Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
fllttgmiÞIfifrtfr
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og skrifstofur
Auglýsingar
Afgreiósla
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guömundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aöalstræti 6, sími 10100.
Aöalstræti 6, sími 22480.
Sími83033
Askriftargjaid 4000.00 kr. á mánuöi innanlands.
í lausasölu 200 kr. eintakiö.
Þingrof
strax
vissan í þjóðmálunum er þvílík, að hún hefur
II sjaldan eða aldrei verið meiri. Síðustu misserin
hefur setið við völd ríkisstjórn, sem kunnari er fyrir
giftu- og getuleysi sitt en líklega allir fyrirrennarar
hennar. Á þessum síðustu dögum hefur hún verið að
molna í sundur og nú er svo komið, að kratarnir hafa
gefizt upp. Þeir hafa brugðizt öllum stóru orðunum frá
síðustu kosningum og hanga nú í því eins og Þorgeir
Hávarsson í graðhvannarnjólanum forðum, að þeim
verði allt fyrirgefið, af því að þeir að síðustu höfðu vit á
að hætta, segja þjóðinni eins og er, að þeir hafi ekki
verið og séu ekki menn til að stjórna landinu.
Viðbrögð kommúnista við brotthlaupi krata úr
ríkisstjórninni þurfa engum að koma á óvart. Það sýndi
sig 1958, endurtók sig 1974 og leynir sér ekki nú, að þeir
eru mjög ófúsir á að yfirgefa ráðherrastólana og munu
leita allra ráða til að lafa í þeim sem lengst. Einkanlega
hefur þess orðið vart, að Svavar Gestsson viðskiptaráð-
herra sé í vondu skapi, eftir að slitnaði upp úr
stjórnarsamstarfinu. Og geðillskan er slík, að hann
kvartar nú mest undan því að hafa ekki getað hjálpað
krötum til að koma sínum málum fram í staðinn fyrir
að reyna að standa sig betur sjálfur, meðan hann hafði
tækifæri til.
Ráðherrar kommúnista og raunar framsóknarmanna
líka hafa mörg orð um það, að þjóðin þurfi ábyrga
stjórn, sem þori að marka stefnu í efnahagsmálum.
Ráðherrarnir tala um það, að kjarasamningar séu
framundan, verðbólgan sé að komast upp í 60% og að
við svo búið megi ekki standa. Allt er þetta rétt, — hvert
einasta orð. En þjóðin dregur aðrar ályktanir af þessum
staðreyndum en ráðherrarnir, nefnilega þá, að oft hafi
verið þörf en nú sé nauðsyn að fá nýja ríkisstjórn, sem
þorir að taka á málunum, en sezt ekki í stólana með því
hugarfari að hægt sé að gera allt fyrir alla í sömu
andránni.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt fram þingsályktun-
artillögu um þingrof og nýjar kosningar. Það var
nauðsynlegt, að sú tillaga kæmi fram þegar á fyrsta
degi þingsins til þess að undirstrika, að þetta mál þyldi
enga bið, — einkanlega með hliðsjón af því, að ýmsir
ráðherrar hafa verið með dylgjur um að draga það á
langinn, jafnvel fram eftir öllum vetri. Allar slíkar
tilraunir verður að stöðva í fæðingunni og koma þannig
í veg fyrir, að frekari skemmdarverk verði unnin í
efnahagsmálum þjóðarinnar.
Ovissan í þjóðmálunum er vissulega mikil. Þó er
áreiðanlegt, að engin óvissa er um það, að þjóðin vill fá
að kjósa svo fljótt sem kostur er. Ef það sýnir sig, að
ríkisstjórn Ólafs Jóhannessonar hefur hvorki kjark né
dug til þess að rjúfa þing eins og nú er komið, verður
tafarlaust að mynda nýja ríkisstjórn til þess að gera
það. Og það yrði hægðarleikur, annað eins hefur nú ekki
vafizt fyrir, þótt af minna tilefni sé, enda mætti þá líka
segja, um leið og núverandi ráðherrar hyrfu hljóðlátir
úr stjórnarráðinu, að farið hefði fé betra.
„ Til viðnáms strax, j
voða flýrð þú ei, sem
fœr af alltof langri h
Texti V. Mósebók 32. 7—8, 46—48.
Þessi stef úr hinum svonefndu
Móseljóðum skulu vera í bundnu
máli hin síðustu orð hins mikla
leiðtoga til þjóðar sinnar. Hann sem
um 40 ára bil hafði verið að ferðast
með þeim, séð alla eða flesta þá sem
fullvaxta fóru með honum úr
Egyptalandi andast, utan tvo er
trúðu á framtíðina í hinu nýja landi.
Móse var því maður aldurhniginn og
ellimóður er hann flutti þessi orð.
Hann var baráttumaður þjóðar
sinnar um frelsi hennar í föðurlandi
sínu. Engum manni var meira að
þakka, að Gyðingar urðu sjálfstæðir
á ný og glötuðust eigi í þjóðahafi
Egypta. En Móses komst aldrei til
Kananslands heldur auðnaðist aðeins
að sjá það af fjallatindum. Er hann
finnur dauða sinn nálgast þá talar
hann við hinar tólf ættkvíslir og
blessar þær. Móses brýnir fyrir þeim
hvers virði landið sé til eignar hverri
þjóð, sem auðnast í friði að njóta
auðæfa þess og náttúrugæða.
Lýsingin gæti vel átt við land vort.
Sól og regn, undirdjúpin með sínum
huldu lendum, fjöll og dalir með
sínum víðu gróðurlöndum, árnar með
orku sinni. Allt er þetta með því
dýrmætasta á jörðu hér, því það er
undirstaða þess að maðurinn með
starfi sínu geti haldið við lífi sínu af
því sem hann aflar. En þá er líka
nauðsynlegt að hann eigi köllun
Drottins, eins og Móses sjálfur hlaut
við þyrnirunnann, sem eigi brann, er
honum barst rödd Drottins eins og
þetta væri sjónvarp, sem hann væri
að horfa á. Eða eins og hann vildi
segja, að þeir þyrftu sem þjóð að eiga
mikla og vitra leiðtoga er kynnu að
meta gjafir guðs og kynnu fótum
sínum forráð í viðskiptum við aðrar
þjóðir.
Orð texta vors má segja að séra
Matthías Jochumsson bindi í þessar
ljóðlínur, er hann situr á Oddastað,
höfuðbóli íslenzkrar menningar og
valda um skeið á gullöld íslendinga:
„Ég geng á Gammabrekku
er glóa vallartár
og dimma Ægisdrekku
mér dunar Rangársjár.
En salur Guðs sig sveigir
og signir landsins hring
svo hrifin sál mín segir:
Hér situr drottinn þing.“
Oss er saga Gyðinga kunn, þeir
öðluðust sitt föðurland og áttu
dáðríka menn meðan niðjar þeirra
geymdu sér í minni hörmungar
ófriðarins og arðrán herraþjóðarinn-
ar. Þá mátu þeir frelsið og létu eigi
skjótfenginn gróða villa sér sýn eða
tóku útlend áhrif fram yfir innlend
verðmæti. Mér er það í skýru minni
að fyrir áratugum, er ég hlustaði á
þjóðkunnan prest, heimsborgara,
halda fullveldisræðu 1. desember.
Eitt aðaleinkenni ræðu hans var hve
hann taldi gott, að Islands álar væru
svo djúpir, að þeir væru eigi væðir,
samanber þjóðsöguna um þetta efni.
Hin náttúrulega lega landsins úti í
Atlantshafinu væri því vörn gegn
flóðöldu erlendra áhrifa. Það sem hér
er sagt er byggt á minni mínu. Mér
fannst þetta sem unglingi furðulegt.
Var ekki ein af þrám þjóðar vorrar
að öðlast frjálsræði til að komast í
samband við aðrar þjóðir?
Þetta höfum við öðlast í ríkum
mæli og teljumst nú meðal háþró-
aðra þjóða á sviði lista, vísinda, á
andlega og verklegu sviðunum, einn-
ig í fæðu, klæðum og híbýlakosti.
Hjálp mannsandans hefur orkað á
þetta og gjört land vort því betra sem
liðið hefur á öldina. Leyst úr læðingi
aflgjafa, sem sum hin hlýviðrasöm
lönd og frjósöm eiga ekki. Þá hefur
reynslan orðið sú eftir því sem frelsi
Rœða séra Péturs
Ingjaldssonar
prófasts á Skaga-
strönd við guðs-
þjónustu í Dóm-
kirkjunni í gœr
vort með stjórnarbótum hefur aukizt
þá hafa framfarir og framtak vort
færzt í aukana.
í rauninni hefur þetta verið okkur
hollur skóli, samanber Jónas
Hallgrímsson:
„Vísindin efla alla dáð,
Séra Pétur Ingjaldsson prófast
ur.
Fréttaskýring
Hvad
gerir
Ólafur?
Ólafur Jóhannesson, forsætisráðherra, sagði í
viðtali við Morgunblaðið í gær, að ákvörðunar hans
um næsta leik í stjórnarkreppunni væri í fyrsta lagi
aö vænta í dag, fimmtudag. Þessi dráttur stafaði
meðal annars af því, að í gær færi tíminn til
þingsetningar. Þessi ummæli minna á, aö á
þingsetningardag 10. október 1946 lýsti Ólafur
Thors, forsætisráðherra, því yffir á þingi að þann
sama dag hefði hann beöist lausnar fyrir sig og
ráöuneyti sitt, nýsköpunarstjórnina, og hefði forseti
faliö sér aö starfa áfram uns ný stjórn yröi mynduð.
Um þessa yfirlýsingu ráöherrans uröu engar umræö-
ur á þinginu og sat stjórnin sem starfsstjórn í tæpa
fjóra mánuöi eða til 4. febrúar 1947.
Kostirnir sem Ólafur Jóhannes-
son hefur eru ekki margir.
Hann styöst ekki lengur viö
meirihluta á Alþingi. Stjórn,
sem þannig er komiö fyrir,
getur aöeins sagt af sér og/eöa
rofiö þing og efnt til nýrra
kosninga. Þegar Ólafur stóö
frammi fyrir þessum sama
vanda voriö 1974 valdi hann
þann kost aö rjúfa þing og
boöa til nýrra kosninga.
í viötallnu við Morgunblaðiö í
gær lætur Ólafur aö því liggja,
aö stjórnin geti ekki fyrst beðist
lausnar og síðan rofiö þing.
Þegar Ólafur Thors baöst
lausnar fyrir sig og ráöuneyti
sitt 27. mars 1956 gerðist þaö
fyrir hádegi en kl. 18.00 sama
dag var efnt til ríkisráðsfundar,
þar sem lausnarbeiönin var
endurstaöfest. í lok þess sama
ríkisráösfundar bar forsætis-
ráöherra upp tillögu um þingrof
og nýjar kosningar til Alþingis.
Um leiö og forseti samþykkti
tillöguna mælti hann á þessa
leiö samkvæmt bókun í ríkis-
ráöinu: „Ég felst á tillögu starf-
andi forsætisráðherra, Ólafs
Thors, um aö Alþlngi veröi rofið
frá 24. júní n.k. að telja, og
óska jafnframt bókaö, aö ég
hef fullvissaö mig um í viötölum
viö formenn Sjálfstæöisflokks-
ins, Framsóknarflokksins og
Alþýöuflokksins, aö meirihluti
Alþingis er tillögunni samþykk-
ur.“ Þarna er fordæmi fyrir því,
aö stjórn, sem beöist hefur
lausnar, hefur rofiö þing og
boöaö til nýrra kosninga. Þá
var meirihlutafylgi á Alþingi
fyrir þeirri ákvöröun. Svo er
einnig nú, því aö Alþýöuflokkur
og Sjálfstæöisflokkur krefjast
beinlínis þingrofs og kosninga
og þeir ráða yfir 34 af 60
þingmönnum auk þess sem
Framsóknarflokkurinn segist
ekki munu standa í vegi fyrir
ákvöröun um þetta efni. Á
fyrsta degi Alþingis í gær lögðu
þeir Geir Hallgrímsson og
Gunnar Thoroddsen fram til-
lögu til þingsályktunar um þing-
rof og nýjar kosningar.
XXX
Miöaö viö þá stööu, sem nú er
risin, er eðlilegast, að forsætis-