Morgunblaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 46
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1978 — Vestfirðingur- inn vinsælastur A MEISTARAMÓTI Islands í frjátsíþróttum innanhúss, sem hád var fyrir viku, vakti mesta athygli Vestfirdingurinn Jón Oddsson. Jón sigraði f langstökki og varð annar í hástökki. Stökk hann 7,07 metra í langstökkinu og 1,90 metra f hástökki. Hvort tveggja er frambærilegur árangur og getur Jón án efa bætt hann talsvert ef hann gæfi frjáls- fþróttum meiri gaum. Var Jón vinsælasti keppandinn á mótinu. Jón Oddsson, sem keppir fyrir HVÍ, er ekki nýgræðingur f frjáls- fþróttum þó svo hann leggi litla rækt við þær. Á meistaramótinu innanhúss f fyrra lét hann að sér kveða er hann krækti í silfurverðlaun f bæði langstökki og þrístökki. Háði hann þá harða keppni við Friðrik Þór Oskarsson IR í langstökkinu og dugði Friðriki þá ekki minna en fslandsmet til að sigra Jón. Hjó Jón nú nærri þvf meti, var aðeins fjóra sentimetrarfrá þvf. Að þessu sinni sigraði Jón Friðrik með yfirburðum. 1 viðtali við Mbl. eftir innanhússmótið f fyrra lét Jón svo um mælt að hann hefði lítið sinnt frjálsfþróttum, hefði mciri áhuga á öðrum fþróttum. Jón sagði í spjallinu að hann hefði aðeins verið með f leikfimi f skólanum, æft körfubolta, fótbolta, blak og fimleika. Sagðist hann hafa einna mestan áhuga á knattspyrnu og erfitt yrði að slfta sig frá henni og helga sig frjálsíþróttum. Fór þó svo að Jón sinnti frjálsum nokkuð, komst m.a. f landslið og keppti í Kalott-keppninni í Finnlandi. Ekki er að efa að Jón Oddsson getur náð mjög langt í frjálsíþróttum legði hann rækt við þær, æfði vel og skipulega. Hann hefur líkams- burðina til að bera og mikið keppnisskap. Það yrði frjálsfþróttum lyftistöng sneri Jón sér að þeim, sérstaklega gætu keppnir hans og Friðriks í langstökkinu orðið skemmtilegar. _ m' -W Jón Oddsson í sigurstökkinu á meistaramóti tslands f frjáls- fþróttum innanhúss. Verðlaunamennirnír f langstökkinu. Jón Oddsson HVl fyrir miðju. Honum til hægri handar er Rúnar Vilhjálmsson UMBS, sonur Vilhjálms Einarssonar Ólympfuverðlaunamanns, og lengst til hægri á mvndinni er Friðrik Þór Oskarsson IR. Ljeism. Birtiir Jeiakim.sson 4 ÍSLANDSMET í SUNDIÁ KR-MÓTI GÓÐUR árangur náðist á Sundmóti KR og m.a. voru sett fjögur íslandsmet og tvö unglingamet. Sýnir árangurinn á mótinu á sundfólkið er í góðri æfingu og líklegt til að bæta enn árangur sinn á um aðra helgi. Bjarni Björnsson, Ægi, bætti ís- iandsmet Sigurðar Olafssonar í 400 metra skriðsundi úr 4:16.0 í 4:15.4. Sonja Hreiðarsdóttir bætti met Ellenar Ingvadóttur i 100 m bringusundi og er nýja metið einnig stúlknamet. Nýja metið er 1:19.5. en met Ellenar, sem sett meistaramótinu í innilaug, s var 1971, var 1:19.6 og var þetta sfðasta met Ellenar, sem enn stóð. I 4x100 metra fjórsundi setti kvennasveit Ægis glæsilegt met og bætti eigið met um 5 sekúndur. Nýja metið er 4:55.6. Loks setti Þórunn Alfreðsdóttir met í 100 m skriðsundi kvenna, synti á 1:02.4. m fram fer í Sundhöllinni Gamla metið átti Vilborg Sverris- dóttir, SH. 1:03.2. Þeir Hugi Harðarson, Selfossi, og Ari G. Haraldsson, KR, settu unglingamet í 100 m baksundi og 100 m bringusundi. — áij Tvö drengjamet á unglingamóti Ármanns UNGLINGAMÓT Armanns í sundi fór fram í Sundhöllinni f Reykjavík 26. febrúar. Keppend- ur voru fjölmargir og náðist ágæt- is árangur, meðal annars voru sett tvö ný drengjamet, Steinþór Guðjónsson, Selfossi, setti drengjamet í 200 metra skrið- stindi, svnti vegalengdina á 2,06,8 mín. og Ingr Þór Jónsson, IA, setti drengjamet f 100 metra flug- sundi, synti á 1,05,8 mín. Úrslit urðu sem hérsegir: 200 M SKRIÐSI NI) DRENGJA Sleinþór (iuðjónsson, Selfossí 2,06,8 Drengjamet. Injji Þ. Jónsson. IA 2,07,9 Helgi S. Hardarson. Selfossi 2,10,8 100 M BRINGUSUND STÚLKNA Sonja Hreióarsdóltir, Æ#i 1.20.8 Þóranna Hédinsdóllír, Æ|?i 1,228 (iuóný (iuðjónsdóttir. Armanni 1,228 50 M SKRIÐSUND SVEINA Eóvaró Þ. Eóvarósson. ÍBK 34,7 Óiafur Einarsson. /E«i 35,2 Þóróur Óskarsson. IBK 35.3 50 M BRINGUSUND TELPNA Hrönn Bachmann. KR 40.9 Katrfn Sveinsdóttir. Breióabliki 47,7 Guórún F. Ágóstsdóttir 43.3 Firmakeppni í körfubolta ákveðið hefur verið að halda firmakeppni í körfubolta í Haukahúsinu helgina 18 —19 marz. Nánari upplýsingar gefur húsvörður Haukahússins í síma 53712. Stjórn Körfuknattleiksdeildar Hauka. 4\100 IVI FJÓRSUND DRENGJA Sveit Selfoss 4.44.3 Sveit ÍBK 5,12,0 A-Sveit Ægis 5,23,7 4x100 M FJÓRSUND STÚLKNA A-Sveit Ægis 5,09,6 B-Sveit Ægis 5,34,7 Sveit Breiöabliks 5,40,8 100 M BAKSUND SVEINA Hrrmundur Sigmundsson, Æ«i 1.25.2 Asgeir Guðnason, Breiðabliki 1.27,9 Einar Sigurðsson. Armanni 1.28.6 100 M BAKSUND TELPNA Marjírét Sij'urðardóttir, Breiðabliki 1.23.2 Þóranna Héðinsdóttlr. Æ>íi 1.25,0 Ma^nea Vilhjálnisdóttir,Æfýl 1.25.4 100 M FLUGSUND DRENGJA In»íi Þór Jónsson. ÍA 1.05.8 Dreiuíjamet Jón B. Sigurðsson. A 1,10,5 Sveinbjörn Gissurarson, IBK 1.11.0 200 M SKRIÐSUND STÚLKNA Guðný óuðjónsdóttir. Armanni 2,19.3 Sonja Hreiðarsdóttir. Ægi 2,21.5 Anna (íunnarsdóttir. Ækí 2,27,2 50 M BRINGUSUND SVEINA Edvard Þ. Edvardsson. IBK 41.0 Þórður Óskarsson. iBK 42,7 örn Hauksson. S.I|. 45,3 50 M SKRIÐSUND TELPNA Hrönn Baehmann, KR 32,0 Katrfn Sveinsdóttir. Breiðabliki 33.6 Guðrún F. A«ústsdóttir, Ægi 35,5 VILMUNDUR SLASAÐIST ÁÆFINGU SPRETTHLAUPARINN góðkunni Vilmundur Vilhjálmsson slasaðist fyrir skemmstu á æfingu, en hann stundar háskólanám í Loughbor- °ugh á Englandi. Vilmundur er nú á batavegi og ólíklegt að meiðslin hái honum f keppnum sumarsins. Vilmundur Vilhjálmsson setti sem kunnugt er íslandsmet í 200 metra hlaupi í sumar og jafnaði metið í 100 metrunum. Hefur hann verið í mikilli framför hin síðari ár og búist við að hann næði árangri á heimsmælikvarða í sum- ar. Hefur Vilmundur æft sig af kostgæfni í veturog búiðsig undir stórátök sumarsins, en það var einmitt á æfingu sem það óhapp henti hann að bráka smávegis á sér annan fótinn. Vilmundur var á lyftingaæf- ingu í skóla sinum og er hann steig niður af bekk með þung lóðin á herðunum kom hann nið- ur á lyftingajárn. Brákaðist Vil- mundur eitthvað á öðrum fæti og var hann settur í gifs í 10 daga. Samkvæmt heimildum Mbl. virð- ist Vilmundur vera á góðum bata- vegi og getur hann hafið æfingar fljótlega, þannig að meiðslin koma vart til með að hafa áhrif á afreksgetu þessa kappa í sumar. — ágás ASDlS Alfreðsdóttir úr Reykjavfk stóð sig með prýði á Her- mannsmótinu á Akureyri, sem fram fór fyrir viku. Sigraði Asdís bæði f svigi og stórsvigi og kom það á óvart að Steinunn Sæmundsdóttir skyldi ekki ná betri árangri á mótinu en raun bar vitni. Steinunn varð þriðja í stórsvigi, en varð úr leik í sviginu. Meðfylgjandi mynd er af Ásdfsi Alfreðsdóttur á fullri ferð. Fram og ÍR áfram í bikar TVEIR leikir fóru fram siðastliðið þriðjudagskvöld i bikarkeppni KKÍ Léku fyrst lið ÍR og ÍBK og komu Keflvikingar þar verulega á óvart og léku þeir á tiðum betur en 1. deildar lið ÍR. ÍR-ingar voru þó með örugga forystu allan leikinn. þetta 10 til 14 stig. en Keflvikingar sýndu stjörnum ÍR enga virðingu og gerðu marga góða hluti. Staðan i hálfleik var 47—35. Seinni hálfleikur spilaðist likt hin- um fyrri. ÍR-ingar tóku spretti milli þess sem ÍBK-menn jöfnuðu leikinn. En sigur ÍR-inga var þó aldrei i hættu. og lokatölur urðu 85—64. Bestir ÍR-inga voru Stefán Kristj- ánsson og Agnar Friðriksson, en Stefán skoraði 22 stig og Agnar 21 stig. Hjá Keflvikingum var Einar Sig- urðsson bestur. en hann er leikmað- ur. sem styrkt gæti hvaða 1. deildar lið sem er og e.t.v. einkennilegt að Njarðvikingar reyni ekki að fá þenn- an sterka leikmann til liðs við sig. Einarskoraði 18 stig. Seinni leikur kvöldsins var milli 1. flokksliðs KR og 1. deildar liðs Fram. Komu KR-ingar þar nokkuð á óvart með ágætum leik sinum og þótt Fram hefði haft yfir allan leikinn þá var sigur þeirra engan veginn örugg- ur. í hálfleik var staðan 35—26 Fram i vil. j seinni hálfleik náðu Framarar 16 stiga forystu, en KR-ingum tókst með ágætri baráttu að minnka mun- inn niður í 9 stig og vinna hálfleikinn með 2 stigum. en lokatölur urðu 69—60. Skástir Framara voru Ómar Þrá- insson og Simon Ólafsson, en þeir skoruðu báðir 11 stig og þykir slikt ekki mikið hvað varðar mann eins og Simon. Hjá KR-ingum var Birgir Guð- björnsson bestur auk Hjartar Hans- sonar. Stigahæstir KR-inga voru Birgir og Gisli Gislason með 10 stig, og Hjörtur með 9 stig. GG Einstefna á Akureyri ÞÓRSARAR naöu frábærum árangri í Akureyrarmótinu f handknattleik, sem fram fór f síó- asta mánuði, að meistaraflokki undanskildum. Þegar lciknir hafa verið 15 leikir, hefur Þór unnið 13, en KA aðeins 2. Leikur liða Akureyrarfélaganna í mfl. karla fer fram f lok þessa mánað- ar, þegar liðin hafa lokið leikjum sfnum f 2. deild. Úrsfit í Akureyrarmótinu til þessa hafa orðið sem hér segir: 6. FL. DRENGJA: A-IÍ4: Þór — KA 44:2 B-lið: Þór— KA C-líó: Þór — KA 9:4 5. FL. DRENGJA: A-lið: Þór—KA 10:5 11:2 B-lið: Þór — KA C-lið: Þór vann, þar sem KA sendi ekki lið 4. FL. PII.TA: A-lið: Þór — KA 5:3 B-lið: Þór— KA 11:2 3. FL. KARLA: KA — Þór 16:6 2. FL. KARLA: KA — Þór 15:9 1. FL. KARI.A: Þór — KA 24:21 3. FL. KVENNA: A-lið: Þór — KA 5:3 B-lið: Þór — KA 3:1 2. FL. KVENNA: Þðr — KA 9:7 MFL. KVENNA: Þór — KA 18:11

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.