Morgunblaðið - 13.04.1978, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 13. APRÍL 1978
45
f "U W ~ - JJ
s VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
vörufélaginu" eða „álnavöru-
hönnuðinum." En má ekki reyna
að finna eitthvert betra orð? Nú
má vera að orðið álnavara sé alls
ekki við hæfi, og ég hef það lítið
vit á þessari iðn að ég get naumast
tjáð mig um það fullkomlega.
En þess vegna vildi ég varpa
þessari hugmynd fram og vil
hvetja fróða menn til að láta í ljós
álit sitt á þessum hugsunum
mínum og ekki sízt væri fróðlegt
og nauðsynlegt að textíhönnuðirn-
ir létu í ljós eða útskýrðu öllu
heldur hvers vegna þetta orð hefur
verið valið.
Spurull.“
Undir það getur Velvakandi
tekið að skýringar komi fram um
hvers vegna orðið textíl var valið,
en þær hljóta að vera til.
• Chaplin í sjónvarp
Þá eru hér nokkrar línur frá
einum, sem vill að sjónvarðið
minnist Chaplins á verðugan hátt:
„Mér finnst það svolítið skrítið
að sjónvarpið skuli ekki hafa
minnst hins mikla snillings Chapl-
ins með því að sýna mynd eftir
hann og með honum í aðalhlut-
verki. Fyrir utan það að minnast
hans ekki finnst mér vanta fleiri
grínmyndir í sjónvarp og finnst
mér langt síðan ég hefi séð
gamanmynd svo um munar í þeim
annars ágæta fjölmiðli. Ég er viss
um að mjög mikið er til af
gamanmyndum bæði gömlum, sem
væntanlega eru ekki eins dýrar i
innkaupi, nú og gaman væri að fá
eina og eina nýja mynd. Einnig
mætti fljóta með ein og ein
Tarzan-mynd og jafnvel gamlar
kúrekamyndir.
6466-8404.“
f>essir hringdu . .
• Skriffinska?
Maður nokkur sem sagðist
mikið notast við gírókerfið hafði
eftirfarandi um það að segja:
„Sem kunnugt er var fyrir
nokkrum árum komið á fót hér á
landi gíróþjónustu eða póstgíró-
kerfi eins og það mun heita og
annast Póstgíróstofan alla umsjón
þess verks og stjórn.
Nýlega er þessi stofnun flutt í
nýtt húsnæði og það ekki svo lítið
og sjálfsagt er full þörf á því
húsnæði fyrir starfsemina. En það
sem mér er samt efst í huga er sú
spruning hvort ekki sé mögulegt
að gera gíróþjónustuna eitthvað
einfaldari í sniðum, þetta virðist
allt eitthvað svo flókið. Tökum
sem dæmi góróseðlana sjálfa, þeir
eru í fjórriti og eru sum afritin í
tveimur hlutum þannig að um er
að ræða 4—6 seðla eftir því
hvernig á málið er litið. Erlendis
eru gíróseðlar mun einfaldari, í
mesta lagi tvíblöðungur, sem e.t.v.
er skipt í þrjá staði þegar greitt er
í banka eða pósthúsi, þ.e. einn
hlutann fær viðskiptavinur, einn
greiðslustaðurinn og móttakandi
greiðslunnar þriðja hluta seðils-
ins.
Annars var þetta nú ekki
aðalerindið, því ég geri ráð fyrir að
fyllsta aðhalds sé gætt i rekstri
Póstgíróstofunnar svo sem ann-
arra ríkisfyrirtækja og stofnana.
En það sem ég vildi einkum
spyrjast fyrir um er hvort ekki sé
hægt að samræma seðla t.d.
Norðurlandaþjóðanna þannig að
ég geti greitt hér á landi tímarits-
áskrift sem ég er rukkaður um
í Kaupmannahöfn
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
með gíróseðli frá einhverju hinna
Norðurlandanna. Hvað mælir í
raun og veru á móti þessu þegar
ég á t.d. nokkrar danskar krónur
á gjaldeyrisreikningi, hvað getur
þá í raun hamlað gegn því að
greitt sé á milli landa á þennan
hátt nema gírókerfið? Ég er viss
um að þetta kæmi sér vel á mjög
mörgum sviðum, þannig mætti
spara í reikningasendingum og
ábyrgðabréfasendingum milli
landa og greiðendur og þeir sem
greiðsluna eiga að fá njóta mun
öruggari þjónustu fyrir vikið.
Nú getur vel verið að eitthvað
mjög einfalt atriði standi í vegi
fyrir því að úr þessu geti orðið, en
gaman væri að fá að vita um það
og bara yfirleitt að fá að vita í
hverju þessi munur liggur.
HÖGNI HREKKVÍSI
Svipmyndir
á svipstundu
Svipmyndir í hvert skírteini
Svipmyndir sf.
Hverfisgötu 18 ■ Gegnt Þjóóleikhúsinu
220/12 volta spennubreytar
fyrir
ferðatæki — segul-
bönd — talstöðvar
og hvaðeina annað, ávallt
fyrirliggjandi
Heildsala — smásala.
Benco
Bolholti 4
S: 91-21945.
Stjómunarfélag íslands
Símsvörun í fyrirtækjum
eða stofnunum
SÍMANÁMSKEIÐ
Dagana 17., 18. og 19. apríl nk. gengst
Stjórnunarfélag íslands fyrir námskeiði. Á
námskeiðinu verður fjallaö um starf og
skyidur símsvarans, eiginleika góðrar
símaraddar, símsvörun og símatæki,
kynningu í notkun símabúnaöar, kallkerfis
og fleira. Auk námskeiðsins verður farin
kynnisferð í Landsímahúsið með þátttak-
endum.
Námskeiðið er einkum ætlaö þeim, sem sta
sem um er að ræða hjá fyrirtækjum eða opinberum stofnunum.
Leiðbeinendur verða Helgi Hallsson fulltrúi og Þorsteinn Óskarsson
símaverkstjóri. Vinsamlegast tilkynnið þátttöku til skrifstofu
félagsins í síma 82930.
Aðalfundir félagsdeilda M.R.
verða haldnir sem hér segir
REYKJAVÍKURDEILD
aö Hótel Sögu, mánudaginn 17. apríl kl. 20:30.
VATNSLEYSUSTRANDAR-, GERÐA-, 0G
MIÐNESDEILDIR
í skólahúsinu Brunnastööum,
þriöjudaginn 18. apríl kl. 14:00
BESSASTAÐA-, GARÐA- 0G
HAFNARFJARÐARDEILDIR
í félagsheimilinu Garöaholti,
miövikudaginn 19. apríl kl. 14:00
MOSFELLSS VEIT ARDEILD
í félagsheimilinu Hlégaröi,
föstudaginn 21. apríl kl. 14:00
KJALARNESDEILD
í félagsheimilinu Fólkvangi,
mánudaginn 24. apríl kl. 14:00
KJÓSARDEILD
í félagsheimilinu Félagsgaröi,
miövikudaginn 26. apríl kl. 14:00
INNRI-AKRANESS-, SKILMANNA-, STRANDAR-,
LEIRÁR- 0G MELADEILDIR
í félagsheimilinu Heiöarborg,
föstudaginn 28. apríl kl. 14:00
AÐALFUNDUR FÉLAGSRÁÐS
veröur haldinn aö Hótel Sögu, Átthagasal,
laugardaginn 6. maí kl. 12 á hádegi.
Stjórn Mjólkurfélags Reykjavíkur