Morgunblaðið - 12.08.1979, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1979
5
Skjárinn kl. 21.15:
Astir erfðaprinsins
í kvöld verður sýndur annar
þáttur breska sjónvarps-
myndaflokksins um ástir Ját-
varðs prins og Wallis Simpson.
Samtals verða sýndir sjö þætt-
ir, en þeir eru gerðir eftir bók
Þau hjónakornin hr. Simpson
og frú á eintali. Skyldi prinsinn
vera umræðuefnið?
Francis Donaldson, „Edward
vnr.
Söguþráður þessa þáttar er í
stuttu máli sá, að Wallis Simp-
son og Játvarður hittast stöðugt
og samband þeirra verður nán-
ara. Með auknu sambandi
þeirra í millum spinnst stöðugt
meira umtal og slúður um þau
hjúin, og er meira en nokkru
sinni fyrr. Játvarður er ekki
vanur slíku og er honum mein-
illa við þá athygli sem samband
þeirra Wallis Simpson vekur
meðal almennings. Síðan kemur
þar, að þau fara í skemmtiferð
til Frakklands á snekkju nokk-
urri sem prinsinn átti og með
þeim fer annað fólk. Á meðan
þau hjúin eru í siglingunni er
hr. Simpson staddur í Banda-
ríkjunum í viðskiptaerindum.
Samferðafólk Játvarðar og frú
Simpson verða þess fljótt
áskynja, að þau kjósa helst að
vera ein og blanda þau lítt geði
við aðra. Meira að segja reyna
þau að hrista af sér annað fólk
sem reynir að komast í sam-
band við þau.
Nokkru seinna er haldin
veisla í konungshöllinni og
bjóða konungshjónin þangað
ýmsum gestum, og þeirra á
meðal er títtnefnd Wallis Simp-
son. Þar hittir hún konungs-
hjónin í fyrsta og síðasta sinni.
Upp úr því kemur í ljós, að
konungshjónin eru mjög mót-
fallin sambandi þeirra og töldu
ekki koma til mála að Játvarður
kvæntist þessari konu, og ku
slík afskiptasemi ekki vera ný
bóla á þeim bæ.
Þýðandi þáttarins er Ellert
Sigurbjörnsson.
Skjárinn kl. 18.05:
Meranó-sirkusinn
Sjónvarpið sýnir í dag síðari hiuta sýningar í norsku fjölleikahúsi. Á
þessari mynd eru stúlkur og fílar að leika listir sínar. en mörg önnur
skemmtileg atriði mun sirkusfólkið sýna.
Átta daga ferö frá 25. ágúst til 1. sept. Beint leiguflug til
Dublin. Möguleiki á þriggja daga ferö um hin rómuöu
irsku sveitahéruö og hin friösælu sveitaþorp meö dæmi-
geröu írsku krárnar á ööru hverju götuhorni.
Fiug, hótel og morgunveröur innifatiö i veröi. Reyndir
islenskir fararstjórar gefa holl ráö og benda farþegum á
markveröa og sérstæöa staöi innan Dublin-borgar sem
utan.
Samvinnuferdir-Landsýn
Austurstræti 12 - strnar 27077 og 28899
Al'Ul.VSINt; ASIMINN KR:
2248D JtloröimbT«bií)
TOPPURINN
frá Finnlandi
Mér finnst
þessi mynd
bjartari
50
ara
neEUinniii
3ara
ábyrgd
á myndlampa
Sérstakt
kynningarverð É
Verd kr. 594.920 ^
Staðgr. kr. 570.000
• 26 tommur
• 60% bjartari mynd
• Ekta vidur
• Palesander, hnota
• 100% einingakerli
• Gert fyrir fjarlægðina
• 2*-6 metrar
• Fullkomin Þjónusta I
Greiðslukjör frá
200.000 kr.út
og rest á 6 mán
Versliðisérverslun með
LITASJÓNVÖRPog HUÓMTÆKI
29800
BUÐIN Skipholti19
" /