Morgunblaðið - 30.10.1979, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 30. OKTÓBER 1979
23
Góð vörn en
sóknin í moium
ÍSLENDINGAR ok írar léku á
laugardag sinn annan landsleik í
keppnisferð íranna hingað til
lands og var að þessu sinni leikið
i Laugardalshöll. íslendingar
unnu nauman sigur i afar slökum
leik, 58:56, eftir að írar höfðu
leitt leikinn i hálfleik 33:28.
íslenzka landsliðið var að þessu
sinni mun lakara en í leiknum í
Njarðvík kvöldið áður sem bezt
sést á því að það skoraði nú 50
ísland — írland
58:56
stigum færra en þá! Voru menn
sammála um það að íslenzka
körfuknattleikslandsliðið hefði
ekki sýnt jafn slakan sóknarleik í
mörg herrans ár og það er eflaust
sjaldgæft að vinna landsleik á 58
stigum. En það voru einnig já-
kvæðar hliðar á þessum landsleik.
Varnarleikurinn var oft mjög góð-
ur og beztur þegar mest á reið í
lokin og það var fyrst og fremst
varnarleiknum að þakka að sigur
vannst í þessum leik.
Leikurinn byrjaði mjög rólega.
Irarnir leiddu framan af en þrjár
körfur í röð frá Símoni Ólafssyni
löguðu stöðuna. Þegar 10 mínútur
voru liðnar af leiknum var staðan
14:12 íslandi í hag, ótrúlega lágt
skor. Sama deyfðin hélt áfram en
undir lok fyrri hálfleiks var eins
og leikmenn beggja liða vöknuðu
af værum svefni því að þeir tóku
þá góðan sprett og lifnaði þá
aðeins yfir áhorfendum. Staðan í
hálfleik var 33:28 írum í vil.
I seinni hálfleiknum skiptust
liðin á um forystuna en munurinn
var aldrei mikill enda lítið skorað.
Þegar tvær mínútur voru til
leiksloka var staðan 56:54 Irum í
vil en fyrirliði íslenzka liðsins
Kristinn Jörundsson sá um að
tryggja íslandi sigur í þessum
landsleik með tveimur síðustu
körfum leiksins, sem hann skoraði
með miklum glæsibrag.
íslenzka liðið á aðeins hrós
skilið fyrir varnarleikinn að þessu
sinni. Vörnin var mjög hreyfanleg
og hún gaf írsku leikmönnunum
lítinn tíma til þess að athafna sig
og undir körfunni var Símon
Ólafsson í miklum ham og hirti
flest fráköst. Símon var beztur í
íslenzka liðinu ásamt Kristni Jör-
undssyni og Jóni Sigurðssyni.
írska landsliðið virðist ekki
líklegt til stórræða ef marka má
leik þess á laugardaginn. Lang-
bezti maður liðsins var Martin
Grennell.
STIG ÍSLANDS: Kristinn Jör-
undsson 12, Jón Sigurðsson 12,
Símon Ólafsson 10, Gunnar Þor-
varðarson 8, Torfi Magnússon 8,
Kolbeinn Kristinsson 4, Ríkharður
Hrafnkelsson 2, Þorvaldur Geirs-
son 2.
STIG ÍRLANDS: Martin Grennell
16, Andy Houlihan 12, Owen
McOwen 9, Paudiw O’Connor 6,
Marty White 6, John Kennedy 4,
Michael Meaney 2, John O’Connor
1, Ken Mclntyre 1.
Dómarar voru Þráinn Skúlason
og íri að nafni Treacy. Þráinn
dæmdi mjög vel en írinn var aftur
á móti mjög hlutdrægur. Orkuðu
margir dómar tvímælis og það var
áberandi að þegar hallaði á landa
hans í leiknum dæmdi hann bara
átta skref á íslenzka liðið!
- SS.
Hart barist í leik ísiendinga og ÍR á laugardag.
Heimsmet Petru
Schneider
AUSTUR-þýska stúlkan Petra
Schneider setti um helgina nýtt
heimsmet í 400 metra fjórsundi.
Sló hún met landa sins Ulriku
Tauber. Tími Schneider var
4:38,32 mínútur, eða 3,28 sekúnd-
um betri timi heldur en timi
Ulriku Tauber.
Petra Schneider er aðeins 15
ára gömul og talin bjartasta von
Austur-Þjóðverja i sundiþrótt-
inni um þessar mundir.
Sunfl ]
v..-.....-..............^
• Lykilmenn KR, Spóinn, Jón Sig. og Marwin Jackson, eru tilbúnir í slaginn og ætla
sér ekkert annað en sigur. Þeir bandarísku ætla sér meira að segja ekkert annað en
sjálfan Evrópubikarinn.
Evrópuslagur í
HöElinni í kvöld
— KR mætir franska liðinu Caen
KR LEIKUR í kvöld fyrri leik
sinn gegn franska meistaraliðinu
Caen í Evrópukeppni meistara-
liða í körfuknattleik. Hefst leik-
urinn klukkan 20.30. KR-ingar
gera sér nokkrar vonir um góðan
árangur i leik þessum þó að við
hörkulið sé að etja. Þrir stærstu
leikmenn Caen eru 2,08 og 2,07
metrar á hæð og flestir eru
leikmenn liðsins einhvers konar
landsliðsmenn, A-landsliðsmenn.
herlandsliðsmenn eða skólalands-
liðsmenn o.s.frv.
Einn Bandaríkjamaður er í liði
Caen, heitir hann Bob Miller og er
hann jafnframt mesti risinn. Ekki
nóg með að þrír leikmanna liðsins
séu 2,07-2,08 metrar, heldur eru
tveir 2,02 metra menn einnig í
liðinu og sá fimmti er 1,98.
Nafn
KR
Ágúst Lindal
Jón Sigurðsson fl.
Birgir Guðbjörnsson
Árni Guðmundsson
Gunnar Jóakimsson
Eirikur Jóhannesson
Geir Þorsteinsson
Þröstur Guðmundsson
Jackson, Marvin
Webster, Decarsta
Bjarni Jóhannesson
Garðar Jóhannsson
þjálfari: Gunnar Gunnarsson.
Þó að Frakkarnir hafi greini-
lega hæðarvinninginn, er ekki þar
með sagt að KR-ingar séu dvergar.
I liði þeirra verður langstærsti
leikmaðurinn á vellinum og er hér
að sjálfsögðu átt við Spóann,
Dakarsta Webster, en hann er 2.12
metrar á hæð. Marwin Jackson er
heldur enginn tittur, 2,02 metrar,
auk þess sem Garðar Jóhannsson
miðvörður er 2 metrar á hæð. Það
er því ólíklegt að Frakkarnir fái
að hafa allt eins og þeir óska eftir
í leiknum.
Vonir KR-inga í leiknum standa
mjög og falla með samvinnu
Bandaríkjamannanna tveggja í
liðinu, þeirra Websters og Jack-
sons. Þeir félagarnir hafa óspart
látið í ljós hversu ákveðnir þeir
séu í að sigra í leiknum og hversu
Aldur Staða
22 bakvörður
28 bakvörður
27 framherji
23 bakvörður
27 framherji
24 bakvörður
28 framherji
26 framherji
25 framherji
24 miðvörður
26 framherji
20 miðvörður
bjartsýnir á því að samvinna
þeirra verði árangursrík. „Að öðr-
um ólöstuðum, höfum við auk þess
einn leikmann sem myndi sóma
sér vel í hvaða liði sem er í
Bandaríkjunum, en það er Jón
Sigurðsson“, sagði Spóinn fyrir
stuttu á blaðamannafundi.
Vissulega má taka undir það, að
KR gæti velgt franska liðinu
verulega undir uggunum, en best
er þó að fullyrða sem minnst um
sigurhorfurnar, þar sem harla
lítið er vitað um þetta franska lið,
annað en að það hefur sigrað mörg
sterk lið á heimavelli sínum í fyrri
Evrópukeppnum, en reynst síðan
allt annað lið og veikara á útivelli.
Hér fer á eftir listi yfir leik-
menn beggja liða auk ýmissa
upplýsinga um hvern og einn.
Hæð Leikir Lands-
cm m. KR leikir
180 40
185 70 63
195 274 15
180 121
186 124
183 152
193 11 7
190 202 40 4
212 6
193 261 21
200 34 4
• Franska liðið Caen, sem mætir KR í Laugardalshöll í kvöld. Tekst KR að sigra?