Morgunblaðið - 11.10.1979, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
37
, ' ' ' st
Guðrún Vigiúsdóttir vefnaðarkennari og Þorbjörg
Bjarnadóttir skólastjóri.
konur komu frá Patreksfirði og
voru á þriggja daga námskeiði í
glóðarsteikingu, smurðu brauði og
smáréttum. Um áramót verða svo
hússtjórnarnámskeið eins og
venjulegur húsmæðraskóli.
— Hafið þið einhverja sam-
vinnu við hina skólana?
— Já, nemendur Menntaskól-
ans geta tekið matreiðslu, vefnað
og fatasaum sem valgrein og fá
það metið eins og önnur fög. Svo
kennum við eftir þörfum nemend-
um úr gagnfræðaskólanum. Með
allri þessari kennsiu er skólinn í
toppnýtingu.
Hefur uppeldisleg áhrif.
Guðrún Vigfúsdóttir ræður
ríkjum í vefstofu skólans, og tekur
á móti blm. bráðhress með 34 ár
að baki við vefnaðarkennsluna:
— Þetta er alltaf jafn spenn-
andi, við erum með 18 kvölda
námskeið og menn geta unnið úr
eigin hugmyndum.
SpUrð um hvort karlkynið
stundaði þetta:
— Ég held að karlmenn ættu að
sinna þessu meira, hér áður voru
það karlmenn sem unnu að vefn-
aði fyrir heimilin, konur aftur á
móti stunduðu listvefnað, það er
gaman að fá karlmenn líka eða
blandað.
— Nú er vefnaður dálítið sér á
parti?
— Já, þetta hefur uppeldisleg
áhrif, það fylgist að hugur og hönd
og lögð er áherzla á vandvirkni og
að eigið ímyndunarafl njóti sín í
verkinu.
Ég hef verið við þetta í 34 ár og
þetta heldur mann síungum, það
eru óendanlegir möguleikar að
raða litum og fjölbreytnin er mikil
í stíl og munstri.
Blm. kvaddi Guðrúnu og vefstól-
ana í Húsmæðraskólanum Ósk
með lotningu þeirri sem heyrir til
þess menn ekki skilja en skynja
fremur sem taufr.
F.H.
Iðnskólinn
er ekki kjördæma-
pólitískt ævintýri
Valdimar Jónsson tæknifræðing-
ur er skólastjóri Iðnskólans á
ísafirði. Á myrku september-
kvöldi Ieit undirritaður inn til
þeirra Ásdísar en þau búa í
Verkstjórahúsinu niðrá Tanga.
— Það er að sumu leyti gaman
að þvi að vera út i provinsinu. Ég
kom hingað vestur fyrir fjórum
árum. Það kemur dálítið flatt
upp á mann hvað maður virðist
skipta miklu máli á köflum.
Þetta hljómar kannski broslega,
en maður hefur þetta á tilfinn-
ingunni öðru hvoru og það er
mjög þægilegt. En þessi nálægð á
milli fólks hefur sína ókosti líka
á svona stöðum, en ég held að
kostirnir séu meiri. Þó eru nátt-
úrulega fljót að skipast veður í
lofti, annað hvort eru svona
hlutir mjög góðir eða þá slæmir,
það má gera ráð fyrir því. Það
skiptir iika miklu máli hvað
menn fást við og hverja þeir
umgangast. Ég umgengst til
dæmis ákveðinn sektor, unglinga
og yngra fólk, þetta er yfirleitt
heiðarlegt fólk og óskemmt.
— Iðnskólinn er ekki fyrirferð-
armikil stofnun á ísafirði, það
væri fróðlegt að vita á hvaða róli
hann er núna?
— Við erum hér með hefðbund-
inn iðnskóla, sem er kannski
hættur að vera hefðbundinn vegna
þess að það eru að koma svo víða
verknámsskólar svo að þetta er
sem sé bóklegt iðnnám. Svo erum
við með nokkuð öflugan vélskóla
þar sem hægt er að taka þrjú stig
af fjórum stigum vélstjórnarrétt-
inda. Og ég held ég fari rétt með
það að þetta er eini skólinn sem er
með þriðja stigs vélstjórnarnám
utan Reykjavíkur. Þá er stýri-
mannaskóli, fyrsta stig sem veitir
120 tonna skipstjórnarréttindi og
svo loks teiknaraskóli, sem verið
hefur vinsæll á undanförnum ár-
um, þó það sé farið að draga úr því
núna. Það er sko ekki hægt að
stunda það að útskrifa tíu tækni-
teiknara hér á ári. Annars er
gríðarlegur skortur og hefur verið
á námsframboði fyrir kvenfólk.
Eini raunhæfi valkosturinn hefur
verið Menntaskólinn og það er
náttúrlega valkostur sem ekki
hentar öllum. Þetta er ákaflega
mikill ljóður en þetta er kannski
braut sem ætluð er kvenfólki og
eykur í raun þetta námsframboð.
— Meistarakerfið er þá hér enn
í fullum blóma?
— Já, skólinn er ekki í þeirri
aðstöðu í dag að geta hafið
verknámskennslu, í öllum helztu
greinum. Það er hins vegar stutt í
það að hægt sé að vera með
verknámskennslu í málmiðnaði,
þó hef ég talið rétt að standa ekki
í því brambolti meðan maður á
fullt í fangi með að halda úti
tiltölulega flóknu appírati sem
skólinn er í þeirri mynd sem hann
er þegar. Ég er nú ekki brattari en
það, ég þykist hafa fullt í fangi
með þetta í þeirri aðstöðu sem við
erum. Ástæðan fyrir því að ekki er
drifið í þessu er alis ekki sú, að
það sé gott fyrir nema að komast á
samning í smiðju. Það stendur
bara þannig á núna rétt í svipinn,
að það er sennilega nokkuð gott,
alla vega vantar skipasmíðastöð-
ina nema á samning að því er ég
bezt veit. En meginreglan í þessu
Valdimar Jónsson skóla-
stjóri.
er sú, að það er erfitt fyrir
iðnnema að komast á samning.
— Sérðu einhverja glætu í
frumvarpinu um samræmdan
framhaldsskóla?
— Já, ég held að allir þeir sem
að Iðnskóla standa hafi hresstst
við að sjá þetta frumvarp. Það
sem mönnum hefur sárnað í aug-
um er þessi ólýðræðislega mis-
munun sem kemur fram í aðstöðu-
mun eftir því hvaða námsbraut
menn velja. Iðnskólarnir hafa
verið reknir af ríki og sveitarfé-
lögunum og á ábyrgð þeirra en i
mörgum tilvikum hafa þessar
stofnanir drabbast niður og orðið
hálfgerð olnbogabörn. Þannig hef-
ur þessi kostnaðarskipting valdið
gífurlegri mismunun. Ég nenni nú
ekki að draga dul á það að
menntaskólinn hér á ísafirði er
öðrum þræði kjördæmapólitískt
ævintýri kannski, eða þannig hef
ég tilhneigingu til að líta á málið
þegar á sama tíma er á heljar-
þröminni skóli, sem veitir fólkinu
fræðslu í þeirri atvinnugrein, er
það stundar í þessari bónus-
paradís. Það tapast hundruð millj-
óna króna út úr þessu samfélagi af
því að verktakastarfsemi er svo
slök. Þá er það kannski ekki alveg
fráleitt mál að halda því fram, að
sú menntun sem virkilega þurfti
að byggja upp var eitthvað annað
en framlenging á latínuskólanum,
svo ég stílfæri þetta. Hins vegar
vil ég taka það fram að ég er ekki
í grundvallaratriðum andvígur
menntaskóla í þessari mynd þó ég
taki svona til orða til að hrista
svolítið upp.
— Hefur skólinn einhvern
stuðning af iðnaðarmannafélögum
líkt og t.d. Iðnskólinn í Reykjavík
hefur einatt notið?
— Framan af var Iðnskólinn
hér starfræktur og reyndar stofn-
aður af iðnaðarmannafélögunum
vestra og er einn, að ég held af
elztu Iðnskólum á landinu. Mér er
sagt að samtök iðnaðarmanna
hafi verið mjög öflug hér á ísafirði
eins og félagasamtök munu hafa
verið almennt, en það hefur
breytzt gífurlega mikið og það er
ekki um það að tala, því miður, að
Iðnskólinn njóti nokkurs virks
stuðnings frá samtökum iðnað-
armanna, enn sem komið er, enda
hafa þau nánast ekki verið á lífi
undanfarinn áratug. En ég tel það
mjög brýnt fyrir slíkan skóla að
vera í tengslum við einhver sam-
tök. Þetta hefur nú verið rætt
töluvert undanfarna mánuði þó ég
hafi ekki haft aðstöðu til að
fylgjast með því, það hefur verið
rætt að endurreisa samtök iðnað-
armanna hér á staðnum og við
væntum okkur góðs af því í
framtíðinni.
F.H.
ÞESSAR ungu dömur, sem eiga heima í Álfheima-hverfinu, eru í
hópi hinna mörgu krakka, sem i sumar hafa haldið hlutaveltur til
ágóða fyrir hin ýmsu styrktarfélög og liknarstofnanir. Telp-
urnar, sem heita Margrét Arna Hlöðversdóttir, Agnes Hildur
Hlöðversdóttir og Lóa Sigrún Erlingsdóttir og söfnuðu þær
rúmlega 11.200 krónum til Styrktarfél. vangefinna.
ÞESSAR ungu stúlkur, sem eiga heima suður i Hafnarfirði,
efndu fyrir nokkru til hlutaveltu þar í bænum, til ágóða fyrir
Sjálfsbjörgu, fél. fatlaðra. Söfnuðu þær til félagsins nær 19.000
krónum. Telpurnar heita: Helena Rúnarsdóttir, Ingunn Ragnars-
dóttir, Marta Rut Guðlaugsdóttir, Anna Lísa Rúnarsdóttir. — En
á myndina vantar eina úr hópnum: Hjördisi Guðmundsdóttur.
TELPURNAR á myndinni: Rúna Björg Magnúsdóttir, Marta
Reimarsdóttir og Fanney Magnúsdóttir söfnuðu 16.600 kr. til
Landssamtakanna Þroskahjálpar, með hlutaveltu, sem þær efndu
til i heimabæ sinum, Hafnarfirði, fyrir skömmu.
ÞESSAR ungu stúlkur, Vesturbæingar, efndu til hlutaveltu að
Brávallagötu 20 hér i bænum, fyrir nokkru, til ágóða fyrir
Blindravinafélag íslands. Þær söfnuðu 10.400 kr. til félagsins.
Þær heita Friðbjörg Matthiasdóttir, Auður P. Svansdóttir og
Rósa Steingrimsdóttir.
ÞESSAR vinkonur, sem eiga heima suður i Hafnarfirði, efndu til
hlutaveltu til ágóða fyrir samtök lamaðra og fatlaðra að
Hjallabraut 35 og söfnuðu rúmlega 4200 kr. Þær heita Guðrún
Fjóla Eliasdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Hlif Ingibjörg Árna-
dóttir.