Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
47
Pólverjar í miklum
erfiðleikum með
íslenska landsliðið
EKKI er annað hægt að segja en
að íslendingar hafi staðið sig
eins og sannkailaðar hetjur í
landsleiknum við Pólverja í
Kraká í Kœrkvöldi. Póiverjum
var það mikið mái að skora sem
allra mest af mörkum og lögðu
allt kapp á slíkt. íslcndingar
veittu hins vegar svo öfluga
mótspyrnu, að ekkert varð úr
markahátíðinni að sinni. Pólverj-
ar skoruðu að vísu tvö mörk, en
lengi þurftu hinir rúmlega
20.000 áhorfendur í Kraká að
bíða eftir mörkunum. Staðan í
hálfleik var 0—0 og þó að í fyrri
hálfleik hafi Pólverjar farið illa
með nokkur góð færi, þá hefðu
íslendingar með heppni getað
potað einu sinni eða svo.
Fjörugur leikur
Leikurinn var þegar í stað hinn
fjörugasti, Pólverjar óðu upp í
stórsókn og áhorfendur öskruðu af
hrifningu. íslenska markið slapp
naumlega á fyrstu mínútunum, en
á þeirri elleftu náðu íslendingar
skyndisókn sem lauk með því að
Asgeir Sigurvinsson skaut þrumu-
skoti í belginn á stæðilegum
pólskum varnarmanni og af hon-
um hrökk knötturinn langt út á
völl.
Hollir vættir
í liði íslands
A 14. og 16. mínútu slapp
íslenska markið með ólíkindum
vel, en tvívegis virtist ekkert
annað en mark blasa við. Roman
Ogaza klúðraði fyrst, þegar hæg-
ara hefði verið að skora. Síðan var
það hinn smávaxni og sköllótti
Gregroz Lato sem mokaði knettin-
um yfir íslenska markið í dauða-
færi. íslendingar svöruðu með
hörkuskoti Ásgeirs yfir pólska
markið og rakleiðis upp í stúku.
Pólland
ísland £mm w
Dýri Guðmundsson bjargaði
glæsilega með stórutánni á 25.
mínútu en þá var pólskur fram-
herji kominn í hið ágætasta færi.
Var leiðin fyrir hann að marki
greið, eða þar til fóturinn langi á
Dýra kom aðvífandi. Fimm mínút-
um síðar voru það Pólverjar sem
sluppu fyrir horn. Þá barst til-
viljakennd sending inn í vítateig
Póllands og munaði aðeins hárs-
breidd að Ásgeiri tækist að pota
knettinum á leiðarenda. Pólverj-
arnir bægðu hættunni frá.
Víti?
Á 31. mínútu lék markakóngur-
inn Pétur Pétursson inn í vítateig
Póllands, þar sem tekið var á móti
honum eins og sönnum marka-
kóngi. Hann var felldur gróflega.
Var það mál íslendinga að þarna
hefði dómarinn danski átt að
dæma vítaspyrnu, en hann var
ekki á þeim brókunum og létti
■J ,v -S.
•*' " - 'V . ,*v '' * ■'
• Marteinn Geirsson lék i gærkvöldi sinn 45. landsleik i knattspyrnu
og jafnaði þar með landsleikjamet Matthíasar Hallgrimssonar í A. Var
þetta merkur áfangi hjá Marteini. Þeir Árni Sveinsson og Ásgeir
Sigurvinsson léku sína 25. landsleiki og fá gullúr frá KSÍ í
viðurkenningarskyni.
Pólverjum mikið við það eins og
gefur að skilja. Þeir héldu síðan
áfram uppteknum hætti, sóttu og
sóttu og engu munaði á 45. mínútu
að þeim tækist að skora, en
Jóhannes fyrirliði Eðvaldsson var
svo heppinn að verða fyrir knett-
inum á marklínu og bjarga.
Loks skora Pólverjar
Pólverjar skoruðu loks á 55.
mínútu og var rnarkið mjög tilvilj-
unarkennt. Zbignwe Boniek, lang-
besti leikmaður Pólverja í leikn-
um, skaut þá þrumuskoti inn í
frumskóg varnarmanna. í ein-
hvern þeirra hrökk knötturinn,
barst síðan til Roman Ogaza, sem
skoraði með góðu skoti utan úr
vítateig. 1—0 fyrir Pólland og
ísinn brotinn.
Sókn Pólverja þyngist
Það var eins og þungu fargi
væri létt af Pólverjum og sókn
þeirra varð hálfu þyngri. Þeir
skiptu sóknarmanninum Szybis
inn á fyrir varnarmanninn Terl-
ecki og gerði Szybis þessi usla í
vörn Islendinga. Þorsteinn
Bjarnason varði meistaralega
þrumuskot Vojzek Rudy og
nokkru síðar bjargaði Dýri naum-
lega eftir að Þorsteinn hafði misst
af knettinum í úthlaupi.
2—0 fyrir Pólland
Þrátt fyrir hetjulega baráttu
íslendinga, þá lá annað mark í
loftinu og það kom loks á 76.
mínútu. Boniek var enn á ferðinni
og lék þá Jóhannes Eðvaldsson
grátt inni í vítateignum. Jóhannes
greip þá í peysu Boniek og hélt
honum. Dómarinn danski var hins
vegar á næstu grösum og sá
prakkarastrik Jóhannesar. Dæmdi
hann umsvifalaust vítaspyrnu,
sem Roman Ogaza skoraði úr
annað mark Póllands. Engu mun-
aði að Þorsteinn Bjarnason verði
vítið, hann kastaði sér í rétt horn,
hafði hendur á knettinum, en hélt
honum ekki og inn lak hann.
Pólverjar reyndu enn að bæta
við mörkum, Lato tókst með ólík-
*«ÍP:
Teitur Þórðarson lék í gærkvöldi með islenska landsliðinu að nýju
eftir nokkurt hlé, og átti góðan leik, þrátt fyrir að honum tækist ekki
að skora mark.
indum að skjóta yfir opið markið
frá markteig og Þorsteinn varði
meistaralega með úthlaupi frá
Szybis, sem hafði fengið gullfall-
ega stungusendingu frá Boniek.
En fleiri urðu mörkin ekki og
vænkaðist hagur Hollendinga
mikið við það. Pólverjar hafa
nefnilega lakari markatölu heldur
en Holland. Pólland hefur að vísu
einu stigi meira, en á eftir að leika
gegn Hollandi á útivelli og er það
leikur sem fáir spá Pólverjum
sigri í.
Undarleg sveifla
Sem fyrr segir, er ekki annað
hægt að segja en að íslendingar
hafi staðið sig vonum framar. 0—2
tap á útivelli gegn þessu liði er
ekkert til að skammast sín fyrir,
síður en svo. Margar stærri
knattspyrnuþjóðir hafa fengið
verri útreið hjá Pólverjum. Sann-
leikurinn er sá, að Islendingar
börðust vel og gáfu ekkert eftir.
Pólverjar fengu aldrei frið til að
byggja upp draumasóknir sínar og
þó að þeir hafi lengst af haft
knöttinn við sínar fætur og sótt án
afláts, náðu þeir aldrei nægilega
góðum tökum á hörðum varnar-
mönnum íslands. Enginn stóð sig
öðrum fremur, betur liðsheild var
styrkur íslands.
En furðulegt er engu að síður að
bera gang þessa ieiks saman viö
hina Evrópubikarleikina fjóra
sem Island hefur leikið á þessu
ári. Einn þeirra, leikurinn í Bern,
er undanskilinn, en gegn Sviss
heima, Hollendingum og Austur-
Þjóðverjum heima og nú Pólverj-
um úti, hefur íslenska landsliðið
ávallt skilað mjög góðum fyrri
hálfleik, staðan í öllum þessum
leikjum hefur verið 0—0 í hálfleik.
En sem kunnugt er, urðu loka-
tölur þeirra 1—2, 0—4, 0—3 og nú
0—2. Hví alltaf þessar magalend-
ingar í síðari hálfleik?
Liðin voru þannig skipuð:
ISLAND Þorsteinn Bjarnason,
Örn Óskarsson, Trausti Haralds-
son, Dýri Guðmundsson, Jóhannes
Eðvaldsson, Marteinn Geirsson,
Árni Sveinssont—Asgeir Sigur-
vinsson, Atli Eðvaldsson, Pétur
Pétursson og Teitur Þórðarson.
PÓLLAND: Kukla, Szymanovski,
Janas, Rudy, Nawalka, Lipka,
Wiezorek, Boniek, Ogaza, Lato og
Terlecki. Varamaður Szypic.
Pétur Pétursson og Jóhannes
Eðvaldsson voru bókaðir í leikn-
um.
Staðan í 4. riðli:
Pólland 7 5 11 12-3 11
Holland 6 5 0 1 16-3 10
A-Þýskal. 6 4 1 1 11—6 9
Sviss 7 2 0 5 5-13 4
ísland 8 0 8 0 2-21 0
Forest á toppinn
NOTTINGHAM Forest náði for-
ystu í 1. deildinni ensku í gær-
kvöldi þrátt fyrir að liðið tapaði
stigi gegn Stoke. Brendan O’Call-
aghan náði forystu fyrir Stoke á
62. minútu, en Garry Birtles
tókst að jafna fyrir Forest þegar
aðeins 8 mínútur voru til leiks-
loka. Úrslit í gærkvöldi urðu
þessi.
Tottenham — Norwich 3-2
WBA — Man. Utd 2-0
2. DEILD:
Leicester — Cambridge 1-0
Newcastle — Preston 0-0
Chelsea — West Ham fr.
komst tvívegis yfir í leiknum,
Martin Peters og Kevin Reeves
skoruðu mörk liðsins.
Enska
knatt-
spyrnan
1. DEILD:
Man. City — Middlesbr. 1—0
Stoke — N. Forest 1—1
Manchester Utd féll af toppnum
með tapi sínu gegn West Brom-
wich. United ætlar illa að ganga
að ná festu í leik sinn. Fyrri
hálfleikurinn var markalaus, en í
þeim síðari tókst John Deeham og
Bryan Robson að skora fyrir
WBA.
Tottenham vann frekar óvænt-
an sigur á Norwich á heimavelli
sínum. Glenn Hoddle skoraði
strax á 20. sekúndu og sló það
Norwich út af laginu. Hoddle
skoraði annað mark siðar og
Ricardo Villa það þriðja. Norwich
TVEIR vináttulandsleikir fóru
fram í gærkvöldi. Norður-írar
sigruðu Nýja Sjáland 2—0. Alb-
anía og Frakkland gerðu jafn-
tefli 2—2, í landsleik 21 árs og
yngri. Fór leikurinn fram í Tir-
ana Albaniu. Þá leku Finnar og
Vestur-Þjóðverjar í undankeppni
Oiympíuleikanna og gerðu
markalaust jafntefli. Leikurinn
fór fram í Ilclsinki að viðstödd-
um 2800 áhorfendum.