Morgunblaðið - 13.04.1978, Side 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1978
ísafjörður:
Landhelgis-
málinu frest-
að þar til
í dag
MÁLI skipstjórans á Elínu Þor-
bjarnardóttur ÍS 700 varð að
fresta í gær, þar sem ekki var
lendandi á ísafjarðarfluKvelli, en
vætanlega verður málið tekið
fyrir í dag.
Flugvél Landhelgisgæzlunnar
kom um fimmleytið á miðviku-
dagsmorgun að Elínu um fimm
sjómílur inn á friðaða svæðinu
norður af Kögri og var varpan í
sjó.
Framboðslisti
Alþýðuflokksins
á Húsavík birtur
llúsavík. 12. april.
FRAMBOÐSLISTI Alþýðuflokks-
ins til bæjarstjórnarkosninga á
Húsavík hefur verið birtur.
Listann skipa:
Olafur Erlendsson, framkvæmda-
stjóri, Gunnar B. Salómonsson,
húsasmiður, Guðmundur
Hákonarson framkvæmdastjóri,
Vilhjálmur Pálsson, íþróttakenn-
ari, Herdís Guðmundsdóttir, hús-
freyja, Kristján Mikkelsen,
starfsm. verkalýðsfélagsins, Jón B.
Gúnnarsson, sjómaður, Jón Þor-
grímsson, framkvæmdastjóri, Ein-
ar F. Jóhannesson, byggingafull-
trúi, Kolbrún Kristjánsdóttir,
húsfreyja, Viðar Eiríksson, for-
stöðumaður, Baldur Karlsson,
sjómaður, Þorgrímur Sigurjóns-
son, bifreiðastjóri. Kristjana
Benediktsdóttir, húsfreyja, Hall-
dór Ingólfsson, húsgagnasmiður,
Olafur Guðmundsson, kennari,
Halldór Bárðarson, bifvélavirki,
Arnljótur Sigurjónsson, bæjarfull-
trúi.
— Útflutnings-
bann
Framhald af bls. 48
Þótt niðurstaðan verði sú, að
útflutningsbann verði ekki boðað á
Suðurnesjum, munu félögin öll
sem eitt beita sér fyrir því að
fiskur verði ekki fiuttur til Suður-
nesja og þau notuð sem útflutn-
ingshöfn fyrir sjávarafurðir eða
aðrár afurðir, sem flytja á utan.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefur frá Alþýðu-
sambandi Islands bar fulltrúi
Suðurnesja í 10-manna nefnd ASÍ
upp tillögu á síðasta fundi nefnd-
arinnar um að ASÍ hefði sam-
ræmdar aðgerðir til þess að ná
fram umsömdum kaupmætti frá í
sumar með allsherjarverkfalli.
Þessi tillaga hlaut ekki hljóm-
grunn innan nefndarinnar og var
kolfelid. Þá hefur mikill þrýsting-
ur verið á það lagður af hálfu
Verkamannasambandsins, að Suð-
urnesjamenn tækju þátt í útflutn-
ingsbanninu og átti formaður
sambandsins m.a. fundi með for-
ystumönnum verkalýðsféiaga á
Suðurnesjum í fyrrakvöld. Guð-
mundur J. Guðmundsson mun þó
eftir ummælum formanna verka-
lýðsfélaga á Suðurnesjum, sem
Morgunblaðið ræddi við í gær,
hafa farið erindisleysu þangað
suður.
Jón Björnsson, formaður Verka-
lýðsfélags Grindavíkur, kvað stöð-
uga fundi hafa verið öll kvöld um
þessi mál þar syðra „og síðast í
gærkveldi vorum við á fundi hér
með Guðmundi J. Guðmundssyni.
Þar kom fram að við ætluðum að
athuga stöðu okkar aðeins betur,
þar sem við töldum stöðuna hjá
fólkinu vera mjög slæma hér á
Suðurnesjum, lítil vinna og mikil
hætta á að húsunum verði lokað
vegna fjárskorts. Ég er á sama
máli og Karl Steinar Guðnason —
við erum á móti þessum aðgerðum
eins og þær eru framkallaðar hjá
Verkamannasambandinu eða for-
manni Verkamannasambandsins."
Þá sagði Jón ennfremur að sér
fyndist fjarstæða að skipa þriggja
manna nefnd til þess að sjá um
undanþágubeiðnir og undanþágur.
Jón Björnsson kvaðst vonast til
þess að málin skýrðust eftir
nokkra daga og endanleg ákvörðun
yrði tekin. Hann kvaðst búast við
formannafundi félaganna á Suður-
nesjum um helgina. Enn kvað
hann Grindvíkinga ekki búna að
gera upp hug sinn endanlega, en
málið hefði verið mikið rætt og
almennt væri fólk á móti útflutn-
ingsbanni. Þess vegna kvað hann
það enga spurningu, hverjar nið-
urstöður yrðu, þegar málið yrði
formlega borið upp.
Karl Steinar Guðnason, formað-
ur Verkalýðs- og sjómannafélags
Keflavikur og nágrennis, kvaðst í
viðtali við Morgunblaðið hafa
varað við þessari aðgerð Verka-
mannasambandsins á öllum um-
ræðustigum málsins, þar sem
hann hafði ekki talið hana nógu
markvissa og að hún myndi skapa
andstæðingum verkalýðshreyfing-
arinnar betra vopn en þeir ættu
skilið. „Ég skýrði frá því,“ sagði
Kari Steinar, „hvernig ástandið
væri hjá mínu fólki á Suðurnesj-
um, þar sem ríkt hefur erfitt
atvinnuástand, sem skapazt hefur
af aflabresti og jafnframt því að
Suðurnes hafa verið hunzuð af
ríkisvaldinu hvað fjármagnsfyrir-
greiðslu snertir. Hins vegar vildi
ég ekki á þeim tíma skýra frá því
opinberlega, að um ágreining væri
að ræða innan Verkamannasam-
bands Islands, vegna þess að ég
vildi fyrst ganga úr skugga um,
hvort ekki væri unnt að ná
samstöðu innan ASÍ um sameigin-
legar aðgerðir eins og félagar
mínir í verkalýðsfélögunum á
Suðurnesjum hafa alltaf viljað. Ef
vilji hefði verið fyrir slíkri sam-
stöðu innan ASÍ, hefðu Suðurnesin
að sjálfsögðu verið með.
Nú hefur á þetta reynt og í ljós
komið, að það er ekki sem stendur
vilji fyrir því innan ASI að efna
til sameiginlegra aðgerða. Undir
slíkum kringumstæðum hlýt ég að
miða mína afstöðu við það, sem ég
veit að er skoðun félaga minna á
Suðurnesjum, sem ég hefi verið
valinn til forystu fyrir. Ég tel ekki
líklegt að áhugi sé á því á
Suðurnesjum, að lægst launaða
fólkið í landinu standi eitt í
erfiðum aðgerðum á meðan þeir,
sem hærra eru launaðir standa hjá
og bíða átekta.“
— Út í óvissuna
Framhald af bls. 48
sagði Mackintosh, að þau hefðu
verið boðin þekktum leikurum;
einum rússneskum og tveimur
enskum en hann vildi ekki láta
uppi nein nöfn í þvi sambandi.
Kvikmyndatakan hefst í Skot-
landi um miðjan maí-mánuð og
til Islands kemur svo hópurinn
29. maí og verður þá dvalið hér
á landi í 8 vikur við kvikmynda-
töku. Ætlunin er að gera þrjá 50
mínútna sjónvarpsþætti eftir
sögunni og sagði Mackintosh, að
líklega yrði ekki lokið við þættina
fyrr en í vetrarbyrjun í fyrsta
lagi, en myndin yrði sýnd fljót-
lega eftir að gerð hennar lyki.
— Viðræður
við ÍSAL
Framhald af bls. 48
snúizt í að ræða ýmis atriði, sem
ekki voru fullfrágengin við síðustu
kjarasamningsgerð, svo sem eins
og bónuskerfi og annað slíkt.
Viðræðunum er enn ekki lokið og
mun of fljótt að spá nokkru um
lyktir þeirra.
Útflutningsbannið mun ekki
koma ýkja hart niður á ISAL, sem
á systurfyrirtæki víða um heim,
sem geta lánað því ál til afhending-
ar, svo að fyrirtækið geti staðið við
skuldbindingar sínar.
— Italska
lögreglan
Framhald af bls. 1.
aðeins að finna eitt fórnarlamb.
Var það ungur maður og höfðu
ræningjar hans skorið af honum
annað eyrað.
Af Aldo Moro fyrrum forsætis-
ráðherra hefur ekkert frétzt síð-
ustu daga, en ýmsir benda á að rán
hans virðist vera lán í óláni þar
sem aðeins'einum hafi verið rænt
síðan hann hvarf 16. marz s.l. Sú
staðreynd er auðskilin þegar haft
er í huga hversu mjög var hert á
öryggisráðstöfunum við hvarf
hans.
Italska lögreglan telur nú full-
víst að hryðjuverkamaðurinn, sem
náðist þegar fangavörður í Torínó
var myrtur fyrir utan heimili sitt
í gær, sé félagi í Rauðu herdeild-
inni. Enn hefur ekki verið unnt að
yfirheyra manninn, sem er lífs-
hættulega særður, en áður en
hann var svæfður fyrir uppskurð
í gær, lýsti hann því yfir að hann
liti á sig sem pólitískan fanga.
Þetta er fyrsti hryðjuverkamaður-
inn, sem ítalska lögreglan kemur
höndum yfir við vopnaða árás.
Maðurinn heitir Christoforo
Piancone og hvarf sporlaus í
Torínó fyrir tveimur árum.
— íþróttir
Framhald af bls. 46.
Brugge _ Juventus 2:0.
Framlengja þurfti leikinn að loknum
venjulegum leiktíma, en þá var staðan 1:0 og
liðin jöfn, því Juventus vann fyrri leikinn 1:0.
I framlengingunni skoraði Brugge eitt mark
og fer því í úrslitin á móti Liverpool með
markatöluna 2:1.
Mörk Bruggei Bastijns og Van der Eycken
★ ★ ★
EVRÓPUKEPPNI BIKARMARISTARAi
Austria Vín —
Dinamov Moskva 2:1
Mörk Austriai Pirkner og Morales
Mark Dinamovi Yabulik
Áhorfenduri 70.000.
★ ★ ★
Anderlecht —
Twente Entschede 2:0 (1:0)
Mörk Anderlechti Haan og Rensenbrink.
Anderlecht vann samanlagt 3:0
★ ★ ★
UEFA-KEPPNIN.
Bastia —
Grasshoppers 1:0
Mark Bastia, Papi
Bastia fer í úrslitin á reglunni um fleiri
mörk skoruð á útivelli.
Barcelona —
PSV Eindhoven 3:1
Mörk Barcelona. Rexach (2), Fortes.
Mark Eindhoveni Daisy.
Áhorfendur. 80.000.
Eindhoven fer í úrslitin á samanlagðri
markatölu 4:3.
— Hafréttar-
ráðstefnan
Framhald af bls. I.
milli stranda að 200 mílna
línurnar skerast.
Eins og málin standa nú er
stefnt að því að öllum nefndar-
störfum og málamiðlunartil-
raunum verði lokið 25. apríl, en
það tekst örugglega ekki, enda
verður hér um að ræða bráða-
birgðadagskrá. Samkvæmt
henni er ætlazt til að allsherjar-
fundur ræði tillögurnar frá 26.
apríl til 5. maí, og að endurskoð-
un heildartexta fari fram 8.—12.
maí. Loks er gert ráð fyrir því
að leggja fram heildartexta hins
endurskoðaða samningsupp-
kasts og ræða hann 15.—19. maí,
en nú á eftir að koma í Ijós
hvernig þessi áætlun stenzt,"
sagði Hans G. Andersen, um leið
og hann kvað það skoðun sína að
ekki tækist að Ijúka ráðstefnu-
störfunum að þessu sinni, held-
ur yrði nauðsyniegt að kalla
saman nýjan fund, annað hvort
síðar á þessu ári eða næsta vor.
— Kambódía
Framhald af bls. 1.
liðs í Kambódíu á fimm stöðum
síðastliðinn föstudag, og var
þar beitt bæði skriðdrekum og
orrustuflugvélum. Vestrænir
fréttaskýrendur velta því nú
fyrir sér hvort meiriháttar átök
séu í aðsigi, en fregnir, sem
telja verður áreiðanlegar, stað-
festa að á þessum slóðum hafi
verið barizt að undanförnu,
einkum Kambódíumegin landa-
mæranna, norðvestur af víet-
nömsku borginni Tay Ninh. Á
þessum slóðum eru miklar
gúmmíekrur Kambódíumanna,
og hafa þær mikla efnahags-
lega þýðingu fyrir landið.
Raddir eru uppi um að þau
átök, sem nú virðast eiga sér
stað, séu í hefndarskyni vegna
síendurtekinna árása
Kambódíumanna á landa-
mæraþorp og jafnvel
fjöldamorða. Kambódíuútvarp-
ið kvað árásir Víetnama vera
komnar á nýtt stig, og væru
þær undanfari meiriháttar inn-
rásar.
— Blumenthal
Framhald af bls. 1.
hann skýrði frá í ræðu í gær,
en hún felur meðal annars í
sér. 5,5% „þak“ á launa-
hækkanir.
Þrátt fyrir hrakspár á gjald-
eyrismarkaði í Evrópu í kjölfar
ræðu forsetans hefur banda-
ríkjadalur ekki goldið verulegt
afhroð, heldur stigið gagnvart
hinum sterka svissneska
franka, svo og gegn hollenzka
gjaldmiðlinum. Gagnvart ann-
arri evrópskri mynt hefur
gengi hans aðeins stigið, en
gagnvart japanska jeninu fór
hann hins vegar verulega hall-
oka.
— Odvar Nordli
Framhald af bls. 1.
Nú sem fyrr var ætlunin að
ganga frá svokölluðum „sam-
ræmdum kjarasamningi", sem
fæli í sér hóflegar launahækkanir,
jafnhliða efnahagsráðstöfunum af
hálfu ríkisstjórnarinnar, svo sem
niðurgreiðslum, skattalækkunum
og ívilnunum til láglaunahópa,
barnafjölskyldna og ellilífeyris-
þega. Þegar um slíka samnings-
gerð er að ræða hefur ríkisstjórnin
afskipti af henni þegar viðræður
samningsaðila eru að komast á
lokastig og þeir hafa komið sér
saman um helztu atriði varðandi
kaupgreiðslur. Að þessu sinni kom
ekki til þess að ríkisstjórnin fengi
tækifæri til að hafa slík afskipti af
málum, þar sem verkalýðshreyf-
ingunni og vinnuveitendum tókst
ekki að koma sér saman um
kaupliði samningsins.
Stjórnin mun að öllum líkindum
gera grein fyrir fyrirhuguðum
efnahagsráðstöfunum sínum á
föstudaginn, um leið og endur-
skoðuð fjárhagsáætlun verður lögð
fyrir Stórþingið. Sagði Nordli í
dag að endurskoðað frumvarp að
fjárlögum fyrir árið 1978 yrði
síðan lagt fyrir svo skjótt sem
auðið yrði. Nordli gerði grein fyrir
því í dag að verðlagshömlur, sem
settar voru á í janúar s.l. til
bráðabirgða, yrðu áfram í gildi, og
væri til athugunar að setja til
viðbótar þeim strangar reglur um
verðlag og hagnað. Hann staðfesti
að misklíð um leiðir til að stemma
stigu við launaskriði í ýmsum
atvinnugreinum hefði verið það,
sem að lokum sigldi samningavið-
ræðunum í strand, en vildi hvorug-
um aðilanum kenna um hinum
fremur.
Norska alþýðusambandið krafð-
ist 10,9% kauphækkunar á næstu
tveimur árum, en vinnuveitendur
hafa ekki viljað fallast á aðrar
hækkanir en þær, sem snerta
eftirlaunagreiðslur. Þegar Ijóst
var að samningaumleitanir yrðu
árangurslausar lagði opinberri
sáttasemjarinn fram málamiðlun-
artillögu, sem var hafnaö af
báðum deiluaðilum.
— Waldheim
Framhald af bls. 1.
flóttamaður, en um leið og tals-
maður bandaríska utanríkisráðu-
neytisins vísaði á bug ásökunum
Sovétstjórnarinnar um að Shev-
chenko væri haldið nauðugum í
Bandaríkjunum, sagði hann:
„Honum er frjálst að vera hér
áfram, fara til Sovétríkjanna eða
fara hvert á land sem hann vill.“
Mál þetta hefur slæm áhrif á
samskipti Sovétríkjanna og
Bandaríkjanna, sem kemur sér illa
svo skömmu áður en Vance utan-
ríkisráðherra Bandaríkjanna fer
til viðræðna við sovézka ráðamenn
í Moskvu.
Lögfræðingur Shevchenkos hef-
ur skýrt frá því að skjólstæðingur
hans óski að halda stöðu sinni hjá
Sameinuðu þjóðunum, en í kvöld
kvaðst lögfræðingurinn hafa feng-
ið fyrirmæli um að tjá sig ekki um
málið að svo stöddu. Sagði hann
hins vegar að Shevchenko væri nú
hjá vinum sínum í úthverfi New
York í góðu yfirlæti.
Kona Shevchenkos og dóttir
fóru til Moskvu um síðustu helgi,
og í dag tók dóttirin undir ummæli
móður sinnar í gær um að
Shevchenko mundi áreiðanlega
ekki getað hugsað sér að ílendast
í Bandaríkjunum. Eru ýmsir van-
trúaðir á að hér hafi hinar
raunverulegu mæðgur talað, en
sovézk yfirvöld hafa brugðizt hin
verstu við vegna þessa máls og
halda því fram að bandaríska
leyniþjónustan hafi komið af stað
lygaherferð í því skyni að sverta
Sovétríkin.
— Bracht barón
Framhald af bls. 23
ins nokkuð sem bent gæti til að
hann væri á lífi, en mann-
ræningjarnir sendu henni bíllykla
barónsins og armbandsúr.
Morðingjar barónsins eiga yfir
höfði dauðadóm, en enn sem komið
er veit lögreglan lítið um þá.
Aðeins einu sinni hefur maður
verið tekinn af lífi í Belgiu frá
stríðslokum, og þurfti í það skipti
að fá lánaða fallöxi frá Frakk-
landi. Þá voru nokkrir stríðs-
glæpamenn teknir af lífi í Belgíu.
Yfirlýsing Theodores Brachts
endar svohljóðandi: „Faðir minn
var skotinn í höfuðið er hann
barðist gegn mannræningjunum.
Þó hann væri látinn aftraði það
ekki mannræningjunum frá að
krefjast lausnargjalds. Réttlætir
ekki svo svívirðilegur glæpur
hinar miklu öryggisráðstafanir
sem gerðar hafa verið? Ef við
verndum ekki þjóðfélag okkar
gegn ofbeldi, verður okkur stjórn-
að með ofbeldi."
- Skák
Framhald af bls. 2
fram á nótt að íslenzkum tíma,
tefldi Haukur við hollenzka
stórmeistarann Timman og
hafði Haukur svart, Margeir
hafði hvítt á móti rúmenska
stórmeistaranum Georghiu og
Helgi Ólafsson hafði hvítt gegn
brezka stórmeistaranum Miles.
Þeir Ásgeir Þ. Árnason og Jónas
P. Erlingsson tefldu saman í
síðustu umferðinni.
Hér fer á eftir vinningsskák
Hauks Angantýssonar gegn
Reshevsky. Haukur stýrir hvítu
mönnunum:
1. c4 - c5, 2. Rc3 - Rc6. 3. g3
- g6, 4. Bg2 - Bg7. 5. d3 -
e6,6. e4 — Rge7,7. Rge2 — 04),
8. Be3 - Rd4, 9. Dd2 - d6,10.
0-0 - Rec6, 11. Bh6 - e5, 12.
Bxg7 - Kxg7, 13. Rd5 -
Rxe2, 14. Dxe2 - Iíd4, 15. Dd2
- Be6, 16. Re3 - Hb8, 17. f4
- exf4.18. gxf4 - Í5,19. Hael
- Dh4. 20. e5 - dxe5, 21. Rc2
- Rxc2, 22. Dxc2 - Had8, 23.
IIxe5 - Df6, 24. Hfel - Bf7,
25. Hxc5 - IId7, 26. Hce5 -
Hfd8. 27. Bd5 - Bxd5, 28. cxd5
- Dhl, 29. DÍ2 - Dxf2, 30.
Kxf2 - Kf8, 31. Ilcl - Hxd5,
32. Ilxd5 - Hxd5, 33. IIc8+ -
Kg7, 34. Ilc7+ - Kh6, 35. Ke3
- Hb5, 36. b3 - a5, 37. d4 -
b6, 38. Kd3 — g5, 39. fxg5 —
Kxg5, 40. Ilxh7 - Kf4, 41. He7
- Hd5, 42. He6 - Kf3, 43. He5
og hér gafst Reshevsky upp.