Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979 1 3
Norræn menningarvika hófst í Norræna húsinu s.l. laugardag meö opnun sýningar á verkum eftir danska málarann
Carl-Henning Pedersen. Þetta er í fyrsta skipti sem Norræna húsiö stendur fyrir slíkri viku en ætlunin er aö
menningarvikur veröi haldnar í Norræna húsinu þau ár sem listahátíð er ekki. Á dagskrá norrænu menningarvikunnar
veröur bæöi skandinavískt og íslenskt efni og eitthvaö er um aö vera alla daga vikunnar.
„Viljum ekki geraNorr-
æna húsið að átthagasal”
Erik Söndcrholm forstjóri Norræna hússins.
„Hugmyndin að baki norrænu
menningarvikunnar er sú, að
Norræna húsið hefur tekið þátt í
listahátíð Reykjavíkur í 10 ár en
okkur fannst nú tími til kominn
að breyta til og reyna eitthvað
nýtt,“ sagði Erik Sönderholm,
forstjóri Norræna hússins, í
samtali við Mbl.
„Okkur hefur fundist það
dálítið hættulegt ef starfsemin
hefur komist í of fastar skorður.
Þá er afskaplega lítið hægt að
gera annað en það sem er orðið
að föstum dagskrárliðum.
Hugmyndin að listahátíð
Reykjavíkur kom í upphafi m.a.
frá Ivari Eskenlund sem þá var
forstjóri Norræna hússins. Ég
veit það, að í upphafi var mikill
stuðningur fyrir listahátíðina að
hafa húsið, bæði fyrir skrifstof-
ur og annað. En nú er hátíðin
orðin sjálfstætt fyrirtæki og
getur ábyggilega bjargað sér án
Norræna hússins.
Með því að standa fyrir menn-
ingarviku ætlum við alls ekki að
keppa við listahátíðina. Þessi
vika verður aðeins þau ár sem
hátíðin er ekki. Það fer oft svo á
Listahátíð að það mikið er um
ýmis dagskráratriði að sumt vill
drukkna og gleymast. Við erum
því að reyna að dreifa framboð-
inu dálítið þannig að allt verði
ekki að gerast á sama tíma.“
„Ekki aðeins eitthvað norrænt“
„Það er alls ekki meiningin að
fá norræna listamenn hingað til
lands til að bera aðeins fram
verk frá sínu heimalandi. Okkur
finnst það allt of þröngt. Nor-
rænn tónlistamaður er t.d. alltaf
að reyna krafta sína á Beethov-
en, Schubert og fleiri stórum
tónskaldum og því viljum við
hafa þau verk með á efnisskrán-
um. Finnskur eða sænskur
söngvari syngur t.d. eitthvað frá
sínu heimalandi en einnig eitt-
hvað frá Evrópu. Við viljum alls
ekki gera Norræna húsið að
einhverjum átthagasal þar sem
aðeins eitthvað norrænt fer
fram innan dyra.“
Erik Söderholm var síðan
spurður að því hvort farið yrði
með eitthvað af dagskráratrið-
um menningarvikunnar út fyrir
Reykjavík.
Við reynum að fara út Iand
með atriði af listahátíð 1978 en
það var afskaplega erfitt. Bæði
eru lítil byggðarlög hrædd við að
standa fyrir slíku og listamenn-
irnir sjalfir hafa oftast það
lítinn tíma að ferð út á land
kemur ekki til greina. Þó tókst
okkur nýlega að fá sænskan
vísnasöngvara í ferð norður til
Akureyrar og söng hann bæði
þar og á Dalvík.
Það er bara ekki það sama að
standa fyrir slíkum menningar-
viðburðum í Reykjavík og á
litlum stöðum. Ég er t.d. vissum
að þegar Norrænt hús tekur til
starfa í Færeyjum kemur ekki
til greina að reka það eins og
húsið hér í Reykjavík. Þótt
Þórshöfn sé höfuðstaður eins og
Reykjavík er þar ekki að finna
framhaldsskóla eins og t.d.
myndlistarskóla, tónlistarskóla
og háskóla. í fyrra voru hér á
ferðinni tveir heimspekingar
sem héldu fyrirlestra. Það er
ekki það að fólkið á ísafirði sé
eitthvað verra en í Reykjavík en
þar er bara ekki fólk sem hefur
þessi áhugamál. Allir þeir skólar
sem eru í Reykjavík skipta svo
miklu máli. Þess vegna er hægt
að gera hér hluti sem ekki væru
framkvæmanlegir t.d. í Árhús-
um sem er á stærð við
Reykjavík."
— Menningarvikan verður ef-
laust dýrt fyrirtæki fyrir Nor-
ræna húsið?
„Hún verður það. Bara trygg-
ingin fyrir málverkasýninguna
kostar mikla fjárupphæð. Við
þyrftum helst að standa fyrir
slíkum menningarvikum 5 sinn-
Meðal atriða á norrænu menn-
ingarvikunni er sýning á
verkum eftir danska málarann
Carl-Henning Pedersen.
Lokatónleikar norrænu
menningarvikunnar verða
sunnudaginn 14. október kl.
20.30. Verða þar flutt verk eftir
Jón Nordal og verða flytjendur
allir inniendir tónlistarmenn.
um á ári en það er ekki hægt
vegna fjárskorts.
En maður má ekki vera
hræddur við að gera hlutina, því
að þá gerist alls ekki neitt. Það
er ekki hægt að standa fyrir
viðburðum sem menningarvik-
unni með það fyrir augum að
ætla að græða. Við stöndum
ábyggilega uppi með gífulegt tap
að vikunni lokinni en þannig á
það líka að vera. Ef hún ætti að
bera sig fjárhagslegaþyrfti hver
aðgöngumiði að kosta minnst
20.000 krónur.
Við vonum bara að menning-
arvikan takist vel og fólk kunni
að meta þetta framlag okkar til
að lífga upp á menningarlífið í
Reykjavík," sagði Erik Sönder-
holm að lokum.
Rœtt við Erik Sönder-
holm forstjóra Norrœna
hússins um norrœnu
menningarvikuna
Endurútgefum fimmtán hljómplötur, sem allar hafa verið uppseldar um árabil.
Koma nú einnig á kassettum.
Selt á sérstöku kynningarverði, sem er helmingi lægra en verð á öðrum plötum, eða
aðeins kr. 3900
Kynningarsalan er í VÖRUMARKAÐNUM, Ármúla - Sími 86113
Vekjum athygli á heilsíöu auglýsingu okkar í
Morgunblaöinu sl. sunnudag, varöandi póstkröfuaf-
greiöslur.