Morgunblaðið - 12.08.1979, Qupperneq 1
48 SIÐUR
183. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Chrysler:
„Margur er knár þótt hann sé smár“ orðatiltækið gæti átt vel við hér þegar Kobbi, sá litli, gerir hér atlögu að Bangsa, þeim stóra.
Ljósmynd Mbl. Rax.
dyrum
Washington, 11. ágúst. AP. Reuter.
TALSMAÐUR Chryslerverk-
smiðjanna tilkynnti í morgun að
fyrirtækið hefði ákveðið að segja
upp nokkrum hluta starfsliðs
síns til þess að mæta aðsteðjandi
fjárhagserfiðleikum, en nefndi
ekki fjölda í því sambandi.
Hjá fyritækinu starfa nú um
250 þúsund manns, en að mati
sérfræðinga er óhjákvæmilegt að
um einum fimmta þeirra verði nú
sagt upp störfum og þá aðeins ef
stjórnvöld koma til móts við
fyrirtækið í formi fjárhagsaðstoð-
ar. Án hennar verður fyrirtækið
að leggja upp laupana.
Talsmaðurinn skýrði einnig frá
því að fyrirtækið hefði nú neyðst
til þess að hætta við áformað
samstarf með stjórnvöldum á
Taiwan um smíði mikils fjölda
flutningabíla þar í landi, vegna
skorts á fjármagni við hönnun. —
Taiwanstjórn skýrði þá frá því að
viðræður yrðu teknar upp við
Fordverksmiðjurnar, einn aðal-
keppinaut Chrysler um að taka
málið að sér.
Noregur:
Stórátak nauðsynlegt til að
tryggja afkomu sjávarútvegs
Osló. 11. ágúst, frá Jan Erfk Laure, fréttaritara Mbl.
SJÁVARÍJTVEGSNEFND Verkamannaflokksins lýsti því yfir í gær að nauðsynlegt
væri að gera stórátak til að tryggja afkomu norsks sjávarútvegs á komandi árum, þar
sem útlitið væri mjög dökkt.
„Ungfrú Svínka”
veldur deilum
Ankara. 11. ágúst. AP. Reuter.
Tyrknesk yfirvöld hafa nú
fyrirskipað sjónvarpinu að
hætta þegar í stað sýningum
á Prúðuleikurunum og hef ja
sýningar ekki fyrr en eftir
mánuð þegar mánaðar-
langri föstu Múhameðs-
trúarmanna lýkur.
Ástæðan er sú að ungfrú
Svínka á ekki upp á pallborð-
ið hjá Múhameðstrúarmönn-
um, þeir telja svín vera
„óhreinar" skepnur og neyta
þeirra aldrei til matar.
Talsmaður sjónvarpsins
sagði að sýningar yrðu tekn-
ar upp þegar eftir föstuna
enda nýtu þættirnir fádæma
yinsælda hjá áhorfendum.
því í dag að a.m.k. 500 manns
hefðu fallið í átökunum síðustu
viku í Miðbaugs-Guineu, eða frá
því að Francisco Macias einræð-
isherra var steypt af stóli.
Ennfremur sagði útvarpið að
Maciis færi nú um landið ásamt
um 200 manna lífvarðarsveit sinni
og fremdi ýmis konar ódæðisverk,
m.a. hefði hann fyrirskipað fjölda-
í yfirlýsingu nefndarinnar
er þó sterklega kveðið að því
að óhjákvæmilegt sé að draga
saman seglin og minnka bæði
flotann og fækka vinnslustöð-
um, þannig að afkastageta
stöðvanna nýtist betur. í því
sambandi verði miðað við þær
tillögur sem liggi fyrir Haf-
réttarráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna (SÞ), en samkvæmt
þeim mun þorskafli Norð-
manna í Norðurhöfum dragast
saman. Óhjákvæmilegt verði
að stækka stærð trollmöskva
aftökur í heimabæ sínum þar sem
hann dvaldi fyrstu dagana eftir að
honum var steypt af stóli.
Hinir nýju valdhafar skýrðu frá
því í morgun að einræðisherrann
fyrrverandi hefði á ellefu ára
löngum ferli sinum stolið gífurleg-
um fjármunum frá ríkinu og
komið í erlenda banka. Þeir
mundu fara fram á að þessar
fjárhæðir yrðu frystar, þar sem
þær væru eign landsmanna.
og banna veiðar á ýmsum
svæðum þegar hlutfall smá-
fisks í aflanum fer yfir ákveð-
in mörk.
í álitsgerð nefndarinnar
segir að nauðsynlegt sé að
stjórna samdrættinum, og því
beri að hefja aðgerðir til að
koma í veg fyrir að vinnslu-.
stöðvar loki og bátar stöðvist
upp úr þurru, eins og hætta
, væri á miðað við núverandi
ástand.
1 Eyvind Bolle sjávarútvegs-
ráðherra sagði í dag að norsk-
ur sjávarútvegur stæði
frammi fyrir mjög erfiðum
■ tímum, og að árið 1980 yrði
erfiðasta ár atvinnuvegarins í
langan tíma. Nauðsynlegt yrði
að endurskipuleggja veiðar og
j vinnslu frá grunni, einkum
yrði samræming og samdrátt-
ur nauðsynlegur á þeim stöð-
um þar sem fjárfest hefði
verið um of. „Við gætum
hæglega losað sjávarútveginn
við allan hans vanda með
niðurgreiðslum, en ég efast
um réttmæti slíkra aðgerða,"
sagði Bolle.
Fram kom hjá ráðherra að á
tímabilinu 1978—1980 yrði um
hálfs milljarðs norskra
króna samdrátt að ræða í
útflutningi sjávarafurða að
ræða, en reksturskostnaður
ykist hins vegar um 300 millj-
ónir króna og þar af leiðandi
versnaði afkoma atvinnu-
greinarinnar til muna. Einnig
hefði óhjákvæmilegur sam-
dráttur þorskveiða í Norður-
höfum það í för með sér að
2.000 mannár glötuðust í
Norður-Noregi á næsta ári.
A síðustu misserum hefur
oft hlaupið í kekki með sjó-
mönnum og stjórnvöldum í
Noregi, ekki sízt þar sem
stjórnvöld hafa ekki orðið við
kröfu sjómanna og lýst yfir
200 mílna efnahagslögsögu við
Jan Mayen.
OECD-ríkifyrstu sex mánuði ársins:
11,8% hækkun
neytendaverðs
NEYTENDAVERÐ i ríkjum
OECD hækkaði um 11,8% að
meðaltali fyrstu sex mánuði
þessa árs, miðað við ársgrund-
völl, samkvæmt útreikningum
sérfræðinga Efnahags- og
framfararstofnunar Evrópu,
OECD, í París. Meðaltaisverð-
bólga í þessum löndum á sama
tíma er 7,9%.
Verð á matvælum er ekki inni
í þessum útreikningum um neyt-
endaverð, en hækkun á þeim
hefur orðið mun minni á þessu
tímabili. Fyrstu þrjá mánuði
þessa árs hækkaði neytendaverð
um 9% en næstu þrjá um 13,5%
og er ástæðan fyrst og fremst
talin hækkandi olíuverð í lönd-
unum.
Af ríkjum innan OECD standa
Tyrkir verst að vígi, en verð-
bólga var þar um 52,3% fyrstu
sex mánuði ársins, sé miðað við
ársgrundvöll. í öðru sæti eru svo
Islendingar, en þar var verðbólg-
an samkvæmt OECD 39,1%
fyrstu sex mánuðina á ársgrund-
velli.
Minnst er verðbólgan í Sviss
og Vestur-Þýzkalandi, eða rúm-
lega þrjú prósent á hvorum stað.
Hún hefur því aukist um 2% í
Sviss frá síðasta ári, en stendur
nokkurn veginn í stað í Vest-
ur-Þýzkalandi.
500 haf a f allið í
MiðbaugsGuineu
Madríd, 11. ágúst. AP
SPÁNSKA útvarpið skýrði frá
Uppsagn-
ir fyrir