Morgunblaðið - 11.10.1979, Side 48
/v -,/ ,
' Siminn a afgreiðslunni er
83033
Fltreunblnbib
;Sími á ritstjórn og «krifstofu:
10100
!H*r0unliIflbid
FIMMTUDAGUR 11. OKTÓBER 1979
Ólafur biðst
lausnar í dag
ÞINGFLOKKUR og fram-
kvæmdastjórn Framsóknar-
flokksins höfnuðu í gær öll-
um hugmyndum um þingrof
og nýjar kosningar og var sú
ákvörðun tekin þar að ólafur
Jóhannesson forsætisráð-
herra bæðist lausnar fyrir sig
og ráðuneyti sitt. Morgun-
blaðið spurði ólaf Jóhannes-
son um það í gærkveldi, hver
hefði orðið ákvörðun hans og
kvaðst hann ekki geta skýrt
frá því opinberiega, fyrr en
hann hefði tilkynnt forseta
íslands ákvörðun sína. A
rikisstjórnarfundi árdegis í
dag mun ólafur tilkynna
ráðuneyti sínu þetta, en síðan
er búizt við því, að hann
gangi á fund forseta íslands
siðdegis.
Búizt er við því, að þegar er
Ólafur hefur. tilkynnt forseta
íslands, herra Kristjáni Eld-
járn, þetta, muni forsetinn
óska þess að ráðuneyti hans
sitji áfram unz nýtt hefur
verið myndað. Talið er að allir
stjórnarflokkarnir muni á það
fallast, nema Alþýðuflokkur-
inn, sem skilyrt hafði áfram-
haldandi veru sína í ríkis-
stjórn því að alþingiskosn-
ingar færu fram á þessu ári.
Þá mun forseti íslands hefja
viðræður við formenn stjórn-
málaflokkanna og kanna
möguleika á myndun nýrrar
stjórnar.
Þrír alþingismenn heilsa gestum við þingsetninguna i gær. Þingmennirnir eru ólafur G. Einarsson,
Albert Guðmundsson og Matthías Á. Mathiesen. Ljoám.: Kristján.
Alþýðuflokkur — Sjálfstæðisflokkur;
Minnihluta- eða
ut anþingss t j ór n ?
MNGFLOKKUR sjálfstæðismanna
ncrði í gær Ólafi Jóhannessyni
íiiDoó um að stjórn hans sæti áfram
fram að kosningum. gegn því að
Ólafur ryfi þing og boðaði til
kosninga í desember eftir að þings-
ályktunartillaga sjálfstæðismanna
hefði hlotið samþykki. Þessu höfn-
uðu Framsóknarflokkur og Alþýðu-
handalag síðdegis í gær. Hvorugur
flokkurinn vildi standa að þingrofi.
Miklar umræður urðu i þing-
flokksherbergjum Alþingis í gær og
á göngum þinghússins um það hver
skyldi stýra landinu fram að kosn-
ingum, sem búizt er við að fram fari
fyrri hluta desember. Voru ýmsar
stjórnarmyndanir ræddar og mun
sitt hafa sýnzt hverjum. Rætt var
um að ríkisstjórn Ólafs Jóhannes-
sonar sæti áfram og ryfi þing, en
Ólafur aftók slíkt með öllu. Þá var
og rætt um minnihlutastjórn Al-
þýðuflokksins, minnihlutastjórn
Þingrof starfis-
stjómar 1956
wi.ár’UR Jóhannesson forsætisráð-
herra gaf til kynna í viðtali við
fvíorgunblaðið í gær, að af formlegum
á-!æðum teldi hann sér ekki heimilt að
leggja til við forseta Islands, að hann
ryíí ping, eftir að ríkisstjórninni hefði
verið veitt lausn.
Þegar ríkisstjórn Ólafs Thors, sam-
stjórn Sjálfstæðisflokks og Framsókn-
arflokks, baðst lausnar í mars 1956
gerðist það eftir að forseti hafði fallist
á iausnarbeiðnina, að hann samþykkti
tillögu „starfandi" forsætisráðherra
um þingrof og nýjar kosningar. Áður
en forseti, sem þá var Ásgeir Ásgeirs-
son, féllst á tillögu Ólafs Thors hafði
hann gengið úr skugga um, að meiri-
hluti Alþingis var samþykkur því, að
þing skyldi rofið og gengið til kosninga.
Nánar er fjallað um þetta mál og
aðrar hliðar þeirrar stöðu, sem nú er
komin í stjórn landsins í greininni:
„Ifvað gerir ólafur?“ á miðopnu blaðs-
Sjálfstæðisflokk.sins og loks utan-
þingsstjórn.
Morgunblaðið spurði Geir
Hallgrímsson, formann Sjálfstæðis-
flokksins, um þessar umræður og
sagði hann að ræddir hefðu verið
ýmsir möguleikar, ef svo færi að
núverandi ríkisstjórn vildi ekki
framfylgja vilja meirihluta þingsins
og rjúfa þing og efna til kosninga á
þessu ári. Hann kvað ljóst að þing-
meirihluti væri fyrir slíku eltir að
hann og formaður þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins hefðu flutt um það
tillögu til þingsályktunar, sem væri
samhljóða tillögu, sem alþýðu-
flokksmenn hefðu flutt innan ríkis-
stjórnarinnar.
Morgunblaðið spurði Geir, hvort
minnihlutastjórnin yrði liklegri að
hans mati, Álþýðuflokks eða Sjálf-
stæðisflokks. „Um það get ég ekkert
sagt á þessu stigi málsins," sagði
Geir Hallgrímsson. Þá spurði Morg-
unblaðið, hvernig Sjálfstæðisflokk-
urinn liti á utanþingsstjórn og kvað
hann flokkinn ekki hafa gert upp hug
sinn til slíkrar ríkisstjórnar.
Benedikt Gröndal, formaður Al-
þýðuflokksins, sagði í samtali víð
Morgunblaðið í gær, að ráðherrar
Alþýðuflokksins væru til viðtals um
fyrirkomulag um sljórn landsins, ef
Framsóknarflokkur og
Alþýðubandalag féllust á kosningar
á þessu ári. „Geri þeir það ekki förum
við úr ríkisstjórninni, hvað sem
tautar," sagði Benedikt.
Samkvæmt upplýsingum Lúðvíks
Jósepssonar, formanns
Alþýðubandalagsins, fól þingflokkur
Alþýðubandalagsins ráðherrum
sínum síðdegis í gær að leggja fram í
ríkisstjórninni bókun um afstöðu
Alþýðubandalagsins. Lúðvík ítrekaði
í gærkveldi þá afstöðu sína, að
þingrof nú og kosningar í desember
væru ábyrgðarlaus aðgerð.
Óvíst
hverjir
verða
forsetar
þingsins
ÞINGFLOKKUR Alþýðuflokks-
ins sendi í gær öðrum þing-
flokkum tillögu um að við kjör
forseta Alþingis, sem fram á að
fara í dag, yrði þingstyrkur
látinn ráða um skipan forset-
anna. Er þetta tilboð kom fram,
höfnuðu bæði Framsóknarflokk-
ur og Alþýðubandlag þessu til-
boði og kröfðust framsóknar-
menn þess að samkomulag, sem
ríkisstjórnarflokkarnir þrír
höfðu orðið ásáttir um, gilti
áfram, þ.e. að forsetar siðasta
þings yrðu allir endurkjörnir.
Þetta mál varð ekki útrætt
manna á meðal í gær. Geir
Hallgrímsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær, að yrði
ekki samkomulag um kjör for-
seta þingsins milli allra flokka,
yrði að leita sem víðtækastrar
samstöðu í samræmi við þing-
styrk flokkanna.
Ef tillaga Alþýðuflokksins
hefði náð fram að ganga, hefði
sjalfstæðismaður orðið forseti
Sameinaðs þings, alþýðuflokks-
maður og alþýðubandalagsmaður
deildaforsetar, fyrsti varaforseti
Sameinaðs þings framsóknar-
maður o.s.frv. Sighvatur Björg-
vinsson, formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins sagði í gær um
tillöguna, að þingflokkur Alþýðu-
flokksins hefði talið eðlilegt, að
skipta forsetum þingsins bróður-
lega milli flokka eftir þingstyrk,
í ljósi þess að forsetar þingsins
væru kosnir án þess að meiri-
hluti væri á Alþingi.
Islenzka sendiráðið í Moskvu:
Hljóðnemum komið fyrir
í bíl sendiráðsritarans
MORGUN einn í ágúst s.l. þegar Sigríður Snævarr ritari í íslenzka
sendiráðinu í Moskvu kom út í bifreið sína veitt hún því athygli að
brotizt haíði vcrið inn í bifreiðina um nóttina og komið þar fyrir
leiðslum og hljóðnemum. Óli Örn Andreassen kvikmyndagerðar-
maður, sem fór á kvikmyndahátíð í Moskvu í ágúst og varð þá fyrir
þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að þurfa að dúsa eina nótt í
sovézku fangelsi vegna smávegis misfellu f vegabréfi, skoðaði
bifreið Sigríðar. Morgunblaðið bað hann að segja frá þessu íjiáli:
— Ég fór í eitt skipti upp í
bílinn til Sigríðar, en það er
splunkunýr Volvo, sem systir
hennar hafði komið með heim til
Moskvu skömmu áður. Ég varð
alveg undrandi þegar ég steig á
einhverja snúru á gólfinu og ég
spurði Sigríði hverju þetta sætti,
því að ég vissi ekki til þess að
snúrur væru á þessum stað í Volvo.
Sigríður sagði mér að einn
morguninn þegar hún fór að keyra
bílinn hefði hún tekið eftir snúrum
og öðrum búnaði sem ekki hefði
verið í bílnum kvöldið áður. Rúss-
arnir höfðu sem sagt komið um
nóttina, komizt á einhvern hátt inn
í bílinn og sett útbúnaðinn þar
upp. Ég fór auðvitað að kíkja betur
í kringum mig þegar Sigríður hafði
sagt mér þetta og mér tíl mikillar
furðu sá ég snúrur og hljóðnema
Sigríóur öli örn
hér og þar í bílnum, í mælaborðinu
og víðar. Þetta var svo klaufalega
sett upp að hvert barn hlaut að
taka eftir því en ég tel líklegt að
þeir hafi gert það með ásettu ráði.
Ég tel líklegast að kerfið sé a.m.k.
tvöfalt, hluti þess eigi að sjást og
þá væntanlega fjarlægjast en ann-
ar hluti sé rækilega falinn. Sig-
ríður tók sígarettukveikjarann út
og sýndi mér hann og þar var
hljóðnemi.
Hannes Jónsson sendiherra var
á íslandi þegar búnaðurinn var
settur í bifreið Sigríðar og vildi
hún ekkert gera í málinu fyrr en
hann kæmi aftur til Moskvu. Hún
gerði nú hálfpartinn grín að þessu
og sagðist stundum blóta Rússum
hressilega á íslenzku í tækin og
láta þeim eftir að þýða orðbragðið,
sagði Óli Örn Andreassen.
Hann sagði að lokum að þetta
væru ekki einu raunir Sigríðar
vegna bílsins því að eina nóttina
var ekið utan í bílinn, þar sem
hann stóð við sendiráðið og var
hann skemmdur talsvert. Hefur
hún enga hugmynd um það hver
tjóninu olli.