Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. ÖKTt IÉR 1979
Mengunarvarnir
gegn hættulegu
ryki í Kísilidjunni
„ÞAÐ IIEFUR komið í ljós við
mælingar hér að mennunin af
völdum ryks í vinnslunni er of
mikil og því hætta á að starfs-
menn kunni að fá lungnasjúk-
dóminn silicosis. Engir hafa þó
veikzt ok við munum bregða
snarlega við til að bægja hætt-
unni frá,“ sagði Vésteinn Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
Kísiliðjunnar í samtaii við Mbl. i
garkvöldi.
„Starfsmenn hér eru skoðaðir
árlega af læknum, m.a. með rönt-
gentækjum og hafa engin merki
veikinnar komið fram. En þetta
getur leynt á sér og við erum nú að
ræða hvernig við bregðumst við
þessu. Það verður allt gert sem
hægt er til þess að hefta rykið og
áfram verður fylgst með þessu á
vettvangi rannsókna."
Vésteinn taldi ljóst að kostn-
aður við rykvarnirnar yrði á
milljónagráðunni.
Tekur yfírkennarinn
við skólastjóminni?
SKÓLANEFND Grinda-
víkur úskaði eftir því í gær
við Gunnlaug Dan Ólafss-
on yfirkennara, að hann
tæki að sér skólastjórn út
þetta skólaár. Gunnlaugur
hefur fyrir sitt leyti fallist
tilmæli. Fund
(Ljósm.: Kristján)
Vestur-þýzki tenórsöngvarinn Hermann Prey syngur á fyrstu reglulegu sinfóniuhljómleikum á
þessum vetri, en þeir verða í kvöld í Háskólabiói. Myndin hér að ofan var tekin við upptöku í
útvarpssal skömmu eftir að Prey kom til landsins i gærdag, en það er Agnes Löve, sem situr við
hljóðfærið, og franski hljómsveitarstjórinn Jean-Pierre Jacquillat, sem er á miðri mynd.
skólanefndar í gær sat
einnig fræðslustjóri og
gengur hann í dag á fund
menntamálaráðherra. A
fundi skólaneíndarinnar
klukkan 14 í dag mun
hann væntanlega skýra
frá lyktun mála.
Bókun skólanefndar í Grindavík
frá því í gær er svohljóðandi:
„Skólanefnd er sammála um að
óska eftir því við settan yfirkenn-
ara, Gunnlaug Dan Ólafsson, að
hann taki að sér skólastjórn út
skólaárið. Jafnframt samþykkir
skólanefnd að óska eftir því, að
staðan verði auglýst með löglegum
fyrirvara í vor. Gunnlaugur Dan
Olafsson kom á fundinn og féllst á
tilmæli skólanefndar. Skólanefnd
felur fræðslustjóra að koma sam-
þykktinni á framfæri við mennta-
málaráðherra."
BM Vallá:
Stóraukinn útflutn-
ingur á Hekluvikri
„Útflutningsverðmæti
þeirra 26 þúsund tonna af
Hekluvikri sem við flytj-
um út á þessu ári er um
400 milljónir króna,“
sagði Víglundur Þor-
steinsson forstjóri BM
Vallá, en fyrirtækið flytur
út vikur úr Hekluhafinu
svokallaða sem er austan
Búrfells á milli gamla
Þjórsárfarvegarins og
Bjarnalækjarskurðar. Þá
kveðst Víglundur reikna
með að þessi útflutningur
myndi aukast mjög á
næsta ári eða um 60%.
Búið er að skipa út 20 þús.
lestum, en vikrinum er ekið til
Reykjavíkur um borð í skip þar.
Efnið er flutt út til Danmerkur,
Svíþjóðar og Noregs og er aðallega
notað í framleiðslu á skorsteina-
einangrun.
Gunnlaugur Dan Ólafsson hefur
fallist á að taka að sér skóla-
stjórn i Grindavík út skólaárið.
Ljóslaus
vörubíll á
ljósastaur
LJÓSLAUS vörubifreið á
fullri ferð vakti athygli
lögregluþjóna í Hafnarfirði
í gærkvöldi og veitti lög-
reglan vörubílnum eftirför,
en áður en lögreglubíllinn
komst að vörubílnum ók sá
ljóslausi á ljósastaur með
þeim afleiðingum að tengi-
kassi skemmdist og fór
rafmagn af hverfinu um
stund; Ökumenn vöru-
bílsins voru af yngri gráð-
unni, 14 og 15 ára gamlir.
Nýr gufuhver á „bráð-
lifandi Kröflusvæði”
„ÞAÐ er Ijóst að Kröflusvæðið
er bráðlifandi og hvenær sem er
á næstu vikum tel ég að geti
dregið til tiðinda þar,“ sagði
Eysteinn Tryggvason jarðfræð-
ingur í samtali við Mbl. í
gærkvöldi. Nefndi hann sem
dæmi að fyrir nokkrum vikum
hefði mjög öflugur gufuhver
komið fram i suðurhlíðum
Kröflu um 1 km austan við
borholurnar. „Þetta þýðir að-
eins að aukinn hiti er á svæð-
inu,“ sagði Eysteinn, „en þarna
bar áður mjög lítið á gufu. Nú
er þar einn mesti gufuhverinn.“
Menntaskólinn á Egils-
stöðum vígður á sunnudag
skólanum sem stefna að öðru en
stúdentsprófi og má t.d. nefna
bóklegan kjarna iðnnáms, leið-
beinendanám í íþróttum o.fí. Möt-
uneyti er rekið í skólanum fyrir
heimavistarnemendur og þá sem
búa á öðrum stöðum í bænum.
MENNTASKÓLINN á Egils-
stöðum verður vígður n.k. sunnu-
dag og hefst athöfnin kl. 14 i
Egilsstaðakirkju. Síðan verður
athöfn í skólanum og verður
gestum boðið að þiggja kaffiveit-
ingar og skoða skólann.
Nemendur verða 99 í vetur og
eru flestir eða um % af Austur-
landi. Starfar skólinn eftir sam-
ræmdu eininga- og áfangakerfi
fjölbrautaskólanna. Stefnt er að
útskrift fyrstu stúdentanna vorið
1981 á viðskipta-, mála-, uppeldis-
og náttúrufræðibrautum. Auk
þess stunda nemendur nám í
Þjóðartekjur jukust
um 15,8% árið 1971
en munu væntanlega lækka um 0,8% á þessu ári
VIÐ athugun á þjóðarframleiðslu
landsmanna á þessum áratug
kemur i ljós að hún jókst mest á
arúnum 1970—1971 og svo er
einnig um þjóðartekjur á mann.
Þjóðarframleiðsla jókst um 8,0%
1970 og 12,8% 1971 á sama tíma
og þjóðartekjur jukust uin 12,4%
I> jóf ur í Paradís aftur
fyrir útvarpsráð
Undirskriftalistar gegn lestri sögunnar
MORGUNBLAÐIÐ innti ólaf
R. Einarsson formann útvarps-
ráðs eftir því í gær hvort til
stæði að taka til endurskoðunar
í útvarpsráði hvort flytja ætti í
útvarpinu sögu Indriða G.
Þorsteinssonar, Þjófur í
Paradís, en lögbann var á
sínum tíma lagt á lesturinn og
þegar því var aflétt var ákveðið
að flytja söguna og hefur
Indriði lesið hana inn á band i 6
köflum og
flutnings.
er hún tilbúin til
ólafur kvað rétt vera
að akvörðunin yrði tekin til
umræðu á ný þar sem útvarps-
ráði hefði borist mikill undir-
skriftalisti þar sem farið væri
fram á að fella niður lestur
sögunnar „af tiliitssemi við
aðstandendur sögupersóna“, en
Ólafur kvað 200—300 manns
víðs vegar að af landinu hafa
undirritað listann. Sagan var
komin á dagskrá 15. okt. s.l. en
hefur verið frestað þar til út-
varpsráð hefur fjallað um málið
á ný.
Kvaðst ölafur hafa beðið
með það að taka málið fyrir þar
til allir aðalmenn i útvarpsráði
yrðu mættir og verður það
væntanlega tekið fyrir 20. októ-
ber þegar fjallað verður um
dagskrá nóvembermánaðar.
og 15,8
Síðar fer ástandið stöðugt
versnandi fram til ársins 1975
þegar þjóðarframleiðslan minnk-
aði um 2,0% og þjóðartekjur um
5,8%. Nokkur bati verður á árun-
um 1976—1978 þegar þjóðarfram-
leiðslan eykst úr 2,6% í 4,2% og
þjóðartekjur aukast um 4,2%
1978. Samkvæmt spám má svo
gera ráð fyrir því að þjóðarfram-
leiðslan aukist um 2,5% á þessu
ári á sama tíma og þjóðartekjur
lækki um 0,8% og vega þar
olíuhækkanirnar þyngst.
Þjóðarframleiðsla og
þjóðartekjur 1970—1979
Þjóðartekjur
1970
1971
1972
1973
1974
1975
1976
1977
1978
1979 áætlun
8,0%+ 12,4%+
12,8%+ 15,8% +
5,7%+ 5,4%+
7,7%+ 11,6%+
3,5%+ 1,1% +
2,0%+ 5,8%+
2,6%+ 6,0% +
6,0%+ 9,0%+
4,2%+ 4,2% +
2,5%+ 0,8%+
Arnarflug
leigir Twin
Otter-vél
ARNARFLUG hefur tekið
á leigu Twin Otter flugvél
frá Flugfélagi Norður-
lands í þrjá mánuði frá 1.
nóvember n.k. Mögulegt
verður að framlengja leig-
una í aðra þrjá mánuði.
I frétt frá Arnarflugi segir að
félagið hafi hafið innanlandsflug-
ið með vélum af Islander og
Cessna gerðum, en ljóst sé að
vegna síaukinna flutninga og
fjölgunar farþega verði að auka
flugkostinn. Þá eru fulltrúar frá
Arnarflugi nú í Bandaríkjunum og
Kanada til að skoða vélar, sem
félaginu stendur til boða að kaupa
eða leigja, en helst eru taldar
koma til greina vélar af gerðunum
Twin Otter, Skyvan, Nomad og
Cessna Titan. Verður reynt að
gera út um þessi flugvélamál á
næstu vikum. ___
Reyðarfjörður:
26 á kafi
í loðmmni
Reyðaríirði, 10. okt.
Síldarverksmiðjan hér hóf
vinnslu á loðnu 23. sept. Búið er
að bræða um 5000 tonn, en 26
manns vinna á tvískiptum vökt-
um. Allt er fullt hér og ekki hægt
að taka á móti loðnu fyrr en um
hele‘- - Gréta