Morgunblaðið - 11.10.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
31
Annasamt hjá Snæ-
fellsnesbílunum
RÚTAN er komin til Stykk-
ishólms með póst og farþega.
Hún kemur við á hverjum
degi í Hólminum og tvisvar á
dag alla daga nema iaugar-
daga og sunnudaga. Endastöð
hennar er Grundarfjörður.
Hún fer á mánudögum til
föstudags frá Reykjavík kl. 9
árdegis, en á laugardögum kl.
1 e.h. Suður til Reykjavíkur
fer hún frá Stykkishólmi
mánudaga til föstudags kl. 6
e.h. og eins á sunnudögum á
sama tíma. Alla daga fer hun
einnig til Grundarfjarðar svo
ferðir milli Grundarfjarðar og
Stykkishólms eru 6 sinnum í
viku hverri. Mikið hefir verið
að gera hjá „rútunni" í sumar,
en hún er rekin á vegum
Hópferða Helga Péturssonar
og eru það 4 synir hans sem
allan veg og vanda hafa af
rekstrinum. Farþegar eru mun
meiri en í fyrra enda stenst
rútan áætlun og er milli 4—5
stundir á leiðinni frá
Reykjavík til Stykkishólms og
svo öfugt.
Helgi Pétursson var lengi
bóndi í Gröf í Miklaholts-
hreppi, en þegar áætlunar-
ferðir hófust hingað á Nesið
byrjaði hann í smáum stíl og
með ötulleik og áræði óx
reksturinn og nú er þetta eina
rútan á Snæfellsnes. Helgi lést
Athugasemd við
frétt um Grunn-
skólann á Hellu
Fyrst Jón Þorgilsson, frétta-
ritari Mbl., sveitarstjóri og skóla-
nefndarformaður með meiru á
Hellu telur sér sæma að reyna að
gera Hellu að annarri Grindavík,
sé ég mig tilneydda að gera
nokkrar athugasemdir. Hér hafa
undanfarin ár verið tíð kennara-
skipti til mikils baga fyrir allt
skólahald. Vorið 1978 var þó orðin
viss festa í kennaramálum og
virtust flestir starfandi kennarar
við skólann vilja gegna störfum
hér áfram, enda ekki annað vitað
en þeir ynnu störf sín óað-
finnanlega. En þetta sumar var
kjörin ný skólanefnd. Nú skyldi
hreinsað til í kennaraliði skólans.
5 réttindalausir kennarar sem hér
höfðu starfað, sóttu um endur-
setningu. En nú átti að ráða
kennara með réttindi, væntanlega
í stað þeirra allra og auglýst af
krafti fram á haust. Þegar upp var
staðið höfðu fjórir af þessum
réttindalausu kennurum verið
endurráðnir, þ.e.a.s. Anna
Margret Jafetsdóttir, stærðfræði-
kennari, Margret Haraldsdóttir,
eðlis- og líffræðikennari, Sigurður
Haraldsson smíðakennari og
Sigrún Bjarnadóttir handavinnu-
kennari. Auk þess voru 2 kennarar
ráðnir með réttindi, og nýút-
skrifaður stúdent í stað
Guðmundar Albertssonar ís-
lenskukennara, sem hér hafði
kennt í 4 ár. Guðmundur var síðan
ráðinn kennari að Laugalandi í
Holtum. Ekki var hann lakari
kennari en það, að Holtamenn
sóttu fast að fá hann aftur til
kennslu í vetur. Menntun
Guðmundar er þann veg háttað að
hann er stúdent, hefur kennt í 5 ár
og sótt námskeið og bréfaskóla í
íslensku öll þessi sumur. Nú er
hann í réttindanámi sem veitir
honum full kennsluréttindi innan
skamms. Kona hans, Þórdís
Þórðardóttir, er ekki réttindalaus
eins og látið er í veðri vaka. Hún
er fóstra og hefur því réttindi til
að kenna við 6 ára deildina eins og
hún hefur gert. í sumar átti svo að
hafa vaðið fyrir neðan sig. Aug-
lýst var eftir kennurum, en á
fyrsta skólanefndarfundi í júní
höfðu aðeins borist umsóknir frá
starfandi kennurum hér ásamt
Guðmundi Albertssyni og 2 öðrum
réttindalausum. Skólanefndar-
formaður lýsti fjálglega yfir
nauðsyn þess að fá fólk með full
réttindi að skólanum og var sam-
þykkt með 2 atkvæðum gegn 1 að
auglýsa aftur. Gengið var frá
umsóknum starfandi réttinda-
kennara við skólann ásamt minni
umsókn, sem á einhvern dular-
fullan hátt hlaut 3 atkvæði, þótt
hún væri aldrei borin undir
atkvæði. Skilji það svo hver sem
getur. Má geta þess að einn
þessara réttindakennara fékk
aðeins atkvæði skólanefndar-
formanns, en ég hef ekki séð neinn
fetta fingur út í það, að hann væri
settur. Nú var auglýst aftur og
umsóknarfrestur til 12. júní. Ekki
var hlaupið til að halda fund að
fresti loknum, heldur dregið þar
til Menntamálaráðuneytið taldi
rétt að ýta við skólanefnd. Á
skólanefndarfundi komu fram í
viðbót við þær sem áður eru
nefndar, umsóknir frá Önnu B.
Saari frá K.H.Í., með líffræði sem
aðalgrein, Borgþóri Magnússyni
líffræðingi (án uppeldisfræði — er
það ekki einhversstaðar talið
skortur á réttindum?) og konu
hans Sigurlaugu Höskuldsdóttur
frá K.H.Í. með handavinnu sem
aðalgrein. Nokkrar umsóknir voru
þar frá stúdentum. Umsóknir
Borgþórs og konu hans voru ekki
ritaðar af þeim sjálfum, heldur
skólanefndarformanni. Ekki voru
þær dagsettar, enda hafði skóla-
nefndarformaður haft svo mikið
fyrir þegar útséð var um umsóknir
frá réttindakennurum að hann
hringdi til Aberdeen þar sem þau
hjón voru við nám til þess að biðja
þau að bjarga við skólahaldi á
Hellu, þar sem hér væri tilfinnan-
legur kennaraskortur. Við
atkvæðagreiðslu féllu atkvæði á
þá lund að Anna B. Saari, Borgþór
Magnússon og Sigurlaug
Höskuldsdóttir fengu 2 atkvæði,
Guðmundur Albertsson, Þórdís
Þórðardóttir og Margrét Haralds-
dóttir 1 og Sigurður Haraldsson
og Sigrún Bjarnadóttir 3 atkvæði.
Ekki upplýsti skólanefndar-
formaður það á fundinum að
Sigurlaug er handavinnukennari
með kennararéttindi, er kannski
ekkert nauðsynlegt að handa-
vinnukennarar hafi réttindi?
Skólanefndarformaður mælti sem
sagt með, að ráðnir yrðu 2 handa-
vinnukennarar og 2 sérmenntaðir
kennarar í líffræði að skólanum,
þótt hann vissi eins og aðrir að
okkur vantaði íslenskukennara.
Einn skólanefndarmanna benti
formanni á að skv. reglugerð á
skólanefnd að mæla með
kennurum til vara, ef fjöldi um-
sókna leyfir, en formaður kvað
enga þörf á slíku og sleit fundi.
Málalok urðu síðan þau, að Anna,
Guðmundur og Þórdís ásamt
starfandi handavinnukennurum
hlutu setningu. Þar með
vonuðumst við til að fá vinnufrið
fyrir skólanefndarformanni, en sú
varð ekki raunin. Vil ég taka fram
að skólastarf fór mjög vel af stað
nú í haust og held ég mér sé óhætt
að mæla þar fyrir munn þeirra,
sem hér kenndu í fyrra og nú að
þar á sé mikill munur.
Anna Margrét Jafetsdóttir,
fulltrúi kennara i skólanefnd.
: ■ ■ ;
fyrir nokkrum árum í blóma synir hafa síðan haldið veg-
lífs og var að honum mikill lega uppi merkinu.
sjónarsviftir. Kona hans og Fréttaritari.
Ný bók
Vettvangur
dagsíns
40 ritgeröir
eftir Halldór
Laxness
Kvikmyndasagan,
Paradísarheimt
komin í tveim nýjum
útgáfum.
Lesiö Paradísarheimt
áöur en hún birtist á
tjaldinu.
Helgafell.
VESTURÞÝSKIR ÚRVALS SKÓR.
MARGAR GERÐIR.
HERRADEILD
K J A
AUSTURSTRÆTI 14
MARLIN-TOG
NÆLON-TÓG
LANDFESTAR
BAUJUSTENGUR:
BAMBUS-, PLAST
OG ÁL-STENGUR
ENDURSKINSHÓLKAR
RADARSPEGLAR
BAUJULUKTIR
LÍNU- OG NETABELGIR
BAUJUBELGIR
ÖNGLAR — TAUMAR
MÖRE-
NETAHRINGIR
LÍNU- OG NETADREKAR
BAUJUFLÖGG
FISKKÖRFUR
FISKSTINGIR
FLATNINGSHNÍFAR
FLÖKUNARHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
SVEDJUR
STÁLBRÝNI
TIL
SÍLDARSÖLTUNAR:
SÍLDARHÁFAR
SÍLDARGAFFLAR
DÍXLAR
DRIFHOLT
STÚKRÓKAR
LYFTIKRÓKAR
BOTNAJÁRN
LAGGAJÁRN
TUNNUSTINGIR
TUNNUHAKAR
MERKIBLEK
PÆKIMÆLAR
GJARÐAHNOD
PLASTKÖRFUR
SÍLDARHNÍFAR
SKELFISKAGAFLAR
BEINAGAFFLAR
ÍSSKÓFLUR
SALTSKÓFLUR
SNURPUVÍR
400 FM. 3“—3V4“
TROLLVÍR
300 FM. 11/2“—2V2“
VÍRMANILLA
STÁLVÍR
ALLSKONAR
BENSLAVÍR
SLEPPIKRÓKAR
SNURPUHRINGIR
6, 7 OG 8 KG
SNURPINÓTABELGIR
GÚMMÍSLÖNGUR
V2“—2“
LOFTSLÖNGUR
PLASTSLÖNGUR
• SLÖNGUKLEMMUR
TVISTUR
HVÍTUR, MISLITUR
í 25 KG. BÖLLUM.
Sími 28855