Morgunblaðið - 11.10.1979, Page 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
Yfirburóa-
sigur Tékka
gegn Svíum
TÉKKAR unnu yfirburðasigur á
Svíum í 5. riðii Evrópukeppni
landsliða í Prag í gærkvöldi.
Ekki var heil brú í leik Svianna
og þó að Tékkarnir lékju enga
snilldarknattspyrnu, gátu þeir
Lands-
dómarar
HSÍ
BOÐSMIÐAR á Landsleiki
íslands og Tékkóslóvakíu verða
afhentir á skrifstofu H.S.Í.
sunnudaginn 14. október kl. 5 — 7
og mánudaginn 15. október kl.
7-8.
Athygli er vakin á að aðrir
boðsmiðar gilda eki.
Dómnefnd H.S.Í.
vart annað en unnið stórt. Loka-
tölur 4—1, staðan í hálfleik var
3-0.
Svíar áttu ekki svo mikið sem
eitt skot á tékkneska markið i
fyrri hálfleik, en Tékkarnir
hrúguðu þeim hins vegar niður.
Besti maður liðsins, Nehoda,
skoraði á 20. minútu og gerði
hvað eftir annað mikinn usla í
vörn Svia. Kozak og Vizek bættu
mörkum við fyrir hálfleik.
Nehoda varð síðan fyrir meiðsl-
um og varð að yfirgefa leikvang-
inn í byrjun síðari hálfleiks.
Drabbaðist leikurinn þá gersam-
lega niður. Tvö mörk voru þó
skoruð, Svenson minnkaði muninn
fyrir Svía á 61. mínútu, en Vizek
skoraði fjórða mark Tékka á 70.
mínútu.
Staðan í 5. riðli er nú þessi.
Tékkóslóvakía 4 4 0 0 12—2 8
Frakkland 5 3 11 11-6 7
Svíþjóð 5 113 8-12 3
Luxemburg 4004 1—12 0
Menotti ætlar að
prófa 200 leik-
menn fyrir HIVI 82
FLESTIR kannast við hann und-
ir nafninu Mile. Hann fluttist til
íslands árið 1967. Og hefur starf-
að við knattspyrnuþjáifun hjá
Leikni, Breiðablik og Val. Mile
lék knattspyrnu á sínum yngri
árum með liðum Rauðu Stjörn-
unnar og síðar með 2. deildarlið-
um í Júgóslavíu. Nú fyrir
skömmu kom Mile til íslands
eftir að hafa stundað nám í
íþróttafræðum í 2 ár í heimalandi
sinu, með knattspyrnu sem aðal-
grein við íþróttaháskólann. í
spjalli við Mbl. sagðist Mile hafa
mikinn hug á að stunda þjálfun
Stanojev Kvsta Mile
hér á landi. Og þar sem mörg
félög eiga við þjálfaraskort að
etja ætti ekki að vera erfitt fyrir
hann að fá verkefni. Mile sagði
að margir frægir knattspyrnu-
þjálfarar hefðu flutt fyrirlestra í
háskólanum. og meðal þeirra var
þjálfari heimsmeistara Arg-
entinu Luis Cesar Menotti, og
kom hann fram með ýmsar upp-
lýsingar um hvernig Argentínu-
menn munu byggja upp lið sitt
fyrir næstu HM sem verður á
Spáni 1982. Hér á eftir íara
nokkur af þeim atriðum sem
Menotti fjallaði um knattspyrnu-
unnendum til fróðleiks.
Luis Cesar Menotti þjálfari
arg. landsliðsins.
Uppbygging nýs liðs. Við byrj-
um uppbyggingu nýs liðs með því
að kynnast og rannsaka leikmenn-
ina. Þannig kynnumst við leik-
mönnum, sem við munum vinna
með nú og næstu árin. Þetta leikár
ætlum við að prófa í kringum 40
nýja leikmenn, en af þessum 40
verða valdir 2—3 beztu. Fram til
heimsmeistarakeppninnar 1982
áætlum við að prófa í kringum 200
leikmenn. I stjórn landsliðsins eru
12 manns: aðalþjálfari, þrekþjálf-
ari, framkvæmdastjóri, 2 læknar,
nuddari, skósmiður og stjórnin.
Hver þjóð verður að vita hvað
hún vill, hvers hún óskar, og
getur, hvort hún leitast eftir
toppárangri eða aðeins að vera
með. Áríðandi er að við öpum ekki
eftir öðru landsliði, en eflum
okkar eiginn baráttuhug. Þjálfari
verður að læra af reynslu annarra,
en samt að halda eigin striki.
Knattspyrna er ekki orðagjálfur
og speki, heldur knattspyrnuvöll-
urinn og vinna.
Samband félaga og landsliðs.
Um leið og landsliðinu gengur vel,
verður framför í félögunum.
Síðustu fjögur árin var góð sam-
vinna á milli landsliðs og félaga.
Félög eru atvinnufélög, en samt
verða engir árekstrar á milli
landsliðs og félaganna, en frá 15.2.
1982 til byrjunar heimsmeistara-
keppninnar er landsliðið það sem
öllu máli skiptir.
Knattspyrna í framtiðinni.
Nákvæmni og hraði. Fyrst byggj-
um við upp nákvæmni (teknik) og
síðan hraða. Við ætlum að halda
áfram að byggja upp hraðann og
leggjum áherslu á að leikmennirn-
ir geti sýnt andstæðingnum
óvænta leiki, sem sagt ekkert
fastmótað kerfi. Einstaklingur,
sem kemur í landslið, þarf að
kunna öll grundvallaratriði. Þrek
og taktik hafa sín takmörk. Þess
vegna leggjum við áherslu á að
einstaklingsgeta samlagist hópn-
um. Munurinn á Brazilíumönnum
og okkur er sá, að sumir Brazilíu-
mennirnir eru betri en við, en
heildarskipulag er stórt atriði,
þeim tókst ekki að láta einstakl-
ingana falla inn í heildina.
• Mikið mæddi á islensku vörninni i landsleiknum við Pólverja í gær og er ekki annað hægt að segja, en að
hún hafi staðið sig eftir atvikum vel.
Á mynd þessari má sjá þá Martein Geirsson, Þorstein Bjarnason, Trausta Haraldsson og Jóhannes
Eðvaldsson i hörkubaráttu i landsleiknum gegn Hollandi á dögunum.
• Udo Lattek, annar frá vlnstri, ásamt þremur fyrrverandi
leikmönnum Borussia Mönchengladbach. Á milli sín halda þeir á
einum af mörgum sigurlaunum sem samvinnan færði þeim. Með
Lattek á myndinni eru Uli Sticlike, Jupp Heynckes og Berti Vogts. Sá
fyrstnefndi leikur nú með Real Madrid, en þeir tveir siðarnefndu hafa
lagt skóna á hilluna.
Blakfréttir
STJÓRN Blaksambands íslands
hefur ráðið Gunnar Árnason
iþróttakennara framkvæmda-
stjóra BLÍ. í starfinu felst dag-
legur rekstur Blaksambandsins,
skipulags- og stjórnunarmál.
Skrifstofa BLI verður opin alla
virka daga í vetur milli 15 og 18.
Dagana 12.—14. okt. verður A-
stiga þjálfaranámskeið i Vörðu-
skólanum i Reykjavík. Þátttöku
má tilkynna i sima 52832. Blak-
deild Þróttar á 5 ára afmæli i
haust og efnir í því tilefni til
afmælismóts 26. og 28. okt. Keppt
verður i öllum flokkum þar sem
tvö eða fleiri lið tilkynna þátt-
töku. Verðlaunapeningar verða
veittir í hverjum flokki. Fyrstu
leikir i íslandsmótinu fara fram
um helgina 3.-4. nóv.
Fimm félög leika nú i 1. deild
og leikin er fjórföld umferð.
Gerir Lattek Borussia
Dotmund að stórveldi?
UDO Lattek hefur um árabil
verið viðurkenndur einn snjall-
asti knattspyrnuþjálfari sem til
er. Þau lið, sem hann hefur haft
afskipti af, hafa jafnan barist um
æðstu verðlaun. Það verður að
visu að segjast eins og er, að
hann hefur ekki stýrt neinum
smáliðum. Hann gerði Bayern
Múnchen að Evrópumeisturum
oftar en einu sinni, leiddi Boruss-
ia Mönchengladbach til sigurs í
UEFA-keppninni og í úrslit Evr-
ópukeppni meistaraliða. Á
síðustu 10 árunum hefur Lattek
unnið fleiri titla en nokkur ann-
ar þjálfari í vestur-þýsku
knattspyrnunni.
Því var talið, þegar hinn 44 ára
gamli Lattek gerði samning við
Borussia Dortmund, að ferill hans
á toppnum væri á enda. Dort-
mund-liðið slapp naumlega við
fall á síðasta keppnistímabili og
eltu þá flestir innan félagsins
grátt silfur saman.
Dortmund forðaði sér frá falli
fyrir lítið annað en heppni og
getuleysi annarra botnliða. Hver
höndin var uppi á móti annarri
innan félagsins, hvort heldur var
meðal leikmanna eða meðal
stjórnarmanna. Því var reiknað
með að Dortmund myndi verma
botnsætið á nýjan leik í vetur og
Udo Lattek myndi lítið mega sín
gegn hinum stríðandi öflum.
En þegar níu umferðum er lokið
í þýsku deildarkeppninni, er Latt-
ek staddur á venjulegum slóðum á
toppi deildarinnar! Hann hefur
breytt lágkúrulegu liði Dortmund
í sigurlið, sem hefur forystuna í
þýsku deildarkeppninni.
Dortmund kom strax á óvart í
fyrsta leik sínum í haust, vann þá
Eintrakt Frankfurt 1—0 á útivelli.
Fimm sigrar og eitt jafntefli
fylgdu í næstu sjö leikjunum og
um síðustu helgi náðist mikilvæg-
ur og athyglisverður útisigur gegn
VFB Stuttgart, en það lið hafði
Dortmund aldrei unnið á útivelli.
Lattek hefur breytt miklu hjá
Dortmund eins og gefur að skilja.
Hann hefur friðað stríðsmennina
innan félagsins og unnið traust
leikmannanna. Hann hefur og
breytt leikstíl liðsins. Hann segir,
að áður, ef liðið var 1—2 undir í
leik, hafi leikmenn liðsins lagt allt
kapp á vörnina til þess að tapa
ekki stærra. Nú færu flestir nema
markvörðurinn í sóknina undir
sömu kringumstæðum til að jafna
leikinn og hclst að vinna.
Það verður að segjast eins og er,
að þessi breyting hlýtur að teljast
heilbrigðari, ekki síst ef lið ætlar
að vinna leik öðru hvoru, en lið
Udo Latteks eru ekki þekkt fyrir
að tapa, eða að viðurkenna tap
fyrr en í fulla hnefana.
Saga Borussia Dortmund er
ekki blómum stráð. Á sjötta ára-
tugnum átti félagið dálítið blóma-
skeið. Þá voru fremstir í flokki
tveir frægir kappar, Siggi Held og
Stan Libuda. Þeir stýrðu liðinu til
sigurs í Evrópukeppni bikarhafa
1966, Dortmund vann þá Liverpool
2—1 í úrslitaleik. Eftir það fór að
halla undan fæti og árið 1972 féll
Dortmund niður í 2. deild. 1976
kom liðið aftur upp, en hefur síðan
ekki hafnað ofar en í áttunda sæti
og oftar verið í fallbaráttunni. Það
skýtur því skökku við að sjá
félagið tróna á toppi deildarinnar,
en slíkur þjálfari er Udo Lattek og
jafnvel þeir sem þekkja hann best
eru undrandi á því sem hann
hefur náð út úr liði Dortmund.
Eins og venjulega, þegar smálið
kemur á óvart á þennan hátt, eru
sjálfskipaðir snillingar snöggir að
dæma liðið sem blöðru sem
springi örugglega áður en langt
um líður. T.d. voru þeir hörðustu
að spá Nottingham Forest óförum,
allt þar til liðið lyfti Englandstitl-
inum á sínum tíma á fyrsta vetri
sínum í 1. deild! Hvort Borussia
Dortmund vinnur titilinn í Vest-
ur-Þýskalandi er svo allt annað
mál og óskylt. Lattek segir sjálfur
að þeir hjá Dortmund hugsi ekki
svo langt. Þeir gæla ekki einu
sinni við hugmyndina um sæti í
UEFA-keppninni, svo framandi er
velgengni leikmönnum þessum.