Morgunblaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1978
5
Skúli Halldórsson tónskáld
Forsíöa sönglagaheftis Skúla
Halldórssonar.
Rétt spor í rétta átt,
sporin í TorgiÖ t
$^wli0alldórffon
Félag starfsmanna
Landsbanka íslands
fimmtíu ára í dag
Hilmar Stefánsson var fyrsti
formaður Félags starfsmanna
Landsbanka íslands.
KLAUSTURHÓLAR, listmuna-
uppboð Guðmundar Axelssonar.
halda 40. uppboð fyrirtækisins í
dag klukkan 17 í Súlnasal Hótel
Sögu. Seld verða að þessu sinni
myndaverk margra þekktra og
viðurkenndra listamanna, unnin
með ýmsum hætti og tækni.
olíumálverk, vatnslitamyndir,
pastel, rauðkrítv túss, lit-
hógrafíur o.fl. A uppboðinu
verða seld bæði verk viður
kenndra listamanna, lífs og
liðinna, og einnig verk lista-
manna, sem enn eru lítt þekktir.
Af einstökum listamönnum má
nefna Alfreð Flóka, en allmargar
litlar tússmyndir hans, auk
tveggja stórra kolamynda, verða
seldar; tvær myndir eftir Sverri
Haraldsson; pastelmyndir eftir
í DAG eru liðin 50 ár frá
stofnun elzta starfs-
mannafélags í banka á
íslandi, en það er starfs-
mannafélag Landsbanka
íslands. í frásögn Ein-
varðs Hallvarðssonar af
stofnun félagsins kemur
m.a. þetta fram.
Jóhannes Geir; málverk eftir
Valtý Pétursson, Guðmund
Hinriksson, Svein Þórarinsson og
ótal marga sem of langt yrði upp
að telja.
Þá má nefna sýnishorn þrykk-
mynda Jóns Engilberts frá þeim
árum sem listamaðurinn stund-
aði nokkuð svokallaða „öreiga-
list" á tímabilinu eftir 1930, en
sjaldgæft er að sjá þessar myndir
á boðstólum segir í frétt frá
Klausturhólum. Einnig má nefna
verk Engilberts Gíslasonar frá
Vestmannaeyjum. Þrjár stórar
olíumyndir verða boðnar upp
eftir Gunnlaug Blöndal, Finn
Jónsson og Jóhannes Kjarval.
Verkin eru til sýnis í dag að
Hótel Sögu og hefst uppboðið kl.
17.
Miðvikudaginn 7. mars 1928 kl.
6 síðdegis komu 27 starfsmenn
Landsbanka Islands saman á
fund í kaupþingssalnum í húsi
Eimskipafélags íslands h.f. til
þess að ræða stofnun félags
meðal starfsmanna bankans.
Fundarstjóri var Haraldur
Johannessen og fundarritari
Þórður Sveinsson.
Samþykkt var að stofna félag
sem hlaut nafnið Félag starfs-
manna Landsbanka íslands. Var
markmið félagsins að efla þekk-
ingu starfsmánna bankans á
bankamálum, starfa að samvinnu
þeirra í milli og aftur milli yfir-
og undirmanna, jafna alla
misklíð, sem upp kann að koma
og yfirleitt gæta hagsmuna
félagsmanna í hvívetna.
Fyrstu stjórn félagsins skip-
uðu: Hilmar Stefánsson formað-
ur, Haraldur Johannessen og
Brynjólfur Þorsteinsson með-
stjórnendur og Ólafur Thoraren-
sen í varastjórn.
Núverandi stjórn félagsins
hefur ákveðið að minnast af-
mælisins á margvíslegan hátt á
þessu ári m.a. með því að heiðra
núlifandi stefnendur, með útgáfu
afmælisrits, með sögusýningu og
afmælishófi.
Málverkauppboð
Klausturhóla í dag
Sönglagahefti Skúla
HaUdórssonar komið út
ÚT ER komið sönglagahefti
eftir Skúla Halldórsson tón-
skáld og eru í þvi 16 lög í
léttri útsetningu fyrir píanó
eða orgel. Hafa flest þessara
laga verið prentuð áður, en
ekki verið fáanleg um árabil.
Eins og Skúli segir í for-
mála vill hann með þessari
útgáfu bæta úr þeim skorti
sem verið hefur á íslenzkum
sönglögum í léttri útsetningu
og í þeirri tónhæð sem fólk
getur auðveldlega sungið.
Þýzkir textar fylgja flestum
lögunum en þýðingu þeirra
gerði dr. Meilla Urbancic.
Kápuna teiknaði Sigfús
Halldórsson tónskáld og
Herbert H. Ágústsson tón-
skáld skrifaði nóturnar. Lög-
in eru prentuð í Siglufjarðar-
prentsmiðju og fást hjá ís-
lenzku tónverkamiðstöðinni.
Brúnir
St. 39/46
Kr. 7.950 -
Svartir/ Búnir
St. 39/46
Kr. 7.950 -
Svartir/Brúnir
St. 39/46
Kr. 3.400 -
Svartir/Brúnir
St. 39/46
Kr3.400. —
Búnir
St. 39/46
Kr. 6.450 -
ÍTALSK/fí
KAfíLMANNASKÓfí
úr sérstaklega mjúku leðri.
Mf
Austurstræti 10
sími: 27211
flH
Listavika Mennta-
skólans á Akureyri
NÚ STENDUR yfir listavika í
Menntaskólanum á Akureyri og
lýkur henni hinn 12. marz n.k.
Er þetta nýjung í skólastarfinu
og er gert ráð fyrir að hún verði
fastur liður framvegis.
Helmingsaf-
sláttur af
burðargjaldi
SAMGÖNGURÁÐHERRA hefur
gefið út reglugerð um breytingu á
reglugerð fyrir póstþjónustu, þar
sem heimilað er að gefa helmingsaf-
slátt af burðargjaldi fyrir dagblöð og
önnur landsmálablöð og tímarit, sem
fjalla um málefni einstakra atvinnu-
vega, svo og fyrir tímarit landssam-
taka stéttarfélaga. Reglugerðar-
breyting þessi öðlast þegar gildi.
Meðal atriða á Listavikunni
eru klassískir tónleikar nemenda
úr M.A. sem einnig stunda nám
við Tónlistarskóla Akureyrar.
Þorgeir Þorgeirsson sækir skól-
ann heim og kynnir verk rit-
höfundarins Williams Heinesen,
nemendur kynna og lesa úr
verkum Þórbergs Þórðarsonar
með aðstoð kennara. Þá verður
sýnt leikritið Hlaupvídd sex eftir
Sigurð Pálsson í leikstjórn Harð-
ar Torfasonar en það eru
nemendur sem sýna. Manuela
Wiesler flautuleikari heldur tón-
leika og sýndar verða tvær
kvikmyndir frá kvikmyndahátíð
Listahátíðar, nemendur kynna
sögu jazzins í tali og tónum,
haldið verður skemmtikvöld og
eitt kvöldið verður dagskrá í
umsjá kennara.
Öllum er heimil aðgangur að
listavikunni eftir því sem hús-
rými leyfir.
Mætti Benedikt
Gröndal til vinnu?
MORGUNBLAÐIÐ beindi
fyrirspurn til nokkurra for-
ystumanna Islendinga um við-
horf þeirra til ólöglegra vinnu-
stöðvana, sem boðaðar voru 1.
og 2. mars s.l. Einn af þeim
sem studdi þessar aðgerðir var
Benedikt Gröndai alþm., for-
maður Alþýðuflokksins og for-
stöðumaður Fræðslumynda-
safns ríkisins. Hins vegar lýsti
Gylfi Þ. Gíslason alþm. for-
maður þingflokks Alþýðu-
flokksins yfir andstöðu við
þessar ólöglegu aðgerðir.
í samræmi við skoðun sína
mætti Gylfi Þ. Gíslason til
kennslu nefnda marzdaga.
Einnig mætti til kennslu sömu
daga Kjartan Jóhannsson,
varaformaður Alþýðuflokks-
ins, og þá ekki sízt Vilmundur
Gylfason, annar maður á lista
Alþýðuflokksins við alþingis-
kosningarnar í vor.
Fyrir helgi var listí yfir
mætingar ríkisstarfsmanna
birtur í Mbl. Þar kemur fram,
að það er 100% mæting hjá
Fræðslumyndasafni ríkisins.
Verður því ekki betur séð en
Benedikt Gröndal alþm. hafi
einnig mætt til vinnu þessa
daga.
Þar sem því verður ekki
trúað að óreyndu, að Benedikt
segi eitt og framkvæmi annað,
er þeirri fyrirspurn beint til
fjármálaráðuneytisins og
Benedikts Gröndals, hvort
hann hafi mætt til vinnu í
Fræðslumyndasafni ríkisins 1.
og 2. marz s.l.
Ilaraldur Blöndal hdl.