Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
23
Veður
víða um heim
Akureyri
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlín
BrUssel
Chicago
Feneyjar
Frankturt
Genl
Helsinki
Jerúsalem
Jóhannesarb.
Kaupmannah.
Las Palmas
Lissabon
London
Los Angeles
Madríd
Malaga
Mallorca
Miami
Moskva
New York
Ósló
París
Reykjavík
Rio De Janeiro
Rómaborg
Stokkhólmur
Tel Aviv
Tókýó
Vancouver
Vínarborg
2 slydda
21 heióskírt
23 skýjað
23 skýjað
20 heiðskírt
22 heiðskírt
11 skýjaö
11 mistur
23 skýjað
18 þoka
11 skýjað
27 heiöskírt
27 heiðskírt
15 heiðskírt
24 léttskýjað
21 skýjað
21 skýjað
26 heiðskírt
26 skýjað
20 alskýjað
21 rigning
28 skýjað
11 heiöskírt
35 skýjað
10 skýjað
21 rigning
4 iéttskýjað
29 skýjað
24 heiöskírt
10 skýjað
28 heiðskírt
24 skýjað
17 heiðskírt
15 heiðskirt
Þetta gerdist
11. október
197G — Fréttir frá Kína um
handtöku ekkju Maos og þriggja
annarra.
1973 — ísraelskt skriðdrekalið
sækir frá Golan-hæðum til Dam-
askus.
1968 — Hálf milljón manna
heimilislausir eftir fellibyl í Beng-
al.
1962 — Jóhannes páfi XXIII setur
annað Vatikan-þingið.
1933 — Ríki Rómönsku Ameríku
undirrita griðasáttmála í Rio de
Janeiro.
1915 — Brezka hjúkrunarkonan
Edith Cavell tekin af lífi í Brússel.
1899 — Winston Churchill siglir
til Suður-Afríku til að fylgjast
með Búastríðinu fyrir „Morning
Post“.
1871 — Eldsvoðanum mikla í
Chicago lýkur.
1828 — Rússar taka Varna i stríði
við Tyrki.
1797 — Bretar sigra hollenzkan
flota við Holland.
1779 — Póiski aðalsmaðurinn
Cayimlr Pulaski fejlur í orrust-
unni við Savannah, Georgíuríki.
1776 — Bretar sigra nýlenduher
undir forystu Benedict Arnolds
við Champlain-vatn.
Aflnæli. James Barry, enskur list-
málari (1741—1806) — Eleanor
Roosevelt bandarísk forsetafrú
(1884-1962).
Andlát. Ulrich Zwingli, trúarleið-
togi, féll, 1531 — Anton Bruckner,
tónskáld, 1896.
Innlent. d. Þórður kakali Sig-
hvatsson 1256 — f. Hannes Árna-
son 1809 — d. Ari Magnússon í
Ögri 1652 — Almenna verzlunar-
félagið dæmt 1773 — f. Stefán frá
Hvítadal 1887 — d. dr. Páll Eggert
Ólason 1949 — Vilhjálmur Finsen
sendiherra 1960 — Herferð gegn
bruggurum á Akureyri 1934.
Orð dagsins. Yfirleitt eru tvær
tegundir bóka: þær sem enginn les
og þær sem enginn ætti að lesa. —
H.L. Mencken, bandarískur rit-
stjóri (1880—1956).
Horfst í augu
Jimmy Carter Bandaríkjaforseti og Jóhannes Páll páfi annar ræðast við í Hvíta
húsinu síðastliðinn laugardag er þar fór fram viðhöfn vegna heimsóknar páfa til
Bandaríkjanna.
Portisch
enn efstur
Río de Janeiro. 10. okt.. AP — Reuter.
PORTISCH er enn í Tefsta sæti
millisvæðamótsins í Ríó þrátt
fyrir að hann léki ekki er bið-
skákir voru tefldar í dag. Hefur
Portisch hlotið átta vinninga úr
12 umferðum. en næstur honum
er Húbner með 7,5 vinninga.
Undramaðurinn brazilíski,
Jaime Sunye, hlaut 1,5 vinninga úr
tveimur biðskákum og er nú í
3.-4. sæti ásamt Rússanum Vag-
aninan. í 5.-6. sæti eru Petrosian
og Sax, í 7.-8. sæti eru Ivkov og
Shamkovach. Smejkal er í níunda
sæti með 5,5 vinninga og Timman
er 10. með fimm vinninga, en hann
á ótefldar tvær biðskákir.
Er biðskákirnar voru tefldar
urðu úrslit þau að Sunye vann
Velimirovic og gerði jafntefli við
Bronstein. Bandaríkjamaðurinn
Shamkovic vann Smejkal, gerði
jafntefli við Vaganinan, og tapaði
fyrir Ivkov. Timman vann Torre
pg Bronstein vann Harandi frá
Iran. Kagan og Garcia gerðu
jafntefli.
Felldu 22
stjórnar-
hermenn
Tókýó, 10. október. AP.
UPPREISNARMENN úr röðum
Kúrda felldu 22 stjórnarhermenn
í norðvesturhluta írans á mánu-
dag, að því er kínverska frétta-
stofan Hsinhua skýrði frá í dag.
Samkvæmt frásögn fréttamanns
Hsinhua i Teheran gerðu Kúrd-
arnir árás á flokk 72 byltingar-
varða og særðu 10 þeirra, tóku 33
i gislingu, en aðeins sjö komust
klakklaust til búða sinna.
Einnig sagði fréttastofan, að
ofbeldisaðgerðir hefðu brotizt út í
Kúrdabænum Mahabad á laugar-
dag, og þá m.a. verið kveikt í
fjölmörgum verzlunum. Daginn
áður, sagði fréttastofan, gerðu
vopnaðir Kúrdar árás á herstöð-
ina í Mahabad.
Mikið tjón
í fellibyl
Maníla, Filipseyjum,
10. október. AP.
FELLIBYLURINN Sara, sem
stefnir á Víetnam, eykst stöð-
ugt að styrkleika, en hann olli
miklu tjóni á landbúnaðar-
landi og mannvirkjum í mið-
héruðum Filipseyja í dag. Að
minnsta kosti sex manns fór-
ust og uppskera skemmdist
mikið vegna flóða og aur-
skriða.
Fréttastofa Filipseyja sagði
að 30 þorp í Mindoro-héraði
væru illa stödd sökum fæðu-
skorts, og að 3.000 fjölskyldur
myndu svelta í hel ef ekki
kæmi skjót aðstoð til.
Brezhnev forseti Sov-
étríkjanna með kreppt-
an hnefa á lofti í aust-
ur-þýzka þinginu, en
þar flutti forsetinn
ræðu í sambandi við 30
ára afmæli Austur-
Þýzkalands. Við það
tækifæri lýsti Brezhnev
því yfir að Sovétmenn
ætluðu að flytja 20.000
hermenn og 1.000
skriðdreka frá A-Þýzka-
landi.
Jan Mayen málið:
Norðmenn fallast á
frestun viðræðna
Ósló, 10. október. Frá (réttaritara Mbl. Jan-Erik Lauré.
NORSKA stjórnin er reiðubúin að fresta samninKaviðræðum við
íslendinga um Jan Mayen málið, að því er Eivind Bolle sjávarútvegs-
ráðherra skýrði frá i gær. Sagði Bolle að sjálfsagt væri að taka tillit
til þeirra aðstæðna, sem skapast hefðu í ísienzkum stjórnmálum.
Kvaðst hann vona að þess yrði ekki langt að bíða að starfhæf stjórn
tæki við völdum á íslandi og hægt yrði að taka upp samningaviðræður
að nýju.
Ekki snjóað
svo snemma
í tæpa öld
New York, 10. október. AP.
SNJÓR hefur ekki fallið
jafn snemma í næstum öld í
höfuðborg Bandarikjanna,
en er íbúar borgarinnar risu
úr rekkju í dag var
krapahríð og jörð alhvít. 1
öllum norðausturríkjunum
setti niður snjó, þ.á m. í New
York borg.
Yfir sjö sentimetra jafn-
fallinn snjór var í austur-
hluta Vestur-Virginíufylkis
og álíka mikill í Maryland,
New Jersey, New York-fylki
og Connecticut. Af þessum
sökum urðu talsverðar raf-
magnstruflanir og skólum
var lokað. Engin alvarleg
umferðaróhöpp urðu.
Samkvæmt skrám hefur
ekki snjóað jafn snemma
vetrar í Washington D.C.
síðan 1892, en þá féll fyrsti
snjórinn 5. október.
Samar mótmæla orkuframkvæmdum
með hungurverkfalli á lóð Stórþingsins
Ósló, 10. október. Frá Jan Erik
Laure fréttaritara Mbl.
SJÖ Samar eru nú í hungur-
verkfalli í tjaldi fyrir utan
Stórþingið til þess að mótmæla
byggingu orkuvers við Alte-
Kautakeino ána á heimaslóðum
þeirra í Finnmörk.
Samarnir krefjast þess að
þingið láti fyrirhugaðar fram-
kvæmdir til sín taka á ný og taki
þá tillit til réttinda og landeigna
þeirra. Odvar Nordli forsætis-
ráðherra hefur mótmælt kröfum
Sámanna fyrir hönd stjórnar-
innar.
Bygging orkuversins við Alte-
Kautakeino hefur verið mikið
hitamál síðustu mánuði. Er
þingið hafði veitt sitt samþykki
fyrir framkvæmdunum fyrr á
árinu flykktust andstæðingar
versins að ánni og stöðvuðu
vegaframkvæmdir á svæðinu
með því að leggjast fyrir vega-
vinnuvélarnar. Halda þeir enn
fast við iðju sína, en búist er við
að lögreglan muni fjarlægja þá.
Hefur verið stofnaður 500
manna flokkur lögregluþjóna
víðs vegar úr Noregi af þeim
sökum, og verður honum stefnt
til svæðisins þegar dómsmála-
ráðuneytið hefur gefið sitt sam-
þykki.
Hreindýraeigendur á' Alte-
svæðinu hafa rætt við stofnun
þá sem fer með málefni vatns-
raforkuvera í þeim tilgangi að fá
bættan skaða og óþægindi sem
þeir verða fyrir vegna fram-
kvæmdanna. Hafa þeir beðið um
frest fram í desember til að
móta kröfur sínar, en því hefur
stofnunin hafnað og beðið orku-
ráðuneytið um að sjá til þess að
mótmælendur verði reknir af
svæðinu og framkvæmdir hafn-
ar þegar í stað. Búist er við að til
tíðinda dragi í málinu á næstu
dögum.