Morgunblaðið - 11.10.1979, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 11.10.1979, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979 7 Nýir formenn í A-flokknum? Ný þjóðmál, málgagn eftirhreyta „Samtaka frjálslyndra og vinstri manna“, fjallar á dögun- um um það sem blaðið kallar „forystukreppu", sem „bíði við bakdyr“ bæði Alþýðuflokks og Al- þýðubandalags. „Það er fullyrt í Alþýðuflokkn- um,“ segir blaðið, „að Benedikt Gröndal hljóti sem flokksformaður ekki meiri stuðning en svo aö hann yrði ekki endurkjör- inn á flokksþingi, jafnvel þótt hann gæfi kost á sér.“ Blaðið segir líklega til að taka við for- mennsku í Alþýðuflokkn- um þá Kjartan Jóhanns- son, varaformann flokks- ins, Sighvat Björgvins- son, formann þingflokks- ins, og Vilmund Gylfason, „sem telur sig hafa unnið alþingiskosningarnar fyrir flokkinn", eins og blaðið orðar það. Þá víkur blaðið brandi sínum að Alþýðubanda- laginu. „Heyrst hefur,“ segir það, „að Lúðvík Jósepsson hyggist ekki sitja lengi sem formaður flokksins." Formanns- kandídatar eru taldir fimm: „Er hór um aö ræöa ráöherrana þrjá, Ragnar Arnalds, Hjörleif Guttormsson og Svavar Gestsson, — varafor- mann flokksins, Kjartan Ólafsson, og formann framkvæmdastjórnar, Ólaf Ragnar Grímsson (kannski er ósanngjarnt að gleyma Guðmundi J.)“ llla agaöur gagnfræöa- skóli Tíminn lýsir samstarfs- flokkum á þennan veg í leiðara í gær: „Alþýðu- flokkurinn og Alþýðu- bandalagið breyttu Al- þingi á sl. vetri í mál- fundafélag í illa öguðum gagnfræðaskóla. Mál komust ekki fram vegna illdeilna, yfirlýsinga og málþófs. I sumar fóru þeir í sandkassaleik...“ Segja má að aðrir hafi ekki betur rökstutt en ritstjóri Tímans gerir hér, hvers vegna ríkisstjórnin hlaut að fara frá til þess að nýtt þing yrði ekki sams konar skrípaleikur og hið fyrra, vegna ósam- Lúðvík komulags og stefnuleysis stjórnarflokkanna. Tíminn þarf því ekki aö vera hissa á því þó „Al- þýöuflokkurinn dragi ráð- herra sína úr ríkisstjórn- inni — og einn þeirra sárnauðugan —“, eins og blaðið orðar það. Til þess að taka af allan vafa í þessu sam- bandi lýsir Tímaritstjór- inn stjórnarfari genginna missera svo: „Mest hefur borið á hinum stöðugu skærum „sigurflokk- anna“ tveggja, Alþýðu- flokksins og Alþýðu- bandalagsins. Það mætti segja að ýmsir kratar hafi viljað vel — en ekkert getað, en kommarnir hafi bæði staðið gegn aðgerö- um gegn veröbólgunni og haft burði í sér til að tefja fyrir og drepa um- bótamálum á dreif.“ Æsingar, falsanir og rang- færslur Ritstjóri Tímans hefur enn ekki afgreitt sam- Benedikt starfsflokka Framsóknar og hnýtir við þessu gull- korni: „í fyrra unnu þessir sjálfskipuðu „verkalýðs- flokkar“ mestu kosn- ingasigra stjórnmálasög- unnar með því að þyrla upp slíku moldviðri æs- inga, fölsunar og rang- færslna — ásamt skefja- lausri misbeitingu laun- þegasamtakanna — að slíks eru engin dæmi. En ekki gátu þeir komið sér saman um ríkisstjórn, þrátt fyrir allar yfirlýs- ingarnar um „samning- ana í gildi“, „kjarasátt- málann" og allt það. — Það varð hlutverk Fram- sóknarflokksins að leiða þessa flokka til ábyrgrar stjórnar...“ Þessi „ábyrga stjórn", sem Tíminn tíundar hér, er einhver sú vesælasta vandræðastjórn sem um getur á vesturhveli jarð- ar. Hún skilur eftir sig dýrt ár óráðsíu, eyðslu og skattheimtu, en þó fyrst og fremst mögnun vandamála, sem eiga eft- ir aö brenna á baki þjóð- arinnar lengi enn. Heimsmeistaramótið í bridge: Bandaríkjamenn fara vel af stað Ríó dc Janeiro, 10. okt. TVEIMUR umferðum er lokið í heimsmeistaramótinu í bridge og er bandaríska sveitin efst með fullt hús stiga, eða 40 stig. Sveitin er skipuð mjög þekktum spilurum og má þar nefna Eddie Kantar, Bili Eisenberg, Paui Soloway og Bob Goldman. Sveitirnar, sem keppa, eru frá Bandaríkjunum, ítaliu, Ástralíu, Taiwan, Brazilíu og Mið-Ameríku. í fyrstu umferð spilaði banda- ríska sveitin gegn Brazilíu sem unnið hefir titilinn sl. 3 ár. Spiluðu Bandaríkjamennirnir mjög vel og sigruðu örugglega 20—0. ítalir spiluðu gegn Taiwan og í hálfleik var leikurinn í jafnvægi en Italir voru sterkari á endasprettinum og unnu leikinn 17—3. í þriðja leiknum unnu Ástraliumenn nauman sigur á Mið-Ameríku 11—9. í annarri umferð unnu Banda- ríkjamenn Taiwan 20—0. ítalir urðu að láta í minni pokann fyrir Áströlum 6—14 og heimsmeistar- arnir fyrrverandi, Brazilíumenn, unnu Mið-Ameríku 16—4. Bandaríkjamenn eru í efsta sæti eins og áður segir með 40 stig, Ástralíumenn eru með 24 stig og ítalir með 23 stig. AUGLÝSING UM INNLAUSNARVERD VERDTRVGGÐRA SFARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS FLOKKUR LOKAGJALDDAGI INNLAUSNARVERÐx) 10.000 KR. SKÍTREINI 1967-2.FL. 20. október 1979 kr. 473.222 ») Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu Seðla- banka íslands, Hafnarstræti 10, og liggja þar jafnframt frammi nánari upplýsingar um skírteinin. SALA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA í 2. FLOKK11979 STENDUR YFIR OG ERU SKÍRTEININ ENN FÁANLEG HJÁ SÖLUAÐILUM. Reykjavík, október 1979 SEÐLABANKI ÍSLANDS Fáksfélagar Geldinganesið verður smalað, laugardaginn 13. október n.k. og veröa hestar í rétt kl. 13—14. Það er áríðandi að hestaeigendur komi og taki þá úr Nesinu. Bílar verða til hestaflutninga á staðnum. Þeir, sem ætla að hafa hesta sína á vetrarfóðri á Ragnheiðarstöðum, geta þá fengið hesta sína flutta þangaö austur. Hestamannafélagiö Fákur. RENAULT14 Hef ur kosti stóru bílanna, en rekstrarkostnað litlu bílanna. Renault 14 er rúmgóöur og þægilegur bíll, meö 1218 cc vél sem gefur 57 bhp DIN. Renault 14 er eyðslulítill bæði í bæjarakstri sem og úti á þjóðvegum. Eyðsla 6,4 lítrar á 100 km. ef ekið er stöðugt á 90 km hraða. Pú gerir vart hagkvæmari bílakaup i dag. RENAULT skreffi á undan KRISTINN GUÐNASQN HF. SUÐURLANDSBRAUT 20, SÍMI 86633 SNID OFNAR Sniðnir eftir yðar þörfum 7 hæðir (frá 20—99 cm). 1 Allar lengdir. V Margra ára reynsla hér á landi. Henta bæði hitaveitu og olíukyndingu. Sænskt gæöastál. Stenst allar kröfur íslensks staöals. Hagstætt verð. Efnissala og fullunnir ofnar Skipholt 35 — Sími 37033 EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.