Morgunblaðið - 11.10.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 11.10.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979 15 að þéttingu byggðar, þarf að sjáíf- sögðu að huga að því hvernig skólamálum, íbúaskiptingu o.s.frv. er háttað í viðkomandi hverfi. Mannanna verk standa ekki að eilífu og við byggjum aðeins fyrir nánustu framtíð, m.a. þess vegna er engin þörf á að einblína á að ákveðið hverfi sé t.d. einbýlishúsa- hverfi, ef aðrar aðstæður réttlæta t.d. háhýsi (sem nú virðist vera bannorð sem stendur) á að sjálf- sögðu að byggja sem hagkvæmasta byggð fyrir hverfið. Þétting byggðar er málefni, sem yfirvöld og einstaklingar verða alltaf að vera vakandi fyrir, en það getur eðli málsins samkvæmt ekki komið í staðinn fyrir ný íbúðar- hverfi í höfuðborg Islendinga, sem verða að vera til staðar ef tryggja á jafnvægi í byggð landsins í stað hrörnunar höfuðborgarinnar. Að lokum er athyglisvert að íhuga, að núverandi stjórn borgar- innar virðist aðallega huga að einbýlishúsahverfum fyrir efnaða borgara. Þrátt fyrir allar dylgjur um að einbýlis- eða raðhúsabyggð þurfi ekki að vera dýrari en sambýli, er það einföld staðreynd að slíkt verður aldrei, nema þá með lægri gæðum í fyrrnefndri gerð íbúða. Lóðir, grunnar og þök eru kostnaðarsöm atriði, sem ekki verða samnýtt í einkanotkun. Mikilvægasta atriðið er þó, það að byggingariðnaði verði gert kleift að þróast í Reykjavík eins og t.d. á Akureyri og íbúarnir leystir frá þeim klafa, sem íbúðarbygging sem tómstundavinna er. Það verður ekki gert með hlutkestisaðferð. 2.-3. Adjanto (Indónesíu) og Ballicora (Argentínu) 7 v. 4.-6. Rames (Líbanon), Dominiguez (Dóminikanska lýðv.) og Granda (Perú) 6Vfe v. Þetta eru vafalaust allt nöfn sem við eigum eftir að heyra aftur síðar, en athyglisvert er hversu vel unglingar frá Asíu og þeim löndum Suður-Ameríku sem skemmra eru á veg komin hafa staðið sig á unglingamótum að undanförnu. Karl hefur látið mér í té eina af skákum sínum á mótinu. Að vísu er hún ekki gallalaus en hins vegar bráðskemmtileg eins og oft þegar ungir og sókndjarfir skákmenn eiga í hlut. Hvítt: Sonez, Argentínu Svart: Karl Þorsteins Drottningarpeðsbyrjun 1. d4—Rf6, 2. Rf3-e6, 3. c3—e5, 4. Bg5 — b6, 5. e3—Bb7, 6. Rbd2—Be7, 7. Bd3-0-0, 8. Dc2-h6?! (Betra var 8.... g6, en sjöundi leikur svarts var einnig ónákvæmur. Bezt var 7.... d6 8. Dc2—Rbd7) 9. h4!-Rc6, 10. Bxf6-Bxf6, 11. Re4—cxd4,12. Rfg5-dxc3? (Nauðsynlegt var 11.... g6, en það skal hins vegar viðurkennt að ef Karl hefði farið að þeim ráðum hefði hann sennilega ekki unnið skákina). 13. Rd6? (Hvítur hefði hér getað unnið mann með því að leika 13. Ba6! þar sem svartur á ekkert betra svar en 13.... He8) De7,14. Bh7+ (Hugmynd hvíts er athyglisverð, en ófullnægjandi. Svartur var einnig kominn yfir það versta eftir 14. Rxb7—Rb4) Kh8, 15. Bg8-g6, 16. Rdxf7+—Hxf7, 17. Bxf7-cxb2, 18. Hdl—Re5,19. Kfl-Hc8,20. Dbl —Bxg5, 21. hxg5 —Dxg5, 22. Hh2—Ba6+23. Kgl-Rxf7, 24. Dxb2 —Kg8, 25. Hxd7—Db6!, 26. Dxb5-Hcl+ og hvítur gafst upp. ★ Þess má að lokum geta að fljótlega halda fimm ungir piltar utan til þátttöku í heims- meistaramóti unglingasveita fyrir 16 ára og yngri, en keppnin fer fram í Viborg í Danmörku. Vil ég nota tækifærið og óska þeim góðs gengis á mótinu, en sveitin er þannig skipuð: Jóhann Hjartarson, Elvar Guðmunds- son, Jóhannes Gísli Jónsson og Karl Þorsteins úr Taflfélagi Reykjavíkur og Björgvin Jóns- son frá Keflavík. Þetta er óneitanlega mjög öflug sveit og kemur vafalaust til með að berjast um efstu sætin í mótinu, enda senda hvorki Skáksambönd Bandaríkjanna né Sovétríkjanna sveitir. 20 sveitir eru skráðar til þátt- töku í mótinu. Almennur borgarafundur á Hótel Loftleiöum í kvöld. Staðan í stjórnmálum Stúdentafélag Reykjavíkur gengst fyrir almennum borgara- fundi í Kristalsal Hótel Loftleiða kl. 20.30 í kvöld um ástand og horfur í íslenzkum stjórnmálum. Stuttar framsöguræöur flytja: Benedikt Gröndal, utanríkisráöherra Geir Hallgrímsson, alþingismaöur, Ragnar Arnalds, menntamálaráöherra, Steingrímúr Hermannsson, dómsmálaráöherra. Aö framsöguræðum loknum verða almennar umræöur. Áhugamenn um stjórnmál, fjölmennið. Stjórn S.F.R. Sumir versla dýrt — aórir versla hjá okkur ■ Okkar verð eru ekki tilboð |L heldur árangur af ,w hagstæðum innkaupum Aðeins kr. d öiarur í kassa Aukavambir fyrirliggjandi STARMÝRI 2 AUSTURSTRÆTI 17

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.