Morgunblaðið - 11.10.1979, Síða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
Ot m
„íslenzk fyrirtæki”
komin á markaðinn
Nýjung:
Lítra PEPSI
á markaðinn
SANITAS h.f. hóf nýlega fram-
leiðslu á Pepsi i 1 litra flöskum og
er það nýjung hér á landi. —
Ragnar Birgisson framkvæmda-
stjóri sagði i samtali við Morgun-
blaðið að þessi nýjung væri sett á
markaðinn til að keppa við Coca
Cola. Það hefði borið mikið á því að
fólk spyrði eftir Pepsi í lítraflösk-
um og væri augljóst að markaður
fyrir stærri einingar væri vaxandi.
Sanitas er þegar með Seven
Up-Iitra flöskur í framleiðslu.
Ragnar sagði að þeir hefðu samið
við fyrirtæki í Portúgal um fram-
leiðslu á flöskunum. Flöskurnar
væru ekki með límmiða eins og
minni flöskurnar af Pepsi heldur
væru allar upplýsingar inngreyptar í
flöskuna, sem sjálf væri formfögur.
Aðspurður um frekari nýjungar
fyrirtækisins sagði Ragnar að í
bígerð væri að koma svaladrykknum
MIX á markað hér á Stór-Reykjavík-
ursvæðinu, en það hefur til þessa
verið framleitt á Akureyri fyrir
markaðinn þar nyrðra.
UPPSLÁTTARBÓKIN íslenzk
fyrirtæki er nú komin út i tíunda
sinn, en það er Frjálst framtak
sem gefur hana út. Hér er um
nokkurs konar afmælisútgáfu að
ræða og sögðu forráðamenn fyr-
irtækisins, að bókin hefði verið
endurbætt verulega frá þvi í
fyrra og er hún nú 932 blaðsiður
að stærð, og mætti ætla að aldrei
hafi áður birst jafn yfirgrips-
miklar upplýsingar um íslenzk
fyrirtæki, félög og stofnanir.
í Islenzkum fyrirtækjum eru
upplýsingar, sem gerðar eru í
samráði við forráðamenn fyrir-
tækja og eru svo unnar í tölvu
Frjáls framtaks. Að sögn útgef-
enda er það þeirra álit, að slík bók
verði ekki unnin á annan hátt eigi
hún að uppfylla kröfur notenda,
enda sé um að ræða flókna flokk-
un mikils magns upplýsinga úr
aðalskrá í hliðarskrá, svo sem
viðskiptaskrá og umboðsskrá.
íslenzk fyrirtæki inniheldur
upplýsingar um öll starfandi fyr-
irtæki á Islandi, svo og félög og
stofnanir. Bókinni er skipt niður í
aðalskrá, viðskipta- og þjónustu-
skrá, umboðaskrá og útflytjenda-
skrá. Þá eru upplýsingar og leið-
beiningar á ensku fyrir erlenda
viðskiptaaðila og dagbók þar sem
er að finna upplýsingar um kaup-
stefnur og vörusýningar.
I aðalskrá eru margvíslegar
upplýsingar um öll fyrirtæki svo
sem nafn, heimilisfang, símanúm-
er, nafnnúmer, söluskattsnúmer,
telexnúmer, stofnár, stjórn,
stjórnendur, helztu starfsmenn,
starfsmannafjölda, starfssvið,
umboð og fleira.
Viðskipta- og þjónustuskráin er
eina skrá sinnar tegundar, sem
nær yfir bæði höfuðborgarsvæðið
og landsbyggðina. Þar eru skráðir
framleiðendur og seljendur um
ÍSLENSK
FYRIRTÆKI
1979
UPPSLÁTTARRIT FYRIR
FYRIRTÆKI FÉLÖG
OG STOFNANIR
ICELANDIC
FIRMS
1979
OIRECTORY OF FIRMS
ASSOCIATIONS AND
INSTITUTIONS
IMPORTERS— EXPORTERS
tvö þúsund vöru- og þjónustu-
flokka.
Umboðsskráin er að sögn for-
ráðamanna útgáfunnar ítarleg-
asta umboðsskrá sem gefin hefur
verið út hér á landi. Þar er
erlendum vörumerkjum og fyrir-
tækjanöfnum raðað í stafrófsröð
með upplýsingum um umboðs-
menn á Islandi. Ritstjóri íslenzkra
fyrirtækja er Halldór Valdimars-
Forsiða „íslenzkra fyrirtækja“.
VIÐSKIPTI - EFNAHAGSMAL - ATHAFNALÍF
Umsjón: Sighvatur Blöndahl
Flugleiðir loka
ekki i New York
í NÝ0TKOMNUM Félagspósti
Flugleiða segir að enginn fótur
sé fyrir sögusögnum um að flug-
afgreiðslu Flugleiða á Kennedy-
flugvelli í New York verði lokað
Framleiðendur og seljendur húsgagna- og innréttinga í VÍ:
35% innborgunarskylda á
húsgögnum verði afnumin
um næstu áramót og Pan Am
taki við allri afgreiðslu.
Þá kemur ennfremur fram að
engar frekari fækkanir á starfsliði
standi þar fyrir dyrum, aðrar en
þær sem til framkvæmda komu í
síðasta mánuði.
í Félagspóstinum kemur einnig
fram að sú breyting hafi verið
gerð á vetraráætlun félagsins til
útlanda, að áætlunarflug til Fær-
eyja leggist niður. Flug til Gauta-
borgar verður einnig lagt niður og
starfsemi félagsins þar endur-
skoðuð.
VERZLUNARRÁÐ íslands gekkst
nýlega fyrir fundi um innborgun-
arskyldu á húsgögnum, en eins og
kunnugt er, er innflytjendum hús-
gagna og innréttinga gert að greiða
35% al fob-vcrði vöru á reikning í
Seðlabanka íslands til þriggja mán-
aða. Til fundarins voru boðaðir
fulltrúar húsgagna- og innrétt-
ingaframleiðenda- og seljenda. er
aðiid eiga að Verzlunarráðinu.
Á fundinum var lögð fram ítarleg
greinargerð um innborgunarskyldu,
þar sem fjallað var um slíkar reglur
á fræðilegum grundvelli, auk þess
sem fjallað var um notkun þeirra hér
á landi. Var bent á , að sérfræðingar
teldu beitingu innborgunarskyldu
ekki æskilega og að áhrif slíkra
aðgerða væru yfirleitt mun minni en
menn ætluðu vegna utanaðkomandi
aðstæðna. Væri innborgunarskylda
því yfirleitt ekki til gagns, en flækti
aftur á móti gjaldeyriskerfið og gerði
innflytjendum og að ýmsu leyti
framleiðendum erfitt fyrir. Var einn-
ig bent á, að innborgunarskyldu væri
engan veginn hægt að kalla varan-
lega lausn á vandamálum húsgagna
og innréttinga, nema síður væri.
Fundarmenn lýstu sig í meginatr-
iðum sammála efni þessarar greinar-
gerðar. Bentu þó fulitrúar úr hópi
framleiðenda á, að ýmsir þeirra teldu
aðgerð sem þessa sér til gagns, að því
gefnu, að til kæmu stórauknar ráð-
stafanir til að gera iðnfyrirtækjum
kleift að stunda endurskipulagningu
og hagræðingu í rekstri. Þetta hefði
hins vegar ekki gerzt og væru því
forsendur fyrir þessum innborgun-
arreglum brostnar. Yar bent á, að
svokallað 6% jöfnunargjald hefði átt
að renna til iðnaðarins í þessu skyni,
en aðeins lítill hluti þess hefði skilað
sér, og horfur væru á, að ríkissjóður
myndi fljótlega taka allt það fjár-
magn til sín.
Á fundinum var svo samþykkt
eftirfarandi ályktun:
„í ársbyrjun var innflytjendum
húsgagna og innréttinga gert að
greiða 35% af verðmætum slíks
innflutnings á bundinn reikning í
Seðlabankanum. Þessar innborganir
eru bundnar í 3 mánuði og bera nú
27% vexti. Er ætlunin, að þessi
innborgunarskylda gildi til ársloka
1980.
Strax í upphafi var ljóst, að þessi
aðgerð var fáum til gagns og flestum
til skaða. Ástæðan er sú, að mörg
fyrirtæki eru með blandaðan rekstur
og enn önnur flytja inn ýmsa hluti,
ýmist hálf- eða fullunna, til sinnar
framleiðslu, sem greiða verður af
aðf lutningsgj öld.
í ítarlegri greinargerð, sem Verzl-
unarráð Islands hefur tekið saman,
kemur greinilega fram, hversu
óæskileg slík innborgunarskylda er.
Hún vinnur jafnvel gegn hagsmun-
um þeirra, sem henni er ætlað að
hjálpa.
Framleiðendur og seljendur hús-
gagna og innréttinga í Verzlunarráöi
Islands skora því á ríkisstjórnina að
afnema þessa innborgunarskyldu í
áföngum fyrir næstu áramót. Jafn-
framt vill fundurinn hvetja til þess,
að mörkuð verði uppbyggjandi at-
vinnustefna, sem skapar innlendum
atvinnurekstri stöðugt verðlag,
raunhæfa gengisskráningu, hóflega
skattlagningu, eðlilegan aðgang að
fjármagni og frjálsa verðmyndun."
Nýting...
FARÞEGANÝTING í innan-
landsflugi Flugleiða fyrstu
átta mánuði ársins var 65,6%
og hleðslunýting 60,6%. Á
sama tíma á síðasta ári var
farþeganýtingin 65,0% og
hleðslunýting 59,5%.