Morgunblaðið - 13.04.1978, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1978
25
Rauðinúpur séð frá
bænum Vogum við
mynni Hrútavogs.
Ljósm. Mhl. Frirtþjófur.
„Hefur alvarlegar af-
leiðingar ef togarinn
er lengi frá veiðum”
Raufarhöfn. Frá blm. Mbl«
ÁKÚsti ÁsKoirssyni.
„MAÐUR er agndofa yfir þessu,
því ef togarinn skemmist og
veröur lengi frá veiðum hefur það
í för með sér alvarlegár og
ófyrirsjáanlegar afleiðingaf bæði
fyrir frystihúsið og sveitarfélag-
ið,“ sagði Sveinn Eiðsson sveitar-
stjóri á Raufarhöfn í samtali við
Mbl.
Sveinn sagði að koma
Rauðanúps til Raufarhafnar hefði
á sínum tíma bjargað atvinnu-
ástandinu á staðnum. „Atvinna
var óstöðug og lítil nokkur ár áður
en Rauðinúpur kom 1973,“ sagði
Sveinn. Hann sagði að íbúar
staðarins treystu á að togarinn
væri að staðaldri á veiðum.
„Menn hafa gert ýmsar ráð-
stafanir í trausti sínu á togarann.
Fari svo illa að hann eyðileggist
eða verði frá i langan tíma vegna
viðgerða verða afleiðingarnar
margvíslegar. I fyrsta lagi kippir
það liklega rekstrargrundvellinum
undan frystihúsinu. í öðru lagi
myndast hér atvinnuleysi og það
veldur því að gjöld til sveitar-
félagsins lækka og þjónusta þess
við þegnana minnkar því,“ sagði
Sveinn.
„Við vonum að sjálfsögðu hið
bezta, en ljóst er að skipið er
klossfast í grjótinu. Ef togarinn
næst ekki út í nótt þá skemmist
hann líklega mikið og verður lengi
frá veiðum. Botninn er án efa
mikið dældaður.
Skuttogarinn
Rauðinúpur
ÞH160 strandaði
skammt sunnan
við Raufarhöfn um
10 leytið í gær-
morgun.
Það sem snýr fyrst og fremst að
fyrirtækinu nú er hvað mikið tjón
verður á Rauðanúpi. Við hljótum
að athuga með að fá annað skip
hingað um tíma til að brúa það bil
sem myndast með fjarveru Rauða-
núps frá veiðum."
Helgi Ólafsson rafvirki og
fréttaritari Mbl. á Raufarhöfn
stóð á hafnarbryggjunni þegar
Rauðinúpur lét úr höfn um kl. 9:30
í gærmorgun. Helgi sagði að
togarinn hefði aldrei tekið vinstri
beygju úr innsiglingunni. Að sögn
Helga virtist Rauðinúpur hálf
stöðvast áður en hann var kominn
út úr innsiglingunni.
„Síðan virtist hann lóna suður
með landinu á lítilli eða engri ferð
þar til hann strandaði.
Að öllum
líkindum hefur stýrið bilað eða
vélin stöðvast sem veldur því að
stjórntækin fara úr sambandi,"
Sagði Helgi.
Skipið tók niðri í stórgrýttri
fjöru fyrir mynni svonefnds
Hrútavogs, sem er skammt sunnan
við þorpið.
Rauðinúpur landaði hér á
þriðjudag 180 lestum af fiski og
var á leið í veiðar, þegar óhappið
varð. Aðrir sjónarvottar en Helgi
tjáðu Mbl. að stjórntæki togarans
hefðu greinilega farið úr sambandi
áður en hann komst út úr innsigl-
ingunni því vinstri beygja út úr
henni hefði aldrei verið tekin,
heldur hefði togarinn lónað suður
með klettóttri ströndinni þar til
hann tók niðri.
Togarinn Sléttbakur EA reyndi
í gær að draga Rauðanúp á flot án
árangurs. Hingað var flogið með
sérlegar dráttartaugar og varðskip
var væntanlegt á strandstað um
miðnættið. Þá eru hingað komnir
fulltrúar frá Almennum trygging-
um, Björgunarfélaginu h.f. og
Björgun h.f.
Veður var gott á strandstaðnum
og lítill sjógangur. Ahöfnin er öll
um borð og ekki hafa orðið slys á
mönnum. Skipstjórar eru tveir,
Ólafur Aðalgeirsson og Þórarinn
Stefánsson, og var hinn síðar-
nefndi með skipið í þessum túr.
Nokkrir þilfarsbátar eru á strand-
stað og halda með taugum við
togarann til að koma í veg fyrir að
hann snúist eða leggist á hliðina.
Ekki var kominn leki að skipinu
í gærkvöldi.
Skuttogarinn
Sléttbakur
gerði árangurs-
lausa tilraun í gær
til að draga Rauða-
núp á flot.