Morgunblaðið - 11.10.1979, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
Listavika Norr-
æna hússins:
Tvísöngs-
tónleikar
Ijóða-
söngvara
Á NORRÆNU listahátíðinni í
Norræna húsinu í kvöld er á
dagskrá tónleikar Else Paaske og
Erland Hagegaard við undirleik
Friedrich Gurtler. Else er talin
ein bezta söngkona Danmerkur og
hefur hún gefið sig sérstaklega að
ljóðasöng. Sænski tenórinn Er-
land Hagegaard hefur starfað sem
óperusöngvari í Þýzkalandi s.l. 10
ár, en hann hefur ennfremur
sungið sænska rómansa og ljóða-
söngva. Þau Else sungu fyrst
saman á tvísöngstónleikum fyrir
tveimur árum.
Skóladagheimilið viö Völvufell. Myndir: ól.K.M.
Um 130 börn á 6 skóla-
dagheimilum í Reykjavík
OPNAÐ hefur veriö nýtt skóla-
dagheimili í Reykjavík og er
þáö til húsa við Völvufell. Hús-
næöiö er hannaö sérstaklega
meö starfsemi skóladagheímilis
fyrir augum og voru arkitektar
Guömundur Kr. Guðmundsson
og Ólafur Sigurösson.
Geröur Steinþórsdóttir for-
maður félagsmálaráös Reykja-
víkur ávarpaöi gesti viö athöfn í
skóladagheimilinu og sagöi hún
m.a. aö þaö sem einkenndi
starfsemi skóladagheimila og
slíkra heimila væri skortur á
karlmönnum viö störf á þeim. Þá
lauk Gerður lofsoröi á þátt Fé-
lags einstæöra foreldra í þessum
málum, en félagið lagöi fyrsta
áriö sem heimili af þessu tagi var
starfrækt í Reykjavík, til hús-
næöi, sem félagiö haföi fengiö
lánaö, en Reykjavíkurborg sá um
tæki og rekstur. Síöar keypti
borgin umrædda húseign.
Sveinn Ragnarsson félagsmála-
stjóri kynnti starfsemi heimilisins
fyrir gestum en skóladagheimili
er dagvistarstofnun fyrir börn á
aldrinum 6—10 ára þar sem þau
geta dvalið þann hluta dagsins
sem þau eru ekki í skóla. Oþna
heimilin kl. 7.45 og geta börn
dvalið þar til kl. 17.30 og fá þar
máltíðir og aöstööu til heima-
náms ef óskaö er.
Fyrsta skóladagheimili á veg-
um Reykjavíkurborgar, Skóla-
dagheimiliö að Skipasundi 80,
var opnaö í janúar 1971, en
tillögur um rekstur komu frá
nefnd skipaöri fulltrúum frá Fé-
lagsmálastofnun Reykjavíkur,
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkur og
Félagi einstæðra foreldra. Nú
rekur dagvistardeild Félagsmála-
stofnunarinnar 6 slík heimili aö
meðtöldu heimilinu við Völvufell
og dvelja þar jafnan 128 börn.
Um þessar mundir er unniö aö
undirbúningi útboös á nýju
skóladagheimili viö Blöndu-
bakka.
Verktaki meginhluta verks var
Gunnar Þórisson og umsjón meö
byggingunni af hálfu Reykja-
víkurborgar var í höndum Bygg-
ingardeildar borgarverkfræð-
ings.
Skóladagheimilisdeild þessi er
hluti af stærra heimili, dagheimil-
inu Völvuborg, sem er 3ja deilda
dagheimili á samliggjandi lóö.
Skóladagheimiliö er því í stjórn-
unarlegum tengslum viö Völvu-
borg og fær mat sendan frá
eldhúsi Völvuborgar. Forstööu-
kona Völvuborgar er Selma
Þorsteinsdóttir og deildarfóstra
skóladagheimilisdeildar Elín
Pálsdóttir.
Formaður bæjarstarfsmannaráðs BSRB:
Else Paaske
Erland Hagegaard
„Að treysta varlega fagurgala og yf-
irboðum óábyrgra stjómmálamanna”
BÆJARSTARFSMANNARÁÐ
BSRB var kjörið í fyrsta skipti á
ráðstefnu bæjarstarfsmanna
BSRB í fyrradag og var Þórhall-
ur Halldórsson kjörinn formaður
sjömannaráðs. Stofnun bæjar-
starfsmannaráðs BSRB hefur
verið í deiglunni undanfarin ár.
Mbl. spurði Þórhall um hlutverk
ráðsins.
„Það er að fylgja eftir sam-
þykktum bæjarstarfsmannaráð-
stefnu og afgreiðsla á erindum,
sem því berast frá félögunuin.
Annast upplýsingamiðlun milli
bæjarstarfsmannafélaga og stuðla
að samvinnu á milli þeirra.
Vera ráðgefandi aðili gagnvart
stjórn BSRB varðandi málefni
bæjarstarfsmanna. Einnig álykt-
unaraðili um sömu mál.
Vinna að skipulagsmálum bæj-
arstarfsmanna.
Boðun og undirbúningur bæjar-
starfsmannaráðstefnu.
Með þessari skipulagningu ætti
að skapast möguleiki til að auka
samstarfið milli bæjarstarfs-
mannafélaganna, standa betur
vörð um hagsmuni þeirra og þá
yrst og fremst um samningsrétt-
inn.“
„Hvernig metur þú stöðuna í
kjaramálum?"
„Stöðunni í kjaramálum verður
ef til vill bezt lýst með yfirlýsingu
hagfræðings BSRB, Björns Arn-
órssonar, sem hann gaf á bæjar-
málaráðstefnunni í gær, að samn-
ingar opinberra starfsmanna
hefðu aldrei, frá upphafi gildis-
töku þeirra, verið jafn fjarri því
að vera í gildi en einmitt nú. Þessi
dómur er kveðinn upp sama dag-
inn og sú ríkisstjórn, sem lofaði
Skólafundur í MH
mótmælir vinnubrögð-
um nemendaráðs
Landssími íslands Gjðld:
sImskeyti Sent
and* nemtíndaxela," menntaskolans vi<"< hnmrahlió Kl.
i/ V'
■ dmar akeytið, ef Áatasða þykrr til - "
NR.*J / U j C%ORÐ: DAGS. 19 1 KL. ; -
■,£C /gf.ÁÍ
x'undur herBtöSvaandsteöinra 1 nkjartorri 29/j) 1979'
r
sendura barattukyeðjur, burt meó kuguníirtnki audvali.’sin::
islund úr natú herinn ’burt li.fi byltingin
nemendaráð mennt::skolans við bamrahlíð
Skeyti þaö sem nemendaráö Menntaskólans viö Hamrahlíö sendi
útifundi herstöövaandstæöinga, en var ekki í samræmi viö fund
ráösins daginn áður.
VERULEGAR væringar hafa
undanfarna daga staðið í
Menntaskólanum í Hamrahlíð,
en upphaf þessa var samþykkt
nemendaráðs skólans 28. sept-
ember sl. Þar var samþykkt
með 9 atkvæðum gegn 5 að
senda símskeyti á fund her-
stöðvaandstæðinga á Lækjar-
torgi daginn eftir. Hljóðan
skeytisins átti að vera: „ísland
úr NATO. herinn burt“.
Slíkt skeyti var þó aldrei sent
á fyrrnefndan fund þar sem
hluti meirihlutans breytti skeyt-
inu aigjörlega og skeytið sem
sent var líktist ekki þeirri
kveðju, sem nemendaráð hafði
samþykkt að sent yrði. Þessu
undu nemendur ekki og nokkrir
þeirra tóku sig til og söfnuðu
undirskriftum á veggspjald eitt
mikið, sem hengt var upp í
anddyri skólans. Þar var því
mótmælt, að nemendaráð skól-
ans tæki afstöðu í pólitískum
málum. 205 nemendur skrifuðu
undir veggspjaldið.
Þeir sem stóðu aö skeytinu
tóku sig þá til og hengdu annað
spjald upp í anddyrinu, þar sem
segir, að það sé í verkahring
nemendaráðs að gera sitt til að
koma her úr landi og berjast
fyrir úrsögn úr Atlantshafs-
bandalaginu. 153 nemendur skól-
ans skrifuðu nöfn sín á þetta
spjald.
Á skólafundi í gær var meðal
mála svohljóðandi tillaga:
„Skólafundur haldinn 10.10 1979
mótmælir því harðlega að meiri-
hluti nemendaráðs skuli í nafni
nemendaráðs M.H. senda bar-
áttukveðjur til fundar her-
stöðvaandstæðinga 29. septem-
ber síðastliðinn. Þannig sé nafn
nemendaráðs misnotað.
Skólafundurinn lýsir jafn-
framt þeirri skoðun sinni að það
sé ekki hlutverk nemendaráðs að
taka afstöðu tii pólitískra deilu-
mála í landinu."
Þessi tillaga var samþykkt
með yfirgnæfandi meirihluta,
eða 66 atkvæðum gegn 29. Þess
má geta að þeir 9 sem mynduðu
meirihlutann í nemendaráði á
fundinum 28. september, fóru
allir í einu í ræðustól í gær, eh
viðbrögð fundarins voru aðeins
hávært baul.
%
samningunum í gildi, hrökklast
frá völdum.
Staðreynd er að nú vantar
a.m.k. 10—15% upp á að kaup sé
greitt samkvæmt gerðum kjara-
samningi 1977, og eiga því vel-
flestir opinberir starfsmenn inni,
milli 40—60.000 kr. á mánuði, hjá
þeim sem lofuðu samningunum í
gildi. Launþegar ættu því að vera
reynslunni ríkari og treysta í
framtíðinni varlega fagurgala og
yfirboðum óábyrgra og getulausra
stjórnmálamanna."
í bæjarstarfsmannaráðinu eru
auk Þórhalls, sem einnig er I.
varaformaður BSRB, Agnar Árna-
son Starfsmannafélagi Ákureyrar,
Albert Kristinsson Starfsmanna-
félagi Hafjarfjarðar, Arnór Sig-
urðsson Starfsmannafélagi
Reykjavíkurborgar, Helgi Andrés-
son Starfsmannafélagi Akraness,
Oddur Pétursson frá Félagi opin-
berra starfsmanna á Vestfjörðum
og Svanlaug Árnadóttir Hjúkrun-
arfélagi íslands.