Morgunblaðið - 12.08.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST 1979
19
anna fyrir nánustu ættingjum eins
og venja hefur verið til. Yfirvöldin
vilja ekki að Vesturlönd komizt á
snoðir um ákærurnar áður en rétt-
arhöldin byrja. í hinu 6000 bls. riti
er því haldið fram, að eitt af
aðalbrotum VONS hafi verið að
dreifa skýrslum í allar áttir. Á hinn
bóginn er ekki vitnað mikið í skýrsl-
urnar af því að hinn opinberi
saksóknari gerir sér grein fyrir að
innihald þeirra brýtur ekki í bága
við lögin.
Yfirvöldin hafa í þetta skipti beitt
sér fyrir því að gera vörninni ókleift
að starfa. Lögfræðingur Havels, dr.
Josef Danisz, varð að hætta við
málið 1. júlí, þegar hann var rekinn
úr félagi lögmanna í Prag. Danisz
var rekinn vegna þess, að í einni
varnarræðu sinni vitnaði hann til
hinna illræmdu réttarhalda á 6.
áratugnum og vegna þess að hann
leyfði sér að láta „chartista" aka sér
til dómstóls í bæ úti á landi. Þetta
var lélegur fyrirsláttur, þar sem hin
raunverulega ástæða var kjarkmikil
vörn Danisz í janúar sl. fyrir tals-
menn Charter 77, dr. Jaroslav
Sabata, sem var tekinn fastur á
leiðinni til landamærafundar með
tékkneskum og pólskum baráttu-
mönnum fyrir mannréttindum.
Danisz hefur áfrýjað vegna órétt-
mæts brottrekstrar, en þriggja ára
málflutningsbann hefur þegar verið
lagt á hann. Það hefur nú verið
tilkynnt öllum lögmönnum, að það
sé vissara fyrir þá að gera það, sem
dómarar ríkisins ætlast til af þeim.
Yfirvöldin hafa lagt fram lista yfir
þá lögmenn, sem „hafa hindrað
lagalega málsmeðferð" eða liggja
undir grun. Sakborningar hafa eins
og sakir standa beðið fjóra franska
lögmenn um að verja sig, en búast
ekki við leyfi yfirvalda.
Þetta þýðir, að verjendurnir verða
allir tékkneskir lögmenn, sem þora
ekki að sýna yfirvöldunum mótþróa.
Meira að segja munu dómstólarnir
útnefna nokkra þeirra. Hvort sem
sakborningarnir velja sér sjálfir
verjendur eða dómstólarnir gera
það fyrir þá þurfa þeir að greiða
háan málskostnað. Til dæmis má
nefna, að sérhver lögfræðileg
aðstoð, — þótt hún sé einungis
fólgin í því að sitja þegjandi við
yfirheyrslur, — kostar 36 kr., en
meðallaun eru 2000 kr. á mánuði.
Ennfremur er sakborningur látinn
greiða 20 kr. á dag fyrir „fæði og
húsnæði" á meðan hann er í gæzlu-
varðhaldi þrátt fyrir ákvæði tékk-
neskra laga um sakleysi sakborn-
ings, unz sekt hans hefur verið
sönnuð.
Hjálpar-
sjóður
Charter 77 hefur stofnað hjálpar-
sjóð og hafa Vesturlönd verið beðin
um framlag til þess að standa undir
málskostnaðinum. í síðustu viku
ákvað nefnd á vegum Verkamanna-
flokksins í Bretlandi að styðja
„málsvarnarsjóð Charter 77“ fyrir
frumkvæði þingmannanna Reg Race
og Phillip Whitehead. Þetta er í
fyrsta sinn, sem Verkamannaflokk-
urinn hefur lýst yfir fullum stuðn-
ingi við andófsmenn í Tékkó-
slóvakíu.
í júní og júlí hafa aðrir „chartist-
ar“ og meðlimir VONS gert allt sem
í þeirra valdi stendur til að kunn-
gera vandamál félaga sinna. Þeir
hafa orðið fórnarlömb stöðugra
ofsókna og þess, sem verra er. í
júníbyrjun var einn af djarfmælt-
ustu talsmönnum Charter 77, Cdena
Tominova, barinn til óbóta fyrir
utan heimili sitt. Eftir það hefur
lögreglun „verndað" hana með 24
stunda eftirliti fyrir utan íbúðina.
Vopnaðir verðir standa við dyrnar
og meina öllum inngöngu. Henni var
tilkynnt, að það væri skylda lögregl-
unnar að hindra almenning í að fara
inn á hættuleg svæði. Jafnvel vinir
barna hennar hafa verið stöðvaðir
og teknir burtu til yfirheyrslu. Sjálf
er Tominova yfirheyrð daglega að
heita má. í síðasta mánuði fór
eiginmaður hénnar í hungurverkfall
til þess að mótmæla þessari ógnun.
Undanfarnar vikur hafa synir Ota
Bednarova, Jan og Jiri, verið yfir-
heyrðir. Sömuleiðis Zina Kocova,
Karel Freund, Svatopluk Karasek
og margir fleiri. Slíkar yfirheyrslur
fara fram samkvæmt reglugerð,
sem heimilar lögreglunni að „fara
fram á útskýringar". Hún er með
stöðugar hótanir og segir að hver sá,
sem sé tengdur VONS, verði hand-
tekinn eftir þessi réttarhöld og að
„neðanjarðargöng Charters til Vest-
urlanda" verði eyðilögð.
Aðdáunarvert
hugrekki
Mótmælin halda samt áfram með
aðdáunarverðu hugrekki. Skömmu
eftir handtökur í maí tilkynnti
„Charter" að Jiri Hajek prófessor,
fyrrverandi utanríkisráðherra, og
dr. Ladislav Hejdanek heimspeking-
ur yrðu talsmenn Charter á meðan
Dienstbier og.Benda væru í fangelsi.
Tólf nýir meðlimir gengu í VONS til
að tryggja að „gæzluvarðhald ellefu
VONS-meðlima myndi ekki veikja
starfsemi VONS“, þrátt fyrir þá
yfirvofandi hættu að þeir lentu
sjálfir í fangelsi. í júnílok skrifuðu
talsmenn Charter Gustav Husak
forseta lýðveldisins til að gera grein
fyrir því, að VONS hefði ekki farið á
bak við lögin; VONS hefði einungis
verið fulltrúi fyrir þá, sem teldu sig
órétti beitta af hálfu yfirvalda:
I staðinn fyrir að ræða þessar
mikilvægu og vel grunduðu tillög-
ur opinskátt og hreinskilnislega
er því lýst yfir af saksóknaranum,
að birting þeirra sé glæpsamlegt
athæfi...
Gagnrýni á fyrirbæri sem brjóta í
bága við eða eru ekki í samræmi
við borgaraleg réttindi og frelsi
landsmanna, á sama hátt og þær
breytingar sem stungið hefur
verið upp á, getur ekki án alvar-
legrar rangfærslu verið álitin
vinna gegn þjóðfélaginu. Þvert á
móti eru hún saman með það fyrir
augum að bæta þjóðfélagið og
styrkja borgarana til að öðlast
skilning á réttarreglum þjóðfé-
lagsins.
Þeir hvöttu Husak til að kynna
sér sannleiksgildi þeirra ákæra sem
nefndin hafði borið fram og buðust
til að aðstoða við rannsókn þessara
mála svo framarlega sem hinir
ákærðu væru fyrst látnir lausir.
í s.l. mánuði undirritaði 231
annað mótmælabréf til Husaks og
kvartaði yfir handtöku VONS-
manna og árásinni á Tominova. Þeir
vildu að hann gerði sér ljósar þær
hræðilegu staðreyndir, að það væri
ekki í fyrsta sinn sem ofbeldisað-
ferðir væru notaðar gegn Charter
77. Þegar þeir útskýrðu starfsemi
VONS sögðu þeir:
Við þekkjum ekkert mannúð-
arríki ríki þar sem opinber yfir-
lýsing um að styðja stjórnarskrá
þess sé álitin tilraun til að
kollvarpa kerfinu. Við þekkjum
ekkert menningarríki þar sem það
er talið vera brot á lögum og
viðurkenning fyrir sekt að verja
fólk fyrir óréttlátum ofsóknum.
Kofinn við
bústað Havels
Það er mjög erfitt að gera sér
grein fyrir lögregluríki Husaks og
hinum skuggalegu hliðum þess. Þó
hafa tékknesk yfirvöld óbeint orðið
til þess, að til er frábær kvikmynd
sem lýsir vel stjórn þeirra. Um
síðustu jól reisti lögregla kofa
andspænis sumarbústað Vaclav
Havel. Úr þessum kofa fylgdust þeir
með hverri hreyfingu leikritahöf-
undarins í sex mánuði. Þegar Havel
fór uf að ganga með hundinn sinn
fylgdi vopnaður lögregluþjónn fast
á eftir. Þegar Havel fór að versla þá
fór lögregla líka. Með aðstoð Palach
Press sem hefur aðsetur í London
voru Havel, lögreglukofinn og varð-
lögreglan kvikmynduð. (Kvikmynd-
in „Undir eftirliti" var sýnd í BBC
mánud. 6. ág. kl. 11.05). Þannig
getum við séð leynilega kvikmynd
um leynilögreglu að störfum og
hlustað á Havel koma með smellnar
athugasemdir um það sem er að
gerast. Þetta er að vissu leyti
frábært pólitískt grín — en myndin
breytist þegar maður hefur í huga
að Havel á nú í vændum 10 ára
fangelsi. Þessi kofi, sem hefur verið
hróflað upp fyrir utan heimili leik-
ritaskáldsins, er augljóst tákn um
nöturlega harðstjórn Husaks.
(Þýtt úr
New Statesman)
MIDGET
handsaumavélin
seldist upp á auga-
bragöi. Næsta sending
er á leiöinni. Viö biöjum
alla þá, sem eiga óaf-
greiddar pantanir, aö
hafa biölund. Þeir fá sín-
ar vélar svo fljótt sem
auðið er og auövitaö á
óbreyttu kynningarveröi,
kr. 3950 auk póstburöar-
gjalds.
AKRflR /f
Pósthólf 9030 Reykjavík.
Nú er tækifærið
Haustverðin komin
10%
verksmiðjuafslattui
Al!(;l.ÝSIN(iASÍMINN KR:
22480
JtterípmbTabib
Rpnrn Bo,h°ni
DUIIUUj S. 91-21945.
HVERS VEGNA
SKODA AMIGO?
. MZrJ
HANN I
I sparaksturskeppnum hefur bensíneyðsla
SKODA-bifreiða mælst allt niður í 4,8 lítra á 100 km.
Eyðslumælingar bifreiða almennt, fá að sjálfsögðu
ekki staðist við venjulegar
aðstæður, en við getum
fullvissað yður um að
þær tölur sem við
gefum upp fá fullkomlega
staðist.
Spyrjið nágrannann,
því hann á sennilega AMIGO.
JÖFUR HF
AUÐBREKKU 44-46 - KÓPAVOGI - SÍMI 42600