Morgunblaðið - 07.03.1978, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 7. MARZ 1978 23
Björn Christiansen var drjúgur f leik Armenninga og stúdenta, ner
labbar hann milli Jóns Hédinssonar og Guðna Kolbeinssonar, og bætir
tveimur stigum í safnið. Ljósmynd. GG.
Leikleysa er
ÍS vann Ármann
ÞAD VAR ekki burðugur körfuknattleikur, sem framreiddur var í Ibróttahúsí
Hagaskólans á sunnudaginn er ÍS-menn og Ármann áttust við í
íslandsmótinu í körfuknattleik. Allt frá upphafi til enda var leikur liöanna
í molum og hver einstakur leikmaður virtist vart vita af pví aö hann hefði
samherja til að gefa á. ÍS-menn voru pó allan tímann sterkari aðilinn og
munaði e.t.v. mest um stig Dirk Dunbars, en úrslitin voru ÍS 88 — Ármann
79.
Stúdentar léku án Kolbeins Krist-
inssonar og virtist þaö setja þá út af
laginu í sóknaleiknum, en Kolbeinn
hefur veriö einn af bestu leikmönnum
ÍS í síöustu leikjum liösins. Á fyrstu
mínútum leiksins komst ÍS í 18—11
og var munurinn á liöunum út fyrri
hálfleikinn 9—15 stig. Staðan í
hálfleik var 44—29 ÍS í vil.
Ármenningar komu ákveðnir til leiks
í seinni hálfleik og tókst þeim strax
að minnka muninn nokkuð. Mátti sjá
að meðan Ármenningar léku af
skynsemi og yfirvegun, þá gekk þeim
best, en Ármenningar létu stúdenta
æsa sig upp og keyrðu upp hraöa,
sem þeir réðu ekki við. Þannig
skoruöu liðin jafnt á báöa bóga út
leikinn og urðu lokatölur 88—79, ÍS
í vil.
Bestir stúdenta voru Dirk Dunbar,
Steinn Sveinsson og Bjarni Gunnar.
Ármenningar töpuðu nú enn einu
sinni og eru fallnir úr deildinni, þ.e.
fá ekki sæti í úrvalsdeildinni næsta
ár. Þeir voru þó skárri aðilinn gegn
stúdentum hvaö baráttu og samleik
snerti, en þaö dugöi þeim ekki til
sigurs. í staö Mike Woods hafa þeir
nú fengiö mann að nafni Rick Morel
og styrkir hann liðið mikiö og var
hann bestur Ármenninga ásamt Atla
Arasyni, Jóni Björgvinssyni og Jóni
Steingrímssyni, en sá síðastnefndi
gæti náð góðum árangri með viðeig-
andi þjálfun.
Stig Ármanns skoruðu: Atli 19, Jón
B. 17, Morel 13, Jón Steingrímsson
og Björn Christiansen 10 stig hvor,
Guömundur Sigurðsson 6 stig og
Hallgrímur Gunnarsson 2 stig.
Stig stúdenta skoruðu: Dunbar 32,
Bjarni Gunnar 18, Steinn 14, Ingi
Stefánssgn 12, Jón Héðinsson 9 stig
og Jón Óskarsson 4 stig.
Dómarar voru þeir Kristbjörn
Albertsson og Jón Ótti Ólafsson og
dæmdu þeir leiöinlegan leik vel og
létu nöldur og kvartanir leikmanna
sem vind um eyröu þjóta.GG
ÍR-ingar sprungu
ÁN ÞORSTEINS Hallgrímssonar héldu ÍR-ingar til Njarðvíkur og virtust
lengi vel ætla að veröa priðja liðið, sem leggði heimamenn að velli í vetur.
En skortur á fekiptimönnum og úthaldsleysi varö peim að falli og
Njarðvíkingar tóku seinni hálfleikinn
ÍR-inga með 114 stigum gegn 89.
ÍR-ingar byrjuðu leikinn nokkuð
vel, en Njarðvíkingar höfðu þó ávallt
forystuna þó að munurinn væri aldrei
mikill. ÍR-ingar komust loks yfir undir
lok fyrri hálfleiks og var þá staðan
44—43. Með yfirvegun juku þeir
muninn fyrir lok hálfleiksins og var þá
staðan 55—49.
Byrjun seinni hálfleiks lofaði einnig
góðu fyrir ÍR-inga og áttu þeir alls
kostar við heimamenn. En á 6.
mínútu seinni hálfleiks fór Þorsteinn
Bjarnason í gang og þar með var
draumur ÍR-inga úti. Njarðvíkingar
skoruðu nú hverja körfuna á fætur
annarri og lauk þeirri hrinu þannig að
Njarðvíkingar höfðu skorað 27 stig
gegn 4 stigum ÍR-inga. Varð nú fátt
um varnir hjá ÍR-ingum það semeftir
var leiksins og lauk leiknum, sem fyrr
sínar hendur og hreinlega „jöröuðu"
sagði, með sigri UMFN, 114 gegn 89.
Þorsteinn Bjarnason átti nú aftur
stórleik með UMFN eftir að hafa
„dalað“ og er óhætt að fullyrða aö
þegar Þorsteinn er í stuði þarf meira
en meöal-mann til að stöðva hann.
Þá var Geir Þorsteinsson einnig
góður auk Brynjars Sigmundssonar.
Hjá ÍR-ingum var Kristinn Jörunds-
son bestur og sýndi hann alla sína
gömlu takta á ný. Þá kom Kristján
Sigurðsson nokkuö á óvart með
mjög góðum leik sínum og á hann
vafalaust eftir að ná langt í íþróttinni.
Stigahæstir Njarðvíkinga voru:
Þorsteinn með 38 stig, Geir með 21
stig og Brynjar meö 16 stig.
Flest stig ÍR-inga gerðu: Kristinn
25, Jón Jör. 18, Kristján 17 stig og
Agnar Friðriksson 16 stig.
GG
KR NÆR
TITLINUM
KR-INGAR færöust skrefi nær ís-
landsmeistaratítlinum, er peir sigr-
uðu Þór í 1. deíldinni á sunnudag
með 102 stigum gegn 81, eftir að
hafa haft yfir í leikhléi 47:39.
KR-ingar virtust ennpá vera i
sigurvímu eftir leikinn gegn Val, og‘
voru seinir í gang. Þórsarar voru t.d.
yfir 21:18 um miðjan fyrri hálfleik,
en pá vöknuöu KR-ingar aðeins til
lífsins og náðu yfirhöndinni og
héldu forystu til leiksloka. Sigruðu
Þeir sem fyrr sagöi 102:81, og var sá
sigur aldrei í hættu.
Stigin fyrir KR: Einar Bollason 30,
Andrew Piazza 25, Jón Sigurðsson
12, Gunnar Jóakimsson og Þröstur
Guðmundsson 10 hvor, Bjarni Jó-
hannesson 9, Ágúst Líndal 4 og
Kristínn Stefánsson 2.
Stigin fyrir Þór: Mark Christensen
30, Eiríkur Sigurðsson 14, Jón B.
Indriðason 12, Jóhannes Magnús-
son 10, Hjörtur Einarsson 9, Olafur
Gunnarsson og Ómar Gunnarsson 2
hvor.
Dómarar voru Erlendur Eysteins-
son og Þráinn Skúlason.
ÁG
35 keppendur á Islandsmótinu í júdó:
Halldór meistari
í fjórða sinn eft-
ir baráttuglímur
Meistaramót íslands í júdó fór fram í íþróttahúsi Kennaraháskólans sl. sunnudag. Var þá keppt
í sjii þyngdarflokkum karla. og keppt var um farandbikar í hverjum flokki. Keppendur voru alls
35 frá fimm íélögum. Ármanni. Júdófélagi Reykjavíkur. Ungmennafélagi Keflavíkur.
Ungmennaíélagi Grindavíkur. og Reyni í Hnífsdal. Keppnin á sunnudaginn hófst kl. 2 en lauk ekki
fyrr en klukkan var langt gengin sjö.
Er það dálítið vandamál hve
mikið hún dróst á langinn, og
kemur það ekki síst niður á
keppendum sjálfum. Æskilegt
væri að keppnin færi fram á
tveimur völlum samtímis, og
vonandi verður það hægt í
framtíðinni. Það kom greinilega
fram á meistaramótinu að mikl-
ar framfarir hafa orðið í júdó-
íþróttinni. Glímurnar voru
margar mjög jafnar og hart var
barist, kom í ljós að menn eru
almennt orðnir hreyfanlegri og
keppnisvanari en hér áður.
I 60 kg flokki sigraði Þórarinn
Ólafsson, aðeins 16 ára gamall,
mjög efnilegur og upprennandi
júdómaður, sem sýndi lagleg
brögð í glímum sínum. Sigurður
Pálsson Júdófélagi Reykjavíkur
sigraði í 65 kg flokki eftir harða
og spennandi glímu við Jóhann-
- es Haraldsson, vann hann sér til
eignar farandbikar þann sem
keppt var um, og var vel að
sigrinum koniinn.
I þyngdarflokknum 71 kg var
mikil og hörð barátta milli
þriggja keppnismanna, þeirra
Halldórs Guðbjörnssonar JFR,
Ómars Sigurðssonar, og Gunn-
ars Guðmundssonar UMl’K, en
þeir eru allir þekktir fvrir mikla
bardagagleði og keppnishörku.
Ómari var dæmdur sigur í glímu
sinni við Gunnar en hún var
mjög tvísýn allan tímann og
mikið um sviptingar á báða
bóga. Halldór lagði einnig
Gunnar, glíma þeirra var frekar
stutt og glínidi Halldór mjög vel
og sótti stíft allan .tímann.
Sigraði Halldór á mjög fall-
ega útfæröu bragði sem kallast
TAI-O-TOSHI. Urslitaglíman í
þessum flokki var því á milli
Ómars og Halldörs, og þar var
svo sannarlega ekkert gefið
eftir.
Ekki tókst Ómari þó að leggja
Halldór þrátt fyrir að hann
veitti honum harða keppni.
Glímdu báðir varlega og af
öryggi og frekar lítið var um
hrein brögð, en það vill brenna
við þegar andstæðingarnir
þekkja hvor annan vel og hafa
glímt oft saman. Halldór sigraði
og hlaut sinn fjóröa íslands-
meistarátitil. Að mati dómara
hafði Halldór hvað jafnasta
tækni keppenda mótsins.
Kári Jakobsson varði titil
sinn í 78 kg flokknum. Erdiann
mjög kröftugur júdómaður, en
rnætti tileinka sér meiri mýkt.
Garðar Skaftason júdómaður,
kom rnjög vel frá glimum sínum
í mótinu en hann glímdi við
Kára í úrslitum þessa flokks.
Kári var honum allan tímann
sterkari og sigraði örugglega.
Tveir mjög skemmtilegir
júdómenn glímdu til úrslita í
flokknum 86 kg, þeir Bjarni
Friðriksson og Guðmundur
Rögnvaldsson, sem kominn er
nálægt fertugu, en hann sýndi
mjög gott júdó á mótinu, hrein-
an stíl og skemmtileg brögð.
Var glíma hans við Bjarna
hörð og spennandi og það var
ekki fyrr en í lok úrslitaglím-
unnar að Bjarna tókst að sigra.
Var hann vel að Islandsmeist-
aratitlinum kominn og á tví-
mælalaust eftir að ná langt í
íþróttinni.
Gísli Þorsteinsson var hinn
flokknuni, lagði hann Benedikt
Pálsson í úrslitaglímunni.
Greinilegt ef að Gísli þarf að
giíma við sterkari menn til aö
há .enn lengra. í júdóíþróttinni,
og fá fjöl,þreyttari keppepdur.
Gísli. mun taka þátt í Norðp^
landamóti lögreglumanna í júdó
1.^6. ‘ apríl. . og
Norðurlandameistaramótinu í
Finnlandi 8.-9. apríl en síðan
mun hann halda til Bandaríkj-
anna, þar sem hann mun starfa
við löggæslu hjá Sameinuðu
þjóðunum í New York, og þar
ætlar hann að æfa og keppa af
krafti. Ekki er að efa að það
mun verða honum til góðs.
Svavar Carlsen gat ekki keppt
í þyngsta flokki og varið titil
sinn þar sem hann hlaut meiðsli
á æfingu fyrir skömmu, en
væntanlega veröur hann með á
opna meistaramótinu sem
Jóhannsson sigraði i þyngsta
flokki. Sigurður varð íslands-
meis.tari síðast 1971, hann hlaut
ýslæm meiðsli árið 1975 og hefur
lí.tiö keppt að undanförnu en
hann var hér áður ein styrkasta
.stoð íslenska landsliðsins, mjög
mruggur keppnismaður. Sigurð-
|ir þurfti svo sannarlega að hafa
Tyrir sigri sínum og glíma hans
viö Hákon Halldórsson var mjpg
tvísýn allan tímann, og féll
Ilákon á því að sækja ekki
nægilega mikiö.
Þegar á heild meistaramóts-
ins er litið er ekki hægt aö segja
annað en að mótið hafi tekist
vel, og var dómgæsla og móts-
stjórn til fyrirmyndar.
Að viku liðinni verður ís-
landsmótinu haldið áfram og þá
keppt í opnum flokki karla og
kvenna, ásamt unglingaflokk-
um. ^ — þr.
Halidór Guðbjörnsson leggur Ömar í úrslitaglímunni í 71 kg
þyngdarflokki og tryggir sér sinn fjórða Islandsmeistaratitil.
Guðmundur Kögnvaldsson, JFR, í hörkubaráttu eins og sjá má á
myndinni.
öruggi sígurvegari í 95 kg veröur um næstu helgi. Sigurður
1
í