Morgunblaðið - 13.04.1978, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1978
SÍMAR
28810
24460
bilaleigan
GEYSIR
BORGARTUNI 24
LOFTLEIWR^
car rental
- Seljum—|
reyktan lax
og gravlax
Tökum iax í reykingu
og útbúum gravlax.
Kaupum einnig lax
til reykingar.
Sendum i póstkrófu —
Vakúm pakkað ef óskað er.
ÍSLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4-6,
Hafnarlirðt Stmi: 51455
■
■
Vandervell
vélalegur
■
I
Ford 4-6-8 strokka
benzirt 09 díesel vélar Opel
Austin Mini Peugout
Bedford Pontlac
B.M.W. Rambler
Bulck Range Rover
Chevrolet Renault
4-6-8 strokka Saab
Chrysler Scania Vabís
Citroen Scout
Datsun benzin Slmca
og díesel Sunbeam
Dodge — Plymouth Tekkneskar
Flat bitreiðar
Lada — Moskvítch Toyota
Landrover Vauxhall
benzm og diesel Volga
Mazda Volkswagen
Mercedes Benz Volvo bénzín
benzin og díesel og diesel
■
I
Þ JÓNSSON&CO
Skeilan 17 s. 84515 — 84516
Útvarp Reykjavik
FIM/MTUDkGUR
13. april
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forystugr. dagbl), 9.00
og 10.00
Morgunbaen kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
9.15i Steinnun Bjarman les
söguna „Jerutti bjargar
Tuma og Tinnu“ eftir Cecil
Bödker (9). Tilkynningar kl.
9.30.
Þingfrcttir kl. 9.45. Létt lög
milli atr.
Fæðingarhjálp og foreldra-
fræðsla kl. 10.25> Hulda
Jensdóttir forstöðukona
Fæðingarheimilis Rcykja-
víkurborgar flytur fjórða og
síðasta erindi sitt.
Tónlcikar kl. 10.40.
Morguntónleikar kl. 11.00>
Sinfóniuhljómsveit sænska
útvarpsins leikur hljóm-
sveitarsvítuna „Gústav II
Adolf“ eftir Hugo Alfvén>
Stig Westerbcrg stj./ Sin-
fóniuhljómsveitin i IJtah
leikur „Hitabeltisnótt“, sin-
íóníu nr. 1 eftir Louis
Moreau Gottschalk> Maurice
Abravanel stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
SÍÐDEGIÐ_____________________
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Á frívaktinni. Sigrún Sig-
urðardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
14.30 „Spáð í spil og lófa.
Upplýsingar í síma ...“ Ásta
Ragnheiður Jóhannesdóttir
sér um þáttinn.
15.00Miðdegistónleikar. Karl
Leister, George Donderer og
Christoph Eschenbach leika
Tríó í a-moll fyrir klarí-
nettu, selló og píanó op. 114
eftir Johannes Brahms.
Jacqueline Eymar, Giinter
Kehr, Werner Neuhaus,
Erich Sichermann og Bern-
hard Braunholz leika Pi'anó-
kvintett í c moll op. 115 eftir
Gabriel Fauré.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.30 Lagið mitt. Helga Þ.
Stephensen kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfrcgnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
KVÖLDIÐ
19.35 Daglegt mál. Gísli
Jónsson flytur þáttinn.
19. 40 íslenzkir einsöngvarar
og kórar syngja.
20.10 Leikrit> „Mcistarinn“ eft-
ir Odd Björnsson.
Leikstjóri> Benedikt Árna-
son.
Persónur og leikendur>
Meistarinn/ Róbert Arn-
finnsson, Konan/ Margrét
Guðmundsdóttir.
21.25 Tveir á tali
Valgeir Sigurðsson ræðir við
Guðmund Magnússon
fræðslustjóra.
21.50 Frá tónleikum í Bústaa-
kirkju í fyrra. Sigurður I.
Snorrason og
Markl-strengjakvartettinn
leika Kvintett í Afdúr fyrir
klarínettu og strengi op. 146
eftir Max Reger.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
22.50 Rætt til hlítar. Álfheiður
Ingadóttir blaðamaður
stjórnar umræðum ungra
frambjóðenda í borgar-
stjórnarkosningum f
Reykjavík. Þátttakendur>
Bjarni P. Magnússon, Davíð
Oddsson, Eiríkur Tómasson
og Sigurður Tómasson. Þátt-
urinn stendur í u.þ.b.
klukkustund.
Fréttir. Dagskrárlok.
SKJÁNUM
FÖSTUDAGUR
14. aprfl 1978
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Bláu hellarnir við
Andros-eyjar (L)
Kanadísk heimildamynd
um djúpa og sérkennilega
ncðansjávarhella við
Andros-eyjar, sem eru hluti
Bahama-eyja. Um tvö
hundruð slíkir hellar hafa
fundist, síðan hinn fyrsti
þeirra var kannaður árið
1%7.
[21.00 Kastljós (L)
Þáttur um innlend málefni.
V_____________________________
Umsjónarmaður Helgi E.
Helgason.
22.00 Gömlu kempurnar (L)
(The OverThe-HilI Gang)
Gamansöm, bandarfsk sjón-
varpskvikmynd.
Aðalhlutverk Pat 0‘Brien,
Walter Brennan, Chill
Wills og Edgar Buchanan.
Söguhetjurnar í þessum
„vestra“ eru fjórir riddara-
liðar á eftirlaunum. sem
taka að sér að koma lögum
yfir spilltan bæjarstjóra og
bófaflokk hans.
Þýðandi Dóra Ilafsteins-
dóttir.
23.15 Dagskrárlok
Leikrit vikunnar
Lífsafstaða
gamals manns
í kvöld klukkan 20.10
verður flutt í útvarpi ís-
lenzkt leikrit, „Meistarinn",
eftir Odd Björnsson. Leik-
stjóri er Benedikt Arnason,
en með hlutverkin fara þau
Róbert Arnfinnsson og
Margrét Guðmundsdóttir.
Flutningur leiksins tekur
fimm stundarfjórðunga.
Gamall og sjúkur maður
er að „gera upp“ fyrri ævi
sína. Hann lýsir afstöðu
sinni til mannanna, um-
heimsins og lífsins yfir-
leitt. Mitt í þessum vanga-
veltum hans kemur nýi
læknirinn í heimsókn. Þá
uppgötvar meistarinn sitt-
hvað í eðli sínu, sem honum
var áður hulið.
Þetta verk á að því leyti
skylt við spennandi saka-
málaleikrit, að nauðsynlegt
er að fylgjast með því frá
upphafi til að skilja allan
gang málsins.
Oddur Björnsson fæddist
árið 1932 að Ásum í Skaft-
ártungu. Hann varð
stúdent frá M.A. 1953.
Oddur stundaði háskóla-
Oddur Björnsson höfund-
ur „Meistarans“.
nám í Reykjavík 1954—55
og í Vínarborg 1955—57.
Hann hefur verið kennari
frá 1961. Meðal ritverka
hans er skáldsaga, ævintýri
fyrir börn og sjónvarpsleik-
rit. En auk þess hefur
Oddur skrifað bæði fyrir
leiksvið og útvarp. Eftirtal-
in verk hans hafa verið
flutt í útvarpi: „Einkenni-
legur maður“ 1963,
„Kirkjuferð" 1965, „Horna-
kórallinn" og „Snjókarlinn
okkar“ 1968, „Brúðkaup
furstans af Fernara“ 1970,
„Græn Venus“ 1971,
„Skemmtiganga“ 1973,
„Dansleikur" 1974, „Slys“
og „Hvernig heiðvirður
kaupsýslumaður fær sig til
að nefbrjóta yndislega eig-
inkonu sína . ..“ 1975,
„Rauða höllin“ (barnaleik-
rit) og „Sónata fyrir tvo
kalla“ 1977.
V estfirðingaf jórðungur:
Rækjuaflinn svipaður
og á vertíðinni í fyrra
RÆKJUVEIDUW í Ísafjaröardjúpí
lauk aö mestu í marzmánuöi. Segir
í skýrslu frá skrifstofu Fiskifélags
íslands á ísafiröi, að nokkrir bátar
hafi haft leyfi til veiða í eina viku í
apríl, til að veiða eftirstöðvar af
Oska
landvistar
Singapor>
FJÖLDI Víetnama sem tóku
víetnamskt strandferóaskip og
sigldu til hafnar i Singapore
hefur óskað eftir að fá að
setjast að í ýmsum löndum. Um
borð í skipinu voru 34 manns.
leyfilegu aflamagni. Arnfirðingar og
Steingrímsfiröingar hafi hins vegar
átt eftir um 150 lestir af leyfilegu
aflamagni hvorir um sig.
Veiðarnar voru stundaðar á þrem
svaeðum, í Arnarfirði, ísafjarðardjúpi
og á Húnaflóa, og bárust á land 840
lestir. Frá Bíldudal reru 6 bátar og var
mánaöaraflinn 102 lestir, en var 161
lest á sama tíma í fyrra. Heildaraflinn
frá vertíðarbyrjun í haust er þá oröinn
446 lestir þar, en leyfilegt er að veiða
600 lestir á Arnarfiröi á þessari vertíð.
Aflahæstu bátarnir í marz voru Pilot
með 20,0 lestir, Vísir með 19,9 lestir
og Helgi Magnússon með 17,6 lestir.
í verstöðvum við ísafjarðardjúp
bárust á land 508 lestir, en í fyrra var
aflinn í marz 355 lestir. Heildaraflinn
frá vertíöarbyrjun var þá orðinn 2.615
lestir, en leyfilegt er að veiða í
(safjarðardjúpi 2.650 lestir á þessari
vertíð.
Á Hólmavík og Drangsnesi bárust á
land 230 lestir, 143 lestir á Hólmavík
og 87 á Drangsnesi, en í fyrra bárust
þar á land 198 lestir í marz.
Heildaraflinn frá vertíðarbyrjun var
oröinn 846 lestir í marzlok, en heimilt
var að veiöa 1000 lestir. Aflahæstu
bátarnir í marz voru Gunnhildur með
23,8 lestir, Ásbjörg, Vingur og Hilmir
meö 23,0 lestir.
í marzlok höfðu borizt á land 2.352
lestir í Vestfiröingafjórðungi, sem er
Innflytjenda■
lögumbreytt
Kanada.
RÍKISSTJÓRN Kanada heíur
ákveðið að breyta lögum lands-
ins til að auðvelda flóttamönn-
um til að flytja til landsins.
Skýrt var frá að brcytingar
sem gengu í gildi á mánudag,
yrðu settar aí mannúðarástæð-
um.
138 lestum minna en á vetrarvertíð-
inni í fyrra. Aflinn á haustvertíðinni var
1.555 lestir. Er rækjuaflinn því orðinn
3.907 lestir á haust- og vefrarvertíð-
inni, en var 4.007 lestir á sama tíma
í fyrra. Aflinn hefur veriö nokkru
minna í Arnarfirði, en aðeins hýrari við
ísafjarðardjúp og viö Sfeingrímsfjörð.
Stéttarfélag starfs-
fólks tannlækna var
stofnað um helgina
LAUGARDAGINN 7. apríl var
haldinn stofnfundur stettarfélags
starfsfólks tannlækna. Tilgangur
félagsins er að gaeta hagsmuna
félagsmanná og semja um kaup og
kjör við tannlækna. Á fundinum
gengu í félagið á annað hundrað
manns. Þessi starfshópur hefur
ekki verið í samtökum launafólks
og var því mikill áhugi og
einhugur hjá stofnendum. For-
maður var kjörin Eria Ingólfsdótt-
ir.
(Fréttatilkynning)