Morgunblaðið - 13.04.1978, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1978
19
Þetta dæmi skýrir sig sjálft. Það
má segja að fyrirtæki A., sem
hefur haft góða afkomu sleppi í
raun þar sem skattarnir greiðast
eftir á. Fyrirtæki B., sem ekki
hefur tapað neinu reiknislega,
safnar lausaskuldum sem nema
86.5 m. kr. og fyrirtæki C., sem
tapað hefur 100 milljónum skuldar
þeim mun meira. Þetta er dæmi-
gerð mynd af því sem er að gerast
í fjárhag margra frystihúsa um
þessar mundir. Niðurstaðan er
nánast sú, að við ríkjandi aðstæð-
ur, þá þurfi eigendur að endur-
greiða fyrirtækinu tapið og þótt
ekki sé um rekstrartap að ræða, þá
þyrfti einnig að greiða fyrirtækinu
verðrýrnun peninganna. Hitt er
svo annað mál hve margir eru
færir um að inna þessar greiðslur
af hendi.
Á meðan fjarmagn var að fá og
vextir voru lágir var auðvelt að
leysa þetta mál með auknum
lántökum í von um að betri
afkoma gæti skilað því aftur. Með
þrengri lánsfjármarkaði og þá
ekki síst gífurlegum vaxta-
hækkunum, bæði á lánum og
mörgum lausaskuldum, þá er hér
komið í vítahring þar sem stórauk-
in vaxtabyrði leiðir til vaxandi
tapreksturs. Innlend þjónustu-
starfsemi og margháttuð fram-
leiðsla fyrir innlendan markað
hefur möguleika á að velta aukn-
um vaxtagjöldum út í verðlagið, en
slíkt er útflutningsframleiðslunni
fyrirmunað, auk þess sem hún
verður að taka á sig aukna
vaxtabyrði innlendrar þjónustu.
Slík vaxtastefa eyðileggur sam-
keppnisaðstöðu fiskvinnslunnar í
úrvinnslu sjávarafla hér á landi og
grefur undan fjárhag fyrirtækj-
ánna. Því er haldið fram að auka
þurfi sparnað með því að borga
raunvexti og beina fjármagninu
þangað sem það skilar mestum
arði. Þessu verður ekki móti mælt
ef litið er á þannan þátt í
samhengi við aðra þætti efnahags-
lífsins, en þegar vextir eru gerðir
að aðalbrimbrjót gegn verðbólg-
unni, án tilsvarandi aðgerða á
öðrum sviðum peninga- og fjár-
rtiála, þá gerir það einungis
vandann verri með því að draga úr
framleiðslu, eða beina henni á
óhagstæðari brautir.
Þessi vaxtamál hafa einnig aðra
hlið sem snýr að samkeppnisað-
stöðu fyrirtækjanna innbyrðis.
Það er nú mjög í tísku að gera
samanburð á afkomu fyrirtækja
með því að líta á niðurstöður
afkomunnar og þá gjarnan talið
einfalt mál að leiðrétta hlutina
með því að afskrifa þá sem sýna
lakari niðurstöðu.
Það virðist augljóst að ef
fyrirtæki A. skilar 40 m. kr.
hagnaði, þá sé þáð lífvænlegra og
þar snöggtum betur á málum
haldið en hjá fyrirtæki B. sem
tapar 10 m.kr. Ef hinsvegar er litið
á fjármögnun þessara fyrirtækja
og gert ráð fyrir að heildarfjár-
magn sé 1000 milljónir, sem
skiptast þannig að fyrirtæki A. sé
eigið fjármagn 700 m. kr. og
lánsfjármagn 300 m. kr., en þessi
hlutföll séu öfug í fyrirtæki B. og
vextirnir 20%, þá verður raun-
verulega útkoman sú að fyrirtæki
A. hefur skilað 100 milljónum
króna, eða 10% af fjármagninu, en
fyrirtæki B. 130 m.kr., eða 13% af
sínu fjármagni.
Niðurlagsorð
Hér hefur verið reynt að drepa
á nokkra af þeim þáttum sem þarf
að hafa í huga þegar að rætt er um
vandamál fiskiðnaðarins.
Ymsir fræðingar hafa talið að
hægt væri að beita einföldu og
gamalkunnugu ráði til lausnar, en
það er lögmál samkeppninnar, þar
sem hinir sterkustu lifa, en aðrir
deyja.
Þessar línur hafa þjónað til-
gangi sínum ef þær vekja til
umhugsunar um hvort réttar
forsendur séu fyrir hendi til að
beita þessu ráði einhliða, því
mikill munur er á eðlilegu aðhaldi
og vanhugsuðum niðurskurði.
Það er heldur háll vegur að gera
fljótfærnislegan samanburð á at-
vinnustarfsemi milli landa, þar
sem aðstæður og skilyrði eru svo
mismunandi, en þó er ljóst að
hvergi mun ætlast til að allir
hvorki í sömu grein né mismun-
andi greinum skili sama árangri,
enda væri þá eyðilegt um að litast
í atvinnulífi víðast hvar.
Það sem skiptir höfuðmáli er að
við höfum eitthvað annað til taks
sem er betra, eða skilar okkur
meiru en það sem við leggjum frá
okkur.
Fræðsludagur
á Suðurlandi
FRÆÐSLUDAGUR fyrir skóla-
stjóra og kennara við grunnskóla
á Suðurlandi var haldinn á
Selfossi föstudaginn 31. mars.
Fundinn sóttu um 160 skólamenn
af svæóinu og nutu tilsagnar og
fræðslu námsstjóra á vegum
menntamálaráðuneytisins auk
margvíslegra gagnlegra skoðana-
skipta innbyrðis.
Til þessa fræðsludags var stofn-
að að frumkvæði félagssarntaka
kennara á Suðurlandi og Fræðslu-
ráði Suðurlands, en framkvæmd-
ina annaðist fræðslustjóri Suður-
landsumdæmis að mestu. Skóla-
rannsóknadeild menntamálaráðu-
neytisins var einnig með í ráðum
og á hennar vegum mættu náms-
stjórar í mörgum helstu kennslu-
greinum, svo sem íslensku, dönsku,
ensku, stærðfræði, eðlis- og efna-
fræði, kristinfræði, samfélags-
fræði, mynd- og handmennt og
umferðarfræðslu. Einnig mættu
og voru til viðtals fulltrúar
menntamálaráðuneytis í sér-
kennslu og félags- og æskulýðs-
málum. Þá voru og þarna til skrafs
og ráðagerða fulltrúar félagssam-
taka kennara, bæði á barna- og
framhaldsskólastigum.
Fræðslustarfinu var svo háttað,
að kennarar skiptu sér niður í
hópa eftir kennslugreinum og
áhugasviðum og voru síðan í
tímum hjá viðkomandi námsstjór-
um, svo sem algengt er, einkum í
minni skólum, kenna menn marg-
ar eða flestar námsgreinar. Var
reynt að koma til móts við þá, sem
þannig er ástatt um, með því að
gefa þeim tækifæri til að hlýða á
sem flesta námsstjórana, þótt um
skemmri tíma væri þá að ræða en
ella.
Kennslan fór einkum þannig
fram að námsstjórar útskýrðu
tiltekið kennsluefni, sýndu myndir
og kennslutæki, svöruðu fyrir-
spurnum og tóku þátt í umræðum.
Að loknu fræðslustarfi síðdegis
héldu kennarar aðalfundi í félög-
um sínum, Kennarafélagi Suður-
lands og Félagi framhaldsskóla-
kennara á Suðurlandi.
Skólastjórar Barna- og Gagn-
fræðaskóla Selfoss lánuðu hús
undir starfsemi fræðsludagsins og
var vel fyrir öllu séð um aðbúnað
og fyrirgreiðslu.
Eftir þá reynslu, sem af þessum
fræðsludegi fékkst, má fullvíst
telja að framhald verði á hlið-
stæðri starfsemi í framtíðinni.
Fréttatilkynning.
áTá Timburverzlunin
▼ Voiundur hf.
KLAPPARSTÍG 1, SÍMI 18430 — SKEIFAN 19, SÍMI 85244
Ertu
að byggja?
Það fyrsta, sem hver húsbyggjandi þarf að hafa
í huga er að tryggja sér gott timbur.
í meir en 70 ár höfum við verslað með timbur.
Sú mikla reynsla kemur nú viðskiptavinum
okkar til góða. Við getum m.a. boðið:
Móta og byggingatimbur í uppsláttinn og
sperrurnar. Smíðatimbur og þurrkað timbur í
innréttingar. Réttheflað timbur í skilrúmin.
Gagnvarið timbur í veggklæðningar, girðingai
og gróðurhús. Viðarþiljur á veggina.
Einnig höfum við margar þykktir og gerðir af
krossvið og spónaplötum, svo og harðtex,
olíusoðið masonite, teak, oregonfuru eða cypress
í útihurðir o.fl. Eik og teak til húsgagnasmíði.
Efni í glugga og sólbekki.
Onduline þakplötur á þökin.
Þá útvegum við límtrésbita og ramma í ýmiss
konar mannvirki.
VANTAR ÞIG VINNU (n
VANTAR ÞIG FÓLK í
tP
Þl' AUGLÝSIR UM ALLT
LAND ÞEGAR ÞÚ AUG-
LÝSIR Í MORGUNBLAÐINl