Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
vtfP
MORöJK)
KAFF/NO
GRANI GÖSLARI
Sama stað næsta fimmtudags-
kvöld!
Að tryggja kaup-
mátt launa á vinstri-
stjórnarmáli
. . .já, en pabbi, þú skilur það:
Mig langaði að vera slökkviliðs-
maður!
Velvakandi góður.
Einu sinni áður hefi ég sent þér
línu og þakka birtinguna. Ég verð
að bæta nokkru við og nú er af
nógu að taka. Ég var að fá
launatöfluna fyrir sept. frá verka-
lýðsfélaginu mínu. Þar stendur
svart á hvítu, að laun verka-
mannsins í 4. flokki sem eru
frystihúsastörf o.fl. séu komin í
kr. 1293 um tímann. Þetta þýðir
fyrir vinnuvikuna 51.270 kr. eða
rúmar 200 þúsund kr. á mánuði og
á þessu á ég að lifa fyrir mig og
mína. Þetta er þá öll dýrð vinstri
hjarðarinnar sem hefir ríkt í rúmt
ár og er alltaf að auka kaupmátt
launanna (afturábak?). Á þessum
13 mánaða valdaferli hefir kaupið
mitt hækkað um 30% en öll vara
um rúm 100%. Þetta þýðir á
vinstristjórnarmáli að tryggja
kaupmátt launa. En ráðherralaun
eru ekki skorin við nögl og það var
nauðsynlegt að byrja með þak-
lyftingu til þeirra sem höfðu
mestu launin áður. Það er ekki að
furða þótt raðherrastólarnir verði
nú yfirgefnir með tárvotum
augum. Kaupmáttaraukning
vinstri stjórnarinnar hefir alltaf
verið sú að níðast á þeim lægst
launuðu. Þetta hefir reynslan sýnt
gegnum árin. Allar matvörur hafa
hækkað yfir 100%. Það er svo sem
von að ráðamenn dagsins í dag
sem allt þóttust geta í upphafi, séu
hreyknir af svona frammistöðu.
Og ekkert heyrist í verkalýðs-
forystunni nema það að stærsta
félagið Dagsbrún harmar, að ekki
skuli vera haldið áfram á sömu
braut, þ.e. kaup vinnandi manns
skert, til þess að þeir með hæstu
launin geti hirt sínar prósentur og
foringjar verkalýðsins hafa kaup
af okkar litlu kjörum fyrir að
vernda „böðla verkalýðsins" á
vinstristjórnartímum, þótt þeir
opni ginið upp á gátt þegar aðrir
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Sjaldan er áhatasamt að spila
út undan ás gegn trompsamningi 1
í upphafi spils. Þess vegna ætti,
þegar spilað er við reynda og
hugsandi spilara að gera ráð
fyrir, að slíkum brögðum sé ekki
beitt.
Suður gaf, austur-vestur á
Norður
S. ÁG
H. 1076
T. K2
L. KD8763
Austur
S. K8
H. 853
T. ÁD93
L. G1094
Suður
S. D94
H. ÁKDG94
T. 1065
L. 2
Vestur spilaði út tígulfjarka
gegn fjórum hjörtum suðurs og sá
sagnhafi auðvitað, að þetta yrði
eini möguleikinn til að fá á
kónginn. En það reyndist heldur
illa. Austur tók með ásnum og
hann sá strax, að sennilega ætti
vestur gosann. Annars hefði
sagnhafi látið lágt frá blindum þó
ekki væri nema til að tryggja sér
slag á litinn enda með minnst þrjú
spil í tíglinum ef marka mátti
útspilið.
Og í von um, að vestur spilaði
spaða til baka spilaði austur næst
lágum tígli undan drottningunni.
Vestur sá strax til hvers var
ætlast og skipti í spaða. Og eftir
þetta happadrjúga upphaf komst
vörnin ekki hjá, að fá fjóra slagi.
Einn niður.
Suður vinnur auðveldlega svona
spil sætti hann sig við að gefa tvo
slagi á tígulinn. Lítur heldur á
spilið í heild og sér þá að hættan í
spilinu liggur í, að austur eigi
spaðakónginn en þá má vestur
ekki fá slag fyrr en fundinn hefur
verið staður fyrir helst tvo spaða.
Þetta er auðveldast með því að
láta lágan tígul frá blindum í
fyrsta slag en með því er ein
innkoma tekin af vestri og þegar
hann fær á laufásinn er allt um
seinan. Sagnhafi getur þá parker-
að tveim spöðum í laufhjónin og
gefur aðeins þrjá slagi.
hættu.
Vestur
S. 1076532
H. 2
T. G874
L. Á5
COSPER
Haltu þér saman, drengur, þú fælir fiskana!
^ ff- « 1 *■ > TT^ * ^ Eftir Evelvn Anthony
__Lausnargjald 1 Persiu
84
að mannrán og samningar yrðu
of flóknir i þessu sambandi og
kæmu ekki i veg fyrir að Ims-
han yrði að yeruieika i höndum
Logans.
Hann hafði ekki verið á topp-
fundinum i Mtinchen en hann
vissi að rikisstjórn hans hafði
lagt tillögu fram um að keisar-
anum yrði sýnt banatilræði
vegna þess að það væri örugg-
asta leiðin til að losna við
evrópska félagið. En jafnskjótt
og Khorvan sagði rússneskum
tengiliðum sinum frá þvi að
Kelly hefði byrjað samningavið-
ræður við keisarann höfðu sam-
tökin lagt á ráðin og njósnarar
þeirra hófust handa af fullum
krafti við makk af öllu tagi.
KGB hafði veitt ágæta aðstoð,
sérstaklega verið innanhandar
við að afla upplýsinga up einka-
líf Logan Fields. Ást sú sem
hann hafði á dóttur sinni var á
allra vitorði. Undirbúningi var
hraðað, teknar voru upp við-
ræður við Peters og lið hans og
siðan öllu hrundið í fram-
kvæmd.
Sýrlendingarnir áttu ekki
annarra kosta völ en fallast á
þetta, það var of áhættusamt að
treysta á morð, það hafði verið
reynt að koma keisaranum fyr-
ir kattarnef áður og jafnan
mistekizt, ekki hvað sizt sakir
þess hve Ardalan stóð vel i sinu
stykki. Keisarinn var um-
kringdur öflugustu öryggis-
gæzlu i heimi. Það eina sem
hægt var að gera til að koma á
hann höggi var i gegnum oliufé-
lagið.
Homsi fékk sér tyrkneskt
kaffi og byrjaði að semja
skýrsluna til Damaskus. Hann
lagði áherzlu á að Field hefði
sýnt nokkra mótspyrnu, en sin
skoðun væri samt að ástæða
væri til bjartsýni, því að hótan-
ir um að konu hans yrði mis-
þyrmt á þennan veg höfðu
vakið andstyggð hans og ólýs-
anlega skelfingu. Og ef hann
hikaði við að svara væri liklega
eins gott að sýna honum fram á
að full alvara hefði verið að
baki þvi, sem hann hafði sagt.
Klukkan fimm siðdegis var
Ardalan hefshöfðingi að lesa
skýrslu mannsins sem fylgzt
hafði með Said Homsi og fundi
hans með Logan Field. Hann
hafði áttað sig á því að James
Kelly var ekki hreinskilinn við
hann. Sagan sem honum hafði
verið sögð var ósönn, til þess
gerð að breiða i skelfingu yfir
eitthvað annað. Hvað sem þessi
viðskiptafulltrúi sýrlenzka
sendiráðsins vildi Logan Field
þá var það minnsta kosti ekki
að selja honum stolin handrit.
Hins vegar benti allt til þess að
Said Homsi kynni sitt fag. Val
hans á fundarstaðnum með
Logan Field var eitt dæmi um
það. Fjölmennur staður þar
sem engin hætta væri á að
athygli yrði veitt sýrlenzkum
og evrópskum manni í samræð-
um. Maður Ardalans hafði einn-
ig séð þegar Logan Field hafði
myndað sig til að berja Sýrlend-
inginn. Hann hiaut þar af leið-
andi að hafa sagt eitthvað sem
honum hafði stórlega mislikað.
Það var ekki likt Logan Field
að missa stjórn á skapsmunum
sinum. Og siðan hafði maður-
inn veitt því athygli hversu
sjúklegt útlit Fields var þegar
hann hélt á braut. Og hann
hafði ekki farið álelöis til húss
Kellys heldur rakleitt til
Hiltonshótclsins þar sem að-
stoðarmaður hans bjó. Hún
hafði komið í skyndi frá skrif-
stofunni til fundar við hann
nokkru siðar.
Ardalan gluggaði i skýrsluna
aftur og hugsaði sitt. Hann
hafði verulegan áhuga á þessu
máli. Logan Field var mjög
mikilsháttar maður i hinum
vestræna heimi. Hann var ráða-
maður í stóru oliuféiagi og það
var trúlegt að hann ætti sér
marga óvildarmenn. Hann stóð
nú í erfiðum samningaviðræð-
um i Iran og niðurstaða þeirra
viðræðna gat skipt sköpum í
efnahagslifi Vesturlanda.