Morgunblaðið - 11.10.1979, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
+
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
Heimalandí,
Grindavfk,
andaöist í sjúkrahúsi Keflavíkur þann 9. þessa mánaöar.
Fyrir mína hönd og sona okkar
Ingibjörg Elíasdóttir
+
Eiginmaöur minn og faöir okkar
HULDAR SMÁRI ÁSMUNDSSON
sálfræöingur,
M«vahlfÖ23.
lést þriðjudaginn 9. október.
Björg Siguróardóttir
og börn
+
Móöir okkar, tengdamóöir og amma
KRISTÍN EINARSDÓTTIR
Frakkastíg 24
andaöist aöfaranótt 10. þ.m.
Einar Guömundsson Gunnþórunn Erlingsdóttir
Ósk Guómundsdóttir
Gunnar Guömundsson Ólöf Gísladóttir
Hilmar Guömundsson Sigrún Ólafsdóttir
og barnabörn
+
Systir okkar og mágkona,
GUOLAUG THORLACÍUS
andaöist 29. september sl. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey,
samkvæmt ósk hinnar látnu.
Anna Thorlacíus, Þóra Thorlacíus
Jóhanna Thorlacíus,
Sigríóur Thorlacíus,
Magnús Guömundsson.
Árni Theodór
Long-Minning
Fæddur 13. apríl 1920
Dáinn 5. október 1979
í dag klukkan 13:30 verður Árni
Long jarðsunginn frá Fríkirkj-
unni í Reykjavík. Hann lést á
sjúkrahúsi í London aðfaranótt 5.
október s.l. eftir uppskurð við
kransæðasjúkdómi, sem hafði
hrjáð hann í hartnær tólf ár. Árni
var fæddur í Vestmannaeyjum 13.
apríl 1920, sonur Jóhannesar
Long, verslunarmanns, og konu
hans Bergþóru Árnadóttur. Eins
og flestir Eyjapeyjar þá og reynd-
ar nú, fór Árni ungurá sjóinn, og
var mótoristi til sjós að loknu
prófi, en sjóaðist ekki, og fluttist
til Reykjavíkur á hernámsárunum
og vann í landi æ síðan, fyrst við
ýmis störf hjá setuliðinu og síðan
hjá vélsmiðjunni Héðni, en þar
varð hann að hætta störfum vegna
heilsubrests. Árni vann síðan í
mörg ár hjá tengdaföður sínum,
Steingrími Magnússyni í Fiskhöll-
inni, einkum við fiskdreifingu í
nágrannasveitum Reykjavíkur, en
síðustu fimmtán árin vann hann
hjá vélaversluninni G.J. Fossberg,
þar sem þekking hans á vélum og
varahlutum kom honum að góðu
haldi.
Árið 1945 giftist hann eftirlif-
andi konu sinni, Guðlaugu
Steingrímsdóttur, og eignuðust
þau fimm börn, sem öll eru komin
til fullorðinsára, þau Jóhannes,
Guðlaug, Steingrím, Kristjönu
Ástu og Árna.
Slík voru æviatriði Árna, og
eins og oft vill verða segja þau
ókunnugum ekki margt um mann-
inn, og reyndar ekki okkur vinum
hans heldur, sem þekktum hann
frekar af því sem hann var en því
sem hann hafði fyrir atvinnu.
Nokkrum dögum áður en Árni og
Guðlaug fóru til London þar sem
hann skyldi gangast undir skurð-
aðgerðina, sem lengja átti líf
hans, komu þau hjónin heim til
mín eina kvöldstund. Öll vissum
við, að tvísýnt gæti orðið um
árangur aðgerðarinnar, sem Árni
átti í vændum, en hann kaus að slá
á léttari strengi, og var kátur og
ræðinn eins og hann átti að sér,
enda ekki maður, sem lét bugast
af veikindum sínum, þótt langvinn
væru og erfið.
Þetta var kvöld nokkru eftir að
gæsaveiðin hófst í haust,
síðmyrkvt og stillt og stórir fugl-
arnir á leið ofan af hálendinu
suður í byggð, heiðagæsin ljós á
+
Móöir okkar
ÁSLAUG KRISTINSDÓTTIR
Eskihlíö 7,
andaöist þriöjudaginn 9. október í Vífilsstaöaspítala.
Halldóra Elíaadóttir
Alfreö Elíasson.
+
Sonur minn og stjúpsonur
RAFN GARÐARSSON
klæöskeri,
Háaleitisbraut 105
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 12. október
'79 kl. 13.30.
Fyrir hönd ættingja,
Þorbjörg Jónsdóttir Óskar Sörlason.
+
Eiginmaöur minn,
RAGNAR K. LÖVDAHL
húsasmíóameistari
Digranesvegi 108, Kópavogi
veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 12. október kl.
3 e.h.
Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna,
Hulda Lövdahl.
+
Maöurinn minn og faöir okkar
HJALTI SIGURÐSSON
húsgagnasmiöur
sem lést á Fjóröungssjúkrahúsinu á Akureyri 3. október verður
jarösunginn frá Akureyrarkirkju, laugardaginn 13. október kl.
13.30.
Blóm vinsamlega afþökkuö, þeim sem vilja minnast hins látna er
bent á Kristniboðið.
Ingileif Jóhannesdóttir
og börn hins látna.
+
Dóttir mín, móðir okkar, tengdamóöir og amma
HANNA KRISTJÁNSDÓTTIR
frá Skógarnesi-Ytra
Meistaravöllum 21.
veröur jarösungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. október kl.
10.30 f.h.
Blóm vinsamlega afþökkuö, en þeim sem vildu minnast hennar er
bent á Krabbameinsfélag íslands.
Sigríöur K. Gísladóttir
Hrefna Pripish Valdimar Valdimarsson
Alfreö Alfreösson Steinunn Sigurðardóttir
Viöar E. Axelsson Sigríöur Gestsdóttir
Sigríöur Dinah Dunn
Reynir Á. Árnason
og barnabörn.
+
Þökkum innilega sýnda samúö og vinarhug við andlát og jarðarför
fööur okkar, tengdafööur, afa og langafa
INGIMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
Hverfisgötu 101.
Helgi G. Ingimundarson Birna Þóröardóttir
Rósa E. Ingimundardóttir Halldór Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö andlát og jaröarför
eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa,
KRISTÓFERS JÓNSSONAR
Guörún S. Guömundsdóttír
Jón Oddur Kristófersson Marín Samúelsdóttir
Guðmundur Kristófersson Inga Jóhannsson
og barnabörn.
Lokað
í dag frá kl. 12—4 vegna jaröarfarar Árna
T. Long.
G.J. Fossberg vélaverslun h.f.
kviðinn í aðfluginu, grágæsin feit í
felum við vötn, úti í hólmum, og
hulin í engjum. Eg hygg að hugur
Árna hafi verið þá á slóðum
bráðarinnar í Landeyjum, undir
Eyjafjöllum eða í Mýrdalnum, því
veiðin var yndi hans lífið á enda,
og þar sem hann var mikill
veiðimaður fór hann ekki varhluta
af þeim auðævum, sem íslensk
náttúra veitir þeim, sem til henn-
ar leita og hvergi eru föl fyrir
peninga: ég heyrði stundum á tali
hans að hann hafði höndlað ham-
ingjuna eins og sá einn gerir sem
oft hefur séð öll blæbrigði ljóss og
hita í dagrenningu og heyrt
blístur blesgæsarinnar og hundgá
helsingjans rjúfa kyrrðina hátt
yfir höfði sér. Þennan samruna
við náttúruna þekkti Árni bæði úr
stangarveiði og gæsaveiði, og
hann veitti lífi hans inntak ekki
síður en veiðigleðin sjálf, þegar
árveknin, nákvæmnin og röð þaul-
æfðra viðbragða felldi fugl á flugi.
Árni Long var vinmargur, enda
opinskár, skrafhreifinn og
skemmtilegur, fróður um menn og
málefni eins og þeir eru, sem lifa
vakandi hverja stund í lífi sínu.
Best þótti mér þó hvað hann var
vinrækinn. Þegar ég kom til
Reykjavíkur 1961 ráðvilltur ungur
drengur, stóð mér opið heimili
þeirra Árna og Guðlaugar, og
þraft fyrir þeirra eigin börn veittu
þau mér hlýju, sem væri ég einn af
þeim. Seinna þegar heimshöfin
skildu okkur að, voru þau hjónin
oft fastur punktur í tilveru minni
þar sem engir aðrir voru, og það
gleður mig að hafa átt þau að svo
tryggum og góðum vinum, að ekki
þurfti að hafa orð um, en aðeins
fölskvalaust viðmót, hlýtt bros.
Árni Long var lánsamur maður.
Þótt ekki safnaðist honum ver-
aldlegur auður, átti hann það sem
færri fá en vilja: heilsteypta og
góða fjölskyldu. Þar var hann
sinnar gæfu smiður. Það hlýtur að
hafa glatt hjarta hans að hafa
getið af sér jafn prútt og gjörvi-
legt fólk og börn hans eru. Samt
var það mesta gæfa hans í gegnum
árin að eiga að lífsförunaut jafn
yndislega konu og Guðlaugu
Steingrímsdóttur.
Um leið og ég votta henni og
börnum þeirra samúð mína og bið
þeim blessunar Guðs, þá vil ég
minnast á þann styrk, sem felst í
vitneskjunni um það, að Árni lifði
lífinu til fulls, þótt það yrði ekki
eins langt og við höfðum vonað.
Mér er sagt, að áður en hann
lagðist á spítalann í London hafi
hann keypt sér efni í flugur til að
binda í vetur fyrir stangveiðina
næsta sumar, en hann var vanur
að rækja áhugamál sín vel, og
sleppti þá engu undan. Sú er hin
bjarta mynd, sem ég mun geyma
af honum í hjarta mér: hinn
glaðværi, góði maður að sinna
hugðarefni sínu af lífi og sál.
Árni Long hefði ekki viljað
annað.
Guðbrandur Gíslason
í dag verður til moldar borinn
mágur minn Árni Long, Meistara-
völlum 19, hér í borg. Hann lést á
sjúkrahúsi í London 4. þessa
mánaðar. Mig langar að þakka
Adda alla vináttu fyrr og síðar
það verður okkur Óla ógleyman-
legt hvernig hann og Lauga tóku
opnum örmum á móti okkur,
þegar við fluttum á Vesturgötu 18.
Þar bjuggum við í 13 ár. Ég
minnist þess ekki að nokkurn
tímann félli skuggi þar á. Börnin
okkar ólust þar upp og nú þakka
þau Árna frænda fyrir allt sem
hann var þeim. Þau áttu skjól og
blíðu hjá honum og Laugu, ef
eitthvað var að. Þetta voru okkar
bestu ár. Addi var hress og
lífsglaður maður, það gleymir
honum enginn, sem kynntist hon-
um. En svo syrti að, heilsan bilaði
og áirn liðu, miserfið en aldrei lét
hann bugast, þar til nú. Hann
gekk undir stóra aðgerð á sjúkra-
húsi í London og lést þar, sem fyrr
segir. Kærum mági og bróður
færum við innilegar þakkir fyrir
samveruna. Við minnumst hans
með söknuði og trega.
Við hjónin biðjum guð að
stryrkja ástvini hans alla.
Kristbjörg Ingimundardóttir