Morgunblaðið - 07.12.1976, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 07.12.1976, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. DESEMBER 1976 39 Minning: Bjarni Valdimars- son verzlunarmaður Fæddur 8.12. 1919 Dáinn 29.12. 1976. Bjarni Valdimarsson verzlunar- maður fæddist hér í Reykjavík og eru foreldrar hans Valdimar Sig- urðsson, sem í fjöldamörg ár starfaði hér við leikhúsin, fyrst við Iðnó og síðan Þjóðleikhúsið, og kona hans Ágústa Bjarna- dóttir. Bjarni var elstur fjögurra systkina, sem öll lifa bróður sinn. Svo sem títt var á uppvaxtarárum Bjarna naut hann ekki langrar skólagöngu, heldur byrjaði snemma að vinna fyrir sér. Þó gekk hann í kvöldskóla að loknu barnaskólanámi, sem KFUM rak á þeim árum. I þeim skóla var kennt ýmislegt sem hagnýtt þótti í sambandi við verzlunarstörf. Kunni Bjarni vel að meta þá kennslu sem hann fékk í kvöld- skólanum og heyrði ég hann oft minnast á veru sina þar. Þegar Bjarni var 15 ára gamall hóf hann störf hjá verzlun Jes Siemsens og þar starfaði hann áfram hjá nýjum eigendum, eftir að verzlunin hlaut nafn Jóns Hjartarsonar. Þegar ég kynntist Bjarna fyrst um 1940 var hann innanbúðar í þessari verzlun Jóns Hjartarsonar í Hafnarstræti. Bjarni var vel meðalmaður á hæð og samsvaraði sér vel. Hann var duglegur og fjörmikill afgreiðslu- maður sem orð fór af fyrir lipurð og kurteisi. Þá tók Bjarni mjög virkan þátt í skátahreyfingunni og hafði gert það frá barnsaldri. Ekki er ég kunnugur hans starfi þar umfram að vita að allan sinn aldur studdi hann þessa hreyfingu og tók í henni virkan þátt. Sótti hann í þetta starf gleði og ánægju sem af því fæst að veita góðu málefni lið, auk þess sem hann átti marga vini og kunningja í skátahreyfing- unni. Verzlunarstörf urðu ævistarf Bjarna. Hann vann við matvöru- verzlun bæði sem afgreiðslumað- ur og verzlunarstjóri hjá 4 fyrir- tækjum. Það voru aðeins stutt tímabil sem hann vann við önnur störf, en um skeið vann hann í bygg- ingarvinnu og nokkurn tíma var hann til sjós á farskipum. Verzlunarstörf vann Bjarni hjá Jóni Hjartarsyni, Arna Jóni Kron og Sláturfélagi Suðurlands. Allt voru þetta verzlanir upp á gamla mátann, sem nú eru að hverfa. Matvörukaupmaðurinn á horninu sem þekkti sina viðskiptavini og sem viðskiptavinirnir þekktu. Þvf var það gjarnan sem börnin voru send í „Bjarnabúð" þó svo að eig- andinn væri allt annar, þá var það Bjarni sem börnin þekktu og fólkið treysti. Nú er þessi per- sónulega verslun sem Bjarni starfaði við alla sína tíð að hverfa og í staðinn koma annars konar verzlanir. Bjarni átti því láni að fagna að vera heilsuhraustur og varð því sjaldan misdægurt. Því var það óvænt sem dauða hans bar að en Bjarni varð bráðkvaddur aðfara- nótt 29. nóvember. Hafði Bjarni gengið að vinnu sinni að venju og ekki haft orð á að neitt amaði að sér. Ekki efa ég samt að Bjarni hafi getað sagt þá eins og svo oft áður og sem er kjörorð skáta- hreyfingarinnar: Ávallt viðbúinn. Með Bjarna er horfinn góður drengur sem vann trúverðugur sitt ævistarf í hjarta okkar bæjar og margir munu nú sakna. Bjarni giftist eftirlifandi konu sinni, Áslaugu Helgadóttur hár- greiðslukonu 18. okt. 1942 hinni ágætustu konu sem bjó honum og börnum þeirra gott heimili, en lengst bjuggu þau að Njálsgötu 52 eða rösk 30 ár. Synir þeirra, Birgir, Skúli og Bjarni Már, eru nú uppkomnir og hafa stofnað eigin heimili en dóttirin Ingi- gerður sem er yngst, er enn í heimahúsum. Ég sendi ekkju Bjarna, börnum og öldruðum foreldrum innilegar samúðarkveðjur. Hannes Pálsson Afmælis- og minningar- greinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á f mið- vikudagsblaði, að berast f síð- asta lagi fyrir hádegi á mánu- dag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera i sendibréfsformi eða bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með góðu línubili. EDITH MOLLER — MINNINGARORÐ Edith Möller, sem til moldar er borin í dag, var fædd I Danmörku 19. nóvember 1907. Foreldrar hennar, frú Kirsten og Valdemar Poulsen, fluttust til Islands, er Edith var á öðru ári, tóku sér bólfestu í Reykjavfk og bjuggu þar æ siðan. Valdemar Poulsen stofnaði járnvöruverzlun, sem hann rak til dauðadags. Hann var stórhuga athafnamaður og reisti á sínum tíma stórhýsið nr. 29 við Klapparstig. 2. júní 1934 giftist Edith Jóhanni G. Möller frá Sauðár- króki, syni Jöhanns G. Möllers kaupmánns þar og konu hans Þor- bjargar, dóttur síra Pálma Þóroddssonar. Jóhann var skrif- stofustjóri Rafmagnsveitu Reykjavíkur og siðar forstjóri Tóbakseinkasölu rikisins, mikill hæfileika- og hugsjónamaður, sem lézt fyrir aldur fram árið 1955, 48 ára að aldri. Þau Edith og Jóhann Möller áttu son einan barna, alnafna föður síns. Jóhann yngri var mikill efnismaður, lauk stúdents- prófi á Akureyri 1957 og hóf háskólanám i læknisfræði. Hann var heitbundinn ágætri stúlku, Guðnýju Einarsdóttur Þorvalds- sonar skólastjóra, og átti brúð- kaup þeirra að standa 23. april 1958, á tuttugu og eins árs afmælasdegi Jóhanns. Rétt fyrir páska, 29. marz 1958, lagði Jóhann af stað i flugvél ásamt þrem skólabrðrum sínum og var ferðinni heitið til Akureyrar. En flugvélinni hlekktist á og komst enginn þeirra f jögurra félaga lifs af. Þeim harmi þarf ekki að lýsa, sem kveðinn var að móður Jóhanns og unnustu. En Edith tók miklu ástfóstri við Jóhönnu sonardóttur sina, sem var tveggja mánaða gömul, þegar faðir hennar féll frá, og bjó Jóhanna hjá ömmu sinni siðustu árin. Guðný, móðir Jóhönnu, reyndist Edith trygg og trú hjálparhella ásamt manni sinum Páli Ásgeirs- syni. En þótt ástvinamissir og vanheilsa hin siðari ár mæddu mjög á Edith Möller, þá var hún á marga lund gæfumanneskja. Hún ólst upp hjá ágætum foreldrum og naut umhyggju og ástríkis eigin- manns og sonar, meðan þeirra naut við. Marga vini og kunningja átti hún, sem kunni vel að meta mannkosti hennar. Edith var glaðvær, sagði skemmtilega frá og hafði næmt auga og eyra fyrir því sem skoplegt var. Ættingjar og vinir minnast hennar með hlýjum hug. Gunnar Thoroddsen JÓN AUÐUNS Uf og UFSVIDHORF iöRÍSt Séra Jón Auðuns, frjálshyggju- maður í trúmálum, orðsnjall í ræðu sem riti, rekur hér æviþráð sinn.Hann segir frá uppvaxtar- og námsárum, afstöðu til guðfræði- kenninga, kynnum af skáldumog menntamönnum og öðru stór- brotnu fólki og hversdagsmann- eskjum, sem mótuðu lífsviðhorf hans og skoðanir. E4ÐIR/I1INN SKIPSTJÓRINN Fjórtán þættir um fiskimenn og farmenn, skráðir af börnum þeirra. Þeir voru kjarnakarlar, þessir skipstjórar, allir þjóðkunnir menn, virtir og dáðir fyrir kraft og dugnað, farsælir í störfum og urðu flestir þjóðsagnapersónur þegar í lifanda lífi. - Ósvikin og saltmenguð sjómannabók. Fagur óður um móðurást og makalausa umhyggju, gagnmerk saga stórbrotinnar og andlega sterkrar og mikilhæfrar alþýðu- konu, saga mikilla andstæðna og harðrar en heillandi lífsbaráttu, þar sem togaðist á skáldskapur og veruleiki, því Guðrún Oddsdóttir vareiginkona skáldbóndans Guð- mundar á Sandi. Jóhannes fer hér höndum um sjóferðaminningar ólafs Tómas- sonar stýrimanns frá þeirri kvöld- stund að hann fer barn að aldri í sína fyrstu sjóferð á Mótor Hans og til þeirrar morgunstundar að þýzkur kafbátur sökkti Dettifossi undir honum í lok síðari heims- styrjaldar. - Hérerlistilegfrásögn og skráð af snilld. ÍSIUt KIIS MOL.DINNI GLITRAR CULtJÐ WMxMM' wnskMi J- «0*. Opinskáar og tæpitungulausar sögur úrfórumævintýramannsins og frásagnarsnillingsins Sigurðar Haralz, mannsins sem skrifaði Emigranta og Lassaróna. Fjöldi landskunnra manna kemur við sögu, m.a. Brandur i Ríkinu, Sigurður íTóbakinu, Þorgrímurí Laugarnesi og þúsundþjalasmið- urinn Ingvar fsdal. Einn allra mesti fjallagarpur og ævintýramaður heims segir frá mannraunum og hættum. Bók hans er skrifuð af geislandi fjöri og leiftrandi lífsgleði og um alla frásögnina leikur hugljúfur og heillandi ævintýrablær, tær og ferskur eins og fjallaloftið. - Þetta er kjörbók allra, sem unna fjall- göngum og ferðalögum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.