Morgunblaðið - 11.10.1979, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
17
20. október var 23 ára stúdentaleiótogi, Oliviero Castaneda (t.v.)
skotinn til bana, nokkrum mínútum eftir að hann hafói flutt ræðu þar
sem hann andmælti hörku þeirri, sem verkfallsmenn höfðu verið beittir
nokkru óður í deilu vegna hækkunar fargjalda meö almenningsvögn-
um. Nafn Castanedas hafði birzt á dauðalista „Hers andkommúnista"
tveimur dögum áður. Meðal þeirra sem einnig héidu ræðu á
umræddum fundi voru Manuel Colom Argueta (á vinstri hliö
Castaneda), leiðtogi byltingarfylkingarinnar í Guatemala en það er
samfylking frjálslyndra og vinstrimanna. Argueta var myrtur í marz
1979. Lengst til hægri situr René Schlotter de Leon, heiðursforseti
Kristilega demókrataflokksins í Guatemala, en hann slapp naumlega lífs
er reynt var að ráöa hann af dögum í október 1978.
eru handteknir þegar þeir ætla að
ná tali af verkalýðsmálaforingja
ríkistjórnarinnar.
7. desember 1978 Þá voru tveir
trúnaðarmenn Camino Real hand-
teknir. Síöar voru tveir starfsmenn
hótelsins fangelsaðir.
9. desember 1978 Her andkomm-
únista birtir nýjan lista yfir rétt-
dræpa. Á honum eru nöfn verka-
lýðsforingja.
H.desember 1978 Þann dag finn-
ast 17 lík. Blöðin telja þetta frétt
þar sem fjöldi líka, sem daglega
hafa fundist að undanförnu, hafi
ekki veriö aö meðaltali nema 5—6.
20. desember 1978 Séra Carlos
Stette, eftirmanni bandaríska
prestsins Bill Woods, sem beiö
bana í dularfullu flugslysi árið
1976, var rænt í Huethuetenango.
hann var sakaður um stjórnar-
andstöðu og rekinn úr landi.
21. desember 1978 Arnaldo Alvar-
ez Ruiz, innanríkisráöherra, sviptir
hjúkrunarsamband Guatemala
réttindum með skírskotun til þess
að það hafi veitt stjórnarandstæð-
ingum stuöning.
28. desember 1978 Fundin átta lík,
flest óþekkjanleg.
29. desember 1978 Stjórnmála- og
lögregluyfirvöld viðurkenna að um
30 manns týni daglega lífi vegna
aðgerða ofbeldismanna.
2. janúar 1979 Þann dag finnast 15
lík á ýmsum stöðum í landinu.
3. janúar 1979 Her andkommúnista
birtir þriöja listann yfir þá, sem
hann telur réttdræpa. Á honum eru
23 nöfn, meöal þeirra kunnir
verkalýðsforingjar og háskóla-
borgarar.
8. janúar 1979 Sjö lík finnast. Sex
hafa verið skotnir, einum drekkt.
Nöfn píslarvotta ókunn.
10. janúar 1979 Enrique Garcia
Castellanos, blaöafulltrúi og ritari
tryggingastofnunar er handtekinn í
endurhæfingarmiðstöð. Honum er
ekið burt í bifreið. Yfirmanni trygg-
ingasamtakanna ógnað. Hann flýr
land.
16.janúar 1979 Fréttamenn blaða í
Guatemala fullyrða að frá því í
október hafi yfir 100 lík fundist,
sem öll báru merki margvíslegra
misþyrminga.
22. janúar 1979 Upplýst er að 23
verkamenn hafi verið fangelsaðir
vegna rangra sakargipta 'og að
verkalýösforingjar hafi setið í fang-
elsum í samtals 613 sólarhringa.
24.janúar 1979 Mahnel Antonio
Mascoso Zaldana leigjandi í húsi
verkalýösforingjans Israei Maques,
drepinn aö því er talið var í
misgripum.
31.janúar 1979 Tólf lík finnast.
Flestir píslarvottanna hafa veriö
drepnir meö því að aka bifreiðum
yfir þá. Auk þess finnast tvö lík í
Nueva Conception. Mennirnir hafa
verið pyntaðir og skotnir, Stað-
hæft er af forsvarsmönnum
ríkisspítalans í Guatemala að í
janúarmán. hafi 240 manns verið
myrtir.
2.febrúar 1979 Sex lík finnast á
ýmsum stööum með verksum-
merki þeirra misþyrminga sem
beitt er af dauðasveitunum.
5.febrúar 1979 Kunn eru nú nöfn
átta af þeim fjórtán líkum, sem
fundust nýlega. Til viðbótar finnast
tvö lík í úthverfi Guatemalaborgar.
Þau eru meö skotsár og misþyrm-
ingaeinkenni dauðasveitanna.
9.febrúar 1979 Fyrirliði samtaka
verslunarfólks, Miguel Valdes, er
drepinn.
20. febrúar 1979 Sjö menn særðir
skotsárum, fluttir í sjúkrahús.
Þrettán lík með verksummerki
pyntinga fundust í Guatemala-
borg.
21. febrúar 1979 Lík, auðkennd
með skotsárum og misþyrmingum,
finnast í Villa Nueva.
22. febrúar 1979 Lík Luis Fernando
Forno og konu hans, sem rænt var
13 febrúar 1979 í Guatemalaborg
finnast í Escuintla. Þau hafa verið
grafin upprétt og höfuð eru ofan
moldar. Líkin bera merki um
hnífstungur og högg. Þessi við-
bjóðslega greftrun vakti almenna
andstyggö vegna birtinga mynda í
blöðum, sem leiddu til þess að
kennsl voru borin á líkin tvö, þótt
þau fyndust í mikilli fjarlægð frá
staönum þar sem mannránið var
framið.
23. febrúar 1979 Fimmtán lík, sem
báru merki um pyntingar, finnast.
Tvö eru af mönnum, sem rænt
hafði verð fyrir nokkru.
27.febrúar 1979 Sex ókennd lík
finnast í landinu.
4. mars 1979 Fimm lík, sem öll báru
merki um pyntingar, finnast á fimm
stöðum í landinu.
14.mars 1979 Lík Samuel Sacul,
bændafyrirliða í San Luis, finnast
fimm dögum eftir að honum var
rænt.
22.mars 1979 Fimm lík, auökennd
af misþyrmningum, finnast á götu í
El Progreso.
27.mars 1979 Níu lík finnast, flest
þekktust. í þremur borgum eru þrír
menn skotnir.
3.aprfl 1979 Sex ókennd lík finnast
í fjórum borgum.
5. apríl 1979 Ellefu ókennd lík
finnast í Guatemalaborg og annars
staöar í landinu.
S.apríl 1979 Sjö ókennd lík finnast.
Þar viröast dauðasveitir hafa verið
aö verki.
lO.apríl 1979 Níu lík fundin í
Guatemalaborg. þau eru með sár
eftir hnífa og skot. Níu ókennd lík
finnast annars staðar í landinu.
20.apríl 1979 Konurnar Rosa
Maria Wantland Garcia og Yol-
anda Urizar Martimes, báöar lög-
fræðingar verkalýössamtaka og
Florence Xcop, starfsmaður verka-
mannasambands handteknar á
flugvelli Guatemalaborgar, þar
sem þær dreifðu bæklingum um ár
barnsins. Þær höfðu verið að fylgja
kunnum verkalýðsforingja til flug-
vélar, sem flutti hann í útlegð.
26. aprí 1979 Biskupinn John
Christopher er rekinn í útlegð.
27. aprtl 1979 Tuttugu og sex menn
særast í skotáraás, sem var í
námunda við El Paron fangelsi.
Fimmtán lík finnast í landinu.
28. apríl 1979 Samband háskóla í
Mið-Ameríku fordæmir hótanir,
sem her andkommúnista hefur
haft uppi við Dr. Saul Orsiro,
rektor háskólans í San Carlos.
Hann hefur ásamt nokkrum stúd-
entum verið á fordæmingarlista
hersins frá 18. október. Dr.Carlos
baö stjórnina að veita þeim vernd,
sem ógnað hafði verið. Innanríkis-
ráöherrann svaraöi með því aö
fullyrða aö sjálfir ættu þeir að
gæta sjálfra sín.
30.apríl 1979 Átta vopnaðir menn
koma á Panzos svæðið í óskráð-
um bifreiðum. Þeir hafa meðferðis
lista yfir 11 smábændur, sem þeir
ætla aö handtaka. Tveir bændur
eru drepnir. Ofbeldismennirnir
hafa bændurna Juan Caal Guz og
Felipe Caal Tiul á brott með sér.
Síöari hluta apríl mánaðar er
stúdentaforinginn Alberto Horn-
andez skotinn er hann var á leiö til
háskólans.
2.maí 1979 Átta lík finnast með
verksummerki pyntinga, tvö í
Guatemalaborg, fjögur í Chiqui-
mula.
4. maí 1979 Þingmaðurinn Carlos
Gallardo Flores ákveður aö flýja
land eftir að hann hefur nokkrum
sinnum orðið fyrir misheppnuöum
morötilraunum.
5. maí 1979 Fjölskyldur bændanna
Juan Caal Guz og Felipe Caal Tiul
bera kennsl á lík þeirra eftir að þau
voru grafin upp. Níu lík finnast á
ýmsum stöðum í landinu.
6. maí 1979 Átta lík finnast í ýmsum
héruðum.
8.maí 1979 Enn finnast 12 lík í
landinu.
11. maí 1979 Sjö lík finnast.
12. maí 1979 Níu lík finnast. Öll
báru augljós einkenni um pynt-
ingar fyrir líflát,
14. maí 1979 Enn finnast 11 lík
síöasta sólarhringinn. Allir höfðu
verið pyntaðir áður en þeir voru
drepnir.
15. maí 1979 Tíu lík finnast víðs
vegar í landinu.
16. maí 1979 Átta morð framin.
17. maí 1979 Samkvæmt upplýs-
ingum blaðanna hafa að meðaltali
8 lík fundist daglega með auð-
kenni þess að píslarvottarnir hafi
veriö pyntaðir áður en þeir voru
drepnir. Lögreglan vinnur að könn-
un á réttmæti þessara staðhæf-
inga. Ríkislögreglan telur að
dauðasveitirnar hafi drepið marga
tugi manna undanfarinn hálfan
mánuð.
23. maí 1979 Ellefu lík finnast, öil
bera vitnisburð pyntinga fyrir líflát.
24. maí 1979 Catalíno Cussul Lop-
ex formaður sambands einkalög-
reglumanna er myrtur.
25. maí 1979 Formaöur bankaritara
í Guatemala handtekinn af óein-
kennisklæddum mönnum. Óttast
er að hann veröi drepinn. Banka-
menn hóta verkfalli.
26. maí 1979 Sjö lík finnast með
augljósum verksummerkjum mis-
þyrminga.
29.maí 1979 Enn finnast sjö lík illa
leikin.
Við teljum að ofanritaður annáll
gefi einungis takmarkaðar upplýs-
ingar um þá ógnaröld, sem ríkti í
Guatemala þetta eina ár. Hins
vegar ætti hann að vekja alla til
fullvissu um hið ægilega ofbeldi,
sem þjóð Guatemala var beitt alla
daga. Viö látum okkur ekki koma
til hugar að ofbeldi sé einungis
beitt af valdstéttunum og skó-
sveinum þeirra gegn þeim, sem
taldir eru vinstri sinnaðir. Samt
sem áður eru flestir, sem kannaö
hafa þessi mál sammála um að
mikill meiri hluti píslarvotta morð-
sveitanna, hafi verið stjórnarand-
stæðingar og týnt lífi af þeim
sökum.
Alit þetta ár hefur Amnesty
International skráð staðhæfingar
stjórnvalda um ofbeldisverkin. Þau
hafa margneitað því að öryggis-
sveitir hennar eigi beinan þátt í
morðunum. Hins vegar er hafið yfir
allan efa að tengsl morðsveitanna
við stjórnvöldin eru mjög náin og
að þær fái auðveldlega frá þeim
allar upplýsingar um þá, sem
grunaðir eru um stjórnarandstöðu.
Þó að morðsveitirnar séu ekki
beinlínis á vegum stjórnarinnar, er
auðsætt að framferði þeirra er
henni mjög að skapi.
Aðstandendur píslarvottanna
hafa þráfaldlega leitað til stjórn-
valda með bænir um að þau aflétti
þessum ófögnuði og aö illvirkjarnir
verði dregnir fyrir lög og dóm.
Kröfur þeirra hafa árangurslaust
verið studdar af forsvarsmönnum
mannréttinda víðs vegar. Hinn 27.
febrúar 1979 svaraði forsetinn,
Lucas Garcia, þessum tilmælum
með því að staðhæfa aö ofbeldi
væri í ætt við ofnæmi sem fólk yrði
að sætta sig við og umbera.
í öðru tilviki taldi hann að
töfralyf ein gætu komiö í veg fyrir
að ofbeldi væri beitt í landinu.
Varaforsetinn, Francisco Villagran
Kramer, hefur margsinnis hótað að
segja af sér og borið við heilsu-
leysi. í einkasamtölum hefur hann
hins vegar skýrt frá því að ástæð-
an sé sú að stjórnin geri ekkert til
þess að koma í veg fyrir ofbeldis-
verk og mannréttindabrot og sjálf-
ur hafi hann ekkj. völd til þess.
Villagran Kramer er Ijóst að hans
eigið líf væri í hættu ef hann segði
af sér enda hrökk það út úr honum
í samtlai við fréttamann Reuters
22. mars 1979 að dauði eða útlegð
yrðu örlög þeirra, sem reyndu að
berjast fyrir réttlæti í Guatemala. í
engum tilvikum morða eða mann-
rána á því eina ári, sem hér hefur
verið rætt, hefur Amnesty
International orðið þess áskynja
að opinber rannsókn hafi átt sér
stað eða að neinn sökudólganna
hafi hlotið refsingu.
Við íhugun þess, sem skráö
hefur verið um það eina ár, sem
leið frá fjöldamorðunum í Panzos
er skylt að staðfesta réttmæti
þeirrar yfirlýsingar, sem gefin var
af Lýöræðisfylkingunni gegn kúg-
un, en hún er á þessa leið:
„Blóðbaðið í Panzos táknar
upphaf ægilegustu kúgunaröldu í
Guatemala. A þeim degi hófst
tímabil síaukinna ógnana, fangels-
ana, manndrápa, pyntinga, fjölda-
morða og landráns."
Amnesty International hefur lát-
ið skrá framangreindan annál og
ákveðið aö birta hann öllum þjóð-
um 15. september 1979 á 141.
áfmælisdegi sjáifstæðis Guate-
mala. Síðari hluti annáls ársins
1979 og allra daga allra ára, sem
síðar munu upp renna er enn
óskráður. Það er á valdi stjórnar
landsins og annarra íbúa þess
hvort hann verður jafn óhugn-
anlegur aflestrar og sá sem nú
hefur verið skráður vegna tíma-
bilsins, sem nefnt hefur verið
Dagatal ofbeldisins frá 29. maí
1978 til jafnlengdar ári 1979.