Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
Hin almenna þátttaka er
sérkenni tónlistarlífs hér
Franski hljómsveitarstjórinn Jean-Pierre Jacquillat
hefur á liðnum árum verið tíður gestur hjá Sinfóníu-
hljómsveit íslands, og hefur stjórnað hljómleikum
hennar í Reykjavík og úti á landi. Jacquillat stjórnar
hljómsveitinni á fyrstu sinfóníutónleikum vetrarins,
sem verða í Háskólabíói í kvöld. Þar verður Herman
Prey einsöngvari, en á efnisskránni eru verk eftir
Mozart, Rossini, Brahms og Mahler.
Jean-Pierre Jacquillat stjórnar hér tvennum tónleik-
um í maí næstkomandi, en hann hefur verið ráðinn að
hljómsveitinni þrjú fimm vikna tímabil á næstu þremur
árum. Morgunblaðið átti stutt spjall við Jacquillat nú í
vikunni og spurði fyrst um skoðun hans á því hvort
þörf væri á því að hljómsveitin fengi fastan aðalstjórn-
anda, sem tæki þátt í störfum hennar samfleytt, t.d. eitt
starfsár:
Ljism. Emilfa.
Hér áður fyrr tíðkaðist það
mjög að hljómsveitir hefðu
fastan aðalstjórnanda lang-
tímum saman, en nú er slíkt
fremur óalgengt, meðal ann-
ars af því að erfitt er að fá menn til að
binda sig lengi á sama stað. Eg hef gert
samning við íslenzku sinfóníuhljómsveitina
um að starfa með henni þrisvar sinnum á
næstunni, fimm vikur í senn, og ég sé mér
ekki fært að binda mig lengur i einu.
Endurnýjun og tilbreyting eru nauðsyn-
legar fyrir hljómsveitarstjóra, en slíkt fæst
aðeins með því að ferðast um og starfa með
sem flestum hljómsveitum.
— Nú heíur þú kynnzt tónleikagcstum
í öllum heimshornum. Eru íslenzkir tón-
listarunnendur frábrugðnir öðrum að
einhverju leyti?
— Það, sem mér finnst einkenna tónlist-
arlífið hér á íslandi sérstaklega, er hve
þátttaka í því er almenn. Það er mjög óvíða,
sem fjöldi tónleikagesta er svo mikill hluti
af borgarbúum sem venjulegt er hér í
Reykjavik, að ekki sé minnzt á aðsóknina að
tónleikum hljómsveitarinnar úti á landi. Eg
hef haft mikla ánægju af því að stjórna
tónleikum hennar utan Reykjavíkur, —
viðtökurnar á þessum litlu stöðum eru
yfirleitt frábærar og sýna tvímælalaust að
þessi starfsemi er vel metin og nauðsynleg.
— Telurðu ástæðu til að hljómsveitin
geri meira al því að fara út á land og leika
þar?
— Það væri æskilegt að hún gæti gert
sem allra mest af því, en þetta er nokkrum
vandkvæðum bundið. Helztu erfiðleikarnir
eru í sambandi við húsnæði, — það er mjög
óvíða, sem völ er á hentugu húsnæði fyrir
sinfóníuhljómleika. Hljómsveitin hefurorð-
Jean-Pierre Jacquillat
ið að sníða sér stakk eftir vexti, því að fjöldi
hljóðfæraleikaranna þegar leikið er utan
Reykjavíkur getur vart farið yfir 35 manns,
en venjulega eru þeir hátt í sextíu. Þetta
takmarkar að sjálfsögðu möguleikana í vali
verkanna, sem hægt er að flytja og
efnisskrá verður að vera í samræmi við það.
— Ef við víkjum að hljómsveitinni.
hver er skoðun þín á henni?
— Mér líkar Ijómandi vel að starfa með
Sinfóníuhljómsveit íslands. Auðvitað hefur
hún, eins og allar aðrar hljómsveitir, sín
vandamál. I henni eru góðir hljóðfæraleik-
arar og þeir sem síður valda verkefnum
sínum, en ég held að hægt sé að segja að án
undantekningar vilji íslenzku hljómlistar-
mennirnir vinna og leggja töluvert á sig til
að bæta hljómsveitina, og það er aðalatrið-
ið. Hljómsveitin líður fyrir það að manna-
skipti eru of tíð — á hverju ári eru of
margir nýir hljóðfæraleikarar og það er
vandamál að halda í góða hljóðfæraleikara.
Þeim eru boðin betri laun og tækifæri
annars staðar, og hvort sem okkur líkar
betur eða verr þá hljóta launakjör alltaf að
hafa áhrif á útkomuna. Þetta má ekki
gleymast þegar verið er að gera kröfur, —
það er hægt að gera meiri kröfur til þeirra,
sem fá betri laun, svo einfalt er það.
Heimurinn er fullur af góðum sinfóníu-
hljómsveitum og auðvitað keppa þær um
góða hljóðfæraleikara. Bandarísku hljóm-
sveitirnar eru beztar enda bjóða þær beztu
kjörin.
— Hvcrt er förinni heitið héðan?
— Eg fer til Svíþjóðar og stjórna þar sex
hljómleikum Gautaborgarsinfóníunnar,
sem er að leggja upp í hljómleikaferð um
alla Svíþjóð. Eg geri mér vonir um að geta
dvalizt nokkra daga í París á næstunni. Þar
er ég búsettur, eða svo á að heita, en þar er
ég sjaldnast, til dæmis hef ég á síðustu
þremur mánuðum verið þar í tíu daga
samtals. En þannig er það starf, sem ég hefi
kosið mér, til að geta sinnt því er
óhjákvæmilegt að vera á stöðugum ferða-
lögum, sagði Jean-Pierre Jacquillat.
Ellert B. Schram:
Félagsmálaráð-
herra svarað
Félagsmálaráðherra, Magnús H.
Magnússon, skrifar grein í Mbl. 'í
fyrradag, þriðjudag, og gerir at-
hugasemdir við ummæli, sem eftir
mér voru höfð í Mbl. 5. okt. s.l.
varðandi stefnumótun hans í hús-
næðismálum. Mér er ekkert geðfellt
að karpa við frænda minn Magnús
með þessum hætti, en tel mig þó
tilneyddan til að benda á eftirfar-
andi staðreyndir:
1. Ég hef leyft mér að vekja
athygli á þeirri sérkennilegu stöðu,
að á sama tíma og ráðherrann
boðaði stórfelld aukin útgjöld fyrir
ríkissjóð vegna stefnumótunar í
húsnæðismálum, þá lét hann á
ársferli sínum í ríkisstjórn, ef ekki
stuðlaði að, óátaldar aðgerðir af
hálfu ríkisstjórnarinnar, sem leitt
hafa yfir Byggingarsjóð gífurlegan
fjárhagsvanda. Eg nefndi 2 millj-
arða. Vandinn er sennilega stærri.
Og þetta viðurkennir Magnús raun-
ar í grein sinni, þegar hann tekur
fram að fjármagn, sem koma á til
útborgunar í desember, hafi enn
ekki verið tryggt. Á það bæði við um
greiðslur til þeirra, sem gerðu
fokhelt í september, svo og um
lánagreiðslur til kaupa á eldra
húsnæði. Hér þarf ekki frekar
vitnanna við. Allt á þetta rætur að
rekja til þeirrar ákvörðunar ríkis-
stjórnarinnar að færa 2 milljarða
króna frá Byggingarsjóði til Fram-
kvæmdasjóðs. Magnús segist hafa
gert tillögur um það nú, að þetta fé
yrði fært til baka til Byggingar-
sjóðs. Sú tillaga er sýndarmennskan
ein, vegna þess að Framkvæmda-
sjóður er löngu búinn að ráðstafa
þessu fé. Fullyrðing mín um
greiðsluerfiðleika Byggingarsjóðs
stendur því óhögguð.
2. Ég hélt því fram, að stefnu-
mótun Magnúsar hefði ekki verið
samþykkt í ríkisstjórninni. Magnús
segir þetta rangt og skilur ekki
hvernig mér berist vitneskja af
ríkisstjórnarfundum. Ég hef ekki
ómerkari heimild en Magnús sjálfan
fyrir staðhæfingu minni. Ráðherr-
ann kynnti stefnumótun sína á
blaðamannafundi 2. okt. s.l. í frétt-
um sjónvarpsins þá um kvöldið er
greint frá þessum fundi og frásögn
fréttamannsins hefst með eftirfar-
andi orðum: „Eftir helglna verða
lögð fyrir ríkisstjórnina drög að
stefnumótun í húsnæðislánamál-
um.“
Þessi setning var lesin fyrir
Magnús áður en hún var flutt. Hann
gerði enga athugasemd, enda eftir
honum haft á blaðamannafundin-
um. Ef fullyrðing mín er röng, þá er
það vegna þess að Magnús sjálfur
gaf rangar upplýsingar á nefndum
blaðamannafundi.
3. Ráðherrann vill ekki kannast
við að stefnumótun hans sé byggð á
gömlum tillögum sjarfstæðismanna.
Það skiptir okkur í rauninni litlu,
því við höfum þegar bætt um betur,
eins og m.a. kom fram í fyrrgreindu
viðtali við undirritaðan 5. okt. s.l.
Gunnar Thoroddsen skipaði nefndir
til að endurskoða húsnæðislög-
gjöfina og gera tillögur um breyt-
ingar. Hvort þessar nefndir hafi
verið aflagðar í tíð Magnúsar H.
Magnússonar eða aðrar nefndir
skipaðar skiptir ekki máli. Stað-
reyndin er sú, eins og fram kemur i
grein M.M., að tillögum var skilað,
og þær tillögur voru unnar af þeim
sjalfstæðismönnum, sem í nefndun-
um áttu sæti. Stefnumótun M.M.
byggist á þessum gögnum.
Með þökk fyrir birtinguna
Ellert B. Schram
Framsókn:
Mótmælir
verðhækkun-
um síðustu
mánaða
Á FUNDI í Verkakvennafélaginu
Framsókn, sem haldinn var
fimmtudaginn 4. október 1979,
voru kosnir fulltrúar á 9. þing
Verkamannasambands Islands og
jafn margir til vara, sem haldið
verður á Akureyri dagana 12.—14.
október 1979.
Einnig voru samþykktar eftir-
farandi tillögur:
„Verkakvennafélagið Framsókn
mótmælir kröftuglega þeim vöru-
hækkunum sem dunið hafa yfir
landsmenn nú á síðustu mánuð-
um. Vill félagið minna á, að allar
vörur og skattahækkanir koma
þyngst niður á þeim sem minnst
hafa launin. Því vill Verkakvenna-
félagið Framsókn skora á ríkis-
stjórn að spyrna við fótum og
minnka verðbólguna.
Fundur í Verkakvennafélaginu
Framsókn lýsir fullum stuðningi
við alyktun miðstjórnar Alþýðu-
sambands íslands þann 20. sept-
ember 1979, vegna verðhækkana
landbúnaðarvara."