Morgunblaðið - 11.10.1979, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.10.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979 19 Ólafur Örn Arnarson læknir: Stefnir Sjálfstæðisflokkurinn að þjóðnýtingu 1 heilbrigðismálum? í Morgunblaðinu laugardaginn 6. október 1979 er grein eftir Sigurgeir Sigurðsson bæjarstjóra, formann sveitarstjórnarmála- nefndar Sjálfstæðisflokksins, sem ber yfirskriftina: Hver á að gera hvað? Fjallar grein þessi um verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga á sviði mennta-, heil- brigðis- og félagsmála og á að túlka skoðanir 23. landsfundar Sj álf stæðisf lokksins. Á sviði heilbrigðismála boðar greinarhöfundur allsherjar ríkis- rekstur á allri heilbrigðis- þjónustu, ekki eingöngu á sjúkra- húsum heldur einnig allri heilsu- gæslu. Ekki kemur þessi boð- skapur alveg á óvart, skyndilega hefur hann öðlast nýtt gildi, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn gæti fyrr en seinna komist til valda og komið þessum hugmyndum um ríkisrekstur á einum umfangs- mesta og dýrasta málaflokki þjóðarbúskapsins í framkvæmd. Sama dag er í Morgunblaðinu sagt frá umræðum í borgarstjórn Reykjavíkur um fyrirhugaða út- víkkun á starfsemi Landsvirkj- unar. Þar er umræðum lýst á þennan veg: „Birgir ísleifur sagði ákveðin grundvallarsjónarmið í stjórn- málum liggja að baki þessum hugmyndum. Þær hugmyndir byggðust á því að miðstýring sé allra meina bót, að rétt sé að hafa hlutina sem mest á einni hendi. Sömu grundvallarsjónarmið sagði hann koma fram í tillögum þess efnis að alla vátryggingar- starfsemi eigi að setja undir einn hatt, alla lyfjasölu, alla olíusölu og fleira. Rök miðstýringarmanna væru alltaf þau sömu. Með mið- stýringu sé hægt að koma á sem mestri hagræðingu, forðast mistök í fjárfestingu og þar fram eftir götum, svo notuð væru algeng rök og slagorð mið- stýringarmanna." Og síðar í frásögninni segir: „Sagði hann (þ.e. Birgir ísleifur) samninginn gera ráð fyrir of mikilli miðstýringu þjappað yrði saman gífurlegu valdi í orku- málum, fáir munu geta gagnrýnt af tæknilegri þekkingu svo stórt fyrirtæki, auðvelt verður að fela mistök þess, það verður ríki í ríkinu, nýja fyrirtækið verður ríki í ríkinu sem lýtur eigin lögmálum og hætta er á að einkenni ein- okunarinnar, valdhrokinn eigi eftir að segja til sín.“ Ekki þarf frekar að greina frá niðurstöðum Sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur í þessu máli en ekki væri úr vegi fyrir sveitarstjórnarmálanefnd Sjálf- stæðisflokksins að kynna sér nokkuð forsendur þessarar niður- stöðu. Óhjákvæmilega vaknar því sú spurning, hvort allt önnur sjónar- mið gildi um rekstur á sviði heilbrigðisþjónustu en í öðrum rekstri. Og eru ekki til fleiri aðilar en ríkið og sveitarfélög sem geta annast verkefni á þessu sviði. Hvað með einstaklingsframtak og sjálfstæð félagasamtök, t.d. SÍBS, DAS, Grund og Rauða krossinn, SÁÁ, .Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra, Styrktarfélag van- gefinna og fleiri og fleiri, sem hægt væri að nefna og unnið hafa stórvirki í íslenskum heilbrigðis- málum. Ef farið væri að tillögum sveitarstjórnarmálanefndar Sjálf- stæðisflokksins, risi hér upp lang- stærsta og mesta bákn landsins. Fyrirtækið myndi velta u.þ.b. 60-7.0 milljörðum króna eða nálægt þriðjungi fjárlaga ár hvert. Sigurgeir Sigurðsson boðar í áðurnefndri grein að gera verði þessu stórmáli nánari skil og muni það væntanlega verða gert í sér- stakri grein síðar. Tilgangur þessara lína er sá að skora á hann að gera grein fyrir þessum málum sem allra fyrst með tilliti til hugsanlegra kosninga. Siglufjörður: Allt að 1400 tonn brædd á sólarhring SiglufirAi 9. okt. SEX þúsund tonna þróar- rými losnaði hér í gærkvöldi og hófst löndun klukkan sex. Löndun hefur gengið af- bragðsvel og er nú búið að landa 5-6000 tonnum úr átta bátum. Sigurður var með mestan afla, 1450 tonn. Bræðsla hefur' gengið ágætlega og afköst Síldarverksmiðju ríkisins hafa farið upp í 1400 tonn á sólarhring sem er mjög gott. I dag snjóaði og hefur gengið á með éljum. Goðafoss kom í dag og lestaði frystan fisk á Ameríkumarkað. -m.j. EF ÞAÐ ER FRETT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENU Brldge Umsjónj ARNÓR RAGNARSSON Úrslit í bikarkeppni BSÍ — sveitakeppni Úrslitaleikurinn i bikar- keppninni fer fram á laugar- daginn kemur á Hótel Loftleið- um og hefst kl. 10 um morgun- inn en byrjað verður að sýna á töflu kl. 13. Alls verða spiluð 64 spil i átta lotum og verður gert upp eftir hverja lotu. Sveitirnar sem spila úrslita- leikinn eru sveitir Hjalta Elías- sonar og Þórarins Sigþórssonar en báðar þessar sveitir hafa verið í toppbaráttunni um Islands- og Reykjavíkur- meistaratitilinn sl. ár. Keppnisstjóri verður Agnar Jörgensson en aðgangur kostar þúsund krónur. í upphafi hófu 32 sveitir keppnina sem er með útsláttar- formi. Sveit Hjalta vann sveitir Alfreðs Alfreðssonar, Tryggva Gíslasonar, Tryggva Bjarnason- ar og sveit Páls Bergssonar. Sveit Þórarins vann sveitir Harðar Steinbergssonar, Einars Jónssonar, Sigurðar B. Þor- steinssonar og sveit Óðals. Var síðasttaldi leikurinn afar skemmtilegur. Sveit Þórarins náði góðu forskoti í upphafi leiksins sem sveit Óðals vann svo upp jafnt og þétt og að leik loknum voru sveitirnar hnífjafn- ar en þar sem sveit Þórarins hafði verið yfir fyrir síðustu lotuna taldist hún sigurvegari leiksins. Bridgefélag Kópavogs S.l. fimmtudag var spiluð eins kvölds tvímenningskeppni með þátttöku 22 para. Spilað var í tveim riðlum 10 og 12 para. Besta árangri náðu: A-riðill (12 pör) stig Þorvaldur Þórðarson — Guðmundur Þórðarson 196 Þórir Sveinsson — Jón Kr. Jónsson 185 Björn Halldórsson — Jörundur Þórðarson 178 Rúnar Magnússon — Böðvar Magnússon 177 B-riðiil (10 pör) Grímur Thorarensen — Guðmundur Pálsson 131 Guðmundur Ringsted — Jónas Erlingsson 128 Sigurður Sigurjónsson — Jóhannes Árnason 121 Hrólfur Hjaltason — Oddur Hjaltason 114 Næsta fimmtudag 11. sept- ember hefst fyrsta reglulega keppni vetrarins. Byrjað verður á þriggja kvölda tvímennings- keppni. Spilað er í Þinghóli Hamraborg 11 og hefst spila- mennskan kl. 20.00. Spilarar eru beðnir að mæta tímanlega til skráningar. Bridgedeild Barðstrendinga- félagsins Eftir tvær umferir af fimm í tvímenningskeppninni er efstu para þessi: Viðar Guðmundsson staða — Haukur Zhóphansson Isak Sigurðsson 251 — Árni Bjarnason Þórarinn Árnason 246 — Ragnar Björnsson Kristinn Óskarsson 241 — Einar Bjarnason Ólafur Jónsson 241 — Valur Magnússon Sigurjón Valdimarsson 231 — Halldór Kristinsson Viðar Guðmundsson 226 — Birgir Magnússon Jón Karlsson 244 — Pétur Karlsson 223 Bridgefélag Selfoss Úrslit í tvímenningskeppni 4/ 10. 1979. Meðalskor 156 stig. Tage R. Olesen — stig Sigfús Þórðarson 201 Kristmann Guðmundsson — Þórður Sigurðsson 196 Haukur Baldvinsson — Oddur Einarsson 187 Sigurður Sighvatsson — Kristján Jónsson 1969 Stefán Larsen — Grímur Sigurðsson 160 Ólafur Þorvaldsson — Gunnar 158 Næsta fimmtudag verður spilaður eins kvölds tvímenning- ur, en fimmtudaginn 18. okt. hefst meistaramót félagsins í tvímenningskeppni. Félagar fjölmennið og hvetjið nýja fé- laga til þátttöku. Þátttaka tilkynnist til Hall- dórs Magnússonar form., sími 1481. •53 j • í handhægum umbúSum. Prófaðu þig ••••• áfram . Finndu þitt bragð. Salmiak-lakkrís, salt lakkrís, mentol eucalyptus eða hreinn lakkrís. Kosta ekki meira en venjulegar hálstöflur!! (32 í pakka)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.