Morgunblaðið - 22.03.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. MARZ 1979
Tugmilljóna tjón
í eldsvoda hjá
Sindra-Stáli
Tugmilljóna tjón varð í vélsmiðju Sindra-Stáls h.f. við
Borgartún þegar eldur kom upp í vélsmiðjunni í
hádeginu í gær. Miklar skemmdir urðu á húsi og tækjum
og starfsemi fyrirtækisins mun liggja niðri þangað til
viðgerð hefur farið fram.
Slökkviliðið var kallað út
klukkan 12.25 en þá lagði reyk
upp úr þaki hússins. Var eldur-
inn mestur á palli í vesturhluta
hússins. Allt lið slökkviliðsins
var kallað út og barðist það við
eldinn í þrjá stundarfjórðunga
en þá tókst að ráða niðurlögum
hans. Var sótt að eldinum innan-
frá og einnig var rofið gat á
þakið og ráðist að eldinum á
þann hátt.
Eldsupptök eru ókunn. Starfs-
menn vélsmiðjunnar fóru í mat
um tólfleytiið og urðu þeir þá
ekki varir við neitt óvenjulegt.
Þetta er annar meiri háttar
bruninn í Reykjavík á skömmum
tíma því á þriðjudagsmorguninn
varð mikið tjón hjá Lýsi h.f. við
Grandaveg eins og lesendur
muna vafalaust.
Útkalli slökkviliðsins ver ekki
lokið þegar stökkvistörfum lauk
við Borgartún. Þegar liðið var á
heimleið kom tilkynning um eld
í íbúð við Teigasel. Fór slökkvi-
liðið þangað en þar reyndist ekki
vera mikill eldur, pottur hafði
gleymzt á eldavél. Aftur lagði
slökkviliðið af stað niður í
Öskjuhlíð en þegar liðið ók
framhjá Bleikargróf utðu
slökkviliðsmenn varir við reyk
og var málið athugað.
að krakkar höfðu
heystabba og var
slökktur. Þegar því
lokið komust bílarnir loks niður
á stöð.
Kom í ljós
kveikt í
eldurinn
verki
var
Unnið að slökkvistörfum hjá Sindra-Stáli í gær.
j/k
LjÓBm. Emilía.
ísinn kominn austur að Seley
Nokkrar hafnir að teppast vegna íss
ÍSINN útaf Norður- og Austurlandi virðist færast suður
á bóginn og í gær varð vart við fyrstu jakana í Norðfirði.
íshrafl er komið lengst að Seley. Ilafísinn er víða orðinn
landfastur og sums staðar hefur hann lagst að höfnum
og gert siglingu úr þeim ógreiðfæra eða ófæra. Verst
virðist ástandið á ólafsfirði, Dalvík og Þórshöfn en á
Dalvík hafði ástandið lagast heldur þegar blaðið hafði
samband við fréttaritara sinn í gærkvöldi. ískönnunar-
flug var farið í gær og kom þá í ljós að helsta breytingin
frá deginum áður var sú, að ísinn hafði rekið saman í
stórar rastir en auður sjór var á milli. Nokkuð greiðfær
sigling er á öllu svæðinu útaf Norður- og Austurlandi en
varasöm í myrkri.
Ólafsfjörður
Ólafsfirði 21. marz.
Um klukkan 21 í gærkvöldi var
kominn samfelldur ís inn að hafn-
Land og synir
kvikmynduð í sumar
UNDIRBÚNINGSVINNA
að kvikmyndun skáldsögu
Indriða G. Þorsteinsspnar,
Lands og sona, hefur geng-
ið það vel, að allar líkur
eru á að verkið verði kvik-
myndað í sumar og þá í
ágúst og september. Fyrir-
tækið Isfilm kvikmyndar
verkið, en kvikmyndahand-
ritið gerði Ágúst
Guðmundsson, sem verður
leikstjóri. Leikendur verða
allir íslenzkir.
Myndin verður tekin í litum á 35
millimetra filmu. Gangi allt að
óskum má búast við að lcvikmynd-
in verði frumsýnd í janúar 1980.
Ráðgert er að myndin verði
tekin í Skagafirði, á Eyvindar-
staðaheiði og í Stafnsrétt á þeim
tíma er göngur og réttir eru. Land
og synir kom út 1963 og svo aftur
hjá AB 1978 í ritröðinni Tímar í
lífi þjóðar, en önnur verk þeirrar
Indriði G. Þorsteinsson.
ritraðar voru Norðan við stríð og
79 af stöðinni eftir sama höfund.
Aðalhvatamenn að kvikmyndun
Lands og sona eru þeir Jón
Hermannsson kvikmyndagerðar-
maður og Agúst Guðmundsson.
„Kannast ekk-
ert við málið”
— segir Jón Sigurðsson forstj. Þjóðhagsstofnunar
„ÉG KANNAST ekkert við þetta
mál,“ sagði Jón Sigurðsson for-
stjóri Þjóðhagsstofnunar í gær,
þegar Mbl. spurði hvað hæft væri
í þeim fréttum, að hann hefði
verið upphafsmaður þreifinga
milli ákveðinna arma í Alþýðu-
flokknum og Alþýðubandalaginu
um síðustu helgi til að leita
lausnar á ágreiningi flokkanna
tveggja um frumvarp Ólafs
Jóhannessonar forsætisráðherra
til að reyna að hjarga stjórnar-
samstarfinu. Jón Sigurðsson vildi
ekki ræða málið frekar, sagði að
það væri sér óviðkomandi.
Húsavík
Húsavík 21. marz.
LITLA breytingu er á ísnum að sjá
frá Húsavík frá því sem var í gær.
Smáar ísspangir eru á reki um
flóann og svolítið íshrafl á fjörum
við botn Skjálfanda, en samkvæmt
upplýsingum Aðalgeirs á Mánár-
bakka er meiri ís þar við ströndina
en í gær en skyggni er mjög
takmarkað vegna hríðarveðurs í
dag. ís virðist vera landfastur
í blöðum um 8—9 m háa jaka hér
eiga ekki við rök að styðjast, þetta
er fyrst og fremst hröngl og
lagnaðarflögur.
Óli.
Neskaupstaður
Neskaupstað 21. marz.
ÞAR sem ég sit hér við gluggann á
skrifstofunni minni sé ég fyrsta
ísjakann sigla inn fjörðinn. Héðan
sést aðeins þessi eini staki jaki, en
argarðinum hér en þá höfðu verið
strengdir vírar milli hafnargarð-
anna til að fyrirbyggja að höfnin
fylltist af ís.
Allir Ólafsfjarðarbátar liggja í
höfn, þar sem þeir hafa orðið að
draga upp netin. Lokið er löndun
úr skuttogaranum Ólafi Bekk, en
hann kom í gær með 110 lestir af
fiski eftir 6 daga útivist. Hann
freistaði þess að komast út úr
höfninni seinni partinn í dag.
Komst hann út úr ísnum eftir
tveggja tíma siglingu.
Nú er hér hægviðri en mikil
snjókoma og lítið skyggni en okkur
sýnist sæmilega greiðfær siglinga-
leið eftir að líemur hér út á miðjan
fjörð.
— Jakob.
Dalvík
Dalvík, 21. marz.
Astandið hefur skánað verulega
nú síðla dags, þannig að siglingin
út úr höfninni var orðin vel greið-
fær um kvöldmatarleytið. Mikið
útstreymi hefur verið í dag, en
nokkuð stór ísspöng er ennþá hér
fyrir utan, þannig að ekki má
verða mikil breyting á veðri til
þess að allt lokist.
í gær var ástandið svo slæmt, að
einn bátanna varð að forða sér til
Hríseyjar. Togarinn okkar er
væntanlegur hi gað innan tíðar og
hafði áætlun hans verið flýtt
vegna þess óvænta útstreymis, en
hann átti ekki að koma hingað
fyrr en í morgunsárið.
— Fréttaritari.
Grímsey
— Úr Grimsey var að sjá ís-
hrafl vestur og norður af eynni í
morgun, en autt var norður úr að
því er séð varð, sagði Alfreð
Jónsson oddviti í Grimsey er
Morgunblaðið ræddi við hann í
gær. — Við strengdum vír fyrir
höfnina hjá okkur á föstudaginn
til að íshroði kæmist ekki inn í
höfnina, en það er gert í hvert
sinn, sem ísinn kemur að eynni.
Við erum nýbúin að fá olíu, sem
dugir fram á sumar, ef svo færi að
að eitthvað yrði úr þessu núna. Við
höfum engar áhyggjur Grímsey-
ingar og brosum út undir bæði þó
það andi svolítið köldu frá hafinu
þessa dagana, sagði Alfreð Jóns-
son að lokum.
Svipmyndir frá Þórshöfn á Langanesi. Á annarri myndinni sést
jakahröngl við land en á hinni má sjá Litlanes ÞH 52 á siglingu innan
um ísjakana, en eigandi og skipstjóri bátsins er fréttaritari Mbl., Óli
Þorsteinsson. Ljósm. Már Óskarsson.
norðan á Tjörnesi en Aðalgeir
álítur að greiðfært sé fyrir utan þó
ís sé landfastur á öllu norðanverðu
nesinu og allar víkur fullar.
— Fréttaritari.
Raufarhöfn
Samkvæmt fréttum frá Raufar-
höfn í gærkvöldi var ástand þar
nokkuð skaplegt, þar sem siglinga-
leið var nokkuð greið. Engan ís var
farið að leggja að vírnum sem
komið hafði verið fyrir utan við
höfnina og bátar voru þar á sjó í
gærdag.
Veður var þar mjög slæmt í
gærdag, hríðarkóf og strekkingur,
og hefur gífurlegum snjó kyngt
þar niður á undanförnum dögum.
Götur í þorpinu eru þegar orðnar
illfærar.
Þórshöfn
Þórshöfn, 21. marz.
ÍSMAGNIÐ hér hefur heldur auk-
ist frá því í gær, enda stendur
vindur af norðri inn fjörðinn, og ef
heldur sem horfir eru líkur á því
að höfnin lokist hér innan tíðar.
Tveir bátar fóru til veiða í dag
en þeir eru komnir inn aftur.
Þá er rétt að taka fram að sögur
utar í flóanum dóla tveir stórir
jakar. Suður af Dalatanga er
allstór ísspöng á reki og ef áttin
verður okkur óhagstæð gæti hún
nálgast okkur meira en þegar er
orðið næstu daga. Hér gerði í
fyrrinótt mikið norðvestanveður,
svo kallað Nípukollsveður, en það
stóð mjög stutt. Krafturinn í
veðrinu var þá svo mikill að 17
manna bifreið, sem var á ferð í
bænum, fauk um koll og tveir
stórir gámar, sem stóðu á hafnar-
bryggjunni, tókust á loft og höfn-
uðu í sjónum. í öðrum gáminum
voru húsgögn og er talið að hann
hafi vegið allt að 5 tonnum.
—Ásgeir
Norðanátt
næstu daga
ÚTLIT er fyrir norðanátt í dag
og á morgun að sögn Guðmundar
Hafsteinssonar veðurfræðings.
Spáð er hægum vindi fyrir
Norðurlandi, en hann snýst þó
varla úr norðrinu fyrr en í fyrsta
lagi á laugardag.