Morgunblaðið - 11.10.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
3
Virðuleg en
stutt þingsetning
ALÞINGI íslendinga, 101. löggjafarþing, var sett í gær.
Þingmenn mættu til guðsþjónustu í dómkirkjunni, eins
og þinghefð hefur verið frá upphafi löggjafarþinga í
Reykjavík, kl. 13.30 og hlýddu á predikun sr. Péturs
Ingjaldssonar, prófasts frá Skagaströnd. Ræða hans er
birt í heild í Mbl. í dag á bls. 24. Síðan var gengið til
þinghúss þar sem þingsetning fór fram.
Forseti íslands, hr.
Kristján Eldjárn, las for-
setabréf um setningu
þings. Þá kvaddi hann Odd
Olafsson, þingmann
Reyknesinga, sem er ald
ursforseti þingsins, til að
stjórna þingfundi unz for-
seti sameinaðs þings verð-
ur kjörinn.
Greinargerð með tillög-
unni er svohljóðandi:
„Ríkisstjórnin nýtur ekki
lengur stuðnings meiri
hluta Alþingis, þar sem
Alþýðuflokkurinn hefur
ákveðið að hætta þátttöku í
núverandi stjórn og krafist
þess, að þing verði rofið og
Oddur Ólafsson, aldurs-
forseti þingsins, flutti
minningarorð um Ingólf
Flygenring, fyrrum alþing-
ismann, sem nýlega er lát-
inn, og eru þau birt í heild í
blaðinu í dag bls. 21.
Forsetakjöri var frestað
en boðað til fundar í sam-
efnt til alþingiskosninga
þegar á þessu ári.
Upplýst hefur verið, að
engin samstaða er um fjár-
lagafrumvarp, lánsfjár-
áætlun eða þjóðhagsáætl-
un. Um áramót verða allir
kjarasamningar lausir.
einuðu þingi í dag, kl. 2
miðdegis, þar sem væntan-
lega verður kjörinn forseti
og tveir varaforsetar. Þing-
flokksfundir vóru í gær þar
sem m.a. var fjallað um,
hvern veg skyldi staðið að
forsetakjöri við þær að-
stæður að enginn þing
meirihluti er til staðar.
Gert er ráð fyrir að
frumvarp fjármálaráð-
herra að fjárlögum ársins
1980 verði lagt fram á
Alþingi í dag og e.t.v. fleiri
þingmál.
Verðbólgan hefur aldrei
verið meiri en eftir rúm-
lega eins árs starfsferil
núverandi ríkisstjórnar.
Brýna nauðsyn ber til að
landsmenn eigi þess kost
sem fyrst að kveða upp sinn
dóm í kosningum til Al-
Aldursforseti Alþingis
Oddur Ólafsson
þingis og mynda þannig
ábyrgan meiri hluta á Al-
þingi, sem fær sé um að
takast á við þau mikilvægu
viðfangsefni, sem við blasa.
Sjálfstæðisflokkurinn
vill með flutningi þessarar
tillögu staðfesta með ótví-
ræðum hætti, að meiri
hluti Alþingis vilji rjúfa
þing og efna til nýrra
kosninga fyrir miðjan des-
embermánuð næst kom-
andi.“
Ýmis vand-
kvæði koma
upp við
þingrof
ÝMIS vandkvæði koma ugp
við hugsanlegt þingrof. Út
hafa verið gefin í sumar nokk-
ur bráðabirgðalög, sem þing
þarf að staðfesta, svo að þau
öðlist áframhaldandi gildi.
Sem dæmi má nefna bráða-
birgðalög um hækkun sölu-
skatts og vörugjalds. bráða-
birgðalög, sem sett voru til
þess að liðka fyrir fiskverðs-
ákvörðun o.fl. Verði þessi lög
ekki staðfest af Alþingi, falla
þau úr gildi við þinglausnir
eða þingrof.
Morgunblaðið spurði Friðjón
Sigurðsson, skrifstofustjóra
Alþingis um þetta og bar einnig
undir hann, hvort unnt yrði að
setja bráðabirgðafjárlög. Frið-
jón kvað ekki unnt að setja
fjárlög til bráðabirgða, fyrir
slíku væri ekkert fordæmi.
Hins vegar kvað hann unnt að
heimila bráðabirgðagreiðslur
úr ríkissjóði fyrir venjulegum
og nauðsynlegum útgjöldum.
Slíkt kvað hann hafa komið
fyrir nokkrum sinnum. Hins
vegar kvað hann ýmis vand-
kvæði geta komið upp, ef fjár-
lög yrðu ekki samþykkt fyrir
áramót.
Friðjón kvað önnur bráða-
birgðalög, sem gefin hefðu ver-
ið út í sumarleyfi Alþingis,
verða að koma fyrir þingið til
samþykkis, svo að þau giltu
áfram. Hlytu bráðabirgðalög
ekki samþykki þingsins myndu
þau falla úr gildi frá og með
þinglausnum. Þingrof myndi
hafa nákvæmlega sömu áhrif
og þinglausnir. Slík lög myndu
þó gilda þar til þingrof yrði,
enda væri framkvæmd þeirra
fram til þess tíma lögum sam-
kvæmt.
Geir Hallgrímsson og Gunnar Thoroddsen:
Þingrof og kosningar
1 byrjun desember
í GÆR var lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar þar sem Alþingi ályktar
að skora á forsætisráðherra að leggja til við forseta íslands, að Alþingi verði rofið
og efnt til nýrra almennra þingkosninga eigi síðar en fyrri hluta desembermánaðar
næstkomandi. Flutningsmenn eru Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokks-
ins, og Gunnar Thoroddsen, formaður þingflokks sjálfstæðismanna.
Fara þau fram aftur?
MORGUNBLAÐIÐ ræddi í gær við allmarga þingmenn. sem heyrzt
hefur að hefðu ekki hug á að bjóða sig fram til þings, ef kosningar
yrðu á næstunni. Fara hér á eftir umsagnir þessara þingmanna við
spurningunni: „Ertu búinn að gera upp hug þinn um það hvort þú
ætlir að gefa kost á þér við næstu alþingiskosningar?“
ólafur Jóhannesson forsætis- hug minn um það hvort ég ætla í
ráðherra: „Ég hafði ekki hugsað framboð."
mér að fara í framboð oftar.“ Oddur Ólafsson sagði: „Jú það
Spurningu Mbl. um það, hvort
þetta orðalag þýddi að hann
hefði endurskoðað þá afstöðu
svaraði Ólafur: „Ég veit ekki
hvað segja skal. Það er víst bezt
að útiloka ekki neitt þessa dag-
ana.“
Einar Ágústsson varafor-
maður Framsóknarflokksins og
fyrrum utanríkisráðherra mun
eins og kunnugt er verða sendi-
herra Islands í Kaupmannahöfn.
Einar sagði: „Ég fer ekki fram
aftur. Að mörgu leyti hefur
þetta verið skemmtilegur tími,
sem ég hef átt hér í þinginu og
mér lærdómsríkur. Margir þeir,
sem ég hefi starfað hér með,
hafa reynzt góðir félagar og ég
mun sakna margs, þótt ég líti
vissulega með bjartsýni til hins
nýja starfs."
Guðmundur Karlsson: sagði:
„Ég hefi aldrei látið þau orð
falla sjálfur, að ég ætli ekki að
bjóða mig fram aftur. Hins
vegar hef ég heyrt þetta utan að
mér,“ sagði hann og brosti, en
bætti við: „Ég hef ekki gert upp
er nokkurn veginn ákveðið að ég
fari ekki fram aftur, enda er ég
kominn á aítræðisaldur."
Vilhjálmur Hjálmarsson,
fyrrum menntamálaráðherra:
„Ég hef ekki gefið út neina
yfirlýsingu um það að ég sé að
hætta. Slíka yfirlýsingu hef ég
heldur ekki hugsað mér að gefa í
blöðum, því að tæki ég slíka
dæmismál og því þarf að fá
stuðning til prófkjörs. Fái ég
slíkan stuðning, mun ég vissu-
lega fara fram aftur."
Gils Guðmundsson, Lúðvík
Jósepsson, Svava Jakobsdóttir
og Eðvarð Sigurðsson svöruðu
öll spurningunni samhljóða, sem
orða mafsvo: „Ég gef um það
yfirlýsingu réttum aðilum og á
réttum tíma.“ Eðvarð tók sér-
staklega fram að hann hefði
tekið sína ákvörðun og Svava
bætti við: „Það er nú ekki búið að
boða kosningar."
Björn Jónsson fyrrum félags-
málaráðherra: „Ég hef nú ekki
hugleitt þetta ennþá. En fljótt á
ákvörðun, gæfi ég um hana
yfirlýsingu heima í héraði
fyrst."
Bragi Sigurjónsson sagði: „Ég
hef ekki látið neitt slíkt uppi, að
ég hafi ekki hug á framboði.
Eins og þið vitið er þetta kjör-
litið held ég að ég gefi ekki kost
á mér.“
Halldór E. Sigurðsson for-
maður þingflokks Framsóknar-
flokksins og fyrrum ráðherra:
„Ég gef ekki kost á mér, hvenær
sem kosningar verða.
Það er mín lífsskoðun að vera
ekki of lengi í neinu starfi,
þannig að ég geti sjálfur tekið
ákvörðun um að hætta en þurfi
ekki að þola það að verða ýtt í
burtu.“
Jónas Árnason: „Ég lýsti því
yfir á kjördæmisráðsfundi um
páskana að ég myndi ekki gefa
kost á mér við næstu kosningar
og það stendur.“ Sagðist Jónas
hafa áhuga á að fá betra tóm tii
ritstarfa auk þess sem hann
hefði hug á að snúa sér að
kennslu á nýjan leik.“ Það er
afskaplega auðvelt fyrir mig að
hætta,“ sagði hann. Það er mesta
mannval á Vesturlandi og um
auðugan garð að gresja varðandi
eftirmann."
Þá spurði Mbl. Albert Guð-
mundsson þessarar spurningar í
ljósi 'þess að hann ætlar í
framboð til forsetaembættis.
„Ég fer í kosningarnar," sagði
Albert. „Ég hætti ekki í pólitík-
inni fyrr en niðurstöður eru
komnar í forsetakosningunum.
Ég læt engan bilbug á mér finna
meðan fólkið treystir mér.“