Morgunblaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1978 25 \ Valsmenn upp úr öldudalnum iÞAÐ er greinilegt að Valsmenn hafa náð sér upp úr þeim öldudal. sem þeir voru í lengi framan af Islandsmótinu. Og eins og mótið virðist ætla að þróast er það kannski ekki jafn fjarlægur draumur fyrir þá að halda f islandsmeistaratitilinn eins og leit út um tfma. Valur sigraði KR á sunnudagskvöldið, 25:24, og var sigurinn öruggari en markatalan gefur til kynna. Þetta var fjörugur leikur þar sem hart var barizt af báðum bæði f vörn og sókn. Segja má að sex minútna kafli í fyrri hálfleik hafi gert út um leik- ,inn. Staðan var 4:3 Val í hag við upphaf þessa kafla en næstu 6 minútur skoruðu Valsmenn 6 mörk á móti einu hjá KR og breyttu stöðunni i 10:4. Fóru KR- ingar ákaflega ilia að ráði sínu á þessum minútum, voru sífellt að reyna að pota boltanum i gegnum sterka Valsvörnina og inn á línu með þeim eina árangri að Vals- menn náðu knettinum og skoruðu jafnharðan mörk, þar af f jögur úr hraðaupphlaupum. Þessi munur var of mikill til þess að KR-ingarnir næðu að vinna hann upp, en þeir gerðu til þess heiðarlegar tilraunir i seinni hálfleik. Staðan í hálfleik var 14:9 en fljótlega í seinni hálfleik höfðu KR-ingarnir minnkað mun- inn í 15:13. Aftur náðu Valsmenn 5 marka mun, 20:15, en KR-ingar voru ekki af baki dottnir og þeir náðu að minnka muninn niður í tvö mörk í nokkur skipti á siðustu 10 minútum leiksins en Steindór Gunnarsson, bezti maður Vals, svaraði jafnharðan fyrir sitt lið og kom í veg fyrir að KR-ingar næðu stigi. Ef KR-ingarnir hefðu ekki farið svona illa að ráði sinu á fyrrgreindum leikkafla í fyrri hálfleik er aldrei að vita hver úrslitin hefðu orðið. En sigur Vals var sem sé staðreynd, 25:24. Valsmenn Ieika nú munbetriog skemmtilegri handknattleik en framan af mótinu þegar þeir töp- uðu hverjum leiknum á fætur öðrum. Eru þeir að nálgast það form, sem var á þeim i fyrra þeg- ar þeir urðu íslandsmeistarar. Að þessu sinni var Steindór Gunnars- son bezti maður liðsins, skoraði 7 mörk af línunni hvert öðru fall- egra. Er Steindór greinilega að ná sér á strik eftir að hafa sýnt mis- jafna leiki í vetur. Sömuleiðis er greinileg batamerki að sjá á þeim félögum úr landsliðinu, Jóni Pétri Jónssyni og Þorbirni Guðmunds- syni, og sýnist manni að þeir séu að ná sama skotstyrkleika og i fyrra. Stefán Gunnarsson var ákaflega traustur í vörninni að vanda og i markinu var Brynjar Kvaran góður. Það má segja KR-liðinu til verð- ugs hróss, að þótt illa gengi í byrjun gafst liðið aldrei upp held- ur barðist harðri baráttu fyrir sigri eða a.m.k. jafntefli. KR- ingarnir leika oft á tíðum hraðan og kröftugan handknattleik en það er galli á liðinu að eiga aðeins eina verulega góða skyttu, Simon Unndórsson. Hann er sá eini, sem virðist geta stokkið upp og skotið. Aðrar langskyttur reyna sifellt að skjóta í gegnum varnir andstæð- inganna og var árangurinn væg- ast sagt slakur í leiknum gegn Val. Simon var í miklum ham í þessum leik en það dugði ekki til. Auk hans er ástæða til að nefna Þorvarð Guðmundsson, sem lék sinn bezta leik i vetur en annars var KR-Iiðið fremur jafnt. Geir Thorsteinsson og Jón Frið- steinsson dæmdu leikinn mjög vel. -SS. Haukarnir kræktu í tvö dýrmæt stig í leiknum á móti ÍR HAUKAR tryggðu sér tvö mikilvæg stig þegar þeir sigruðu ÍR í mjög jöfnum leik á sunnudagskvöldið í Laugardalshöllinni 15:14 eftir að staðan hafði verið 8:8 í hálfleik. Bæði þessi lið vour í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn eftir að FH hafði galopnað mótið að nýju með sigri sínum yfir Víkingi á laugardaginn. Við þessi úrslit standa Haukarnir mjög vel að vígi en róðurinn verður þvngri fvrir ÍR-ingana, þeir hafa tapað tveimur stigum meira en Haukar í hinni tvfsýnu keppni, sem framundan virðist vera í 1. deildinni. Leikur ÍR og Hauka á sunnu- dagskvöldið var ákaflega hraður en varnir beggja liða voru fastar fyrir og báðir markverðirnir góð- ir, þeir Gunnar Einarsson hjá Haukum og Jens Einarsson hjá ÍR. Þetta og svo það að bæði liðin gerðu sig sek um ótalmörg mistök í leiknum, hafði það i för með sér að frekar fá mörk voru skoruð í leiknum. Bæði ÍR og Haukar hafa á að skipa mörgum skemmtileg- um og léttleikandi handknatt- leiksmönnum en góðar skyttur vatnar í bæði liðin og kom það greinilega í kjós i þessum leik, þar sem varnir voru góðar og markvarzla fyrir ofan meðallag. Haukarnir höfðu undirtökin lengst af í fyrri hálfleik og var munurinn mestur þrjú mörk. Undir lok hálfleiksins tóku ÍR- ingarnir nokkurn kipp og tókst að jafna metin 8:8. ÍR-ingarnir byrj- uðu sinni hálfleikinn betur og höfðu yfir að nýju. Þegar þrjár mínútur voru til leiksloka tókst Ársæli Hafsteinssyni að jafna fyr- ir ÍR, 14:14, og skömmu síðar fengu Ir-ingar tækifæri til að komast yfir en dæmdur var ruðn- ingur á Brynjólf Markússon. Kaukarnir brunuðu upp og Arni Hermannsson skoraði sigurmark Haukanna, en ekki vour menn á eitt sáttir hvort boltinn hefði far- ið inn fyrir marklinuna eða ekki. En dómararnir dæmdi markið gilt án þess að hika og það stóð. Sem fyrr segir voru varnirnar betri hluti liðanna en markverzl- an var einnig góð hjá báðum lið- um. Gunnar Einarsson hefur aldrei verið betri en nú í vetur, er án vafa fremstur íslenzkra hand- knattleiksmarkvarða nú sem stendur. Jens Einarsson hefur sýnt miklar framfarir f vetur og hefur hann sýnt hvern stórleik- inn eftir annan. Verðskuldar hann að fá að spreyta sig i lands- liði. Auk Gunnars áttu þeir Andrés Kristjánsson og Stefán Jónsson beztan leik í liði Haukanna en hjá IR áttu beztan leik auk Jens félagarnir úr knattspyrnulands- Iiðinu, Ásgeir Eliasson og Árni Stefánsson. Virðist Arni sýna framfarir í hverjum leik. Kristján Örn Ingibergsson og Öli Olsen dæmdu leikinn vel. - SS. Árni Stefánsson, landsliðsmarkvörður I knattspyrnu, á fullri ferð f leik IR og Hauka í 1. dcildinni! handknattleik. Gunnar Baldursson hitti vel í leiknum við Leikni og átta sinnum höfnuðu þrumuskot hans i marki Breiðhvltinganna. (Ijósm. Friðþjóf- ur). FYLKIR í 1. DEILD FYLKIR leikur í 1. deild í handknattleik næsta vetur. Liöið tryggði sér sigur í 2. deild á laugardaginn er það vann Leikni með yfirburðum, 27.17, og fer það ekki á milli mála að Fylkir er jafnbezta liðið í 2. deildinni í vetur. Fylkir varð 10 ára á síðasta ári og mikill uppgangur er í þessu unga Reykjavíkurfélagi. Síðastliðið haust unnu knattspyrnumenn félagsins sigur í 3. deild og nú fylgja handknattleiksmenn félagsins í fótsporið, unnu sigur í sinni deild og leika meðal þeirra beztu næsta vetur. Eðlileg spurning er hvort Fylkir eigi mikla möguleika í keppninni í 1. deild næsta vetur, en henni verður ekki svarað fyrr en næsta vetur. í Fylkisliðinu eru margir snjallir handknattleiksmenn, en e.t.v. er breiddin ekki næg í liðinu til að ná toppárangri. Hjá Fylki eru þó að koma upp efnilegir strákar og aðall liðsins er ódrepandi áhugi og vilji leikmanna. Þjálfari Fylkis er Pétur Bjarnason og hefur hann greinilega gert góða hiuti með liðið í vetur. Um leikinn við Leikni er það að segja að Fylkir hafði yfir allan tímann og í raun var aldrei spurning um hvort liðið ynni þennan leik. I leikhléi var staðan 13:8 og munurinn jókst um helming í seinni hálfleikn- um og var 10 mörk þegar yfir lauk, 27:17. I þessum leik var Gunnar Baldurs- son í miklum ham og sendi knöttinn átta sinnum í netmöskva Leiknis- marksins. Þegar hann hittir eru skot hans illviðráðanleg. Einar Ágústsson er þó bezti útispilari liðsins og hefur borið liðið uppi undanfarin ár. Halldór Sigurðsson er einnig mjög góður leikmað'ur, bæði í vörn og sókn og markvörðurinn, Jón Gunnarsson, er á góðri leið með að verða einn sá bezti í íslenzkum handknattleik. Um Leiknisliðið er það að segja að leikmenn þess eru fyrir nokkru hættir að æfa og slíkt segir sína sögu um liðið. Alvaran er engin hjá leikmönnum Leiknis og greinilegt er að Leiknismenn verða að taka sig taki ef Efra-Breiðholtið ætlar ein- hvern tímann að eignast alvöru handknattleikslið eins og Árbærinn t.d. MÖRK FYLKISi Gunnar 8, Halldór 4, Einar Á. 3, Jón Á. 3, Sigurður 2, Einar E. 2, Stefán 2, Sölvi 1, Jóhann 1, Örn 1. MÖRK LEIKNISi Hafliði P. 5, Hörður 5, Ögmundur 2, Diðrik 1, Guðmundur K. 1, Ásmundur 1, Hafliði K. 2. — áij Eftir 10 ára starf á Árbæjarhverfiö nú liö í 2. deild í knattspyrnu og meðal þeirra beztu í handknattleiknum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.