Morgunblaðið - 21.10.1978, Blaðsíða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 1978
Nú í haust áformaði hann að
heimsækja okkur enn á ný. Slíkt
var okkur gleðiefni því hér var
hann jafnan aufúsugestur. En
haustið kom með annað kall, burt
til annarra heimkynna. Við áttum
ekki von á því að þurfa að sjá á
bak honum svo fljótt, hann sem
átti svo margt ónnnið ennþá sem
hugurinn stefndi til. Við hér í
Norðfirði stöndum í söknuði og
hörmum fráfáll vinar svo skyndi-
legt. Mikill er harmur fjölskyldu
hans og safnaðanna í Njarðvíkum.
Mikiil er missir kirkju Islands að
sjá á bak svo efnilegum dreng. En
um það tjáir ekki að fást. Við
leitum huggunar Guðs, hans sem
engum bregst er til hans leitar.
Fyrir hönd safnaðanna á Norð-
firði og Mjóafirði vil ég þakka af
hjarta líf og störf sr. Páls
Þórðarsonar í þágu sóknarbarn-
anna. Sjálfur hef ég margs að
minnast, einlægrar vináttu hans í
minn garð, hvatninga og liðsinnis í
störfum. Við biðjum algóðan Guð
að sefa sorg og trega eiginkonu
hans, Guðrúnar, sonanna þriggja
og ástvina hans nær og fjær. Megi
algóður Guð blessa þau og styrkja
um ókomin ár.
Guð blessi minningu um góðan
dreng, sr. Pál Þórðarson.
Svavar Stefánsson
Neskaupstað
Á stundum finnst okkur lífið
vera miskunnarlaust. Þá tilfinn-
ingu kannast margir við, er þeir
standa berskjaldaðir frammi fyrir
þeim veruleika, er kallast dauði.
Einkum finnst okkur miskunnin
vera víðsfjarri, þegar ungir menn
og konur eru numin á brott í
blóma lífsins. Þannig hefur marg-
ur hugsað er fréttin um andlát sr.
Páls Þórðarsonar, sóknarprests í
Njarðvík, barst þeim til eyrna.
Sr. Páll Þórðarson var sonur
hjónanna Þórðar Steindórssonar
og Kristínar Pálsdóttur. Hann ólst
upp í Reykjavík. Gekk þar í skóla.
Stundaði nám við Verzlunarskóla
Islands og lauk þaðan stúdents-
prófi vorið 1965. Það sama ár
kvæntist hann Guðrúnu Birnu
Gísladóttur. Þau hjónin eignuðust
þrjá syni, Gísla Pál, Þórð Björn og
Halldór Gunnar.
Að loknu stúdentsprófi hóf sr.
Páll nám við guðfræðideild
Háskóla Islands. Þar var ég svo
lánsamur að fá að kynnast og
starfa með honum. I guðfræði-
deildinni var Páll virkur, bæði í
námi og félagsstarfi. Þar bar fljótt
á þvi, að mikill hæfileikamaður
var á ferðinni. Hann gekk ávallt
óhikað til verks, og lauk ávallt
þeim verkefnum, er hann tók að
sér. Hann var mikill afkastamaður
og vann ávallt af heilum hug að
öllum þeim verkefnum, sem
heilluðu huga hans. í náminu
fylgdist hann vel með. Einkum
sótti á huga hans hið stóra og
mikla verkefni, maðurinn og staða
hans í þjóðfélagi hraða og spennu.
Hann eins og svo margir aðrir,
komst að þvi, að kirkja Krists
hefur eitthvað raunhæft til mál-
anna að leggja. Hann ákvað því að
gerast starfsmaður kirkjunnar.
Var hann vígður til Norðfjarðar-
prestakalls 1. júlí 1973. Þar
starfaði sr. Páll af miklum
dugnaði og fórnfýsi eins og skýrt
kom fram í þeim náttúruhamför-
um, sem Norðfirðingar fengu að
kynnast síðla ársins 1974. Þar
nýttust hæfileikar sálusorgarans,
sem bar óskorað traust ti! þess,
sem huggaði og læknaði forðum
daga.
Síðar var sr. Páli veitt Njarð-
víkurprestakall. Þar starfaði hann
fram á síðasta dag. í hinum unga
söfnuði naut sr. Páll starfs síns.
Áhugi hans á að móta og skapa og
að leita að nýjum leiðum til að
bæta safnaðarstarfið var óvenju
mikill. Hann áleit, að kirkjan yrði
í sífellu að kanna nýjar leiðir
varðandi boðun orðsins. Grund-
völlurinn væri ávallt sá sami, en
boðunin yrði að taka mark af
hinum síbreytilega, tæknivædda
heimi. Einn þáttur, er hjálpar til
við útbreiðslu orðsins, er góð
aðstaða. Það stóð ekki á hinum
unga söfnuði, í Njarðvík að skapa
safnaðarfólkinu og prestinum
viðunandi aðstöðu. Kirkjubygging
ey í smíðum. Sr. Páll tók þátt í
þeirri uppbyggingu af lífi og sál.
Þar, sem og í öðrum störfum, kom
fram ósérhlífni, samvizkusemi og
dugnaður, sem einkenndi ailt hans
líf og starf.
Það er þverstæða, að hann,
fullur af krafti og dugnaði, skuli
ekki lengur vera á meðal okkar.
Svo snögg voru umskiptin, að
erfitt er að skilja. Erfiðast er það
fyrir eiginkonuna og synina þrjá.
Á slíkum stundum virðist lífið
vera svo miskunnarlaust, og þó.
Enn á nýjan leik, verður brotunum
raðað saman, því miskunn Guðs er
ekki á enda. Hún er ný á hverjum
morgni. Þess vegna bið ég
miskunnsaman Guð að styðja og
hugga eftirlifandi eiginkonu, syni,
foreldra og tengdaforeldra svo og
aðra ástvini. I þeirri bæn, með
þeim kveðjum, sameinast allir,
sem í dag kveðja góðan dreng og
sannan vin.
Vigfús Þór Arnason.
Kveðja frá Lionsfélögum
I dag kveðjum við vin okkar og
félaga séra Pál Þórðarson. Frá
þeim tíma er hann tók við starfi
hér i Njarðvík, var hann einn
mikilvirkasti og starfsfúsasti fé-
laginn í Lionsklúbbi Njarðvíkur.
Líknar- og menningarmálin voru
honum hugleiknust og einmitt í
þeim málum leiddi hann okkur
félagana inn á nýjar brautir. Hann
benti á og beitti sér fyrir ýmsum
málum til stuðnings og styrktar
þeim meðbræðrum okkar, sem af
einhverjum ástæðum, höfðu ekki
sömu tækifæri og aðrir í samfélag-
inu. Hann var málsvari hins minni
máttar og ófeiminn að láta það í
ljós.
Það var okkur mikil gæfa, að fá
að kynnast og starfa með slíkum
féiaga.
Við biðjum góðan Guð að styðja
og styrkja eiginkonu, börn og aðra
aðstandendur séra Páls Þórðar-
sonar.
Lionsklúbbur Njarðvíkur.
Afmœlis- og
minningargreinar
ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og
minningargreinar verða að berast blaðinu með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast
á í miðvikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir
hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra
daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða
bundnu máli. Þær þurfa að vera vélritaðar og með
góðu línubili.
Aðalfundur FEF:
Tryggingaráðherra
beiti sér fyrir leiðréttr
ingu á barnalífeyri
Á AÐALFUNDI Félags ein-
stæðra foreldra sem var haldinn
á Hótel Esju fimmtudaginn 19.
október var samþykkt áskorun
til tryggingaráðherra þar sem
hann er hvattur til að vinna að
því að leiðrétting verði gerð á
barnalífeyri, sem hafi dregizt
aftur úr öðrum tryggingabótum
á síðustu fjórum árum. Einnig
var samþykkt ályktun til
borgarráðs Reykjavíkur, þar
sem bent er á að halli hafi nú í
fyrsta skipti orðið á rekstri
skrifstofu FEF, vegna aukins
kostnaðar og vaxandi umsvifa og
þjónustu sem þar sé veitt. Er
óskað eftir að borgarráð veiti
FEF á næsta ári mun hærri
fjárupphæð en á þessu ári.
í skýrslu formanns FEF var
lýst félagsstarfi á árinu, sem
hefur verið mjög fjölþætt og
unnið hefur verið að mörgum
verkefnum, enda þótt fram-
kvæmdir við Skeljaneshúsið þar
sem neyðarhúsnæði verður fyrir
einstæða foreldra, hafi verið
einna stórbrotnastar, enda er
það verk nú langt komið. Greint
var frá breyttri tilhögun á
störfum nefnda er miðar að því
að efla og fjörga innra starf
félagsins og fjallað var ítarlega
um starfsemi skrifstofu FEF
o.fl.
Lagðir voru fram reikningar
FEF endurskoðaðir og þar
kemur fram að brúttófjáröflun
FEF á sl. ári nam rösklega tólf
milljónum og rann það rakleitt í
húsbyggingarsjóð.
Nú eru starfandi auk FEF á
höfuðborgarsvæðinu, félags-
deildir á Akureyri, í Siglufirði og
á Isafirði og áhugi er á að koma
á fót félögum víðar og verður
væntanlega unnið að því á árinu.
Jóhanna Kristjónsdóttir
blaðam. var endurkjörin for-
maður og aðrir í stjórn Bryndís
Guðbjartsdóttir, skrifstofu-
maður, Stefán Bjarnason
mengunarsérfræðingur, Baldur
Garðarsson skrifstofumaður,
Ingibjörg Björnsd. skrifstofu-
maður, Fríður Garðarsdóttir
sjúkraliði, Ragna Unnur Helga-
dóttir póstfreyja og Birna Karls-
dóttir ritari. Endurskoðendur
voru kjörin Haukur Hannesson
og Guðbjörg Þórðardóttir.
Leiðrétting
í Morgunblaðinu í gær féll niður
nafn höfundar greinarinnar
Aðdragandi stjórnarskiptanna í
Svíþjóð. En eins og fram kemur í
frétt á forsíðu í tilvísun á greinina
er höfundurinn Anna Bjarna-
dóttir. Er beðist velvirðingar á
þessum mistökum.
Skemmtilegt spil hjá TBK
Frá Reykjavíkur-
deildinni í bridge
Nefndin, sem samanstendur
af fulltrúum félaganna 5 í
Reykjavík, hefur komið saman
og skipt með sér verkum. Verður
hún þannig í vetur: Olafur
Lárusson formaður, Guðrún
Bergsdóttir gjaldkeri, Þorsteinn
Kristjánsson ritari, Magnús
Oddson v-formaður (m. fyrrv.)
og Sigurjón Tryggvason með.stj.
Ákveöið var, að stefna að því
að undanrás fyrir tvímenning,
hefjist í byrjun nóvember og
verði spilað um helgar. Keppni
þessi verður með hefðbundnu
sniði.
Sveitakeppnin hefst ekki fyrr
en eftir áramót.
Nokkur vandræði er með
húsnæðismál (eins og ætíð) þar
sem Loftleiðir eru ekki á lausu
fyrir jól. Er unnið að lausn
þessa.
Bridgedeild
Breiðfirðinga
Ása Jóhannsdóttir og
Sigríður Pálsdóttir sigruðu
glæsilega í fimm kvölda tví-
menningskeppni félagsins sem
lauk sl. fimmtudag. Ilöfðu þær
ftæystu í keppninni allan tím-
ann og voru vel að sigrinum
komnar.
Urslit urðu þessi:
Ása Jóhannsd.
— Sigríður Pálsdóttir 1217
Erla Eyjólfsd.
— Gunnar Þorkelsson 1180
Halldór Helgason
— Sveinn Helgason 1145
Ragnar Björnsson
— Þórarinn Árnason , 1126
Guðríður Guðmundsd.
— Ingibjörg Halldórsd. 1113
Magnús Oddson
— Þorsteinn Laufdal 1112
Gísli Viglundsson
— Jón Stefánsson 1112
Guðlaugur Karlsson
— Óskar Þráinsson 1107
Gunnþórunn Erlingsd.
— Sigrún Ólafsd. 1094
Hans Nielsen
— Birgir Sigurðsson 1093
Ólafur Guttormsson
— Björn Gíslason 1093
Meðalárangur 1050
Næstkomandi fimmtudag
hefst aðalsveitakeppni félagsins
og er skráning vel á veg komin.
Spilað er í Hreyfilshúsinu.
Austurlandsmót í
tvímenningi
Austurlandsmót 1978 í tví-
menningi verður haldið á
Reyðarfirði 3.-4. nóvember.
Þetta verður Barometerkeppni
og verður Guðmundur Kr.
Sigurðsson keppnisstjóri. 28
pör víða af Austurlandi taka
þátt í mótinu og verða spiluð
108 tölvugefin spil.
Þátttökuréttur á mótinu er
reiknaður út í hlutfalli við
meðlimafjölda hvers aðildar-
félags BSA, en undanfarið hefur
staðið yfir keppni innan félag-
anna um hann. Þátttökuréttur-
inn skiptist þannig: B. Fljóts-
dalshéraðs 9 pör, B. Hornar-
fjarðar 5 pör, B. Reyðarfjarðar 4
pör, B. Borgarfjarðar 3 pör, B.
Neskaupsstaðar 3 pör, B. Suður-
sveitar 2 pör, B. Vopnafjarðar 2
pör.
Keppt verður um titilinn
Austurlandsmeistari 1978.
Á mótinu verða afhent verð-
laun fyrir firmakeppni og ein-
.menningskeppni BSA 1978.
Vélaverkstæðið Víkingur á
Egilsstöðum, spilari Sigfús
Gunnlaugsson, sigraði í firma-
keppninni. Sigfús sigraði einnig
í einmenningskeppninni og er
því einmenningsmeistari BSA
1978.
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
Frétt frá Bridgesambandi
Austurlands.
Friðjón Vigfússon Form.
stjórnar BSA.
Forseti BSA er Þorsteinn
Ólafsson Rfj.
Tafl- og
bridgeklúbburinn
Síða.sta umferð í aðaltví-
menningskeppni félagsins var
spiluð fimmtudaginn 19. þ.m.
Eins og vænta mátti sigruðu
Steingrímur Steingrímsson og
Gissur Ingólfsson með tölu-
verðum yfirburðum. en þeir
leiddu keppnina frá upphafi.
Lokaárangur efstu keppenda
varð þessi:
1. Steingrímur Steingrímsson
— Gissur Ingólfsson 643
2. Gísli Hafliðason
— Sigurður B.
Þorsteinsson 589
3. Gunnlaugur Óskarsson
— Sigurður
Steingrímsson 587
4. Ingólfur Böðvarsson
— Guðjón Ottósson 586
5. Guðmundur Júlíusson
— Helgi Ingvarsson 585
6. Hilmar Ólafsson
— Ólafur Karlsson 583
7. Guðlaugur Nielssen
— Gísli Tryggvason 577
8. Anton Valgarðsson
— Sverrir Kristinsson 576
9. Björn Kristjánsson
— Þórður Elíasson 575
10. Viðar Jónsson
— Sveinbjörn
Guðmundsson 570
11. Vigfús Pálsson
— Guðmundur Arnarson 570
Næsta keppni félagsins
verður hraðsveitakeppni og
hefst n.k. fimmtudag 26. okt. kl.
7.30. Sveitir sem ekki hafa skráð
sig nú þegar tilkynni þátttöku
sína til Braga Jónssonar s.
30221.
Athugið að keppnin hefst kl.
7.30.
Þetta furðulega spil kom fyrir
í einum riðli keppninnar í fjórðu
umferð.
Norður er gjafari:
Norður
S. ÁD108753
H. -
T. D107642
L. -
Vestur
S. -
H>KDG872
' T. -
L. ÁKD8654
Suður
S. KG9642
H. -
T. ÁKG9853
L. -
Á þeim borðum þar sem
topparnir voru teknir opnaði
norður í öðru tilfellinu á einum
spaða. Austur sagði tvö grönd.
Suður fjögur grönd. Vestur
fimm lauf. Norður fimm tígla.
Austur sex lauf og suður sjö
spaða í von um að norður ætti
spaðaásinn. Doblað af austri og
suður redoblaði. í hinu tilfellinu
opnaði norður samkv. Roman-
kerfi á einum tígli. Austur sagði
tvö hjörtu og suður ákvað að
fara rólega í sagnir og sagði
þrjá tígla. Vestur seirl fann
lyktina af miklu skiptingaspili
skellti sér í sjö hjörtu. Norður
pass, austur pass og suður þorði
ekki í sjö spaða, sagði einnig
pass.
Austur
S. -
H. Á1096543
T. -
L. G109732