Morgunblaðið - 21.10.1978, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1978
31
Albert Guðmundsson:
Sv ar við grein
Ragnhildar
Helgadóttur
„Um þingflokk sjálfstæðis-
manna að gefnu tilefni”
Frú Ragnhildur Helga-
dóttir skrifar grein, sem
birtist í Morgunblaðinu þann
20. okt. s.l. Grein þessi er
skrifuð af mikilli þörf frúar-
innar til að tjá sig um
vandamál, sem við henni
blasa, og henni hefur ekki
tekist að leysa á hefðbund-
inn hátt.
Fyrst bendir hún á þau
nýju viðhorf, sem skapast
hafa í stjórnmálum á
Islandi, eftir að kommúnist-
ar juku fylgi sitt hér í
nýafstöðnum kosningum,
eftir fjögurra ára stjórnar-
forustu okkar sjálfstæðis-
manna, og ráða nú ríkjum í
Reykjavíkurborg og ríkis-
stjórn.
Helzt má skilja af skrifum
frúarinnar, að þessi
kosningaúrslit, þótt slæm
væru, séu ekki það versta
fyrir Vestur-Evrópu og hinn
frjálsa heim, heldur hitt að
innan Sjálfstæðisflokksins
skulu vera til einstaklingar,
sem ekki telja hana sjálf-
sagða til yfirráða. Aðferðin
„að deila og drottna" hefur
stundum borið árangur, en
alltaf skilið eftir sig sár.
í grein sinni brenglar frú-
in staðreyndum, sem máli
skipta fyrir mig persónulega,
svo ég finn mig tilneyddan
til að hressa upp á minni
frúarinnar.
Það er rangt, að ég hafi
krafist þess að vera í Neðri
deild á yfirstandandi kjör-
tímabili. Það rétta er, að
þingmenn koma sér saman
um skiptingu milli deilda. Sl.
4 ár (sama tíma og frú R.H.
sat í N.d.) sat ég í Efri deild.
Að þessu sinni óskaði ég
eftir að vera fluttur milli
deilda, en lét fylgja ósk
minni, að mér hafi ávallt
liðið vel í E.d. og væri
reiðubúinn til að sitja þar
áfram, ef ósk mín skapaði
vandamál innan flokksins.
Osk minni fylgdi sá rök-
stuðningur, að með því að
sitja yfirstandandi kjörtíma-
bil í Neðri deild öðlaðist ég
meiri reynslu sem þing-
maður. Málflutningur R.H.
um þennan þátt er einungis
til þess að láta fólk halda að
vegna þrýstings frá mér hafi
hún bjargað málum með
lítillæti sínu og boði um að
flytja sig í Efri deild. Hér
geri ég ekki að umræðuefni
„Stýringu" frúarinnar á
Neðri deild sl. 4 ár.
„Vandamál Alberts
Guðmundssonar voru ekki
leyst með því að hann
færðist milli deilda Alþing-
is“ — Ekki aldeilis —
Blessuð konan (R.H.) heldur
því fram, að ég hafi neitað að
taka sæti í þingnefndum.
Fyrir ókunnuga vil ég geta
eftirfarandi:
Val þingmanna í nefndir
fer þannig fram, að þing-
menn eru beðnir að tjá sig
um það í hvaða nefndum, og
að hvaða málaflokkum, þeir
hafi hug á að starfa, og koma
á framfæri við formann
þingflokksins þessum óskum
sínum.
Þetta gerðu allir þing-
menn Sjálfstæðisflokksins.
Minn hugur stóð til
tveggja nefnda þ.e. utan-
ríkismálanefndar og fjár-
hags- og viðskiptanefndar.
Þegar ljóst varð að erfitt
var um samkomulag um
menn í nefndir, var for-
manni þingflokksins, ásamt
Olafi G. Einarssyni, falið að
ná samkomulagi um niður-
röðun í þær. Það samkomu-
lag náðist og engin vanda-
mál fyrirsjáanleg, þar sem í
utanríkismálánefnd voru
tveir frambjóðendur, Ragn-
hildur Helgadóttir og Albert
Guðmundsson, en þriðji
frambjóðandinn, Friðjón
Þórðarson, lýsti yfir, að
hann vildi draga framboð
sitt til baka. Þrátt fyrir
sáttatilraunir formanns
þingflokksins tókst ekki að
ná samkomulagi.
Það varð að koma í veg
fyrir að Albert Guðmunds-
son kæmist í utanríkismála-
nefnd. Og það tókst, þrátt
fyrir drengilega framkomu
Friðjóns Þórðarsonar til að
leysa vandann.
Hvað varðar fjárhags- og
viðskiptanefnd N.d. þá hafði
frv. formaður nefndarinnar
lýst því yfir á þingflokks-
fundi, að hann óskaði ekki
eftir að vera áfram í þeirri
nefnd, svo þar virtist ekkert
vandamál, aðeins tveir þing-
menn höfðu sýnt áhuga á
setu í nefndinni: Matthías Á.
Mathiesen og Albert
Guðmundsson, — tveir
frambjóðendur — eða sama
tala og kjósa átti. Hvers
vegna Ólafur G. Einarsson
breytti um skoðun milli
funda og varð þriðji fram-
bjóðandi til þessara nefndar-
starfa, veit ég ekki (og þó).
Þegar hér var komið í
nefndarskipun, var augljóst
að samkomulag hafði náðst
um allar nefndir, búið að
greiða atkvæði um fjárveit-
inganefnd, sem fyrst var
kosin, nú utanríkismála-
nefnd og fjárhags- og við-
skiptanefnd N.d.
Þar sem samkomulag
hafði náðst um niðurröðun á
þingmönnum í allar aðrar
nefndir, og þar virtar óskir
manna til setu í hinum ýmsu
nefndum, taldi ég fráleitt að
fara að raska þeim friði, sem
um þær ríkti, og valda ef til
vill öðrum þingmönnum
óánægju, en samkvæmt
grein frú Ragnhildar þing-
manns, á ég að hafa neitað
setu í öðrum nefndum,
nefndum, sem hún og sam-
starfsfólk hennar höfðu ætl-
að mér, eftir að hafa með
sínum vinnubrögðum komið
í veg fyrir að ég kæmist til
starfa fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn á Alþingi Islend-
inga og á þeim vettvangi,
sem hugur minn stóð til.
Niðurstöður atkvæða-
greiðslnanna eru kunnar, en
það væri athugunarefni öllu
góðu sjálfstæðisfólki hvernig
að þeim var staðið.
Frú Ragnhildur Helga-
dóttir segir í umræddri grein
sinni: „að það væri ærin
ástæða til að draga fram
fleiri staðreyndir í sambandi
við afstöðu þingflokksins í
þessu sambandi. — Myndu
þá færri spyrja hvers vegna
þingflokkurinn tæki þá af-
stöðu sem hann gerir nú“.
Mér sýnist R.H. fela sig
bak við þagnarskyldu í þing-
flokknum. Mun ég beita mér
fyrir því, að aflétt verði því
sem eftir er af þagnarskyldu
þingmanna svo frúin geti
upplýst okkur öll frekar.
Greinarhöfundur, sem
sjálf er lögfræðingur, og í
hópi þeirra, sem ekki telja
sig nein smámenni í þeim
efnum, byggir málflutning
sinn að full miklu leyti á
dylgjum, en þær hafa ekki
hingað til þótt verulega gott
innlegg í lögfræðilegar rök-
ræður eða nokkurn annan
málflutning.
Seinni hluti greinar frú
Ragnhildar fjallar um það
vandamál, sem hún og félag-
ar hennar hafa haft við að
glíma um áraraðir og
nefnist: „Gunnar Thorodd-
sen“. Læt ég hann um að
svara þessum kafla.
Frúnni hefur ekki tekist
að bola Gunnari Th. burt úr
stöðum innan flokksins, ekki
hefur hana þó vanta.ð viljann
og oft hefur hún gert honum
lífið leitt. Á framabrautinni
er Frekjan í fylgd með henni
og eins og keipóttir krakkar
hafa þær volað sig út úr
mörgum vandamálum.
Kannski fólk hafi enn
ekki séð í gegnum starfs-
hættina, en ég vona að fyrr
eða síðar muni Sjálfstæðis-
flokkurinn ná fullri heilsu
aftur.
'&r*' *****
»'it' tadi «a. •"* íViti «
aro far
er afa
menn
TÍttUW (jó\-
« M""'
Ære»n»: " ' v0\ ,
f\oViVw'"s ani»r |ltí u«' '
hó\" ^{uWnir»'
°n' '’Vafí »ö v‘»nn»- . a \
meö 'r w una "r „,,r ^
1
.M.e
L'.'v/'' "V ’ v.„
n\6 j aö *‘xrWann»
r0""n' 5‘hot '»"ft' f?