Morgunblaðið - 14.02.1980, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 1980
3
Finnur Jónsson
heiðursfélagi ítölsku
akademíunnar
FINNUR Jónsson list-
málari hefur verið sæmd-
ur gullmedalíu ítölsku
akademíunnar og gerður
heiðursfélagi.
„Ég fékk tilkynningu
um það rétt fyrir jólin, að
þeir vildu heiðra mig á
þennan hátt,“ sagði Finn-
ur í samtali við Mbl. í
gær. „Ég gat ekki annað
en þegið þennan heiður,
en því miður gat ég ekki
farið til Ítalíu að taka við
þessu. Það varð úr að þeir
sendu mér bara medalí-
una og heiðursskjalið og
ég var að fá þetta í hendur
fyrir fjórum dögum.“
Finnur sagði, að Evr-
ópuráðið hefði haldið mál-
verkasýningu í Strassborg
1970, „Evrópa 1925“, og
átti Finnur tvær myndir á
þeirri sýningu. „Þessi sýn-
ing þótti heppnast ákaf-
lega vel og síðan hef ég
eiginlega verið bombard-
eraður með boðum um
sýningar hér og þar um
heiminn,“ sagði Finnur.
Finnur Jónsson
„Ég hef þó ákaflega lítið
getað sinnt þessu, en svo
kemur bara að því að einn
góðan veðurdag er maður
orðinn heiðursfélagi í
ítölsku akademíunni.
Svona atvik hlýja manni
ákaflega á efri árum.“
Steingrímur Hermannsson:
Reglur um þorsk-
veiði á þessu ári
verða athugaðar
STEINGRÍMUR Hermannsson
sjávarútvegsráðherra var í gær
spurður álits á þeim ummælum,
sem fram hafa komið í fjölmiðl-
um. að með loðnuveiðibanni nú
væri hluta flotans beint á þorsk-
veiðar. Svaraði Steingrímur að
þetta atriði hefði verið eitt af
mörgum, sem athugað hefði verið
áður en ákvörðun var tekin um
stöðvun loðnuveiðanna.
Hann sagðist ennfremur hafa í
huga að skoða þær reglur, sem
mótaðar hefðu verið um þorsk-
veiði á árinu. Einkum þyrfti
aukna samræmingu á milli
vinnslu og veiða svo aflinn nýttist
sem bezt. Sagði hann þá hugmynd
m.a. hafa heyrzt að lengja þann
tíma, sem fari í landanir úr
togurunum, þegar mestu aflahrot-
urnar væru. Þá þyrftu aðgerðir
stjórnvalda við takmarkanir á
veiðum að ákveðast fyrr en verið
hefði undanfarin ár.
Konu bjargað
úr höfninni
KONA um fimmtugt féll fram af
Ægisgarði í Reykjavík nokkru fyrir
klukkan 22 í fyrrakvöld. Vitni voru
að því er konan féll í höfnina og var
boðum komið snarlega til lögregl-
unnar. Erlendur Sveinsson varð-
stjóri á miðborgarstöð lögreglunnar
og ungur lögregiumaður, Haraldur
Þórðarson, komu brátt á staðinn.
Henti Haraldur sér í sjóinn og tókst
þeim að koma konunni upp á bryggj-
una aftur. Konan var orðin mjög
köld eftir veruna í ísköldum sjónum
og var hún flutt í skyndi á slysadeild
Borgarspítalans.
Lík stýrimannsins
fannst í höfninni
í Hull á mánudag
LIK Friðriks Ásmundssonar, stýri-
manns á Sigurbergi GK, fannst í
höfninni í Hull síðastliðinn mánu-
dag. Hann hvarf frá borði í lok
nóvembermánaðar og fannst lík
hans skammt frá þeim stað, þar sem
báturinn hafði legið.
Friðrik Ásmundsson var fæddur
20. marz 1930 og lætur eftir sig konu
og fjögur börn.
941 færri en
í janúar 79
NOKKRU færri farþegar komu
til landsins með skipum og flug-
vélum i síðasta mánuði, en í sama
mánuði í fyrra. Komu alls 4.444
farþegar til landsins í janúar, en
5.385 í janúar 1979 eða 941 fleiri.
íslendingar voru 2.453 og útlend-
ingar 1.991. í janúar í fyrra voru
íslendingar 2.885 og útlendingar
2.500.
Flestir erlendu farþeganna
komu frá Bandaríkjunum eða 948,
næstflestir eða 190 frá Bretlandi
og 146 komu frá Svíþjóð. Frá
Noregi komu 128, 125 frá Dan-
mörku og 90 frá Vestur—Þýzka-
landi. 39 farþegar komu frá Ástr-
alíu, 30 frá Ítalíu, 28 frá Finn-
landi, 25 frá Póllandi og 20 frá
Kanada. Frá eftirtöldum löndum
kom 1 farþegi frá hverju: Chile,
Columbía, Costa Rica, Grikklandi,
íran, ísrael, Tanzaníu, Túnis,
Tyrklandi, Uruguay og Venezuela.
Ummælin staðfesta
að ríkisstjórnin setur
traust sitt á VSÍ
— segir Þorsteinn Pálsson
framkvæmdastjóri VSÍ
„ÞETTA ER ekkert nýtt fyrir
okkur. Formaður Framsóknar-
flokksins hefur áður gefið sams
konar yfirlýsingu og þetta er
alveg í samræmi við það, sem við
höfum bent á,“ sagði Þorsteinn
Pálsson framkvæmdastjóri
Vinnuveitendasambands íslands,
er Mbl. leitaði álits hans á
ummælum Ragnars Arnalds fjár-
málaráðherra um að ekki sé
svigrúm til grunnkaupshækk-
ana.
„Mér sýnast þessir menn meta
efnahagsaðstæður mjög svipað og
við og niðurstaðan hlýtur því að
vera áþekk," sagði Þorsteinn. „Það
hlýtur að liggja í augum uppi, að
miðað við verðlagsforsendur og
gengisforsendur, sem ríkisstjórnin
setur, þá er ekki fyrir hendi neitt
svigrúm til aukningar kaupmátt-
ar. Þetta höfum við sagt okkar
viðsemjendum.
Við töldum okkur strax geta
lesið það út úr málefnasamningi
ríkisstjórnarinnar, að hún setti
allt sitt traust á að vinnuveitend-
ur semdu ekki um aukinn kaup-
mátt. Ummæli Ragnars Arnalds
staðfesta þetta.“
<7 Næst á A
dagskrá á
25 ára
1 afmælishátíð
i ÚTSÝNAR
er glæsileg
. ^ ( . I'
f
Valentíns-
hátíð
Ilótel Sögu. sunnudauskvold
17. fehriiar
ÍS* *' FjörogJt>
[0 Ferðavinningar
Glæsileg snyrti-, hár-
greiðslu- og tízkusýn-
ing fer fram meðan á
borðhaldi stendur:
Snyrtisýning — Bentína
Björgúlfsdóttir sýnir dag-
og kvöldförðun. Heims-
frægar snyrtivörur „JOZ-
ET“ frá Kanebo.
Hárgreiðslusýning —
Rannveig Guðlaugsdóttir
hárgreiðslumeistari —
Norðurlandameistari í
framúrstefnugreiðslu á
s.l. ári — sýnir ýmsar
tækifærisgreiðslur.
Tízkusýning — MODEL
79 sýna fatnað frá Vikt-
oríu og Herradeild P.Ó.
Myndasýning:
Ingólfur Guðbrandsson sýnir
nýja kvikmynd „FLORIDA
FUN“
Glæsilegt ferðabingó:
Útsýnarferðir að verðmæti 1
milljón.
Skemmtiatriði
Stjórnandi:
Ingólfur Guðbrandsson.
Kl. 19.00
HúsiÖ opnað — af-
hending ókeypis happ-
drœttismiöa (Útsýnar-
ferÖ o.fl.) og sala
bingóspjalda (vinn-
ingar 1 milljón)
Hressandi lystaukar á
börunum.
Tekiö á móti konum
meö blómagjöf frá
ÚTSYN.
Kl. 19.30
Kvöldverður hefst
stundvíslega.
Ljúffengur veizlu-
réttur: GIGOT D’AGN-
EAUAURORA
(sítrónukryddað
lambslæri meö fersku
grænmeti og tilheyr-
andi)
Verð aðeins kr.
5.500
Hér færðu
Útsýnar-
ferð í gjöf
á Valentín-
usardegi.
Feröaskrifstofan
ÚTSÝN
Borðapantanir
hjá yfirþjóni kl.
16—18 í dag. Símar
20221 og 25017.
í-.
&SS>> "
★ Diskótek:
Þorgeir Ástvaldsson kynnir. ^
★ Spurningaleikur:
Glæsileg verðlaun m.a. Útsýn-
arferð.
★ Aukaglaðningur:
Ókeypis sýnishorn hinna
heimsfrægu snyrtivara
„JOZET“ frá Kanebo.
★ Ferða-annáll
ÚTSÝNAR:
Allir gestir fá glæsilegt dagatal
Útsýnar með ferðaáætlun.
Ferðist ódýrt og vel 1980. —
Verðskrá liggur frammi.
★ FEGURÐ 1980 -
FORKEPPNI
Ungfrú ÚTSÝN 1980.
Ljósmyndafyrirsætur á aldr-
inum 17—25 ára verða valdar
úr hópi gesta. 10—20 stúlkur fá
ferðaverðlaun: ókeypis Útsýn-
arferð.
Valin verða: dama og herra
kvöldsins — ferðaverðlaun.