins og gerðist á
Raufarhöfn eða Seyðisfirði á síld-
arárunum eða á útisamkomu við
Hreðavatn, Laugarvatn, á Þing-
völlum, i Þjrórsárdal og Þórs-
mörk. Ósjálfrátt tækju menn tíð-
indunum um Tónabæ og Hallær-
isplan með vissri varúð þvi vitað
væri, að margir svonefndir
vandræðaunglingar liðinna ára-
tuga eru meðal bestu borgara nú.
Hins vegar hafa leynst veruleg
erfiðleikatilfelli sem ekki er hægt
að horfa framhjá. Þar sem æsku-
lýðsráð heldur uppi margvfslegri
starfsemi þar sem félagsleg
vandamál barna og unglinga gætu
komið meira áberandi í ljós en
annars staðar var efnt til sam-
starfs milli þess, fræðsluráðs og
félagsmálastofnunar um fyrir-
byggjandi starf meðal unglinga i
Reykjavik. Niðurstaða samstarfs-
ins varð að komið var á útideild i
Breiðholti en þar hafði áður borið
á óróleika. Var samþykkt að tveir
menn einn frá æskulýðsráði og
annar frá félagsmálaráði héldu
uppi starfsemi meðal unglinga i
hverfinu tvisvar í viku, kvöld og
nætur. Stóð þetta yfir f sumar.
Forðast hefur verið í lengstu lög
að gera nokkuð það sem viðkom-
andi unglingar hafa ekki sam-
þykkt. Skapar þessi aðferð traust
unglinganna í útideildinni en tak-
markar starfsgetu hennar á
stundum, þannig að ekki hefur
alltaf reynst mögulegt að grfpa til
þeirra aðgerða sem starfsliðið
taldi þörf á.
I fyrstu mátti greina, að starf-
semi útideildar vakti nokkra
brögðum starfsmanna útideildar-
innar yfirvannst tortryggnin
verulega. I dag er staðan þannig i
Breiðholti III, að meirihluta ung-
linga litur á útideild sem sjálf-
sagðan og eðlilegan þátt I um-
hverfi sfnu. Þeir leita til starfsliðs
að fyrra bragði með vandamál sín
og þar eru málin rædd á jafnrétt-
isgrundvelli. Markús sagði að
þarna væri aflað upplýsinga, leit-
að aðstoðar án ihlutunaraðila sem
unglingar telja sér andsnúna.
Stór hluti starfsemi útideildar er
tengdur vandamálum vegna
neyslu áfengis. I viðræðum sem
þá voru hafðar við unglinga kom
oft í ljos eitthvert atriði sem
leiddi til misnotkunar áfengis,
svo sem atvinnuleysi, heimiliserf-
iðleikar, félagsleg einangrun og
skortur á áhugamálum. Tókst all
oft að leysa úr vandamálunum.
Áður en starfsemi útideildar
hófst bar nokkuð á innbrotum og
skemmdarverkum í Breiðholti
III, en nú virðist hafa dregið úr
þeim hvort sem það er starfsemi
útideildar að þakka eður ei. Talið
er að þegar á allt er litið hafi
starfsemi útideilda borið árangur
og má í því sambandi benda á
nokkur atriði: Unglingar viður-
kenndu og notfærðu sér þjónustu
útideildar. Foreldrar leituðu að-
stoðar útideildar og þáðu í öllum
tilfellum aðstoð þegar hún var
boðin að fyrra bragði. Tengsl
starfsliðs við unglinga leiddi til
þess að þeir sem vegna ófram-
færni eða hræðslu hefðu ekki leit-
að aðstoðar fyrr en i óefni var
komið sneru sér til útideildar.
Með starfi útideildar hefur verið
sýnt fram á, að unglingarnir hafa
þörf fyrir og óska eftir tengslum
við fullorðna. Starfslið útideildar
hefur öðlast vitneskju um ástand
unglingamála sem erfitt eða
ógerningur hefði verið að afla á
annan hátt. Sú reynsla sem feng-
ist hefur með starfrækslu úti-
deildar sannar að samvinna
tveggja ólikra stofnana er mögu-
leg og beggja hagur. Samvinna
við aðra er yfirleitt með ágætum.
Markús örn Antonsson sagði að
gerðar hefðu verið tillögur um að
tæpum fimm milljónum verði var-
ið til starfsemi útideildar á næsta
ári. Gert er ráð fyrir að útideild
starfi að öllu jöfnu tvær nætur í
viku frá kl. 21 til 04 að morgni.
Borginni yrði skipt í þrjú starfs-
svæði þ.e. hverfi I Tónabær,
hverfi II Bústaðir og hverfi III
Fellahellir. Tveir menn verði á
hverju svæði í senn og ennfremur
einn maður á bakvakt ef á þarf að
halda. Að iokum sagði Markús að
hann vonaðist til að fyrrgreind
lýsing opnaði augu borgarfulltrúa
fyrir þvi nýmæli og gagnsemi sem
hér væri á ferðinni og hvatti hann
borgarfulltrúa til að leggja mál-
inu lið þegar kæmi að ákvörðun
um fjárveitingu í þessu skyni.
Aðrir tóku ekki til máls.
VÉLA-TENGI
eZ-WellenkuF 'lung
Conax Planox Vulkan
Doppelflex Hadeflex.
SÖMIí13a(U]§]MtiJ
Vesturgötu 16,
sími 1 3280.
Komnir
aftur
Þessir vinsælu
sokkaskór nu
aftur fáanlegir.
Stærðir 1 —12 ára.
f§ / '
V E R Z LUN IN
GEtSiPP
STRIMLAGLUGGA TJÖLD
LUXAFLEX ERU:
Vönduðustu strimlagluggatjöldin.
Kynnið yður verö og gæði.
Gerum verðtilboð
yður að kostnaðarlausu.
OLAFUR KR.SIGURÐSSON &Co.
SUÐURLANDSBRAUT 6 s: 83215
YLURINN FRÁ OSRAM HEFUR
LINAÐ ÞRAUTIR MARGRA.
OSRAM
vegna gæðanna
Hvort sem þú þjáist af gigt eöa harösperrum — eöa þá bara
löngun til sólarlanda — hefur OSRAM ráö viö verstu stingjunum!
OSRAM Ultra Vitalux er lampinn, sem kemur öllum í suðrænt
skap, og heldur við heilbrigðum litarhætti, jafnvel í versta
skammdeginu.
OSRAM Theratherm hefur reynst gigtarsjúkum vel í mörgum
tilvikum.