Morgunblaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1978 VíkurberB sem hér sést í togi fékk nótina í skrúfuna fyrir nokkru þar sem hann var að veiðum á loðnumiðunum. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson kom skipinu til aðstoðar, dró það inn á Reyðarfjörð þar sem kafari frá Árna Friðrikssyni losaði nótina úr skrúfunni. Ljósm. Óskar Sæmundsson Verkalýðsfélög gefa út kaup- taxta, sem VSI telur ólögmæta Sjálfstæðismenn á. Seltjarnarnesi: Sigurgeir Sig- urdsson efst- ur í prófkjörinu Vinnuveitendasamband ís- lands hefur sent frá sér fréttatil- kynningu, þar sem vinnuveit- endur eru varaðir við „ólögmæt- um kauptöxtum“, sem nokkur stéttarfélög hafi gefið út. í þessum töxtum er ekki tekið tillit til skertrar vísitölu, heldur kauphækkunin vegna verðbóta- vísitölu reiknuð að fullu hinn 1. marz 1978. Þau félög, sem gefið hafa út slíka taxta, eru Verkamanna- félagið Dagsbrún og Verka- kvenrafélagið Framsókn, Félag járnionaðarmanna og Verkalýðs- félag Akraness. Fréttatilkynning VSI, þar sem sérstaklega er fjallað um þessa útgáfu launa- taxta, er svohljóðandi: „Komið hefur í ljós, að nokkur verkalýðs- félög hafa gefið út og dreift kauptöxtum, þar sem tilgreint er hærra kaup en greiða ber sam- kvæmt kaupgjaldsútreikningum ÓVÍST er hvort vélbáturinn Valþór frá Sigiufirði verður fyrst íslenzkra fiskiskipa til að selja afla í Hull eftir afléttingu löndunarbannsins eins og til stóð, því báturinn bilaði á útleið og var hann dreginn til Færcyja. Að sögn Sæmundar Árelíus- Kaffi og gosdrykk- ir hækka KAFFI og gosdrykkir hækka í da^. Kaffi hækkar um 14,7% vegha hækkaðs gengiskostnaðar og kostar pakkinn nú 585 krónur, en kostaði áður 510 krónur. Gosdrykkir hækka um 21% og kemur hækkunin til bæði vegna aukins gengiskostnaðar og ann- arra kostnaðarhækkana. Hækkanir þær, sem urðu á bensíni og olíum fyrir helgina, komu til vegna hækkaðs gengis- kostnaðar. byggðum á gildandi kjarasamn- ingum, lögum nr. 3 1978 um ráðstafanir í efnahagsmálum og tilkynningu Kauplagsnefndar um verðbætur frá 1. marz til laun- þega innan Alþýðusa'mbands Is- lands. Útgáfa slíkra kauptaxta er að sjálfsögðu ólögmæt, þar sem kjarasamningum hefur ýmist ekki verið sagt upp eða uppsagn- arfrestur þeirra er ekki liðinn. Vinnuveitendasamband íslands beinir því til félagsmanna sinna og annarra vinnuveitenda að vera á varðbergi gagnvart kauptaxta- útgáfu af þessu tagi og áminnir þá um að greiða kaup samkvæmt réttum kauptöxtum." Þá hefur Vinnuveitendasam- bandið gefið úr kaupgjaldsskrá sína með þeim töxtum, sem það telur rétta, og á forsíðu skrárinn- ar er sérstök viðvörun til félaga innan VSÍ, sem er mjög í anda sonar framkvæmdastjóra Þor- móðs ramma hf á Siglufirði varð bilun í skrúfu bátsins á laugar- daginn þegar hann var nýlega lagður af stað áleiðis til Hull. Togarinn Sigluvík, sem er í eigu sama hlutafélags, var þarna skammt frá og varð að ráði að Sigluvíkin drægi Valþór til Klakksvíkur í Færeyjum. Kom Valþór þangað í gærkvöldi og var hann þá strax tekinn upp í slipp. Að sögn Sæmundar Árelíus- sonar standa vonir til þess að viðgerðin taki aðeins skamma stund og báturinn geti haldið áfram för sinni í dag og selt í Hull á föstudáginn. Ef það tekst ekki mun Valþór selja aflann í Færeyjum, en hann var með 60—70 tohn af fiski, mestmegnis þorsk. Helmingi hærra verð fæst fyrir aflann í Hull en í Færeyjum og er því mikið í húfi að viðgerðin takist vel. Að sögn Jónasar Haraidssonar hjá LÍÚ hafa ýmsir hug á því að senda skip sín með afla á brezkan markað en ekki hafði í gær verið tekin ákvörðun um siglingu fleiri báta en Valþórs. ofangreindrar fréttatilkynning- ár. Þá er þess að geta að enn hefur ekki verið gefin út reglu- gerð um framkvæmd sérstaks verðbótaviðauka samkvæmt 2. grein laganna nr. 3 1978, sem greiðist eftir á samkvæmt nánari reglum þeim launþegum, sem ekki ná tilteknum heildarlaunum. Að sögn Barða Friðrikssonar, framkvæmdastjóra Vinnuveit- endasambands íslands, verður dregið af launum fólks fjárhæð, sem nemur launum í þá tvo daga, sem verkfallið stóð í upphafi mánaðarins. Verða yfirleitt dreg- in frá launum tvenn daglaun, en vinnuveitendur munu ekki ætla að nýta heimildarákvæði, sem eru í sumum kjarasamningum, um að vanræktar vinnustundir komi til frádráttar með nætur- vinnuálagi. Um fébótakröfur á hendur þeim félögum, sm hreinlega boðuðu verkföll sagði Barði, að enn hefði ekki verið tekin ákvörð- un um málshöfðanir á hendur þeim. Hann kvað næsta fram- kvæmdastjórnarfund Vinnuveit- endasambandsins mundu fjalla um slíka ákvörðun, en fundur framkvæmdastjórnarinnar verður í dag. „Mér finnst ósköp líklegt að farið verði í einhver mál,“ sagði Barði Friðriksson. HÚSEIGNIN Hallveigar- staðir á mótum Garðastrætis og Túngötu, sem er í eigu Kvenfélagasambands Is- lands, hefur verið auglýst til sölu. Ástæðan er sú, að sögn Sigríðar Thorlasius, for- manns sambandsins, að hús- ið þykir ekki henta starf- semi kvennasamtakanna og hafa þau áhuga á að verða sér úti um hagkvæmara húsnæði. Brunamótamat Hallveigarstaða er 285 milljónir króna. Að því er Sigríður Thorlacius LAUST eftir miðnætti í nótt voru kunn úrslit í prófkjöri sjálfstæðismanna á Seltjarnar- nesi. Úrslit urðu þau að Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóri varð í efsta sæti, hlaut 87,71% greiddra atkvæða, Hann hlaut 408 atkvæði í 1. sæti, 95 í 2. sæti, 40 í 3. sæti og 60 í 4.-7. sæti eða samtals 603 atkvæði. í 2. sæti varð Magnús Erlendsson, hlaut 60.36% greiddra atkvæða. Hann hlaut 108 atkvæði í 1. sæti, 169 atkvæði í 2. sæti, eða samtals 277 atkvæði í tvö efstu sætin. Magnús hlaut 76 atkvæði í 3. sæti og 87 atkvæði í 4.-7. sæti eða samtals 400 atkvæði. í 3. sæti varð Snæbjörn Ásgeirsson, hlaut 62,14% greiddra atkvæða. Hann hlaut 69 atkvæði í 1. sæti, 142 í 2. sæti og 108 í 3. sæti eða samtals 319 atkvæði í þrjú efstu sætin. I 4.-7. sæti hlaut hánn 134 at- kvæði og því samtals 453 at- kvæði. í 4. sæti varð Júlíus Sólnes með 52,13% greiddra atkvæða. Hann híaut 33 atkvæði í 1. sæti, 70 í 2. sæti, 85 í 3. sæti og 75 í 4. sæti eða 263 atkvæði í fjögur efstu sætin. í 5.-7. sæti hlaut hann 117 atkvæði og því 380 atkvæði alls. ENDURTELJA varð atkvæði í 5. —6. sæti, þar sem sáralitlu munaði á Guðmari Magnússyni og Jóni Gunnlaugssyni. Endanleg úrslit urðú þau að Guðmar varð ÞEGAR Morgunblaðið fór í prentun klukkan tvö í nótt var búið að telja 1050 at- kvæði af 1455 greiddum atkvæðum í prófkjöri sjálf- stæðismanna á Akureyri vegna bæjarstjórnarkosn- inganna í vor. I 1. sæti var þá Gísli Jónsson menntaskólakennari með 896 atkvæði, í 2. sæti Sigurður J. Sigurðsson framkvæmdastjóri með 648 atkvæði, í 3. sæti Sigurður Hannesson bygginga- meistari með 617 atkvæði, í 4. sæti Gunnar Ragnars fram- kvæmdastjóri með 543 atkvæði, í 5. sæti Tryggvi Pálsson fram- kvæmdastjóri með 511 atkvæði. sagði sáu forsvarsmenn kvenna- samtakanna fram á að Hallveig- arstaðir hentuðu á engan hátt starfsemi samtakanna, eins og hún væri orðin nú á dögum, en upphaflega var húsið ætlað sem vistheimili eða kvennahótel fyrir t.d. ungar stúlkur utan af landi, námsstúlkur og fleiri, en hins vegar hefði verið byrjað á smíði hússins þegar í ljós kom að þessar upphaflegu hugmyndir voru orðnar óraunhæfar. Var þá sýnt að húsið hentaði bezt sem skrifstofuhúsnæði og síðan var það tekið í notkun hefur Borg- ardómur haft meginhluta þess á leigu. í 5. sæti, hlaut samtals 280 atkvæði í fimm efstu sætin en Jón hlaut 279 atkvæði í þau sæti. Samtals hlaut Guðmar 332 at- kvæði eða 45,55%. Jón hlaut 314 atkvæði í sæti 1—6 og samtals 340 atkvæði eða 46,64%. í 7. sæti varð Helga Einarsdóttir með 268 atkvæði eða 36,76% greiddra atkvæða. í prófkjörinu greiddu 750 manns atkvæði en í síðustu bæjarstjórnarkosningum á Sel- tjarnarnesi hlaut Sjálfstæðis- flokkurinn 766 atkvæði. Þá fékk flokkurinn 5 bæjarfulltrúa af 7. Tveir menn inni vegna hassmálsins STÖÐUGT er unnið að rannsókn hassmálsins, sem Fíkniefnadóm- stóllinn og fíkniefnadeild lög- reglunnar í Reykjavík hafa unnið að, en sem kunnugt er leikur grunur á því, að um sé að ræða smygl á mörgum kflóum af hassi. Tveir menn sitja í gæzluvarð- haldi vegna rannsóknar þessa máls. Mennirnir, sem eru hálfþrí- tugir, hafa setið í gæzluvarðhaldi í nokkrar vikur en þeir voru á sínum tíma úrskurðaðir í allt að 60 daga gæzluvarðhald. í 6. sæti Ingi Þór Jóhannsson framkvæmdastjóri með 442 at- kvæði, í 7. sæti Margrét Kristinsdóttir skólastjóri með 383 atkvæði, í 8. sæti Rafn Magnússon byggingameistari með 347 atkvæði og 9. sæti Björn Arnviðarson lögfræðingur með 346 atkvæði. Gísli Jónsson, Sigurður. J. Sigurðsson og Sigurður Hannes- son skipuðu 3 efstu sæti sjálf- stæðismanna við síðustu kosn- ingar en Jón G. Sólnes alþ.m. og Bjarni Rafnar læknir, sem skip- uðu 4. og 5. sætið, gáfu ekki kost á sér í prófkjörið að þessu sinni. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut þá 5 menn kjörna af 11 í bæjarstjórn. Sigríður sagði, að af framan- greindum ástæðum hefði verið talið ráðlegast að reyna að skipta um húsnæði, og kvaðst hún búast við því að ef af sölu hússins yrði, myndi byrjað að svipast um eftir öðru fullbyggðu húsnæði, sem hentaði starfseminni betur. Samkvæmt upplýsingum lög- mannsskrifstofunnar er annast sölu Hallveigarstaða, þá er fast- eignamat húss og lóðar um 200 milljónir króna en brunbótamat þess er 287 milljónir króna. Tveir aðilar hafa þegar spurzt fyrir um húseignina. Valþór í slipp í Fær- eyjnm fullur af fiski Ovíst hvort hann getur selt aflann í Hull Hallveigarstaðir til sölu; Kvennasamtökin svipast um eftir hentugra húsi Sjálfstæðismenn á Akureyri: Gisli Jónsson efst- ur í prófkjörinu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.