Morgunblaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 07.03.1978, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1978 3 Prófkjör D-listans i Kópavogi: Axel Jónsson hlaut bindandi NIOURSTÖDUR úr prófkjöri sjólf- stæðismanna í Kópavogi til bæjar- stjórnarkosninga í vor uröu pær, aó Axel Jónsson hlaut í fyrsta sæti 243 atkvæöi og samtals 503 atkvæöi eöa 58,9%. Samkvæmt reglum er kjör Axels eitt bindandi, par sem hann fékk atkvæði á meira en helmingi atkvæöaseöla. Þátttaka í prófkjörinu var 854 eöa 43%% af kjörsókninni 1974. Vió síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar í Kópavogi hlaut Sjálfstæðis- fiokkurinn 1.965 atkvæði. Númer 2 í prófkjörinu varð Guöni Stefánsson, sem fékk í 1. og 2. saeti 198 atkvæöi, alls 381 atkvæöi eöa 44,6%, í þriöja Bragi Mikaelsson, 262 kosnmgu atkvæöi í 1. til 3. sæti, alls 402 atkvæöi eða 47.1%, í fjórða sæti Grétar Norðfjörð, í 1. til 4. sæti 243 atkvæöi, alls 345 atkvæði eða 40,4%, í fimmta sæti Steinunn Sigurðardóttir, 259 atkvæði í 1. til 5. sæti, samtals 329 atkvæði eða 38,5%, ísjötta sæti Stefnir Helgason, 298 atkvæði í 1. til 6. sæti eða 34,9%. Við síðustu bæjarstjórnarkosningar hlaut Sjálfstæðisflokkurinn fjóra menn kjörna: Axel Jónsson, Richard Björg- vinsson, Stefni Helgason og Braga Mikaelsson. Richard gaf ekki kost á sér, en Stefnir tók þátt í þrófkjörinu, en hafði þó lýst því yfir að hann gæfi ekki kost á sér nema í 6. sæti. Skoðanakönnun sjálfstæðismanna á ísafirði: Guðmundur H. Ing- ólfsson langefstur Isafirði 6. marz. SÍÐASTLIÐINN laugardag voru talin atkvæði í skoðana- könnun Sjálfstæðisflokksiris vegna bæjarstjórnarkosninganna, sem fram fara í vor. Skoðanakönnunin náði til meðlima fulltrúaráðs sjálf- stæðisfélaganna og var þátttaka 98,37%. Átta seðlar voru ógildir og einn auður. Raðað var á listann frá einum til 10 og fékk Guðmundur H. Ingólfsson, forseti bæjarstjórnar, langflest atkvæði í 1. sæti eða 82,7% gildra atkvæða. í 1.—2. sæti samtals fékk Jens Krist- mannsson bæjarfulltrúi flest atkvæði. Síðan komu Óli M. Lúðvíksson, varabæjarfulltrúi, Jón Ólafur Þórðarson bæjarfull- trúi, Gunnar Steinþórsson, fram- kvæmdastjóri, Geirþrúður Charlesdóttir varabæjarfulltrúi, Ingimar Halldórsson fram- kvæmdastjóri, Hermann Skúla- son skipstjóri og í 9. og 10. sæti með jöfn atkvæði Anna Pálsdótt- ir meinatæknir og Ásgeir S. Sigurðsson járnsmíðameistari. Við síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar fékk Sjálfstæðisflokkurinn 4 menn kjörna. Uppstillingar- nefnd fjallar nú um uppstilling- una og er gert ráð fyrir því að tillaga um framboðslista flokks- ins verði lögð fyrir fulltrúaáðs- fund um næstu helgi. - tllíar. Þetta eru húsin þrjú, sem til sölu eru. Verzlunarhúsin fremst, beggja vegna við sundið og bakvið sést í Breiðfirðingabúð. Heimilt er að reisa 13—1400 fermetra byggingu á lóðinni samkv. upplýsingum fasteignasalans. Ljósm Mbl , Friðþjófur Skólavörðustígur: I>rjú hús á eignarlóð til fyrir 80 milli. króna í Morgunblaðinu á sunnudaginn eru þrjár húseignir við Skóla- vörðustíg auglýstar til sölu, 2 verzlunarhús ásamt Breiðfirðingabúð og húsunum fylgir 910 fermetra eignarlóð. Samkvæmt upplýsingum Árna Stefánssonar hrl., sem hefur eignirnar til sölumeðferðar, eru húsin og lóðin í eigu Breiðfirð- ingaheimilisins hf. Breiðfirðinga- búð var eitt sinn þekkt samkomu- hús en þar er nú Islenzka dýrasafnið til húsa. í verzlunar- húsunum tveimur eru til húsa fyrirtækin Bókin h.f. og Verzlun Helga Einarssonar. Að sögn Árna eru húseignirnar 2922 rúmmetrar að stærð og er brunabótamat þeirra 65,7 millj- ónir. Fasteignamat húsa og lóðar er hins vegar 76 milljónir króna. Heimild er til þess að reisa á lóðinni fjögurra hæða hús, sam- tals 13—1400 fermetra. Árni sagði að ýmsir hefðu sýnt áhuga á því að gera boð í eignirnar en uppsett verð mun vera 80 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.